Helgarpósturinn - 26.09.1980, Page 1

Helgarpósturinn - 26.09.1980, Page 1
Náttúran — hvorki nakin né í skautbúningi? Rætt við Einar Má Guðmundsson, skáld Ætli ég sé ekki sérvitur útúr- boringur” Páll Líndal í Helgarpósts- viðtali árgangur ósturínn. Lausasöluverð kr. 400 Sími 81866 og 14900. Harðneita geðþótta- handtökum lögreglu —Ef boigarar hindra lögregíuna i starfi með beinum eða óbeintim hætti og jafnframt ef lögreglunni þykir sem ákveðnir ntenn séu að æsa fólk upp gegn lögreglunni, þá er lögreglunni heimilt að handtaka þá sem þessa iðju stunda.— segir Bjarki Elias- son yfirlögregluþjónn efnislega i Yfirheyrslu Helgarpóstsins. Hann neitar þvi jafnframt að lög- reglumenn teygi þessa heimild og togiá þann hátt, að lögreglumenn handtaki menn eftir geðþótta og beri því vðið að þeir hafi verið lögreglunni til hindrunar i starfi. Fyrir þremur vikum var ein- mitt blaðamaður Helgarpóstsins, Guðlaugur Bergmundsson, hand- tekinn á þeim forsendum sem að ofan greinir. Ýmsir telja hins vegar að þarna hafi lögreglan misnotað vald sitt og i stundar- æsingi handtekið Guðlaug og siðan notað ofangreinda klásúlu til að breiða yfir gerð mistök. Talsvert mun vera um þaö, að menn séu handteknir á sömu for- sendum og blaðamaöur Helgar- póstsins og er Bjarki þauJspurður um stöðu borgara gagnvart lög- reglunni i þessu sambandi og einnig um ýmsa þá gagnrýni sem lögreglumenn verða fyrir varð- andi störf sin. Hífopp, er Heklu- Pólitískur flóttamaður — Pólitískur fangi © Pétur Gunnarsson rithöfundur skrifar um Gervasoni málið AUGU HEIMSINS Helgarpósturinn birtir kafla úr siðasta bindi æskulýsingabálks Halldórs Laxness — Grikklandsárinu, sem út kemur í næsta mánuði Augu heimsins neínist kal'li i fjórða og siðasta bindi þess bálks æskulýsinga sem Halldór Lax- ness heíur verið að skrifa á undanförnum árum, og birtist þessikafli i Helgarpóstinum i dag með leyfi höfundar og útgefanda. Þetta siðasta bindi nefnir Halldór Grikklandsárið og hefst þar sem höfundur er staddur i Kaup- mannahöfn og fer þaðan til Is- lands með hinu nýja og stolta flaggskipi — Gullfossi. Siðan lýsir bókin fimmtán mánaða timabili er höfundur dvelst hér heima uns hann heldur aftur til meginlands Evrópu. Bókinni lýkur i Þýska- landi. Halldór hefur kallað þessar æskulýsingabæku ritgerðarskáld sögur, eins konar blending af skáldsögu og ritgerð. „Þessi bálkur fer mjög viða nærri veru- leikanum. Þar eru margir menn og staðir sem allir eru sannsögu- legir. Þeir eru hins vegar skoðað- ir i persónulegu ljósi — gegnum endurminningu höfundarins”, segir Halldór Laxness sjálfur. „Frásögnin er þvi lituð af skap- lyndi hans sjálfs og lýsir þvi ef til vill fyrstog fremst. Inn i blandast einnig ýmsar uppákomur sem ekki varða ævisögu hans beint, heldur málefni sem hann finnur sig knúinn að taka afstöðu til”. Grikklandsárið kemur út i næsta mánuði, © Gvendur við??T „Hifopp,. er Heklu-Gvendur við?" Kallinum á Stokkseyri. sem sagði þetta þegar hann hringdi á I Selfoss á fyrstu árum simans, liefur sjálfsagt þótt siminn liið mesta undratæki, og von að hann liefði ekki allar umgengnisvenjur við hanii á hreinu. Nú er svo komið, að gamli góði sveitasiminn með sveifinni er orðinn úrelt þing, og aðeins f jögur til fimm prósent simnotenda þurfa enn að notast ið hann. Þetta er allt orðið sjálfvirkt, ig verður enn sjálfvirkara innan skamms, þegar verður hægt að hringja beint tilútlanda. En það eru ekki allir ánægðir þótt þeir séu komnir með sjálf- virkan sima. Hann er sumum dýrari en öðrum, og enn aðrir kvarla yfir þvi, að ekki sé hægt að fullnýta þá möguleika sem hann gefur. Og það er heldur ekki að undra þótt yfirmanni umsvifa- mikillar rikisstofnunar úti á landi liki illa að vera meðal þessara fjögurra til fimm prósenta og þurfi að sitja yfir lokuðum sima á miðium vinnudegi. Heigarpósturinn litur á ýmsar hliðar á simamálinu i dag. Þótl trúsöfnuðir sem standa utan þjóðkirkjunnar fái enga styrki af opinberum sjóðum virðist að minnsta kosti suma þeirra ekki skorta fé. Algengast er. að safnaðarmeðlimir greiði tiund af tekjum sinum til safn- aðarins. Frjáls framlög eru lika nokkur, og sumir söfnuðirnir að miivsta kosti eiga nokkuð greiðan aðgang að fé hjá erlendum systur- eða móðursamtökum. En að sjálfsögðu leggur fólk i þessum söfnuðum fram ómælda vinnu endurgjaldslaust. Mest er veltan liklega hjá Sjö- unda dags Aðventistum. Ef rekstur þeirra á Hliðardalsskóla, barnaskóla i Reykjavik og bóka- útgáfu er tekinn saman var velt- an i fyrra um hálfur milljarður króna. Þar af innheimtust 70—80 milljónir króna i tiund frá safnaðarfólki, en i söfnuðinum eru 665 manns samkvæmt upplýs- ingum Hagstofunnar. Þá má nefna, að Bahai söfn- uðurinn á Islandi hefur fengið 20 þúsund kanadíska dollara til að byggja musteri, sem raunar er ekki byrjað á, og Mormónar á Is- landi fengu á þessu ári 122 millj- ónir króna til að kaupa hús við Skólavörðustig frá móðursam- tökunum i Utah i Bandarikjunum. Þetta og ýmislegt annað um starfsértrúarsafnaða á Islandi og trúarleg viðhorf þeirra er til um- fjöllunar i Helgarpóstinum i dag. Við leitum lika álits Sigurbjörns Einarssonar biskups á þessum söfnuðum. Tækiiistríð í prentiðnaði Forsetaspekúlasjónir í ASÍ ■ Bardaginn um Persaflóa Innlend yfirsýn Hákarl Erlend yfirsýn jarki Eliasson

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.