Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 26.09.1980, Qupperneq 9

Helgarpósturinn - 26.09.1980, Qupperneq 9
9 halgarpncztl irinn Föstudagur 26. september 1980 heimilísfnöurinn Kettir og Það var svosem auðvitað. Það var ekki fyrr búið að opna sim- ann, en Arni helgarpóstur hringdi og vildi ólmur fá Hring- borð. Hvenær ætla ég að læra? — Ekki svo að skilja, það er víst af nógu að taka þessa dagana i slika pistla - prentaraverkfallið er nærtækt hugðarefni, Flug- leiðamálið sivinsælt og hermdarverk (eða voru það skemmdarverk?) unglinga i miðbænum ekki lakari til umfjöllunar. Svo má alltaf nefna menninguna, lifsbaráttu einstæðra mæðra, kvenna- baráttu og menntamálaráð- herra, að ekki sé minnst á ástandið i skólamálum lands- byggðarinnar, nær oe fiær Reykjavik. Og svo er það sláturtiðin, hækkandi verð á landbúnaðarafurðum, eða þá bara haustið. — En þó þetta sé allt samangottog blessað, þá er ég samt að hugsa um að skrifa um ketti. Ég sá einu sinni brandara i blaði. Það var mynd af manni, sem hafði ketti allstaðar i kring- um sig — á lærunum, i fanginu, á öxlunum, uppá stólnum sem hann sat i, undir áðurnefndum stól, undir borðum, uppá borðum, i gluggakistunni, á gólfinu og yfirleitt hvar sem þeir komust fyrir. Hann sagði við vin sinn sem sat gegnt hon- um eitthvað á þessa leið: „Það byrjaði allt með þvi að ég fékk mér einn litinn kettling...” ég hló. Það var áður en ég fékk Lukku. Hver Lukka er? Það er von þið spyrjið. Fyrir hálfu öðru ári siðan var systur minni gefinn kettlingur. Það var litið, fallegt dýr, brönd- ótt og bráðandskotigreind læða. Mamma þróaði þegar i stað með sér ofnæmi fyrir köttum, einsog mæðra er siður. (Það er ótrúlegt en satt, að 90% mæðra vinafólks mins hafa ofnæmi fyrir köttum. Sumar þola ekki hárin, aðrar eru sannfærðar um að kettir séu ámóta blóðþyrst óargadýr og Þrastavinafélagið heldur fram, enn aðrar trúa þvi af hjartans sannfæringu, að það sé óþrifnaður af köttum. Hvernig þær hugsa sér að lýs- ingarorðið^kattþrifinn” hafi komið til veit ég ekki. En kött vilja þær að minnsta kosti ekki inná heimilið.) Ég hafði hins vegar ekki vit á að fá ofnæmi. Kisa flutti inn og var skirð Lukka, svona til að vita hvort hún lokkaði ekki að nöfnu sina. Ognú eru kettirnir orðnir fjórir, Lukka, dóttir hennar Ari og tveir synir. Kettir eru frjósöm dýr, frjórri en ég hélt. Lukka er búin að eignast þrettán kettlinga sföan í mars, og kunningjamarkaður- inn þarmeð mettur i bili. Nema auðvitað heimilin þar sem allar þessar ofnæmu mæður búa. Jú, og á einum stað er raunar faðir með ámóta kvilla — sá hótaði að flytja á heilsuhælið i Hveragerði fyrir lifstið, ef það kæmi köttur inn fyrir hans dyr. Hvort það var hans lifstið eða kattarins fylgdi ekki sögunni, en konunni hans fannst vist of langt að hafa hann i tuttugu ár á heilsuhæli — það er nefnilega kattarævin, ef ekkert óvænt gerist. Annars er nokkuð til i þvi, að kettir séu „blóðþyrst óarga- dýr”, mikil ósköp. Læðurnar eru að minnsta kosti alltaf að flytja heim bráð: plastpoka, gras, ýsuflök, kartöflur og ána- maðka. (Það'ersú yngri sem kemur með maökana. Ég hef grun um, aö hún sé nærsýn — hún er þannig til augnanna, blessuð, og sér sjálfsagt ekki aðra bráð en þá sem næst henni er. Og þið ættuð bara að sjá til hennar, þegar hún er að veiða köngulær!) Litlu kvikindin (kettlingarnir tveir úr siðasta holli) veiöa hinsvegar hvað sem er: heimilisfólk og gesti, borðdúka, pottaplöntur , dúkkurnar dóttur minnar og önnur leikföng, tóma sigarettu- pakka, skrautstráin min og svo gjóa þeir áfergjulega augunum á ljósakrónuna i stofunni, en ná henni sem betur fer ekki ennþá hvaðsem verður. En hún er vist það eina, sem er nokkum veginn öruggt fyrir þeim. Það gefur þvi auga leið, að það er ekki mikill heimilis- friðurinn, að minnsta kosti meðan verið er að ala yngstu fyrirbærin upp. Samt er erfitt að imynda sér heimilið kattlaust og það verður víst áreiðanlega tómlegt, þegar þeir flytja. Svo er búið að gera einhverja aðgerð á mæðgunum og þær eignast ekki fleiri kettlinga. Æjá. — En kannski væri hægt að fá einn gefins svona seinna... Heimir Pálsson— Hrafn Gunnlaugsson — Jónas Jónasson — Magnea J. Matthias- dóttir— Páll Heiðar Jónsson —Steinunn Sigurðardóttir —Þráinn Bertelsson Hringborðið I dag skrlfar Magnea J. AAatthiasdóttir Sértrúarsöfnuöir 3 höfðu einstakir Islendingar tekið Mormónatrú. Til að fjármagna kirkjustarfið greiða menn tiund af tekjum sinum, án þess þö að þeim sé gert það skylt, og hvað hver og einn greiðir er trúnaðar- mál. Til stærri framkvæmda koma framlög frá höfuðstöðvum kirkjunnar í Salt Lake City, Utah i Bandarikjunum. tslenski söfnuðurinn hefur fengið slika styrki til að greiða húsaleigu og til ýmissa smærri kaupa, og i vor fékk hann 122 milljónir króna til að kaupa húseignina að Skóla- vörðustig 6. Engir prestar eru meðal Mor- móna, en þeir halda svonefndar sakramentissamkomur þar sem allir fá tækifæri til að þjóna, hver eftir sinum vilja. Sumir kenna, aðrirhalda ræður eða prédikanir. Yfirmaður safnaðarins er nefnd- ur greinarforseti, en hann þiggur ekki laun frekar en aörir i söfnuð- inum. Þó eru greidd laun fyrir ákveðin störf. Þannig vinnur Sveinbjörg Guðmundsdóttir á skrifstofu safnaðarins, meðal annars við þýðingar. Sú vinna og prentkostnaður eru greidd með peningum sem koma erlendis frá. Þeir leggja áherslu á að vera „góðirborgarar” og hlýða settum lögum, þó með þeim fyrirvara að þau striði ekki gegn sannfæringu þeirra. Þannig eru þeir t.d. á móti frjálsum fóstureyðingum. Mor- mónar lita meö velþóknun á jafn- rétti kynjanna, en álita þó að kjarnafjölskyldan sé hornsteinn samfélagsins og hlutverk kon- unnar sé að gæta þess. Hinsvegar telja þeir nauðsynlegt að hún afli sér menntunar, helst fyrir hjóna- bandið, fyrst og fremst til að geta séð sér og börnum sinum far- borða falli eiginmaðurinn frá, og þegarbömin erufarin aðheiman. — Þið gerir miklar siðferði- legar kröfur til meðlima kirkju ykkar — neytið m.a. ekki áfeng- is. „Já, við neytum engra vimu- gjafa vegna þess að þeir eru vanabindandi og brjóta niður likamann. Viö lítum nefnilega á likamann sem heilagan bústað guðs.” — Litið þið niöur á annað fólk, sem tilheyrir ekki kirkju ykkar? „Nei, alls ekki. 1 öllum kirkjum er fólginn einhver sannleikur, en þar sem hinn eini sannleikur er aðeinseinn getur hann ekki fund- ist i öllum kirkjum, og þvi getur aðeins ein kirkja verið kirkja Krists.” — Þennan sannleika hafið þið fundið? — ,,Já, við trúum að við höfum gert það. Aðventistar: Ekki langt i dómsdag „1 Aðventistasöfnuðinum hér á Islandi eru um 500 manns og fer hægt og bltandi fjölgandi með ári hverju. Aðventistar eru kristnir og trúa á bibliuna og það sem i henni stendur”, sögðu þeirErling B. Snorrason, formaður safnaöarins og Ellert Jóhannsson gjaldkeri. Sjöunda dags aðventistar halda laugardaginn heilagan og vitna þar til bibliunnar þar sem segir, að sjöundi dagur vikunnr sé hvlldardagur. Og þar sem laugardagur sé sfðasti dagur vik- unnr skuli hann vera hvildar- dagurinn. „Við tilbiðjum guð auðvitað alla daga, og I hugum ýmissa er það ef tií vill ekki stórt atriði hvort hvildardagurinn er á laugardegi eða sunnudegi. Það finnst okkur hinsvegar. Að halda hvildardaginn á sunnudegi er eins og að flagga sænska fánanum á 17. júni hér á Islandi”. Erling og Jóhann sögðust geta skrifað undir nánast hvert orð sem Lúther boðaði og væru sam- mála mótmælendum um flest atriði trúarkenningarinnar. Hins- vegar væri eðlismunur á túlkun aðventista og mótmælenda á ýmsum atriðum bibliunnar. — „Viö litum svo á, að þegar maðurinn er dáinn, þá sé hann dáinn. Við trúum ekki á sálna- flakk eða tviskiptingu mannsins i sál og likama, teljum það sótt til heiðni. En við teljum að menn hvili I gröf inni og risi upp á efsta degi, það er á dómsdegi. — Er dómsdagur i' nánd? „Þaö var ekki langt i hann. Við teljum, að frá 1844 hafi mann- kynið lifaö á hinum siðustu dögum, sem minnst er á i bibli- unni. Þarer þeim lýst meðal ann- ars á þennan hátt: ...þá munu koma örðugar tfðir, þvi mennirnir verða sérgóðir, fé- gjarnir, raupsamir, hrokafullir, Mormónar hafa skrifstofu I gömlu húsi við Skóla- vörðustig. Þeir hafa I hyggju að reisa kapellu á Nónshæö i Kópa- vogi, en af þvl hefur ekki orðið enn. lastm ælendur, foreldrum óhiýðnir, vanþakklátir, van- heilagir, kærleikslausir, óhaldin- orðir, rógberandi, bindindis- lausir, grimmir, ekki elskandi þaösem gott er, sviksamir, fram- hleypnir, ofmetnaðarfullir, elsk- andi munaðarlifiö meira en guð og hafa á sér yfirskin guðhræðsl- unnar en afneita krafti hennar”. Þessir dagar standa nú yfir og skoðun okkar er, að lifrænn heimur hafi staðið yfir i sex þúsund ár og standi ekki lengi enn. Dómsdagur sé nær en margur heldur”. — Hverjir hljóta náð guðs á dómsdegi? „Þeir sem afneita Kristi og hafna röddu anda hans verða af- máðir og hljóta eilifan dauða. Hinir, sem hafa verið trúaðir Kristi f hjarta slnu munu i hinni fyrstu upprisu verða hafnir upp tii himna og vera þar I þúsund ár, en síðan búa á nýrri, skapaðri jörðinni þar sem syndin og spill- ingin verður óþekkt og fullkomið réttlæti rlkir”. — Hverjir frelsast? Aðeins þið, hinir rétttrúuðu? „Guðá slna einlægu fylgjendur utan raða Aðventista. En þegar menn hinsvegar sjá hvað rétt er samkvæmt guðs orði en hafna þvi geta þeir ekki talist einlægir fylgjendur. Það er kærleikurinn og trúin á guð og hollustu við Bibliuna, sem tryggir mönnum frelsun”. — Þið smakkið ekki vin. Hvar er sllkt vínbann að sjá I Bibli- unni? Er ekki þvert á móti talað um, að JesUs hafi breytt vatní I vin i Kanan? „Biblian segir að menn eigi að halda dómgreind sinni skertri og allir vita, að sterkir drykkir slæva dómgreindina. Við litum svo á, að létt vín eða ávaxtavin hafi verið i Kanan, og Jesús hafi brevtt vatni i óáfengt vin”. — Hvað með tóbak, blóferðir og annaö sem þiö teljiö ókristi- legt? „Biblian leggur mikla áherslu á, að líkaminn sé I góðu lagi og maðurinn ber helga skyldu gagn- vart likama sinum. Hvað bió- feröum viðkemur teljum viö, að fyrst og fremst sé boðið upp á~ myndir sem sýna siðleysi og glæpi”. — Hvað um sjónvarp? „Við horfum á það en veljum úr og horfum ekki á þaö sem má telja ókristilegt”. — Hvernig er fjárhag ykkar varið? „Við öflum tekna þannig að hver meðlimur greiðir tiund af tekjum slnum, og frjáls framlög eru snar þáttur i tekjuöflun okkar. Við starfrækjum Hliðar- dalsskóla og barnaskóla fyrir skólagjöld og fé frá söfnuöinum. Við höfum lika bókaútgáfu, og heildar veltan er liklega um hálf- ur milljarður. Þar af fara 20—25 milljónir I laun starfsmanna á okkar vegum. tir tiundinni fáum við 70—80 milljónir og svipaða upphæö með frjálsum fram- lögum”. Pólitískur flóttamaður Pólitískur 23. september, 1980, sukku fs- lensk stjórnvöld i áður óþekkta dýpt. Spurt var: hvað á að gera við mann sem stendur á ystu nöf? Svar dómsmálaráðuneytisins: hrinda honum fram af. Patrick Gervasoni er á flótta undan herdómstóli fyrir að neita að gegna herskyldu. A Islandi er hvorki herdómstóll né herskylda; við áfellumst hann ekki fyrir neitt; i okkar augum er hann fórnarlamb stjórnkerfis og það stendur engum nær en okkur að viðurkenna andóf hans sem póli- tiskt og veita honum hæli sem pólitiskum flóttamanni. Hversvegna I dauðnum var slikum manni synjað um hæli, gengiö i skitverkin fyrir frönsk yfirvöld og boðist til að flytja hann hreppaflutningi i hendur of- sækjenda sinna? Gera hann að pólitískum fanga. Úrskurðurinn hékk á einu at- riði: flóttamanninum haföi láðst að framvisa réttum skilrikjum viö komuna til Islands! Nú eru forréttindi flóttamanna (þau einu), að þeir eru ekki með pappirana I lagi, þeir eru komnir til að fá þá i lag. Patrick Gerva- soni, þessi kurteisi ljúflingur, hefurháð baráttu við stjórnvöld i heimalandi sinu á annan áratug, farið árum saman huldu höfði og hefur ekki heimilisfang utan þetta sem biður hans verði honum snúið aftur til Frakklands, -fangelsi. Hann er ekki kominn hingað fyrir velheppnaðan ferða- mannaáróður erlendis, heldur af þvi að á Islandi er hann ekki frekarsekurenmaður sem neitar að borða skyr. Fái Patrick Gervasoni ekki hæli sem pólitiskur flóttamaður á Islandi, er hverju mannsbarni ljóst að þeir póli.tisku flóttamenn sem hér hafa fengiö samastað, nú siðast Kovalenko frá Sovétrikj- unum, voru ekki pólitlskir heldur flokkspólitisk andlitsiyfting, m.a. áflokki núverandi dómsmálaráð- herra. Fái Patrick Gervasoni alls ekkert hæli, þá er það mannúðar- leysi sem tonn af skriffinnsku fá ekki réttlætt. Verði honum snúið til Danmerkur, sem hefur gagn- kvæman samning við Frakka um framvisun sakamanna, er um fólskubragð að ræða sem mun aldrei fymast og verður með öll- um tiltækum ráðum að afstýra. Patrick Gervasoni vekur ekki bara aðdáun fyrir haröfylgi og seiglu, heldur fyrir að standa uppréttur og óbrjálaður eftir þá svikamyllumaskinu sem hann hefur gengiö I gegnum. Það er heiður.það er skylda, það er ekki stætt á öðru en bjóða hann vel- kominn. LEIÐRÉTTING Á BROTTFALLI t sióasta Helgarpósti féll brott af einhverjum óskýranlegum ástæð- um niðuriag á umsögn um bók Stefáns Unnsteinssonar Stattu þig drengur. Þetta niðurlag er meö öllu glatað en ég hef reynt að rifja það upp eftir minni og fer sú upp- rifjun hér á eftir: „Og þá er komið að megin- spurningunni sem sett er fram I þessari bók: Hvað er hægt að fá taugaveikluð ungmenni til að segja um sjálft sig með leiðandi spurningum eftir margra mánaða einangrun? Við höfum fyrir okkur allt of mörg söguleg dæmi um að fólk hafi játað á sig lognar sakir til þess að leiða spurninguna hjá okkur með öllu. Hvað raunverulega gerðist veit maður ekki en situr uppi með ef- ann um að ekki séu öll kurl kom- inn til grafar eftir að hafa lesið bókina. I þessari bók er leitast við að útskýra örlög einstaklings, en hún erei síður sáifræðileg og félags- fræöileg umfjöllun á samfélags- fyrirbæri sem yfirleitt kemur ekki nema með mjög neikvæðum Úr afkimum þjóðfélagsins hætti i dagsljósið. Stefán Unn- steinsson kemst mjög vel frá þessu verki. Hann stenst fyllilega þá freistingu að velta sér upp úr mannhvarfsmálunum og öll um- fjöllun hans einkennist af yfirveg- aðri íhygli. Þessi bók er ekki unn- in i æsifréttastil eins og maður óttaðist fyrirfram, heldur er reynt i fullri alvöru að ieiða okkur til skilnings á fyrirbærinu af- brotamaður og samfélaginu sem fóstrar hann”. G.Ast.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.