Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 26.09.1980, Qupperneq 15

Helgarpósturinn - 26.09.1980, Qupperneq 15
—helgarpásturinn.. Föstudagur 26. september 1980 15 Nýr áfangi fyrir stafni.næstur í nýrri sókn*. Haf skip hf .tekur upp Árangur sem skilar sér til allra___ Hafskip hf. hefur nú haldið uppi siglingum til meginlandsins í yfir 20 ár, til hafna á Norður- löndum, við Norðursjó og við Eystrasalt. Félagið heldur nú uppi áætlunarferðum til flestra hafna Evrópu. Pótt stundum hafi blásið á móti hefur félagið staðið af sér alla sjóa og tekist að tryggja heilbrigða samkeppni í vöruflutningum á þessum leiðum. Einnig hefur félaginu tekist að innleiða nýja tækni sem einfaldar störfin, eykur öryggi og dregur úr kostnaði. Sá árangur kemur inn- og út- flytjendum til góða með ýmsum hætti og hefur já- kvæð áhrif á vöruveró og hag alls almennings. Nú valkostur í siglingum til Vesturheims koma í veg fyrir tíðar hækkanir farmgjaldataxta og tryggja aukið viðskiptaöryggi allra inn- og útflytj- enda. í Bandaríkjunum gilda ströng lög um skrán- ingu slíkra taxta og þeim verður ekki breytt nema með fyrirvara. í meginatriðum býður félagið því taxta þá, sem gildandi eru á þessari flutningaleið. Hafskip býður því stórum sem smáum flutnings- aðilum þjónustu sína — hvort sem um er er að ræða búslóð einstaklings eða stóra gáma inn- og út- flytjenda. Fái Hafskip hf. byr á hinni nýju sigl- ingleið getur það gefið fjölda flutningsaðila vind í seglin og haft jákvæð áhrif á þ jóðarhag. Nýtt átak er nú framundan í starfi Hafskips hf., f astar Ameríkusiglingar. Á bak við þá ákvörðun eru óskir margra viðskiptavina félagsins og hluthafa. öðrum skipafélögum hefur mistekist að halda uppi sam- keppni á þessari leið. Hafskip hf. ætlar sér að breyta þeirri stöðu. Ekki með óraunsæju farmgjaldastríði — heldur heiðarlegri samkeppni sem felur í sér aukna þjónustu og tryggir að allir farmflytjendur sitja við sama borð. Takist vel til, Tilboð um þátttöku þína Hlutafjárútboð_________ Hafskip er nú vel í stakk búið til að takast á við ný verkefni og byggja upp skipaflota sem fullnægir kröfum nútímans um hraða og fullkomna tækni. Á liðlega einu ári hafa hátt í þriðja hundrað nýjir hluthafa gengið til liðs við félagið og nemur hlutafé þess nú um 700 milljónum króna. Áformað er að bjóða viðbótarhlutafé 200 milljónir króna á tíma- bilinu fram til aðalfundar félagsins í marz 1981. Þeir sem vilja eiga hlut að nýrri sókn og taka þátt í upp- byggingu þróttmikils skipafélags, sem hefur hlut- verður hægt að verki að gegna, eru vinsamlega beðnir að hafa samband við skrifstofu okkar. - 5* Hafskip hf. Hafnarhúsinu við Tryggvagötu Sími 21160

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.