Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 27.03.1981, Qupperneq 14

Helgarpósturinn - 27.03.1981, Qupperneq 14
Sild, lax og sveppir á finnskan Hclgarrétturinn kemur að þessu sinni frá Ann Sandelin, sem nýlega tók til starfa sem forstöðumaður Norræna húss- ins. Að sjálfsögðu er það al- finnskur matursem hún kynnir okkur — nema hvað salatið er rússneskt að uppruna. Þá kemur fyrst sildarréttur, sem allar húsmæður í Finnlandi kunna að búa til, en er ófáan- legur á matsölustöðum. Giasmástar sill/Lasimestarin silli 1—2 saltsildar (heitar) 1 dl sykur 2 dl edik 3 lárviðarlauf 10 korn kryddpipar 1 stór gulrót (þunnar sneiðar) 1 stk. rauðlaukur (þunnar sneiðar) Sildin er lögð i bleyti eina nótt. Sykurinn og edikið látið sjóða upp ásamt larviðarlaufunum og piparnum, látið kólna. Sildin er bútuð iu.þ.b. 1—1 l/2cm þykkar sneiðar. Sildinni er raðað i krukku og látið skiptast á sildarlag, gulrótarlag og lauk- lag. Leginum er hellt yfir, látið standa i einn sólarhring. Sumir nota lika örþunnar sneiðar af piparrót, sem þeir leggja efst. Borið fram meö kartöflum eða rúgbrauði (eða hvorutveggja) Aðalrétturinn: Juujárven Lohi (iax frá Juuvatni) Ann Sandelin, forstöðumaður Norræna hússins. 1 kg. laxflak 2 tsk salt 50—100 gr smjör 4—6 dl rjómabland Laxinn er skorinn i þunnar langar sneiðar og þeim raðað i grunnt, eldfast fat, sem hefur verið smurt innan með smjöri. Rjomablandinu er hellt yfir, svo það næstum fljóti yfir laxinn. Smjörið er skorið i bita og dreift á. Bakist við 200—250 gráður i 20—30 minútur og borið fram með ofnsteiktum kartöflum eða kartöflumús og blönduðu salati (tómatar, salat, gUrkur) 1 stað- inn fyrir lax má nota silung. Og ef menn vilja eftirrétt má reyna sveppasalat Vieni Sacaatti: 1 litri sveppir (nýir, villtir, má vera hvaða tegund sem er) 1 meðalstór laukur 1 dl rjómi svartur pipar graslaukur eða steinselja. Sveppirnir eru saxaðir frekar fint, og sömuleiðis laukurinn. Þessu er siðan blandað saman, kryddað með piparnum og ör- litlu af salti ef vill. Hálfþeytið rjómann og blandið þessu saman við hann, og notið siðan graslaukinn eða steinseljuna til að skreyta. Borið fram með rúgbrauði. .. Galdrakarlar Diskótek interRent car rental Bílaleiga Akureyrar Akureyri Reykjavik TRYGGVABRAUT 14 SKEIFAN 9 S.21715 23515 S.31615 06915 Mesta úrvallö, besta þjónustan. Vlö útvegum yöur afslátt á bllalelgubilum erlendis. veitingasíaöurinn Reykjavíkursvæöinu^ £ Gunnar, Björgvin og Tómas leika nýstár- lega dinnertónlist í kvöld. Matseðill kvöldsins Kjötseyði Colbert Rækjukokkteill með ristuðu brauöi • Roast beef Bernaise Hamborgarakóteletta Hawai Perur Bella Helín Verið velkomin í Vesturslóð Verður gamli Laugarnesbærinn rifinn? Verði það gert finnst mörgum skarö fyrir skildi, og nóg sé komið af rifrildi gamalla húsa, auk þess sem Laugarnesið er ekki fyrir neinum. A innfelldu myndinni er Sig- urður ólafsson, sem flutti þaðan nýlega eftir að hafa búið þar með hesta slna i 34 ár. (Myndir: Jim Smart). Óslitin byggð frá landnámsöld — þar til nú? Laugarnesbærinn i hættu Laugarnes er nafn, sem allir Reykvikingar kannast iiklega við. Hitt vita liklega færri, að gamli Laugarnesbærinn, sem Laugarneshverfið dregur nafn sitt af, stendur þar sem talið er, að hafi verið ósiitin byggð allt frá landnámsöld. Þar bjó Hallgerður langbrók á sinni tið, og seinna var þar biskupssetur. Húsið sem stendur þar nú var reist i kring- um sföustu aldamót, en endur- byggt árið 1913. NU hvilir mikil óvissa yfir hús- inu. Sigurður ólafsson, hinn kunni hestamaður og söngvari flutti úr þvi fyrir skömmu, eftir að hafa búið þar i 34 ár. Enn er búið i risinu, en þegar það hefur verið rýmt, er hætta á að húsið verði rifið. Að sögn Sigurðar Harðarsonar, formanns Skipulagsnefndar Reykjavikur, er Laugarnestang- inn hugsaður sem útivistarsvæði samkvæmt aðalskipulagi, en að öðru leyti eru engar hugmyndir um nýtingu þess. ,,Það er ekki meiri ástæða til að rifa þetta en önnur hús á þessu svæði. Þetta hús er einn af ,,milu- stólpum” Reykjavikur, sem þegar er búið að rifa of mikið af”, segir Sigurður. Gunnlaugur Pétursson borgar- ritari segir, að um húsið og land- réttindi sem þvi fylgja, gildi samningur sem gerður var að tilhlutan Brynjólfs Bjarnasonar, fyrrverandi menntamálaráð- herra, skömmu eftir strið, við ekkju Þorgrims Jónssonar, sem þá bjó að Laugarnesi. Samning- urinn var á þá leið, að mennta- skóli skyldi byggður i landi Laugamess, en þar til af þvi yrði hefði hún umráðarétt yfir húsinu. Nokkrum árum seinna keypti bærinn Laugarnesið af rlkinu, en samningurinn gilti áfram. Að sögn Jóns Kristjánssonar skrif- stofustjóra borgarverkfræðings gildir hann enn, þótt vafi leiki raunar á þvi, að rikið hafi verið réttur aðili til að gera hann á sin- um tima, þareð þetta fellur undir skipulagsmál Reykjavikur. „Þegar húsið hefur verið rýmt, verða þessi mál athuguð. En heil- brigðiseftirlitiö hefur fyrir löngu dæmt húsið óibúðarhæft, þannig að enginn má flytja i það, eftir að núverandi ibúar eru farnir, og ég tel langlíklegast að þaö verði rif- ið, frekar en ráðist verði i að endurnýja það”, segir Jón Krist- jánsson. „Ég sakna einskis, þvi miður. Það ef ekkert eftir af gamla Laugarnesbúinu, það er ekki einu sinni eftir útsýnið inn yfir Laugardalinn”, segir Sigurður Ólafsson, en hann er nú fluttur upp i' Breiðholt. Enn hefur hann þó tvo hesta að Laugarnesi og kemur þangað daglega til að hirða þá. Að mati Sigurðar er húsið gjör- ónýtt og vonlaust að ætla sér að endurbyggja það. Ragnar Þor- grimsson, einn af sonum Þor- gríms Jónsonar og Ingibjargar Kristjánsdóttur, siðustu ábúenda á Laugarnesi, segir hinsvegar, að máttarviðir hússins séu góðir, og það sé alls ekki útilokað að gera það upp svo það verði ibúðarhæft, þótt það hafi raunar ekki verið kannað. Það sé hinsvegar óhemju dýrt, og spurningin sé hvernig eigi að fjármagna það, og hver eigi að gera það. Ekki vinnu aö fá hjá Ráðningarstofunni „Liggjum í simanum alla daga og tekst að útvega starf og starf” „Nei, við höfum yfirleitt engar lausar stöður, það er mjög litið framboö”, var svarið, sem blaða- maður Helgarpóstsins fékk, þegar hann hringdi á Ráðningar- stofu Reykjavikurborgar og spuröi hvort væri hægt að útvega sér eitthvað að gera. Ekki svo að skiíja, að við séum i atvinnulcit (að minnstakosti ekki i fyrirsjáanlegri framtið). En hefði svo verið hefði Gunnar Helgason, sem varð fyrir svörum, litið getað gert. „Við liggjum i simanum alla daga og reynum að hjálpa fólki um vinnu, og það tekst að útvega eitt og eitt starf handa þeim 160—180 sem eru venjulega á skrá hjá okkur þessa dagana og þá er oftast um að ræða sérhæfð skrif- stofustörf”, sagði Gunnar. A mánudagskvöldið voru 166 skráðir atvinnulausir i Reykja- vik, sem er heldur minna en þegar mest var i febrúar, þá fór talan upp i 236. Aö sögn Gunnars er þarna um að ræða fólk i 27 starfsstéttum, en stærsti hópur- inn er verkamenn, verslunar- menn, trésmiðir, húsgagna- smiöir, rafeindafræðingar, bif- vélavirkjar, iðnverkafólk, póst- burðarfólk, tækniteiknarar, sjúkraliðar og rafvirkjar á atvinnuleysisskrá, svo nokkuð sé nefnt. „En ég tel ekki að það sé hægt að tala um atvinnuleysi, þetta er ákaflega svipað og hefur verið undanfarin þrjú til fimm ár, og atvinnuástandið hefur verið talið nokkuð gott. Það eru talsvert miklar breytingar á þessum hópi, sem er á skrá hérna, fólk útvegar sér vinnu sjálft smám saman, fyrir utan þá sem við getum hjálpað”, sagði Gunnar Helga- son. Hann vildi ekki halda þvi fram, að i hópi atvinnulausra sé fólk, sem hreinlega „spili á kerfið” eins og þekkist i nágrannalöndum okkar, þótt sumir séu nokkuð vandlátir á vinnu. En það er oft- ast vegna heilsubrests, margir sækjast eftir innistörfum frekar en erfiðisvinnu utanhúss. Samt sem áður sækir yfirleitt umtalsverður fjöldium þau störf, sem auglýsteru i blöðunum. Það er ekki óalgengt, að 20—30 manns sæki um hvert starf sem losnar, sérstaklega skrifstofustörf. Það má þvi búast við að mikið hafi verið að gera hjá þeim 27 fyrir- tækjum, sem auglýstu eftir starfsfólki i Morgunblaðinu á sunnudaginn. Eitt þeirra er Skrifstofuvélar hf, og að sögn Lúðviks Andreas- sonar sölustjóra sóttu 27 um það sölumannsstarf sem var auglýst. „Það merkilega er, aö það var mjög mikið af iðnaðarmönnum á aldrinum 20—30 ára, sem sóttu um starfið en mjög fáir höfðu þá eiginleika sem við erum að sækj- ast eftir, eða reynslu úr við- skiptalífinu. Við auglýstum svipað starf i haust, þá sóttu 18 eða 20, það var sama sagan. Þetta voru pipulagningamenn, múrarar, trésmiðir, húsgagna- smiðir og fleiri iðnaðarmenn. Mjög margir virtust vera at- vinnulausir, gátu byrjað strax, en aðrir voru búnir að segja upp, og þá oft í kjölfar samdráttar hjá vinnuveitandanum. Aðrir i þess- um bransa okkar, sem ég hef talað við, hafa svipaða sögu að segja”, sagði Lúðvik Andreasson hjá Skrifstoíuvélum.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.