Helgarpósturinn - 01.05.1981, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 01.05.1981, Blaðsíða 5
5 hlDlrjarpncztl irinn Föstudagur J. maí 1981 • Ensku sigurvegararnir úr Söngvakeppni sjónvarpsstööva Evrópu, Bucks Fizz,ætla á næst- unni aö halda upp á sigurinn meö brúökaupi, ef allt gengur samkvæmt óskum. önnur söng- kvennanna, hin 26 ára gamla Cheryl Baker, ætlar nefnilega aö láta undan kærasta sinum, hinum 23 ára vörubilstjóra Martin Wood, og ganga i þaö. Ef af veröur, ósk- um viö þeim til hamingju. • Bandariska hljómsveitin Vill- age Peoplesem gerði mikla lukku hér um áriö meö KFUM-laginu sinu, og sem hefur gjarnan klæöst i afkáralega búninga, eins og löggubúning og indiánabúning hefur ákeðiö aö leggja allt slikt á hilluna, eöa troöa inn i skáp. Aöalgæi sveitarinnar, Jacques Morali.segir, að ekki einasta hafi þeir sjálfir verið orönir leiöir á múnderingunum, heldur, og það, sem verra er, hafi áhorfendur verið orönir hundleiðir lika. Von- andi tekst þeim aö finna góö jakkaföt og endurheimta fyrri vinsældir. • Sósialisminn i Sovétrikjunum hefur orðið mörgum manninum hvatning til dáða. A.S. Solmanov heitir maður meö rauðar stjörnur i augnastað og háskólakennari að starfa. Um daginn lauk hann all nýstárlegu ferðalagi um riki Lenins, er hann kom til borgar- innar Tichvin.rétthjá Leningrad, eftir árs gönguferð frá Vladi- vostok, sem er á austurströnd Sovétrikjanna, viö Kyrrahafiö. Meö 35 kiló á bakinu heimsótti hann 142 borgir, sem mun vera heimsmet fyrir fótgangandi menn. Erfiðasti kafli feröarinnar var upphafiö, þegar hann fór um strjábýla eyðimörk Siberiu i hörðum vetrarkulda. En bjart- sýnin dreif hann áfram, og þess má vænta aö hann fái Lenin-orðuna fyrir. • Dolly brjóstgóöa Parton veikt- ist nýlega af þvi, sem kallaö er „Vegas hálsinn”, er hún haföi nýlega hafiö söngprógramm sitt i Las Vegas, en þrátt fyrir þaö átti hún að fá 350 þúsund dollara á vikii, sem eru óheyrilegir pen- ingar. Læknar hafa aftur á móti bannaö henni aö syngja og tala og þvi fór allt i hund og kött. Góöan bata, Dollý! W Sæðisfrumur munu áður en langt um liöur sitja á bekk hinna ákæröu frammi fyrir dómstólum visindanna, en fram aö þessu höföu þær alltaf veriö hvitþvegn- ar, þegar upp komu erfiðleikar i sambandi viö þungun kvenna, eöa vanskööun fósturs. Þá höföu menn alltaf leitaö orsakanna hjá móöurinni. Sú tiö er nú liöin , þvi visindamenn I Kalifornlu hafa tekiö eftir þvi við rannsóknir á mörgum erfiöum tilfellum, aö sæði föðurins var lélegra en i þeim tilvikum, þegar allt gekk aö óskum. Vlsindamennirnir hafa sem sé fundið ýmis eiturefni I sæöi karl- manna, eins og skordýraeitur o.fl. Taliö er aö orsakanna sé aö leita I stressinu, tóbakinu og dóp- inu. Tilvonandi feöur: Hættiö aö reykja, stressa ykkur og „reykja”, ef þiö viljið aö allt Ein í þessari fjölsky Idu ier Við eigum auðvitað við Philco, - vegna þess að Philco þvottavélamar hafa unnið sér þýðingar- mikinn sess í fleiri þúsund íslenskum fjölskyld- um. Þess vegna er Philco talin til fjölskyldunnar. Philco ersparneytin á vatn og orku. Hún tekur inn á sig bæði heittog kalt vatn og sparar þannig tíma og rafmagn sem annarsfæri í upphitun vatnsins. Að auki þvær hún jafnvel erfiðustu þvotta með einstöku jafnaðargeði dag eftir dag, - skólaföt, vinnuföt, sþariföt og hvers konar þvott, jafnt grófan sem fínan. Philco - ein af fjölskyldunni tökubarn heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 — 20465 — SÆTÚN 8 — 15655 gangi aö óskum viö næstu þungun konu ykkar. • Þaö litur út fyrir aö pólska veir- an ætli aö ná til Kina. Þar hafa farið fram „einangraðar” til- raunir til stofnunar frjálsra verkalýösfélaga eftir pólskri fyr- irmynd. Hefur þetta gerst i litlum verksmiöjum i Shanghai, Wuhan og Xian, aö þvi er opinberar heimildir greina frá. Dagblaöið Changjiang hefur meira aö segja varaö viö þeim örfáu einstakling- um, sem reyna aö skapa ringul- reiö i landinu meö þvi aö hvetja til stofnunar svokallaöra frjálsra verkalýösfélaga og stúdenta- félaga. • Bandarikjamenn höföu ekki séö neitt þessu likt siöan 1820. Fólks- fjöldinn i smáborgum og bæjum úti á landi vex mun hraðar en fólksf jöldi stórborganna. Þessi öfugsnúningur byrjaöi áriö 1975, og hann er mjög afgerandi. Milli 1960 og 70 fjölgaöi ibúum stór- borga um 17%, en á næsta áratug á eftir aöeins um 9%, sem er fyrir neöan landsmeðallagiö, sem er 10.8%. tbúum smáborga og bæja fjölgaði hins vegar um 15.4%, þar sem þaö voru aöeins 4.4% áöur. Þetta táknar þó ekki aö menn snúi sér meira aö náttúrunni en áöur, þvi hraöbrautakerfiö hefur gert kleift aö stofnset.ja verk- smiöjur, verslunarmiöstöövar og skóla fjarri stórborgunum, og bændum fækkar stööugt. Þá flýja eftirlaunaþegar stórborgirnar i rikara mæli en áöur og flytja út á land. • Rod Stewart hefur stundum verið titlaöur sem einhvers konar kyntákn innan breska popp- heimsins. Karlinn sá hefur hins vegar falliö i ónáö hjá siðgæðis- vöröum hennar hátignar, er kenna sig viö Independent Broad- casting Authority. Segja þeir, að siöasta lag Rods, Guö, ég vildi ég væri heima I kvöld, sé heldur klámfengiö hvaö varöar texta, og vara útvarpsstöövar aö leika þaö. Capital Radio hefur þegar sett lagiö á bannlista og hin siöprúöa BBC fundar nú stift um máliö. En eitt er vist, aö karlarnir hafa áreiöanlega hlustaö hundraö sinnum á lagiö, áöur en þeir bönnuöu þaö. Svona rétt til aö trýggja. aö þeir fengju út úr þvi allt sem hægt væri. • Allt frá þvi Alain Deion lék á móti Romy Schneider i myndinni Sundlaugin undir stjórn Jacques Deray.hefur þaö veriö hans æðsti draumur, aö þessi þrenning mætti enn á ný vinna saman aö ódauölegri kvikmynd. Þaö hefur loks orðið úr, en mikill leyndar- dómur hvilir yfir öllu, þvi hand- ritið er ekki enn tilbúið. A meöan tekur Alain þaö rólega og leikur i öðrum myndum, m.a. hjá vini sinum Deray.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.