Helgarpósturinn - 01.05.1981, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 01.05.1981, Blaðsíða 10
10 Föstudagur 1. maí 1981 hfPltJrtrpn^fl irinn ..Þarna samiafiist ekki, aö bik sé bátsmannsæra". „Þetta er viðhaldið mitt”, segir Pétur Sigurðsson, þegar ég hitti hann á gangi deildar þrjú á Vifilsstöðum. Hann er i hvitum spitalanátt- fötum og brúnum slopp utanyfir og þegar við heilsumst verður hann að sleppa hægri hendinni af viðhaldinu, sem er tengt við vinstri handlegg- inn með plastslöngu. Hún liggur upp I flösku með glærum vökva, sem dinglar öfug efst á langri stöng. „Rg verð að kom a hingað öðru hvoru, þvi ég er astmasjúklingur og ef ég fæ kvef eða flensu verður að gera sérstakar ráðstafanir”, heldur Pétur áfram og gripur aftur um viðhaldið og teymir það við hlið sér inn ganginn. Við stingum okkur inn i eins manns stofu, sem sjúklingurinn var svo vinsamlegur að vikja úr svo við Pétur gætum rabbað saman i rö og næði. „Annars hef ég ekki komið hingað i cin þrjú ár fyrr en núna, en ég fékk ansi slæma flensu i vetur, sem gekk illa að losna við, og ég notaði timann nú þegar ekki er þing, til að losna við þetta úr lungnapipunum. Það er dálitið erfitt að vera svona, þegar maður þarf að nota mikið öndunarfærin og talfærin. Reyndar er alls ekki óalgengt, að þingmenn þjáist af einhverskonar astma. Skúli heitinn Guðmundsson var t.d. slæmur af þ**ssu, hann þoldi alls ekki tóbaksreyk á fundum”, heldur Pétur áfram. þegar við höfum komið okkur fyrir i sótthreinni sjúkra- stofunni. — Til að byrja einhversstaðar, Pétur: Pétur Sigurðsson, Pétur sjómaður, hver er hann? „Ég er fæddur i Keflavik árið 1928, fluttist þaðan fimm ára gamall til Reykjavikur . Pabbi var Utgerðarmaður og formaður og fékkst einnig við búskap. Annars á ég ættir að rekja á Seltjarnarnesið, i Engey og norð- ur i HUnavatnssýslu i föðurætt- ina, en móðir min er af Mýrar- holtsætt. Dóttir Hafliða Jónsson- ar, bróður séra Bjarna, sem var liklega þekktastur þeirra bræðra, þótt margir hafi kannast við Kristinn Jónsson i Reykjavikur- apóteki. Þessi ætt er kennd við Mýrarholt. ■ Raunar er ég Engeyingur i báð- ar ættir, sem er meira en þeir bræður Benediktssynir voru. Pabbi og mamma voru skyld að fjórða og fimmta, bæði af Eng- eyjarætt og telja ættir sinar til Ólafar Snorradóttur, sem var kölíuð Ólöf rika. Á ég að halda áfram með lifs- hlaupið? Ég fór i gagnfræðaskóla Reykvikinga, sem kallaður var. AgUst H. Bjarnason setti þann skóla á stofn og stjórnaði honum, og siðan tók við Knútur Arn- grimsson, sá ágæti maður, sem skrifaði bókina „Hjólið snýst” eftir ferð um Þýskaland méðan það var og hét, fyrir siðustu heimsstyrjöld. Hann var afburða sögukennari. Eftir að hann dó tók Guðni Jónsson magister við skól- anum . Hann var pabbi prófessors Bjarna Guðna og þeirra systk- ina. Flestir fóru þaðan i Menntskól- ann. Ég fór til sjós eftir þriðja bekk og hafði þá verið á sjó á sumrin, bæði með pabba og viðar. En eftir skólann komst ég á tog- ara, sem var ansi erfitt á þessum árum. Seint i striðinu og eftir striðslok voru þetta bestu plássin sem hægt var að fá á fiskiskipi, nemaá góðu sildarbátunum, þeg- ar sildin var og hét. En það voru ekki siðri tekjur á þessum skip- um, og ég var alltaf með af- bragðs skipstjórum. Ætlaði í „alvöru siqlinqar” Haustið 1948 fór ég siðan i II. bekk Stýrimannaskólans, lauk meira fiskimannaprófi vorið eftir og náði mér i siglingatima á verslunarskipum. Ég var mikið fjarverandi, m.a. i Miðjarðar- hafssiglingum, en kom heim aftur haustið 1950 settist i Ill.bekk far- mannadeildar og lauk farmanna- prófi næsta vor. Eftir þetta ætlaði ég mér að fara i „alvöru siglingar” með er- lendum skipum, en það var svo eitt og annað sem kallaöi, svo það varð dckertUr þvi. Ég lenti meðal annars i tnílofunarstandi og ilentist þvi hér heima, bæði vegna þessa og fyrir góðra manna orð. Aö ég fór i f armannadeildina var m.a. vegna þess að ég vissi að ég hefði aldrei getað orðið nema undirstýrimaður á erlendum far- skipum með fiskimannaprófið. Til að undirbúa mig undir skólann og ná í siglingartima var ég fyrst á Foidinni hjá Ingólfi Möller og sigldi viða meðhonum. Seinna fór ég á skip Eimskipsfélagsins og var þar jafnvel eftir að ég var orðinn þingmaður. Ég var fyrst kosinn árið’1959 og var á sjó öll sumrin fyrsta kjörtimabilið. En þá var starfið i þinginu orðið svo mikið, að þetta var ekki hægt lengur. Auk þess hafði ég verið beðinn að gefa kost á mér i stjórn Sjómannafélags Reykjavikur, eftir að ég varð þingmaður þar sem ég er enn á kafi við störf og var auk þess orðinn formaður Sjómannadagsráðs. Siðan hef ég ekki komið á sjó sem skráður skipverji, en hef alla tið siðan verið að snUast i kringum þessi mál. Spegillinn sagði lika ein- hverntímann, að kæmi upp eitt- hvað sem byrjaði á sjó væri ég kominn þar!” Grjólliríö irá skólðDræorum — Hvemig bar þig inn I pólitik- ina? ,,Ég hef verið pólitiskur allt mitt lif. Ég tók þátt i stjórnmál- um ungur maður i skóla og var Sjálfstæðismaöur alla tið. Ég var i Stýrimannaskólanum þegar átökin urðu við Alþingishúsið og stóð undir grjóthrið m .a. frá fyrr- verandi skólabræðrum minum, m

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.