Helgarpósturinn - 29.05.1981, Page 2
2
Föstudagur 29. maí, 1981 helgarpásturinrL
Hilmar Helgason, formaður SÁÁ á vegamótum:
Hver er þessi Hilmar Helgason,
sem er á hvers manns vörum og
kallaður vinur litilmagnans á
tslandi og guðfaðir fanga og alkó-
hólista? „Já, kunningjar minir
eru stundum spurðir þessarar
spurningar,” sagði hann. „Ætli
ég viti það sjálfur, en ég er úr ein
hverju stóði. Hef sjálfur gert mik-
ið i þvi að leita uppruna mins, en
ekki komist lengra en til afa og
„Aldrei kunnað neinn
milliveg”
— Hvað fékkstu i prófinu?
,, Migminnir að ég hafi fengið 7
af átta mögulegum, þótt kóf-
drukkinn væri. Annars voru min-
ar einkunnir þannig, að annað
hvort var ég við toppinn eða alveg
með allægstu einkunnir. Ég hef
aldrei kunnað neinn milliveg,
óaði við öllum þeim bókmenntum
sem ég yrði að fara i gegnum.
Minveraá sjónum endaði skyndi-
lega, þegar ég handarbrotnaði i
vinnuslysi — eina slysinu sem ég
hef orðið fyrir um ævina. Eftir
það réði ég mig sem sölumann
hjá Islensk erlenda og fleiri fyrir-
tækjum, og þótti frábær sölumað-
ur, þótt ég segi sjálfur frá. Fór
vitt og breitt um landið og hafði
sölumaður?
„Það er nú það. Það er ein-
'hvern veginn þannig, að það er
alveg sama hvað ég geri eða segi,
ég viröist komast upp með allt, án
þess að fá bágt fyrir eða skömm i
hattinn. Ætli ég hafi ekki hæfi-
leika til að umgangast fólk. Fólk
viröist hleypa mér á skitugum
skónum inn að hjartanu á sér.
Ég gerðist siðan fljótlega
Forgangsverkefnið núna að ná aftur
yfirhöndinni í slagnum við Bakkus
— segir hann í opinskáu viðtali við Helgarpóstinn
ömmu. Allt þar fyrir framan er
hulið. Hef flett upp ættartölum á
Landsbókasafninu, fariö til
ættfræðinga, en ekki finn ég ætt
mina og uppruna. Ætli mér hafi
ekki veriðskitið i hallæri einhvers
staðar. En þetta er soldið furðu-
legt.
„Súperbarn”
Annars var ég svokallaö súper-
barn til 12 ára aldurs. Foreldrar
minir skildu þegar ég var 7 ára.
Indælis manneskjur, en áttu ekki
saman. Ég var eftir hjá pabba
ásamt bróður minum, en faðir
minn var sjómaður og þvi mikiö
fjarverandi. Ég ól þvi sjálfan mig
upp að miklu leyti. Er þvi einn af
þeim örfáu sem þekkja hið svo-
kallaöra frjálsræði bernskunnar.
Ég lærði aö hjálpa mér sjálfur og
gera það sem börn yfirleitt gera
ekki. Gerði hluti sem foreldrar
yfirleitt gera fyrir litlu rúsinu-
bollurnar sinar. Varð að ganga
ótrúlegustuerinda. Það var góður
skóli.
Ég var mikill námsmaður i
barnaskóla og man að ég átti i
mikillí samkeppni um efstu sætin
við þær öglu Mörtu arkitekt og
Ragnheiði Ástu hjá Útvarpinu.
Hins vegar varð minna úr nám-
inu, þegar ég fór að njóta sjálf-
stæðisins og frjálsræðisins. Þá
varð skólanámið æði brösótt.
12 ára var ég farinn að vinna á
eyrinni með skólanum. 13 ára var
ég oröinn helgardrykkjumaður og
14ára rútineruð fyllibytta. Ég var
i gagnfræðaskóla Austurbæjar og
til sjós á „beikonskipum” á
sumrin.
— Beikonskip?
„Já, þaö var alltaf egg og
beikon á morgnana.”
— Og svo?
„Undir áhrifum 80% i
skóla og utan?”
„Já, 15 ára fór ég i landspróf,
en var aöeins 9 daga i skólanum.
Fékk vottorð frá skólalækninum
um þaö, að ég mætti ekki hugsa
þá fengi ég höfuðverk. Fór þá
sem matsveinn á „beikonskip”,
en var þá svo sjóveikur, að ég
varð að fara i land. Innritaöist þá
um haustið i Versló, tók inntöku-
próf, i 2. bekk og klambraðist i
gegn um Verslunarskólann. Ég
held að min sé ennþá minnst i
Versló sem handhafa þess vafa-
sama heiðurs að fá jafnlægstu
einkunn, sem nokkur nemandi
hefur fengið. Það er auðvitað
engin furða, þvi á þessum árum
var ég undir áhrifum áfengis 80%
af vökutima minum, þá bæði i
skólanum og utan þess. Ég held
hreinlega að kennararnir hafi
gefið mér nægilega háar einkunn-
irtilaðsleppa i gegn. Ekki vegna
þess hve ég var elskulegur dreng-
ur heldur vegna þess að það hefur
vafalaustsettað þeim hroll við að
hugsa um þann möguleika að ég
héldi áfram i skólanum, ef þeir
felldu mig. Hins vegar voru kenn-
ararnir þarna flestir góðir við
mig. Ég man t.d. eftir Sigurði
Ingimundarsyni. Ég átti að mæta
i munnlegt próf f reikningi hjá
honum, en mætti ekki. Var fullur
niðri á kjörbar i Lækjargötunni
og Sigurður vissi af þvi. Hahn
sagði þvi við aðra nemendur að ef
þeir færu ekki og sæktu mig i
prófið, þá gerði hann það sjálfur.
Það var náð i mig og i prófið fór
ég.”
hvorki þarna né annars staðar.
Meðalmennska er eitthvað sem
ég hef aldrei skilið i lifinu.
Eftir Versló fór ég á togara i 1
ár og ákvað að hugsa. Hugsa um
hvaö ég ætti að verða þegar ég
yrði stór. Langaði i lögfræði, en
oft gaman af. En það var stund-
um erfitt að hitta á vinútsölustað-
ina hér og þar á landinu, þegar
nálgaðist helgarnar. Það var
bráðnauðsynlegt frá minu sjónar-
horni.
— Hvers vegna þóttir þú frábær
starfsmaður hjá tengdaföður
minum, Stefáni Thorarensen lyf-
sala, og var hjá honum i 12 ár.
Mér hefur aldrei fyrr eða siðar
þótt eins vænt um nokkurn eins og
hann. Hann var kallaður ýmsum
ónefnum af mönnum og þótti
harðjaxl. Hann mátti hins vegar
aldrei neitt misjafnt heyra um
mig og vildi ekki heyra á það
minnst að ég drykki. Hann sagði
við mig, að ég ætti tvennt að var-
ast: Brennivin og útgerðarmenn.
Stefán lifði það sem betur fer að
sjá mig edrú, þótt sá timi væri
stuttur. Ég var edrú siðustu þrjá
mánuðina af ævi hans og er ég
þakklátur fyrir það. Stefán var af
mörgum annálaður skaphundur,
en það er sama hvað fólk og al-
mannarómur segir, það er eitt-
hvaðgotti öllum, þaðer siðan þitt
ogmittað finna það og hjálpa sið-
an öðrum að uppgötva þetta
góða.”
„Ein og hálf
flaska á dag”
— Þú sagðist hafa byrjað að
drekka reglulega 13 ára. Varstu
blautur, áður en þú fórst i bind-
indi fyrir fáum árum?
„Ætli það hafi dottið úr dagur
hjá mér i fleiri fleiri ár. Ég skal
lýsa fyrir þér dæmigerðum degi i
lifi minu, á fylleriisárunum. Ég
vaknaði klukkutima á undan öðr-
um i f jölskyldunni og stakk þá úr
einum Vodkapela. Keyrði siðan
strákana i skólann. Fór á Sögu
um morguninn og drakk 2—3 glös
af Screw driver. Allir héldu að ég
værimeðappelsinu djús i glasinu,
en það var nú eitthvað sterkara.
Siðan fór ég i vinnuna og þar átti
ég alltaf nóg af vini. 1 matartim
anum fór ég á hádegisbarinn —
skrópaði þaraldrei—ogfékk mér
nokkra lauflétta. Ég var siðan i
vinnunni til 5 eða 6. Kvöldin voru
siðan dálitið erfið. Ég var auðvit-
að orðinn þreyttur eftir vinnu og
slark dagsins og vildi leggja mig,
en varð náttúrlega að sinna fjöl-
skyldunni. Þá hékk ég uppi til
miðnættis með hjálp áfengis —
drakk venjulega tæpa flösku á
kvöldi.”
— Varstu vinnufær i þessu
ástandi?
„Já, já. Það er enn til það fólk,
sem heldur þvi fram að ég sé og
hafi aldrei verið neinn alkóhólisti
— og þetta er fólk sem vann með
mér dags daglega. Það sá aldrei
vin á mér. Ég drakk sem sé á
venjulegum degi, eina og hálfa
flösku og gerði alla þá hluti sem
ódrukkinn maður gerir. Ég þurfti
að drekka tvær og hálfa flösku á
dag, til að ná þvi að verða fullur.
Ég man nú ekki til þess, að ég hafi
gert stórar bommertur i vinn-
unni, þótt ég væri alltaf undir
áhrifum.”
„Var lifandi
dauður”
— Þú hefur ekki hugsað um
bindindi á þessum árum?
„Bindindi, hvað er það? Það
var likaminn sem gafst upp.
Blóðsykurfitan var allt of mikil
hjá mér og ég var lagður inn i
marggang á spitala hérlendis, en
auðvitað alltaf undir einhverjum
gerviástæðum.Orsökin var aldrei
brennivinsdrykkja. Blóðsykurfit-
an hjá mér mældist 2280, en á að
vera i kringum 7 hjá venjulegu
fólki. Læknar trúðu ekki þessum
niðurstöðum, en Jóhannes Berg-
sveinsson gróf það einhversstað-
ar upp, að blóðsykurfitan hefði
mælst 200 hjá einhverjum dönsk-
um skipstjóra, sem hafði verið
stanslaust fullur i 40 ár.
En heilsan var að sjálfsögðu á
núlli. Hárið losnaði af mér i flygs-
um, ég þurfti ekki að raka mig
nema einu sinni i viku, likams-
þyngdin var komin i 115 kiló,
þvagið fór út um öll göt likamans
og ég angaði sifellt af þvaglykt.
Ég var sem sagt lifandi dauður —
og þó fannst mér ekkert að, allra
sist brennivinsdrykkjan. Ég var
siðan gerður brottrækur af öllum
spitölum vegna drykkju minnar
inná þeim.
Þá heyrði ég talað um það, að
ónefndur tslendingur væri ný-
kominn af bandariskum spitala,
Freeport. Ég reyndi að hafa sam-
band við þennan mann, en það
tókst ekki. Var hátt settur og ný-
kominn úr afvötnun — vildi þvi
halda þessu leyndu. Farið með
það eins og mannsmorð. Ég
hringdi samt út til Freeport og
var kominn þangað tveimur dög-
um siðar.”
„Hefði farið
til tunglsins”
— Varstu þá að fara þangað i
afvötnun?
„Nei, ekki endilega. Ég vildi
bara komast á spitala og fá
heilsubót — læra að drekka enda
orðinn algjört hrak. Hefði farið til
tunglsins, ef ég hefði haldið að
það gæti hjálpað mér. Ég var orð-
inn svo slappur þegar ég fór, að
ég var hættur að geta drukkið
nokkurtmagn af brennivini. Ég
hafði verið stanslaust upp á dag á
fyllerii i tvoog hálfan mánuð áður
en ég fór utan og var auðvitað á
reikning á hverjum einasta bar i
bænum. Þegar þetta tveggja og
hálfsmánaða fylleri hófst, 13.
mai, þetta sumar, þá drakk ég á
einum hádegisbarnum 23 sjússa á
3 klukkutimum. Daginn áður en
ég fór i meðferðina á Freeport,
kom ég aðeins niður 7 Underberg
og 2 Camparisjússum. Var orðinn
æði slæptur.
Mér leist nú ekkert á blikuna,
þegar ég kom út og sá Freeport.
Sagði við samferðamann minn,
að ég hefði ætlað á spitala, en ekki
inná San Quinten-fangelsið. Þeg-
ar ég var skoðaður fyrsta daginn
á Freeport, þá var heilsan slik, að
réttast þótti að senda mig á
spitala. Þvagið var svartara en
blek. Þótti hreinræktaður spitala-
matur. En þetta var á föstudegi
og var ákveðið að biða með að
flytja mig, þangað til á mánudag.
A mánudag, var þvagið komið I
lag og ég varð kyrr.
Þarna i grennd við Freeport bjó
islensk kona, Anna Guðmunds-
dóttir, sem heimsótti mig dag-
lega. Stórkostleg kona, sem
hjálpaöi mér mikið. Hún sagði
einu sinn sinni við mig: „Hilmar,
hvers vegna safnar þú ekki sam-
an 20 íslendingum, þegar þú ert
kominn heim og sendir þá hingað
i meðferð. Þegar þeir hafa farið I
gegnum þetta prógram hér, þá
getið þið myndaðsamtök heima.”
— Ég hélt nú þá, aö það væru
varla til 20 alkóhólistar á tslandi,
auk þess sem ég var ennþá sann-
færður um það þegar ég fór frá
Freeport, að ég væri ekkialkóhól-
isti. Ætlaði þá að sanna það fyrir
pakkinu heima, að ég væri hóf-
drykkjumaður.”
Enginn einn maður hefur átt meiri þátt i þvi að
breyta viðhorfum íslendinga til alkóhólismans en
Hilmar Helgason. Á aðeins fáeinuhi árum hefur
hann orðið landsfrægur fyrir krossferð sina gegn
Bakkusi. Árangur hans sem formanns Samtaka
áhugafólks um áfengisvandamálið, SÁÁ endur-
speglast m.a. i þvi að á allra siðustu árum hafa
fimm þúsund manns horfst i augu við sjúkleika sinn
og undirgengist meðferð. Og nú virðist Hilmar
Helgason ætla að taka fangahjálpina Vernd sömu
tökum. Samhliða þessu hefur hann verið heildsali,
fjölskyldufaðir, óvirkur alkóhólisti og hugsjóná-
maður.
En nú stendur hann á timamótum.
Hann hefur sagt skilið við fyrirtækið, valið hug-
sjónina fram yfir hjónabandið og i framhaldi af
þessu hrasað i ævilangri glimu sinni við Bakkus.
Hilmar Helgason féllst á að ræða við Helgarpóstinn
um þetta uppgjör hans við.sjálfan sig og sin mál.
„Ég vil vera opinskár”, sagði hann. „Ekkert
halMújaviðtal”. Þvi var ekki mótmælt.