Helgarpósturinn - 08.04.1982, Qupperneq 3

Helgarpósturinn - 08.04.1982, Qupperneq 3
holrjFirpncrh irínn Fimmtudagur 8. april 1982 stjórnandinn, sem bendir manni hvort á aö spila hátt eöa lágt, svona eöa hinsegin. Þar fær maöur engu aö ráöa sjálfur. Svo er London mjög paranoid þessa stundina, mikil spenna þar i músikinni. Ég varöeinfaldlega aö fara þaöan. Þaö voru upphaflega þrír dagar, sem réöu urslitum um þá stefnu sem ég tdk. Mér fannst sem veriö væri að takmarka ein- staklingsfrelsi mitt, bæði i hljóð- færaleik og tdnsmiöum, svo ég ákvaöað snúa mér aö þvi hljtíö- færi, sem ég réö minnst viö, eöa hljómborð. Nú get ég spilaö á pianó. Nú jæja, smám saman fór ég aö spila meö ýmsum og á endanum leiddi þaö til þess aö við stofnuöum The Killing Joke.” — Hefur þaö veriö gaman? ,,Já, mjög gaman. Ég hef fengið tækifæri til að feröast um hálfan hnöttinn, hitta mjög margt fólk,semhefur hugsaö á svipaöan hátt og ég. Margar dyr hafa opnast. En The Killing Joke er ekki bara músik, þaö er hugar ástand.Þaö má gera eiginlega hvaö sem er undir þessu heiti en sjálf hugmyndin stendur. Þvi gleymdu tveir af þeim sem voru i KJ og þvi fór sem fór.” Engin málamiðlun — Setur það ekki strik i reikninginn hjá þér, aö hér er markaðurinn mjög litill — tílikur þvi, sem þú átt að venjast? „The Killing Joke hefur aldrei verið fyrir fjöldann. Þaö eru ekki mjög margir, sem skilja hvaö er verið að fara. En maður getur vel haft áhrif á svona smáum markaöi — mestu skiptir, að hér getég stjórnaö þvi umhverfi, sem ég spila mina músik i. Þaö gátum viö ekki lengur 1 London. Þar var ekki sá sanni innblástur, sem ég finn hér. Þar snýst allt um þæg- indi, egóiö og allt þetta — á þessa braut var ég kominn i Killing Joke. Hér get ég gert sjálfur það sem ég kæri mig um á meðan KJ var á þvi stigi i London, aö við höföum ekki Iengur stjórn á þvi hvað við geröum. Aörir höföu tek- ið af okkur stjórnina. Ég get haldið áfram aö starfa hér, sent frá mér plötur og svo framvegis. Það verður bara engin málamiðl- un lengur, no compromise. Ég er raunar aö hugsa um aö láta nýjustu plötuna heita þetta, No compromise.” — En ertu ekki með hingað- komunni lentur i einsonar Catch- 22 stööu? „Jú. And that is The Killing Joke of it.” Spilltasta rlki jarðar — Þiö voruö aö tala áöan um framkvæmdastjtíra Sinfóni'u- hljómsveitarinnar. Hvað viltu honum? „Ég hef nýlega tekið aftur upp þráöinn frá þvi ég var i klassik- inni. Einn vinur minn hér fór meö mig I flugferð yfir Þingvelli i fyrrasumar. Þá ákvaö ég að semja sinfóniu. NU er ég búinn aö þvi og ætla að hitta framkvæmda- stjórann i dag. Ég vil helst að þaö veröi búiö aö flytja þetta fyrir, Jónsmessu — og ef sinfónian hér vill ekki verkið, þá fer ég eitthvað annað. Þetta er 32 minútna langt verk i fimm þáttum.” Talið barst aö Englandi og heimabyggö hans, Cheltenham. Þaðan fara nú ungir menn með konunglegri flotadeild til Falk- landseyja. Þaö angrar Jaz Cole- man greinilega. ,,Ég fyrirlit hugsunarháttinn i Englandi og landiö sjálft. Að minu álíti er þaö spilltasta land i heimi, the most wicked. Nasistarnir myrtu sex milljón manns á nokkrum árum — sjáöu hve Bretar hafa drepiö marga á siöustu 400 árum. Nei, heimsveldiö er aö snilast gegn sjálfu sér. Blandan af fólkinu þar virkarekki.Égsé fyrir mér, eftir marga mánuöi, að hræöilegir hlutir eigi eftir aö gerast i Bret- landi. Kynþáttaspennan verður ennþá meiri — lögreglan reiknar meö auknum átökum kynþátt- anna. Og eins og alltaf veröa svertingjarnir notaöir sem blóra- bögglar. Ég vil ekki vera hluti af þessu lengur og geri þaö ekki. Ég vil ekki bara halda áfram að vera barna og veröa stööugt meira niðurdreginn. Fólk á að ráða sér sjálft — þaöhafa allir sinn mögu- leika á að læra meira um sjálfan sig. Maðurinn nýtir ekki einu sinni tiunda hluta heilans. Til aö geta lært aö nota heilann betur þarf maöur aö læra aö þekkja vitsmunaleg öfl náttúrunnar.” Ábendingar i draumi — Svo þú ert ekki á heimleið? „Nei. Ég fer aldrei aftur til Englands. Ef ég fer héöan fer ég eitthvaö annaö en til Englands.” — Hvað vissir þú mikiö um landiö þegar þú komst i fyrsta sinn? „Eiginlega ekki neitt. Ég vissi bara aö hér átti ég aö leita. Þaö gerðist einn góöan veöurdag aö ég fór á markað i Portabello Road, skammt frá þar sem ég bjó. Þar fann ég gamla bók, Islands Go- ing. Nú, ég vissi fyrir, til dæmls I gegnum drauma mina, að ég átti eftir aö fara á eyju. Bókin fjallar um mann,sem finnur eyju noröur af Skotlandi og bjó þar einn i 4-5 ár. Ég varö mjög hrifinn af bók- inni og náöi mér I Atlas til aö skoöa. Ég sveiflaöi pendúl yfir kortinu. Yfir Islandi fór pendúll- inn á fleygiferð... ég fann til undarlegrar tilfinningar — og innan 24 tima var ég búinn aö kaupa miöa til íslands. Mér likar mjög vel viö þetta land. En það er eitt, sem mér finnst slæmt hér. Bad. Það er arkitektUrinn. Hann er ljótur.” Bandarísk músík Jaz gerir ráð fyrir að hann veröi farinn að spila með kombói eftir 2-3 vikur. Byrjaö verður I Félagsstofiiun, skal bandiö heita Iceland og megináhersla verður lögð á „barbariska músik”, eins og Coleman orðaöi það. Hann yppti öxlum þegar minnst var á, að ekki væru allir liðsmenn Þeys jafn hrifnir af þessu fyrirhugaða samstarfi. Einn félaginn segir að aðild Cole- mans að „öllum þessum málum varöandi hljómsveitina” geti verið mjög tvieggjuö. Killing Joke hafi veriö heldur illa þokk- aðir f Englandi, enda ævinlega hatursfullir og fjandsamlegir blaöamönnum. Mátulegt á þá aö binda þá og loka inn i lyftu, segir hann eftir Jaz. (Ekki urðum viö fyrir neinu aökasti frá mannin- um, svo sagan er ekki seld dýrar en hún var keypt.) Hitti t»eysara fyrir til- viijun „Þaö eru Gulli og Tryggur Ur Þey, sem ég hef áhuga á aö vinna meö,” sagöi Jaz. „Ég vil ekkert segja um hina hljóðfæraleikarana þar. Þegar ég kom hingaö fyrst lenti ég eiginlega fyrir tilviljun meö Þey. Mér likaði strax vel kraftur eins eða tveggja ein- staklinga. Annars er hér mikið af mjög efnilegum 16 og 17 ára strákum. Þeir eiga eftir að veröa mjög góðir. Aöalvandamálið hér held ég að sé tækjalegt — þar er lik- lega ekki úr svo miklu að velja... Ég hef séö krakkana hér á laugardagskvöldi i miöbænum. Þau fara þar um mörg hundruö — sum full, sem er eölilegt. Þau eru ergileg og spennt — það vantar einhvern staö fyrir þau. Við vilj- um gjarna opna svoleiöis stað... Ég hef góöa trú á þessu... við veröum viöa, bæöi i Reykjavik og annars staðar og ég mun vekja athygli á þessu erlendis. Ég vil gjarna gefa islensku tónlistar- lifi dálitið push. Það er timi kom- inn til aðeitthvaö af þvi sem hér er komist út á alþjóðamarkaö. Viö byrjum sem sagt fljótlega og komum fram tvisvar i mánuöi til að byrja með.” Hugleysingi sem gaf mér Crowley Hann er ekki sérlega svarta- galdurslegur þótt hann sé talinn lærisveinn Crowleys. Á stundum er andlitiö barnalegt, þess á milli hart. íslenskur poppfræöingur sagði aö Killing Joke hafi veriö „haturs-hljómsveit”. Þeir spúöu hatri hvar sem þeir fóru, sagöi hann. Og innanbUðarmaöurinn fyrrnefndi sagöi Þey siöur en svo hafa grætt mikiö á aö gorta af vinskapnum við Killing Joke. Þaö heföi komiö þeim mikiö á óvart. „Jaz liturá sigsem drottins Ut- valda son I Crowleyiskri merkingu,” sagöi innanbúöar- maður. „Báöir — hann og Crowley — fylgjandi mystiskri heimsmynd.En Jaz tekur sér aö- eins hluta úr fræöunum og vill túlka hann dálitiö persónulega. Hann vill til dæmis flytja steina- hringi hingað, eitthvaö svipaö og Stonehenge, steina meö ákveönu kvarzinnihaldi, og koma þeim fyrir á tilteknum stöðum.” Þaö kom okkur á óvart þegar Jaz sagöist aldrei hafa lesiö Crowley. Hann glotti og sagöist heldur aldrei hafa komiö nálægt dulspeki. Þegar viö gengum á hann með hvort hann hefði virkilega aldrei lesið bók eftir Crowley sagði hann: „Ég hef aldrei keypt Crowley bækur. Að- eins einn maður hefur gefið mér Crowley bækur.” — Hver var þaö? „Viö skulum bara segja aö hann sé hugleysingi. Hugleysingi, sem gaf mér Crowley-bækur. Annars er þetta allt mikill mis- skilningur — ég meina, grunnur vestrænnar siðmenningar er kristindómur og bjöguð mýtóló- gia. Hvað mig varöar, þá trúi ég ekki á trúna. Ég viðurkenni tkki trúarbrögð. Ég viöurkenni vissu og alheimssamvisku. Hugarfar á Vesturlöndum er viðurstyggö, disgusting. Ég vil ekki taka þátt i þvi sem ég var í, ég vil skapa mér og öörum nýja valkosti.” Hann segir þá valkosti hafa veriö til áður og fer svo aö tala úm „þrihyrningafræðin”. „Stonehenge i Englandi er hin fullkomna list. Það var gert meira en 5000 árum fyrir Krist. Sagan mælir það ekki einu sinni. Geómetrian á þeim stað og i 800 - 900 milna radius er stórkostleg. Þetta er einfalt og fullkomið i senn, lif og dauði allan hringinn. Það þarf enginn að segja mér að þetta fólk hafi verið barbarar. Illa gefið fólk. Það eru aðeins tveirstaðiri heiminum, sem jafn- ast á við Stonehenge og það er Naska sléttan i Perú og pýramid- arnir i Egyptalandi.” Taktu hvaðeina... Hann spuröi hvernig viö teld- um næstu fimm ár veröa. Heldur niöur á viö, þótti okkur liklegt. Ekki kjarnorkustyrjöld innan fimm ára. NU spuröum við hann: hvernig heldur þú aö næstu fimm ár veröi? „Hvernig heldur þú aö ég geri þaö?” svaraði Jaz. „Ég er bara tónlistarmaður — þaö er bráð- drepandi brandari, a Killing Joke. Ég er bara dálitið viö- kvæmur, eins og mamma var vön aö segja. And that’s the Killing Joke of it all.” Eftir stutta stundbættihann viö: „The purest idea of the cosmopolitan idea is the answer to evolution.” Þegar viö kvöddumst spuröum viö hvort hann vildi einhverju bæta við. „Já,” sagði hann. „Það er að koma frá okkur tveggja laga plata. Hún heitir Take What’s Mine. Eg vil bæta viö: Taktu hvaðeina sem þú telur þitt án sektar eöa ótta. Og taktu fyrir alla muni gleði lifsins.” f i t M S T H E !U ÍBOBP PAT METHENY PAT.METHENY ( ) BRIGHT SIZE LIFE ( ) WATERCOLOURS ( ) NEW CHAÚTÁUQUA ( ) AMERICAN GARAGE ART ENSEIfBLE OF CHICAOO ART ENSAMBLE OF CHICAGO ( ) NICEGUYS ( ) FULLFORCE U 151 TII .1 /V II II I! T T I! V E S II F T II I! II 12 A 11 T KEITH JARRETT KEITH JARRETT ( ) FACINGYOU ( ) MYSONG ( ) SOLO ( ) EYES OF THE HEART ( ) HYMNS-SPERES ( ) INVOCATIONS ( ) INTHELIGHT ( ) THEKÖLN CONCERT Pottþéttur frá ECM ♦ CHICKCOREA Return lo Forever Piano Improvisions 1 Circle My Spanish Heart Chick Corea & Gary Burton: Duet Chick Corea & Gary Burton: CrystalSiIence ♦ JOIIN ABERCROMBIE ' Gateway ♦dave HOLLAND QUARTET Dave Holland Quartet ♦ eberhard weber Yellow Fields ♦JAN GARBAREK & BOBO STENSON QUARTET Jan Garberek & Bobo Stenson Quartet ♦ GARY PEACOCK TalesOf Another RALPIl TOWNER Batik . ♦ SART Sart v OG MARGAR MARGAR FLEIRI. JAZZ ♦ OM Cer Berns ♦ FIRST AVENUE First Avenue ♦ DOLMAN MUSIC Dolman Music ♦ CODANZAZ Codanza Z ♦ MIROSLAV VITOUS Miroslav Vitous ♦CAKLABLEY Social Studies ♦ EGBEKTO GISMONTY EgbertoGismonty ♦ double image Dawn ♦dollar brand African Piano Ancient Africa ♦ELTON DEANQUARTET Boundaries ♦STEVE REICH Octet x JACK DE J0HNETTE JACK DE JOHNETTE ( ) SPECIAL ( ) NEW DIRECTIONS IN EUROPE ( ) PERCUSSION PICTURES ( ) PICTURES ( ) NEW DIRECTIONS ( ) THEKÖLN CONCERT FALKIN N Laugavegi 24, sími 1 86 70/ Suðurlandsbraut 8/ sími 8 46 70/ Austurveri. sími 3 33 60. Heildsöludreifing: Suðurlandsbraut 8. Sími 8 46 70 mynd: Jim Smart

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.