Helgarpósturinn - 08.04.1982, Qupperneq 13

Helgarpósturinn - 08.04.1982, Qupperneq 13
helgarpn*ztl irinn Fimmtudagur 8. apríl 1982 — Stefán Jónsson, þingmaöur, frétta- maöur, rithöfundur, veiöimaöur og hag- yrðingur. Hvaö af þessu er best aö vera? „Ég á ekki skiliö hagyröingsnafnbótina. Þeir sem læra vísurnar minar gera þaö af meinfýsi — af þvi aö þaö eru I þeim brodd- ar, eöa eitthvaö þaöan af verra. Þannig yrkja ekki góöir hagyröingar. En ég stæri mig af þvi aö vera góöur veiöimaöur. Veiömaöurinn á I mér djúpar rætur. Ég ætlaöi aö veröa sjómaöur og var þaö reyndar um tima. Ég er veiöimaður aö karakter, ef eitthvað er. Mér finnst þaö mjög sennilegt aö Abel hafi átt afkom- endur. Drottinn leit brennifórn Abels meö velþóknun, en jaröyrkjumaöurinn Kain öfundaði hann og drap hann fyrir. Maöurinn var safnari og veiöimaöur löngu áöur en hann sáöi fyrsta frækorninu i jöröu. Veiðimennskan er okkur ásköpuö löngun, og hefur alltaf veriö þaö. Mér finnst veiöimennskan eölileg og manninum holl. Annars vék sér aö mér kona einusinni, í sportvöruverslun hér i bænum, þar sem ég var aö kaupa högl fyrir gæsaveiöitúr. Hún var þar að kaupa skiöabúnaö á dóttur sina. Konan sagði viö mig, að hún skildi ekki i mér sósialistanum, aö vera að drepa þessa saklausu fugla, algerlega aö þarflausu, þvi það væri hægt að fá nóg af þeim hjá Tóm- asi. t hópi veiðimanna hef ég kynnst mörgum ágætum mönnum og þeir eru ef til vill einu náttúruvinirnir á þessu landi.” annan hátt. Ég get nefnt þér dæmi um það. Vinur minn Jónas Arnason annaöist á árunum 1947—8 þátt sem hann kallaöi Heyrt og séð. t einum þeirra sagöi hann frá heimsókn á Keflavikurflugvöll. Þar sagöi hann m.a. frá þvi aö á vegi hans varö islenskur hundur með hringaö skott, sem hermennirnir áttu. Hundinn kölluöu þeir Sloppy Joe, og Jónas sagöi frá þvi. Jónasi var vikiö frá, vegna þess aö nafniö á hund- inum rimaöi viö Stebbi Jóh. en hann var þá forsætisráðherra. Þannig var þaö allan timann hjá út- varpinu, aö allt sem vék aö setuliöinu, þar sem ekki var gætt allra undirdánugustu viröingar, var taliö kommúnistaáróöur.” — A þessum timum voru auövitaö haröar deilur um utanrikismál. „Þaö veröur aö hafa I huga, hvenær þetta gerist. Þetta gerist skömmu eftir stofnun lýðveldisins. Þá er Keflavíkursamning- urinn geröur, auövitaö meö svardögum um að ekki ætti aö afhenda Bandarikja- mönnum herstöö. Siöan var þaö aöildin aö Atlantshafsbandalaginu, meö sömu svar- dögum. Hér yröi aldrei herliö á friöar- timum. Ég var þá i miðstjórn Framsóknarflokks- ins. Ég haföi sérstaka ástæöu til þess aö kviöa fyrirætlunum Bandarikjanna varöandi tsland. Þegar ég hætti á sjónum, fór ég ekki I Bóhin sem alórei var shriluö — Nú varst þú nokkuð afkastamikill rit- höfundur á þeim tima, sem þú vannst hjá útvarpinu, skrifaðir t.d. viðtalsbókina við Steinþór á Hala. „Já, ég hef skrifað tiu bækur, sem allar hafa selst nokkuð vel. Meðan ég var hjá út- varpinu haföi ég allt að helminginn af minum tekjum af skriftum. En bókin um Steinþór á Hala var aldrei skrifuð. Hún varð þannig til, aö ég tók upp viðtalsþætti við hann fyrir útvarpið. Ég tók upp á band 36 tima, sem ég siðan klippti niður i 25 þætti, 30 minútur hvern. Svo datt einhverjum i hug aö gefa út bók, unna úr þessum viðtölum. Mér leist ekkert á þaö, taldi þetta ekki bókarefni, en datt svo i hug aö gefa þættina út eins og þeir voru klipptir fyrir útvarp. Steinþór átti það til, þegar hann var að segja frá, að stansa, segja „nú nú”, og halda siðan áfram frá- sögninni. Þannig varð titillinn til, „Nú nú: Bókin sem aldrei var skrifuö”. Ég réttlætti þaö aö gefa bókina út svona, meö þvi, aö þarna væri efni fyrir Háskóla- menn að skoöa, ef þeir einhverntimann snúa sér að þvi aö rannsaka Islenska hljóö- fræöi. Þvi böndin eru öll til.” — Ert þú mikill islenskumaöur? „Sá veröur aö hugsa mikið um máliö, sem hefur framfæri sitt af þvi aö tala það. Mest lærði ég Islensku af þvi að klippa til viðtöl við fólk, og reyndar hafði ég mest gaman af þvi aö klippa böndin og vinna þætti. En þaö var óhemju mikil vinna. Ég geri ráð fyrir aö i hvert viötal hafi fariö 20 til 30 tima vinna.” ísiensk Dreylusarmál — Ég las þaö haft eftir útlendingi aö islensk pressa væri eins og hún ætti I eilifu Dreyfusarmáli. Nú varst þú lengi vel fréttamaöur. Finnst þér þetta sanngjörn athugasemd? „Ég geri ráö fyrir aö þetta sé rétt. Islensk pressa hefur meir og minna átt i Dreyfusarmálum frá aldamótum. Þetta hefur þó breyst siðustu ár. Persónulegt niö hefur dvinað og menn halda af meiri varúð á hinum breiöu spjótunum nú. Það er gott. Þetta átti auövitaö ekki á sama hátt viö um Rikisútvarpið. En þaö var viökvæmt á skóla, lauk reyndar aldrei barnaskóla, en ég las þá mikið, og var vel fær i Noröur- landamálunum og ensku. Þá var ég ráðinn hjá gagnnjósnadeild ameriska flotans, Naval Censorship. Þá átti baráttan gegn fasistunum hug manns allan og mér þótti þetta sjálfsagt. En þar vann ég i þrjú ár, og þar kynntist ég fyrirætlunum Bandarikj- anna um tsland. Eftir striö var ég svo ráðinn á fréttastofu útvarpsins, menn hafa vist talið það óhætt, talið mig vera Banda- rikjasinna. Svo kom herinn aftur þrátt fyrir svar- dagana. Auðvitað fór þaö svo, og á næsta flokksþingi Framsóknarflokksins, 1953, urðu harðar deilur, sem enduöu með slikum kveðjum að þaö var ljóst aö ég gat ekki stutt þann flokk meir. — En lentirðu þá i erfiðleikum i starfi, vegna þess aö þú varst herstöðvaand- stæöingur? v Nei. Ég dró aldrei fjööur yfir þaö, en ég tók starf mitt viö útvarpið alvarlega og sinnti þvi vel. Þaö rakst aldrei á. Við ástunduðum hlutlægni á fréttastofunni. Hlulleysi/hluilæyni Stjórnmálamenn eiga oft erfitt meö að skilja merkingarmuninn á oröunum hlut- leysi og hlutlægni. Útvarp á aö vera hlut- lægt, en ekki hlutlaust. Þaö á að sjá til þess að öll sjónarmiö komi þar fram. Ég neytti aldrei aöstööu minnar til þess aö koma fram pólitiskum sjónarmiðum mínum. Þaö var auövelt. Viö höföum eina meginreglu, sem enn á aö vera i gildi, þó sjónvarpiö brjóti hana oft, og hún er sú aö geta heimilda. Viö sögöum aldrei „sagt er”, „heyrst hefur” eða „ýmsir segja”. Hitt var að ég varö þess var, aö vegna þess aö afstaöa min var þekkt, hlustuöu sumir grannt eftir þvi sem ég sagöi og fundu i þvi duldar meiningar. En ég lenti aldrei i neinum erfiöleikum þess vegna.” — Þú snerir þér svo aö dagskrárgerö er þaö ekki? „Jú. Ég held aö ég hafi veriö upphafs- maður aö þvi að safna efni út um land og ég starfaði aö þvi samtimis fréttaöfluninni. Ég hætti á fréttastofunni vegna þess aö ég hafði fengiö loforö hjá útvarpsstjóra um að ég fengi aö koma upp reportage-deild. Þaö loforð var aldrei efnt. Ég þurfti þó ekki aö kvarta, ég hafði mjög frjálsar hendur. A útvarpinu var ég i aldarfjórðung. Og væri nokkur oröinn virkilega leiöur á mér þá var þaö ég. Minir tveir húsbændur voru útvarpsstjór- arnir Jónas Þorbergsson og Vilhjálmur Þ. Gislason, ágætir menn báöir. Jónas ætlaöi Rikisútvarpinu stórt hlutverk i þvi aö efla og göfga islenska menningu. Vilhjálmur var að minum dómi góöur húsbóndi og sá allra manna best i gegn um pólitlsk mold- viöri og hann var enginn valdniöingur. Aukinheldur var hann framúrskarandi vel máli farinn. Vissu liklega fáir, aö hann haföi stamaö svolitiö i æsku og ef grannt var hlustaö á hann heyrðist þaö oft vel i sléttu máli hans. Hann hjó stundum á sér- hljóöunum. Ég minnist þess vel, þegar ég heyröi hann einu sinni segja: „Gjarnan fer þaö þannig, aö sá sem einhverntlmann hefur sagt „ha”, hann hlýtur síöarmeir i lifi sinu aö segja „pé” lika.” Tími lil ao seqia „pé” — En hvernig æxlaðist þaö svo, að þú snýrö þér aö stjórnmálum? „öll þessi ár hjá útvarpinu haföi ég bara sagt a, við herstöövamálinu, umhverfis- málum og öörum málum sem ég haföi áhuga á. Ég held ég vitni enn I Vilhjálm Þ. og bæti einu viö — þaö var kominn timi til að segja „Pé”, þaö veröur freistandi og jafnvel llfsnauösynlegt fyrir menn sem hafa haldiö uppi gagnrýni og haldið fram skoöunum sinum, aö komast i þá aöstööu aö geta ráöiö. Hamlet Danaprins oröar það þannig (i þýöingu Matthiasar) „Spurningin um aö vera eöa vera ekki”. Og svo notuö sé önnur setning úr þýöingu Matthiasar; þegar maöur veltir fyrir sér sumum skrefum, læöist að sá grunur aö kannski sé það ihyglin „sem gerir gungur úr oss öllum”. Svona roskinn maöur aölagast aldrei fullkomlega þinginu. Hinir yngri ganga aftur á móti i gegn um ákveöna mótun á þingi.” Úlvðrpsmenn í pólltíh — Var þér hjálp aö ferli þinum hjá út- varpinu i pólitikinni? „Útvarpsmenn sem hafa lengi veriö háif- vegis inná heimilum fólks, eru eins og kunningjar þess, og þaö hjálpar auövitaö. Ég er ekki viss um aö þetta sé æskilegt þó, en það er erfitt aö svipta útvarpsmenn lýö- réttindum og banna þeim aö fara I fram- boö. Ég geri ráö fyrir aö hér sé um aö ræöa óþægilegan snaga i pólitik. Þaö ætti kannski aö leita einhverra ráöa til þess að kæla okkur niöur sem fyrst, áöur en fariö er út i pólitík, eins og Eysteinn sagöi.” — Er ekki Alþingi skrýtinn vinnustaöur? Þar deila menn oft heiftarlega i þingsölum, en drekka svo saman kaffi I Kringlunni á eftir eins og ekkert hafi i skorist. „Það er ekki alveg svona. Ég hef verið sakaöur um gifuryröi, en þaö er ekki rétt, ég nota aldrei gifuryröi, en ég kveö stund- um fast aö. Stundum virðast þannig slétt orö dálitiö kröftug. Menn koma oft frá umræðum og eru enn heitir. En þessir menn verða að vinna saman. Sá þingmaöur sem ræktar persónu- lega óvild i garö annarra þingmanna veröur óhæfur þingmaöur, og þessa eru ýmis dæmi. Við erum þarna til þess aö láta málefnin ráöa og viö vinnum eiö aö þvi. Þaö sviptir okkur ekki réttinum til aö láta okkur hitna i hamsi. Það er ekki krafa um aö þingmenn séu heybrækur. En eiönum fylgir sú krafa að menn láti ekki illkvittni eða hatur stjórna geröum slnum. Hver einasti stjórnmálamaður ætti aó lesa vel tslendingasögur, og sérlega Sturl- ungu. Af henni má læra margt, og menn ættu að hafa i huga aö við búum enn i ættar- samfélagi og i sliku samfélagi geta deilur oröið hatramar. Sá timi kann aö risa aftur aö stéttaátök brýnist meö þjóöinni og þá er hætta á aö hatriö veröi aftur afl i pólitikinni. Þaö er vonandi aö svo veröi ekki þvi þaö yrði úr skorti og neyö, eða fyrir áhrif áróöurs- meistara risaveldanna. Meöan viö eigum þess kost aö takast á á annan hátt, skulum við vera hressir með það.” Það var áriö 1971, aö Ragnar Arnalds, sem þá var formaöur Alþýðubandalagsins, og Jónas Arnason, fornvinur minn, ræddu þaö við mig, aö ég færi i framboð fyrir Alþýöubandalagiö i Suöurlandskjördæmi. Ég spurði hvort væri einhugur um þetta i Vestmannaeyjum, og mér var sagt aö svo væri. En ég var nú gamall fréttamaöur, og haföi vit á aö spyrjast fyrir um það, og kom i ljós aö svo var ekki, þó væri meirihluti fyrir þvi. Svo ég sagöi nei. Vestmanna- eyingar áttu nefnilega heföbundinn rétt á fyrsta manni á listann. 1 staðinn bauöst ég til þess að fara fram þar sem erfiðara var, I Norðurlandskjördæmi eystra. Þetta var, þegar Alþýöubandalagiö haföi klofnaö 1971, þegar Hannibal og Björn Jónsson stofnuöu Samtökin. Björn var sterkur I kjördæminu, duglegur og vel liðinn verkalýösforingi og mörgum góöum kostum prýddur. Það fór svo aö ég náöi ekki kjöri 1971, þó ég færi inn á þing þaö kjörtlmabil, sem varamaöur. En ég hlaut kosningu 1974.” — Hvernig var þaö svo aö koma af út- varpi og á þing? „Þaö var ekki erfitt. Ég haföi auövitaö fylgst meö þjóömálum. Hitt var erfiöara, tilhugsunin að ganga inni öll þessi Dreyfusarmál. Ég haföi auk þess skrifaö 10 bækur. Meö þvi aö fara á þing, var ég aö axla af mér fastan lesendahóp. En þetta var ný lifs- reynsla. Þetta voru mikil viöbrigöi fyrir 50 ára gamlan fullmótaöan mann. Þaö hvarflaöi ekki aö mér aö afklæöast persónuleikanum.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.