Helgarpósturinn - 08.04.1982, Page 16
16
Skallapopp
og nýbylgja
ganga í eina sæng í myndinni Rokk
í Reykjavík,sem verður
frumsýnd á laugardaginn
Kvikmynda- og rokkaðdáendur
ættu að setja feitan rauðan hring
utanuin laugardaginn kemur á
almanaki sinu. Þá gefst þeim færi
á að samcina þessi tvö áhugamál
sin þegar kvikmyndin Kokk i
Reykjavik verður frumsýnd i
Tonabiói. Keyndar hcfjast al-
mennar sýningar ekki fyrr en á
annan i páskum og verður
myndin þá einnig sýnd i Keflavik.
Gerð þessarar fyrstu islensku
tóniistarmyndar hefur ekki tekiö
langan tima. i október sl. var haf-
ist handa og i nóvember fóru
kvikmundar af staö, þræddu bil-
skúra bæjarins eftir lista sem á
voru nöln 50 hljómsveita. Úr
þessum hóp voru valdar 18 sveitir
og lif þeirra og starf kvikmyndað
á æfingum, i heimahúsum og á
tónleikum. Auk þess var nokkrum
filmumetrum eytt i upptökur á
rimnakveðskap Sveinbjarnar
Beinteinssonar allsherjargoða,
en eins og kunnugt er heíur hann
troðið upp nokkrum sinnum á tón-
leikum meö nýbylgjuliöinu.
Myndatakan var ólik þvi sem
yfirleitt gerist aö þvi leyti að
engin upptaka var skipulögð og
undirbúin fyrirfram ef undan er
skilin sú frá tónleikunum á
Lækjartorgi i byrjun febrúar sl.
Það var lokaupptaka Hug-
rennings sf. fyrir þessa mynd.
Hugrenningur er einkum tengdur
nafni Friðriks Þórs Friðriks-
sonar sem nokkuö hefur komiö
við sögu íilmukúnstar hérlendis
undanfarin ár. Kéttara væri þó að
telja höfuöpaura fyrirtækisins
fjóra: auk Friðriks eru þaö Ari
Kristinsson,sem kvikmyndaði og
hafði umsjón meö lysingu, Jón
Karl Helgason og Þorgeir
Gunnarsson, sem er fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
Vitaskuíd fylgir gerð tónlistar-
myndar ærinn höfuöverkur hljóð-
manna. Hann deildist á tvo af
Þursunum, þá Tómas
Tómasson og Þórö Árnason, og
hljóðmann ÞURSANNA, Július
Agnarsson. Notast var við 8 rása
hljóðupplökutæki Þursabits og
mun Kokk i Reykjavik vera
fyrsta islenska kvikmyndin þar
sem hljóöið er tekið upp á fleiri
rásir en eina.
Að upptökum loknum voru
spólurnar sendar til London þar
sem hljóðið var sett i svonefnt
„dolby stereo” sem einnig er
nýjung i islenskri kvikmynda-
gerð. Fyrir bragðið á hljómurinn
að vera sem næsl því eins og á
tónleikum; það kemur úr íjorum
áttum svo áhorfendum ætti að
liða eins og þeir sætu innanum
græjurnar á sviðinu.
Músík og viötöl
Hljómsveitirnar átján sem
hlutu náð fyrir augum Hug-
rennings eru: Bara flokkurinn,
Bruni B.B., Bodies, Egó,
Fræbbblarnir, Grýlurnar, Jonee
Jonee, Purrkur Pillnikk, Q4U,
Sjálfsfróun, Tappi tikarrass,
Vonbrigði, Start, Þeyr, Þursarn-
ir, Mogo Homo, Friðryk og Spila-
fifl. Eins og sjá má á þessari upp-
talningu veitir myndin nokkuð
breiða yfirsýn yfir þaö sem var aö
gerast I reykviskum rokkheimi
veturinn’81—’82. Þarna eru ný og
gömul stórstirni, nýbylgjuboltar
og nýlistamenn, gömul og ný
rómantik, miðaldra skallapopp-
arar og krúnurakaöir unglingar.
Eins og áður segir er fylgst með
tór.Iistarfólkinu á ýmsum vig-
stöðvum.rarið á æfingar og inn á
heimiRþcss og sveitirnar eltar á
konserta. Inn i tónlistarflutning-
inn er skotið viðtölum þar sem
fölk á borö við Bubba Morthens,
• Ragnhildi grýlu Gisladóttur,
Pálma skallapoppara Gunnars-
son og Pétur popp Kristjánsson er
innt eftir áliti sinu á rokkinu, lif-
inu og tilverunni.
Samhliða frumsýningu
myndarinnar verður gefið út
tveggja plötu albúm meö allri
þeirri músik sem heyrist i mynd-
inni og gott betur, þvi bætt er við
nokkrum lögum sem ekki var
pláss fyrir á þeim 90 minútum
sem myndin tekur i sýningu. Alls
eru á plötunni 83 lög og er notast
viðsömu upptökur og I myndinni.
— ÞH.
Er Kvikmyndasjóður
Deildar meiningar um úthlutun sjóðsins í ár
i lok síðustu viku lagði stjórn
Kvikmyudasjóðs siðustu hönd á
úthlutuu þessa árs til kvikmynda-
gerðar i landinu. Alls bárust
sjóðnum 3(> umsóknir en stjórnin
ákvað að deila þcim 1.500.000
krónum scm hún hafði til ráðstöf-
unará milli fimmtán aðila. Ilæsta
styrk, 200 þúsund krónur og 50
þtisund að láni til viðbótar, hlutu
fyrirtækin Saga Film hf. (Egill
Kðvarðsson, Björn Björnsson
ofl.) og F.I.L.M. (Hrafn Gunn-
laugsson).
Tveir aðrir aðilar fengu styrki
af stærri gerðinni: kvikmynda-
félagið Oðinn hf. og Agúst Guð-
mundsson fengu sinar 125 þúsund
krónurnar hvor. Til handrita-
gerðar voru veittir fjórir styrkir:
Þráinn Bertelsson, Kristin Jó-
hannesdóttir og Sigurjón Sig-
hvatsson fengu hvert um sig 75
þús. kr. og Andrés Indriðason
fékk 50 þúsund. Til gerðar heim-
ildamynda fengu fjórir aðilar 75
þúsund kr.: Njála hf., tsfilm hf.,
Filmusijiiðjan og Hugrenningur
hf. Tveir fengu 50 þúsund kr., Páll
Steingrimsson og Karl óskarsson
og Jón Björgvinsson. Loks fékk
Finnbjörn Finnbjörnsson 75 þús-
und kr. styrk til að gera grafiska
kvikmynd.
Fjórir „stórir"
Saga Film fékk styrk til að gera
kvikmyndina trúnaðarmál. Björn
Björnsson sagði i viðtali við HP
að efni myndarinnar væri að
mestu leyti trúnaðarmál en það
sem þeir gæfu upp væri að hún
fjallaöi um ungt fólk sem settist
að i gömlu húsi I Reykjavik nú-
timans. Þetta hús hefur sál og á
sér sögu og hefur hvort tveggja
áhrif á framtið unga fólksins.
Þessa dagana er verið að ráða
leikara i helstu hlutverk og búið
er að semja atriðahandrit en
samtöl verða samin áður en tökur
hefjast i mai. Björn bjóst við að
þeim lyki i júli en þá er ætlunin að
geyma filmurnar fram á næsta
vetur vegna anna aðstandenda
við auglýsingagerð. Sagði hann
að etv. yrði Trúnaðarmál páska-
mynd næsta árs. Kostnaði við
gerð myndarinnar verður haldið i
lágmarki en samt er til fjárhags-
áætlun sem hljóðar upp á 2,7 milj-
ónir.
Hrafn Gunnlaugsson fékk sinn
styrk til að ljúka við gerð
myndarinnar Okkar á milli sagt i
hita og þunga dagsins. Sú mynd
mun vera á lokastigi og hefjast
sýningar væntanlega með vorinu.
Óðinn hf. fékk styrkinn til að
gera mynd eftir Atómstöðinni.
Þorsteinn Jónsson leikstjóri
sagðist vera aö ljúka við hand-
ritið en tökur hefjast ekki fyrr en
næsta vetur. Myndin á að verða
tilbúin til sýninga i ágúst eða
september á næsta ári. Þetta
veröur viðamikil mynd og hljóðar
fárhagsáætlunin upp á 5 miljónir
króna.
Ágúst Guðmundsson fékk styrk
til að gera myndina Með allt á
hreinu. Hún fjallar um lif popp-
hljómsveita og leika Grýlurnar
og Stuðmenn sáluðu aðalhlut-
verkin. Að sögn Valgeirs Guð-
jónssonar, fyrrum Stuðmanns,
verður þetta „jólamyndin i ár” ef
allt fer sem horfir. Tökur eiga að
hefjast i lok júni og þeim á að
ljúka i ágústbyrjun.
óánægjuraddir
Þá má nefna að Hugrenningur
sf. fékk 75 þúsund krónur til að
ljúka við myndina Rokk i Reykja-
vik sem verður frumsýnd á
laugardaginn. Er þetta eini
styrkurinn sem fyrirtækið hefur
fengið til að gera þessa mynd sem
kostar álika mikið og leikin mynd
i fullri lengd. Finnst mörgum það
harla litið,en ekki vildu Hugrenn-
ingar láta hafa neitt eftir sér um
það eins og á stendur.
Þráinn Bertelsson fékk styrk til
að gera handrit að kvikmynd um
Sölva Hclgason. Hann sagðist
vera hæstánægður með að fá
þennan styrk. Hins vegar sagði
hann það ofvaxið sinum skilningi
af hverju kvikmyndafélagið
Norðan 8, sem gerði Jón Odd og
Jón Bjarna undir hans stjórn,
fengi ekki krónu.
— Við teljum okkur hafa sýnt
það og sannað að við kunnum til
verka og sóttum i krafti þess um
styrk til að gera mynd sem á að
heita Sagan af Leó, nútimamynd
sem gerist i litlu plássi i námunda
við Keflavikurflugvöll. Við töld-
um raunhæft að ráðast i þessa
mynd enda höfðum við sniðið
henni stakk eftir vexti. Hún átti
eingöngu að miðast við þann
markað sem fyrir hendi er hér á
landi. Við bjuggumst þvi við að fá
svipaða fyrirgreiðslu og þegar við
gerðum Jón Odd og Jón Bjarna.
Fyrst svo fór ekki er óvist hvort
af gerð þessarar myndar verður,
það eigum við eftir að ræða, sagði
Þráinn.
Fleiri óánægjuraddir hleraði
Helgarpósturinn úr röðum kvik-
myndagerðarmanna. Einn
þeirra, sem ekki vildi láta nafns
sins getið, sagðist ekki sjá neitt
samhengi i úthlutun sjóðs-
stjórnar. — Það virðist vera
þannig að þeir fá sem hæst láta,
það er eins og stjórnin sé að
þagga niður I þeim með þvi að
lotterí?
Söngkonan i hljómsveitinni
Tappi tikarrass er meðal þeirra
sem fram koma i myndinni
Rokk i Reykjavik,sem margir
telja afskipta i nýafstaðinni út-
iilutun Kvikmyndasjóðs.
láta þá fá peningana. Það örlar
ekki á neinni langtimahugsun i
úthlutuninni. Til þess að fá styrk
þurfa menn að þvi er virðist að
skipta um nafn eins og hanska,
sagði þessi heimildamaður
blaðsins.
Hann bætti þvi við að svo virtist
sem sjóðsstjórnin myndi aldrei
eftir úthlutunum siðustu
ára. — Þess eru dæmi að menn
hafi fengið styrki út á myndir sem
enn hefur ekki sést tangur né
tetur af. Og hvar eru stuttu
myndirnar? Þær fá engan styrk i
ár og eru þó ýmsir nýir mögu-
leikar að opnast fyrir slikar
myndir, svo sem videokerfin ofl.
— Þetta er eins og lotteri þar
sem maður virðist eiga að stinga
á sig aurunum og fara svo heim
og gera ekki neitt. Með svona
vinnubrögðum nær Kvikmynda-
sjóður seint þvi markmiði sinu að
efla islenska kvikmyndagerð og
veita þessum iðnaði þann stöðug-
leika sem hann þarfnast, sagði
heimildamaðurinn nafnlausi.
Formaðurinn svarar
Stjórn Kvikmyndasjóðs er
skipuð þremur mönnum. For-
maður er Knútur Hallsson skrif-
stofustjóri i menntamálaráðu-
neytinu.en aðrir i nefndinni eru
OlafðP^tagnarsson bókaútgef-
andi og Stefán Júliusson rithöf-
undur. Við bárum nokkur ofantal-
inna aðfinnsluatriða undir Knút.
Fyrst hvort þeir i stjórninni hefðu
orðið varir við tilraunir til að fara
á bak við þá með þvi að skipta um
nöfn.
— Nei, við vitum alltaf hverjir
það eru sem sækja um. Oftast er
þetta þannig að menn byrja sem
einstaklingar en svo verða til
utanum þá félög. Sumir hafa
þann hátt á að búa til félag um
hverja mynd, ég veit ekki hvort
það er af skattaástæöum. En við
höfum ekki ástæðu til að halda að
verið sé að reyna að fara á bak
við okkur.
— Nú veitið þið engan styrk i ár
til gerðar styttri mynda.
— Nei, við höfum nú yfirleitt
reynt að hafa eins og einn styrk til
slikra mynda, en að þessu sinni
sáum við okkur ekki fært að gera
það. Þeir sem fá styrki núna hafa
fiestir sýnt það og sannað að þeir
geta gert kvikmyndir. Að visu eru
þar á tvær undantekningar þar
sem eru Kristín og Sigurjón en
þau eru bæöi að ljúka námi við
viðurkennda kvikmyndaskóla.
Þeir sem sótt hafa um styrki til að
gera styttri myndir hafa yfirleitt
verið svona 8 millimetra menn.
— Fylgist þið með þvi hvernig
styrkþegar verja peningunum?
— Já, við biðjum um að skilað
sé skýrslu um framgang verks-
ins, núna eiga styrkþegar að skila
skýrslu um næstu áramót.
— Hvaö gerist ef styrkþegi hef-
ur ekkert aðhafst þegar kemur að
skýrslugerð?
— Það hefur nú ekki reynt á það
enn og ég á varla von á að slikt
komi til þvi þeir sem hljóta
styrki, eru yfirleitt fólk sem er á
kafi I kvikmyndagerð, sagði
Knútur Hallsson;formaður Kvik-
myndasjóðs. — ÞH