Helgarpósturinn - 08.04.1982, Page 20

Helgarpósturinn - 08.04.1982, Page 20
20 Fimmtudagur 8. apríi 1982 Hp/rjnrpn^turinn Áfram með bólumar Við skruppum niöur í miðbæ og spurðum nokkra unglinga hvort þau hlustuðu á útvarp og hvað þá helst Stefania. Síi fyrsta sem við spurðum var Stefanía Sæmundsdóttir 15 ára i Arbæjarskóla. Hún kvaðst ekki hlusta mikið á útvarp nema Lög unga fólksinsog óskaiagaþættina. Henni fannst vanta fleiri þætti með lögumfyrirunglinga á kvöld- in. Við spurðum hana hvort hún hlustaði á þáttinn Bólu. Já, stund- um, og er hann ágætur. Aö lokum, ertu með bólur? Neihei. Arnar. Fleiri syrpuþætti Sá næst síðasti sem við spurð um var Arnar Hauksson 16 ára Iðnskólanum. — Hlustarðu mikið á útvarp? „Þegar ég get”. — A hvað þá helst? „Syrpurnar á daginn.'’ Honum fannst vanta fleiti syrpuþætti en hafði aldrei hey t þáttinn Bólu og sagðist ekki heldur hafa neinar. Birgir. Litið um létta tónlist Næsthittum viðBirgi Hauksson 20 ára. Hann hhistaði helst á syrpurnar á daginn og fannst litið gert fyrir unglinga og h'tið um létta tónlist. Hann hafði aldrei heyrt þáttinn Bóluogvar ekki heldur með ból- ur. Bergþóra. Nei, nei Siðast spurðum viö 12 ára stelpu i Hólabrekkuskóla, Berg- þóru Bjarnadóttur. Við spurðum hana hvort hún hlustaði mikið á útvarp? „Ég hlusta alltaf á Lög unga fólksins, Bolla, bolla og syrpurn- ar á daginn”. — Hlustarðu á þáttinn Bóla? „Nei, ég hef aldrei heyrt hann”. — Finnst þér eitthvað vanta i útvarpið fyrir unglinga? „Nei, nei.” — Ertu með bólur eða bólu- vandamál? „Já,” ---Kreistirðu þær ilaumi? „Ha, það veit ég ekki. Haffi og Ómar i starfskynningu á Helgarpóst- inum fengum við það verkefni að fara á blaðamannafund sem hljómsveitin Egó hélt i skemmti- staönum Óðali. Þar var verið að kynna fyrstu plötu þeirra „Breyttir timar”. Þegar við kom- um á staðinn voru þar staddir nokkrir landsfrægir skemmti- kraftar ásamt blaðasnápum og ljósmyndurum. Við tókum örstutt viðtal við Bubba Morthens söngvara hljóm- sveitarinnar og spurðum fyrst hvenær hann byrjaði aö syngja opinberlega: „Ég byrjaði að syngja opinber- lega þann 29. mars 1980 með Utangarðsmönnum.” — Hefur þú eitthvað sérstakt i huga þegar þú semur texta? „Já, oftast hef ég það.” — Hefur þú gaman af þessu starfi? „Ekki alltaf en oftast”. — Hvenær var Egó stofnuð? „I núverandi mynd var hún stofnuð tveimurdögum fyrir upp- töku plötunnar.” — Hverjir stofnuðu hana? „Það voru Þorleifur, Beggi og ég” — Hvernig viðtökúm búist þið viö á þessar nýju plötu ykkar? „Það verður bara að ráðast.” Eftir viðtalið hlustuöum við á plötuna Breyttir timar og að okk- ar dómi er platan nokkuð góð og leynast þar margir góðir textar, ásamtlögum og eru það helst lög- in, Ráð til vinkonu, Móðir, Sieg heil og Stórir strákar fá raflost Haffiog Ómar Slangurstían Jæja krakkar! Þá erum við komin að feimnis- málaf lokknum? Hvaða orð og orðasambönd not- iði yfir þegar þið hafið áhuga á einhverjum gæja eða einhverri píu? Og ef þið hafið meikað að ná í einhvern eða einhverja og eruð saman, hvað þá? Og það er ýmislegt til i kringum þetta sem þið orðið svo skemmtilega. Er ekki rétt að gef a hérna nokkur dæmi, svo allir séu með á nótunum... Þið hittið góðan gæja, (góða piu) algjört jumm, og farið að spá í hann (hana) og filið hann (hana) í botn diggið bara þrælvel. Svo meikast allt og þið farið á fast, og er- uð algjörar remúlaði- sam lokur, sl um m, slumm. Og svo kemur að því eftir að þið eruð búin að skíta á tappa að hann fær sér á broddinn og hún fær sér á snípinn, og þeg- ar þið eruð nú hætt að stressa ykkur á þessu þá getiði elskast almenni- lega. Svona! Enga leti! Upp með skriffærin! Núna! Fleiri orð um þessa pæl- ingu! Breyttir tímar — ekkert ullabjakk llér er Gunnar, anuai . Bólu.i miðri upptöku i útvarpinu. Unglinga- Frá þvi I nóvember i fyrra hefur unglingaþátturinn Bóla verið hálfsmánaðarlega á dag- skrá útvarpsins. Og af þvi að okkur finnst allt sem gert er fyrir unglinga svo gasalega sniðugt, skruppum við niður I útvarp og hittum þá Gunnar og Hall, um- sjónarmenn Bólu,og ræddum lltil- lega við þá. — Hvernig varð Bóla til? „Ja,viðvorum eiginlega beðnir um að biðja um að sjá um þátt fyrir unglinga. Og af þvi að við erum unglingarog höfum áhuga á unglingum, slógum við til.” Skólakynning úuð niður — Er þetta skemmtilegt starf? „Það er nú upp og ofan. Oft gengur á ýmsu t.d. er erfitt að fá fólk til að mæta á réttum tima i upptökur. Annars er af nógu að taka. UngTingar virðast hafa mestan áhuga á rokki, enda mikil gróska i því um þessar mundir. Við höfum lika verið með kyn- fræðsluþátt sem gekk mjög vel. Övinsælasta efnið sem við höfum verið með var skólakynningar. Það var eiginlega úað niður.” — Er einhver samvinna á milli ykkar og Bollu Bollu? „Nei, þættirnir eru mjög ólikir, ætli við höfum ekki annan hlustendahóp.’ t y StrAQQ íhS híftíi pftir Stress að biða eftir fólki — Eruð þið Stressaðir fyrir upptöku? Gunnar: ,,Ég er nú alltaf hálf stressaður, en Hallur er svo sviðsvanur. „Mesta stressið er að biða eftir fólki, sérstaklega ef tæknimaðurinn er skapvondur.” — Ætlið þið að halda þessu lengi áfram? „Ætli við tökum ekki fri i sumar, þar sem allt unglingaefni er skorið niður. Svo sjáum við bara til i haust.” Og við þökkum þeim Gunnari ogHalli kærlega fyrir spjallið og þeir s núa sér a ð næ stu upptöku....

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.