Helgarpósturinn - 02.07.1982, Page 28
28
k
80 þúsund iþrótta-
menn? — nei, varla
Þá er trimmdagur ISt allur og gekk álika og efni stóöu til.
Nokkur þúsund manns syntu i laugunum.nokkru fleiri en venju-
lega, einhverjir drifusig i golf en fáir skokkuöu. Trimmdagurinn
var þvi hálfgert flopp, og er það miöur, þvi vakningarstarfsemi
einsogskipulagningsérstaks iþróttadags erallra góöra gjalda
verö. Aö minnsta kosti er ijóst aö langt frá þvi þriöjungur
þjóðarinnar fór i sport á sunnudaginn var, eins og Sveinn Björns-
son sagöist vonast til i sjónvarpinu á laugardaginn.
Hann sagði ennfremur i þessu sama sjónvarpsviötali aö nú
væru iþróttaiðkendur 80 þúsund i landinu. Forystumenn ISÍ hafa
áður nefnt töiur i svipuöum dúr, stundum 75 þúsund, og stundum
70 þúsund, en nú er hún semsagt komin i áttatiu þúsund. Ég hef
lengi haft efasemdir um þessa tölu og þykir hún ótrúlega há.
íslendingar eru nú um 230 þúsund þannig að ISÍ-menn eru aö
segja aö einn af hverjum þremur tslendingum stundi Iþróttir
innan 1S1 — aö einn af hverjum þremur lslendingum æfi iþróttir
með iþróttafélagi, þvi töluna hljóta þeir að byggja á féiaga-
skrám aöildarféiaga ISl.
Skoti&
eftlr Guðjón
Þegar ég hugsa um þessa hluti ganga sellurnar eitthvaö á
þessa leið: Börn teljast varla til iþróttaiökenda fyrr en þau ná
svona átta ára aldri. Krakkar Lvria kannski sumir I fótbolta eöa
einhverjum leikjum, en varla svo að þau æfi reglulega. Þaö
gera gamalmenni ekki heldur. Fólk yfir fimmtugu er sáralitiö i
iþróttum. Margir fara jú i laugarnar annaö slagiö eöa fara i
labbitúr, en þaö er andskotakornið ekki orðiö að iþróttaiök-
endum viö þaö. Allir lenda jú einhverntima I þvi að hreyfa sig,
jafnvel höröustu antisportistar. Með vissum undantekningum
eru þvi tslendingar undir 8 ára og yfir 50 ára ekki iþróttaiðk-
endur. Þaö eru konur ekki heldur. tþróttaiökun kvenna fer ört
vaxandi, sem betur fer, en hún hefur veriö grátiega litil. Margar
stúlkur fara i sund og fimleika, en lang, langflestar konur hætta
iþróttaiðkun þegar þær eignast börn, og þurfa aö annast þau á
kvöldin og um helgar, þegar þær eru ekki úti að vinna.
Sumar — en þær eru fáar—-byrja að æfa aftur. Margar konur
fara hinsvegar i laugarnar, sérstaklega þegar vel viörar —-en
þaö gerir þær ekki aö Iþróttaiðkendum heldur. Kvenþjóöin eins
og hún ieggur sig — helmingur tslendinga — stundar iþróttir i
rnjög litlum mæii. Þá eru karlarnir eftir. Mjög margir strákar
eru i iþróttum frá sjö ára aldri til tvitugs, þó hvergi nærri allir.
Flestir eru i fótbolta aðrir i handbolta eða körfubolta, blaki,
skiðum eða badminton. Eftir að karlar veröa tvitugir
dregur — eins og hjá konunum — mjög úr iþróttaáhuganum
vegna anna við uppbyggingu fjölskyldunnar og svo framvegis.
Ég held að fólk þurfi ekki annað en aö lita i kringum sig á vinnu-
staö, eöa i kunningjahópnum til að komast aö þvi að þaö er
langt frá þvi að helmingur af islenskum körlum séu iþróttaiök-
endur.
Ég held þvi að talan tuttugu þúsund sé mun nær lagi, enda svo-
sem ekkert til að skammast sin fyrir i þessu landi erfiöisvinn-
unnar.
íslandsvinir
Þá er lika heimsmeistarakeppnin i fótbolta öll hér á lslandi, I
bili aö minnsta kosti. Þaö var gaman aö henni, enda margir
flinkir fótboltamenn þarna suöurfrá.
Sumir þeirra eru góökunnugir tslendingum, sérstaklega Belg-
arnir, sem viö höfum horft meira á en aörar þjóöir keppninnar,
sem kannski er ágætt, þvi af leikjum þeirra má glöggt sjá að ts-
lendingarnir sem gera garðinn frægan (góöur frasi þetta) i Belg-
iu eru ekki aö kljást viö neina aula.
Asgeir Sigurvinsson hefur t.d. leikiö i liði meö góöum hóp
manna sem nú gera garðinn frægan á Spáni. Meö honum I
Standard léku t.d árum saman fyrirliöi Belganna, Gerets, og
Renquin sem tók stööu hans. Þá var Van Moer einnig i Standard
þegar Asgeir var aö byrja þar. Varnarmaðurinn Meeuws er
einnig leikmaöur Standard og miöjumaöurinn Plessers. Asgeir
er þar aö auki auövitað fyrrum félagi Breitners, Rummenigges
og Dremmlers úr þýska landsliöinu, og leikur á næsta ári meö
Förster, varnarmanninum sterka (svo ég noti nú annan góöan
frasa) og Frakkanum Six.
Pétur Pétursson lék meö þremur Belganna i vetur.þeimRenq'
uin (hann skipti um félag i fyrrahaust) og miöjumönnunum Co-
eck og Vercauteren, sem allir eru frá Anderlecht.
Arnór Guöjohnsen er félagi pólverjans Lato hjá Lokeren og i
þvi liöi eru einnig Belgarnir Verheyen og Mommens.
Og félagi Lárusar Guömundssonar úr Waterschei, Ungverjinn
Martos, var einn besti maöur sins liös i keppninpi, sókndjarfur
bakvöröur sá.
Og aö lokum má ekki gleyma þvi aö Dalglish, skotinn sterki
hjá Liverpool, var svaramaður i brúökaupi Jóhannesar Eö-
vaidssonar, en þeir tveir, og Danny McGrain, fyrirliöinn snjalli,
geröu allir garöinn frægan hér áöur fyrr hjá Celtíc.
Föstudagur2. júlí 1982 J^piSsturinn.
lÆIBAItVISIIt HGIJiAIUKMIt
Listasafn ASi:
Lokað i sumar.
Listmunahúsiö:
Á laugardag opnar sýning nýút-
skrifaöra nemenda úr þrem
deildum Myndlistarskólans
(MHt)ágrafik, textii og keramik.
Sýningin stendur aöeins i eina
viku og þvi er ekki eftir neinu aö
biða. Mætum öll um helgina. Sjá-
um hvað framtiöin ætlar okkur i
listrænum efnum.
Skruggubúð,
Suöurgötu 3a:
Á laugardag opnar sýningin
Hjartaö á skemmtigöngu. Þar er
það Jóhann Hjálmarsson, sem
sýnir teikningar frá árunum
1961-62, en Jóhann er öllu þekkt-
ari sem ljóðskáld i fremstu röð.
Var hann þá súr i gamla daga?
Sýningin er opin kl. 17-21 virka
daga og 15-21 um helgar. Mætum
öll.
Listasafn Einars Jónsson-
ar:
Stórfenglegar höggmyndir Ein-
■ ars eru til sýnis alla daga nema
mánudaga kl.13.30-16. Á efstu hæð
hússins er ibúð Einars og konu
hans og er hún til sýnis gestum.
Listasafn Islands:
Enn stendur yfir sýningin á verk-
um kinversk-ameriska málarans
Walasse Ting og lýkur henni 4.
júli. Sýningin er opin kl.13.30-16
virka daga og ki.13.30-22 um helg-
ar.
Árbæjarsafn:
Safnið er opiö daglega ki. 13.30 -
18, nema mánudaga. Aðkoma að
safninu er um gamla rafstöövar-
veginn og meö leið 10 frá Hlemmi.
Höggmyndasafn Ásmund-
ar Sveinssonar:
Safnið er opiö þriöjudaga,
fimmtudaga og laugardaga
kl.14-16.
Ásgrímssafn:
Sumarsýning. Aöþessusinni eru
flestar myndanna vatnslita-
myndir og hafa margar þeirra
sjaldan verið sýndar. Sýndar eru
landslagsmyndir, blómamyndir
og flokkar mynda úr þjóösögum.
Safniö er opiö sunnudag, þriöju-
dag og fimmtudag kl. 13.30—16 i
mai, en daglega, nema laugar-
daga.frá og meö 1. júni, á sama
tima. Aögangur ókeypis.
Nýja Galleríið:
Magnús Þórarinsson sýnir nýjar
oliu- og vatnslitamyndir. Opið kl.
| 14-18.
I
tonlisf
Norræna húsið:
A Iaugardag kl. 17 veröur mikiö
sungiö i húsinu hans Alto. Þá
koma fram þrir kórar frá Norð-
ur-Noregi. Þaö eru blandaöur kór
og stúlknakór frá Sortland og
blandaður kór frá Álsvog. Efnis-
skrá kóranna er mjög fjölbreytt
og m.a. syngja þeir islensk þjóð-
lög. Ekki spillir fyrir, aö þeir
syngja lika mjög vel. Kórarnir
syngja hver i sinu lagi og svo allir
saman. Stjórnendur eru tveir,
auk þess sem undirleikarar láta
sjá sig.
Baraf lokkurinn:
Baraflokkurinn leggur nú land
undir fót og kynnir nýja hljóm-
plötu sina. Flokkurinn leikur á
Egilsstööum i kvöld, föstudag,og
á Noröfiröi á morgun. Sjá nánar i
götuauglýsingum á hverjum staö.
Ég veit bara þaö, aö sildin fær
gæsahúö.
Félagsstofnun
stúdenta:
I kvöld, föstudag, veröa rosalegir
tónleikar við Hringbrautina.
Hljómsveitirnar Purrkur Pill-
nikk, Sjálfsfróun, Vonbrigöi og
Tappi tikarrass leika tónlistina
eins og hún best gerist. Húsiö
opnar kl. 21 og fyrstu tónarnir
munu upphefjast um hálftima
siöar. Mætum öll. Sjáumst.
Grunnvara á grunnveröi.
Stúdenta-
kjallarinn:
Djassinn heldur áfram við Hring-
brautina. A sunnudag leika Tóm-
as Einarsson og hans félagar ljúf-
ar melódiur undir rauövinsglasa-
glamrinu og pizzulyktinni. A
mánudag er það svo orgelleikar-
inn væni og hvers manns hugljúfi
Jónas Þórir, sem kemur ofan af
efstu hæð og niöur i kjaliara til aö
skemmta gáfnaljósunum meö
djassi, ásamt meö félögum sin-
um.
viftliuréir
Miklatún:
A laugardag kl. 14 gangast Sam-
tök herstöövaandstæðinga fyrir
útisamkomu undir yfirskriftinni
GEGN KJARNORKUVOPNUM
— GEGN KJARNORKUVIG-
BONAÐI. Eins og gengur og ger-
ist á svona samkundum, verður
fluttur fjöldinn allur af ræðum, og
margar þær «f betri endanum.
Þeir sem flytja tölu, eru Árni
Gunnarsson, Arnþór Helgason,
Benedikt Daviösson, Guömundur
Arni Stefánsson, Guömundur G.
Þórarinsson, Guörún ölafsdóttir,
Hildur Jónsdóttir, Kristin Ast-
geirsdóttir, Magdalena Schram,
Ólafur Ragnar Grimsson, Ólina
Þorvarðardóttir, Pétur Reimars-
son, Tryggvi Gislason og Þórar-
inn Eldjárn. Kynnar veröa Guö-
björg Thoroddsen og Guörún As-
mundsdóttir.
Nú, nú. Ekki er allt fengið meö
ræðuhöldum. Þau geta veriö svo
leiðinleg, þegar til lengdar lætur.
Þess vegna veröa skemmtiatriöi
og sum af betri endanum. Purrk-
ur Pilinikk leikur, svo og söng-
hópurinn Hálft i hvoru. Edda
Björgvinsdóttir og Viðar Egg-
ertsson verða meö leikþátt og
Bananahópurinn frá Alþýðuleik-
húsinu syngur og leikur baráttu-
söngva. Kannski koma lika fleiri.
Alla vega verður skemmtilegt.
Viö skulum bara vona, aö guð
sé ekki á bandi Reagans, sem vill
örugglega að rigni yfir lýðinn.
Ætli þeir séu ekki fleiri, sem vilja
það lika, og standa okkur nær.
Góða skemmtun.
liíéiH
★ ★ ★ ★ framúrskarandl
★ ★ ★ ágæt
★ ★ góð
★ þolanleg
O léleg
S 1-1 5-44 -
★
Viövaningurinn (The Amateur).
Bandarisk, árgerö 1981. Handrit:
Robert Littell, Diana Maddox,
byggt á sögu Littell. Leikendur:
John Savage, Christopher
Plummer, Marthe Keller, Arthur
Hill. Leikstjóri: Charles Jarrott.
Þaö er hálfgerö synd hvernig
þessi mynd endar, eða endar
ekki, eftir áhrifarika byrjun og
sæmilegan millikafla. Plottiö er
mjög þreytt og ofnotaö, aö þjálfa
mann og senda hann inn i óvina-
riki til aö drepa. Eins og i
myndum af þessu tagi er
persónusköpun engin, þó gerð sé
tilraun til aö blanda bókmennt-
um(?) i máliö.
—JAE
Zorro. Ævintýramyndin fræga,
sýnd kl. 3á sunnudag.
LAUGARAS
■ =1X01
Simi 32075
Erótika (Erotica). Bresk kvik-
mynd. Leikendur: Stelpurnar í
nektarblööunum Men Only o.fl.
Leikstjóri: Brian Smedley.
Allsber mynd i allsberara lagi.
Djörf og framsækin. Rosalega
flottar stelpur. Tilvalin fyrir þá,
sem hafa keypt sér frakka alveg
nýlega. Hinum er ráölagt aö
kaupa frakka áöur en þeir fara.
lítilíf
Feröafélag
islands:
Föstudagur kl. 20: Helgarferöir:
a) Þórsmörk, b) Veiðivötn, c)
Landmannalaugar, og gengiö yfir
i Þórsmörk. d) Hveravellir.
Sunnudagur kl. 10: Dagsferö á
Höskuldarvelli-Keiii-Driffell-
Selsvelli-Vigdisarvelli.
Sunnudagur k! 13: Dagsferð I
Krisuvik-Hatt-Hettu-Vigdisar-
velli.
Sumarleyfisferöir á Hornstrand-
ir:
Föstudagur kl. 8.30: Ferö I
Reykjafjörö-Hornvik.
Laugardagur kl. 8.30: a) Horn-
vik-Hornstrandir, b) Aðalvik-
Hornvik.
Útivist:
Sumarleyfisferöir:
a) Hornstrandir I — 10 dagar. 9.-
18. júli. Tjaldbækistöö I Hornvik.
b) Hornstrandir II — 10 dagar.
9.-18. júli. Aðalvik-Hesteyri-Horn-
vik. Bakpokaferö. 3 hvildardag-
ar. c) Hornstrandir III — 10 dag-
ar. 9.-18. júli. Aöalvik-Lónafjörö-
ur-Hornvik. Bakpokaferö. 1
hvildardagur. d) Hornstrandir IV
— 11 dagar. 23.7.-2.8. Hornvik-
Reykjafjörður. e) Núpsstaðar-
skógur-Lakagigar. 24.-29. júli. f)
Eldgjá-Þórsmörk 8 dagar. 26.
júli-2. ágúst.
Helgarferðir:
Föstudagur kl. 20: a) Helgafells-
sveit-Ljósufjöll-Gullborgarhell-
ar-HItardalur. b) Hreöavatn-HIt-
ardalur.
Dagsferö:
Sunnudagur kl. 13: Þrihnúkar-
Eldborg. Létt ganga.
Litlu hrossaþjófarnir (The
Littlest Horsethives).
Bresk-bandarisk, árgerö 1978.
Handrit: Rosemary Anne Sisson.
Leikendur: Alistair Sim, Peter
Barkworth. Leikstjóri: Charlcs
Jarrott.
Sagan gerist I Englandi i byrjun
aldarinnar, þegar járnbrautir
voru aö taka viö af hestunum ofan
ikolanámunum.
Fjalakötturinn:
Laugardagur:
Kl. 15: Unglingurinn eftir Jeanne
Moreau.
Kl. 17: Lestineftir P. Granier-De-
ferre.
Sunnudagur:
Kl. 17: Löggustríöin eftir Robin
Davis.
Kl. 19: Krabbinn eftir Pierre
Schoendoerffer.
Kl. 21: Lestin eftir Granier-De-
ferre.
Villti Max, striösmaöur veganna
(Mad Max 2). Aströlsk kvikmynd,
árgerö 1982. Handrit: George
Miller, Terry Heyes og Bryan
Hannant. Leikendur: Mel Gibson,
o.fl. Leikstjóri: George Miller.
Þriöju heimsstyrjöldinni er lokiö
og menning okkar er liöin undir
lok. Hart er þvi I heimi og hór-
dómur mikill, skeggöld og skálm-
öld og vargöld og ósómi mikill.
■ Max feröast um vegi landsins og
hittir kynlega kvisti. Spennumynd
ársins aö sögn fróðra manna