Helgarpósturinn - 02.07.1982, Síða 30

Helgarpósturinn - 02.07.1982, Síða 30
30 Föstudagur 2. júli 1982 Tsturinn Það er einkum tvennt, sem liggur ljóst fyrir eftir nýgerða kjarasamninga: verka- lýðshreyfingin hefur i fyrsta skipti samið sérstaklega um kaupskerðingu og enn meira los er komiö á samflotið. Verkalýösforingjar, sem standa utan við samkomulagið, eins og t.d. þeir á Vest- fjörðum, benda á, að meö visitöluskerð- ingarákvæðinu verði búið að taka 4% kaup- hækkunina af launafólki þegar 1. septem-- ber. An þess að það hafi verið reiknað út sérstaklega þegar þessar linur eru skrif- aðar má ætla að það verði gott betur — verðbólgan i landinu er nú sögð vera um 60%. Þaö er svo sem ekki nýtt að kauphækkanir hverfi á tiltölulega skömm- um tima; menn munu almennt vera sam- mála um, að 3.25% kauphækkunin frá I nóvember sl. hafi verið uppurin i kringum áramótin. Eöa eins og einn atvinnurekandi sagöi i samtali viö HP: „Það skiptir engu máli hvort viö borgum fólki 4% meira kaup eða 400% meira kaup, það fer allt beint út i verðlagið og ekkert breytist. Þetta er eins og i sveitinni i gamla daga þegar veriö var aö gefa kálfunum mjólk i fötu. Ef þeim fannst mjólkin ekki nóg var bara bætt vatni út i. Þá voru þeir ánægöir”. En nú segir Alþýðusambandsforystan, og Vinnuveitendasambandið tekur undir, að ttöfuðmarkmiðið i þessari samningagerð hafi verið aö viðhalda kaupmætti siðasta árs. Reynist það rétt —- og vitaskuld er það reynslan ein, ekki reikningskúnstir ýmisskonar, sem skera úr um það — mega liklega allir vel viö una. Allar niðurstöður spádóma um afkomu þjóðarbúsins á næstu misserum hniga i sömu átt, nefnilega niður á við. Og I einkasamtölum hafa sumir stjórnmálamenn, vinnuveitendur og verka- lýðsforingjar sagt það umbúðalaust, að við eigum framundan mörg mögur ár. Þetta er jafnvel sagt opinberlega — það eru ekki margir dagar siöan formaður Félags is- lenskra iönrekenda minnti mjög rækilega á þetta i sjónvarpsþætti. Um árabil hefur utanrikisstefna Banda- rikjanna verið i óreiðu. Ringulreiðin sem rikir i Washington eftir brottför Alexanders Haigs úr embætti utanrikisráðherra er skýrt dæmi um hvar veiluna er að finna i stjórnkerfinu. Mótun stefnu i utanrikismál- um er sifellt bitbein starfsliðs forsetans i Hvita húsinu, sem hugsar fyrst og fremst um áhrif aögerða á alþjóðavettvangi á póli- tiska stöðu forsetans innan lands, og emb- ættismanna i utanrikisráðuneyti og utan- rikisþjónustu, sem ráða yfir þekkingu á umheiminum og vilja miða stefnumótun við langtimahagsmuni og stefnumið Bandarikjanna. með raunverulega þekkingu og áhuga á ut- anrikismálum, eins og Nixon, getur beitt þessu tviskipta stefnumótunarkerfi að settu marki. Þó var það i forsetatiö hans, sem togstreitan milli Þjóöaröryggisráðsins i Hvita húsinu og formanns þess annars veg- ar og utanrikisráðherra og utanrikisþjón- ustu hins vegar komst i algleyming. Erfitt er að vorkenna Haig ófarir hans, Hvild frá karpinu i Karphúsi: afdrifarikir samningar og óvist um áhrif fordæmisins. En þrátt fyrir þessar spár má telja vist, að nýgerðir samningar veki enga sérstaka ánægju launafólks i landinu. Og verkalýðs- foringjar i Vestmannaeyjum og á Vest- fjörðum hafa gagnrýnt samningana harð- lega, sagt þá „eins og fyrri daginn” að minnst tillit sé tekið til láglaunafólksins i framleiðslugreinunum. Guðmundur J. Guðmundsson, foringi stærsta láglauna- hópsins i Alþýðusambandinu, er þó ánægður og telur niðurstööuna viöunandi miðað við aðstæður. En það höfum við heyrt áður: eftir samninga eru samninga- menn jafnan ánægðir miðaö við aðstæður á sama hátt og ráöherrar i klipu vilja ekkert segja um þetta málið og hitt þvi það sé á svo viökvæmu stigi. Vestfirðingar hafa um nokkurt skeið þvi sjálfur var hann hægri hönd Henry Kissingers, húsbónda sins i Þjóöaröryggis- ráðinu, við að hrekja William Rogers úr embætti utanrikisráðherra. Að launum varð hann starfsmannastjóri I Hvita húsinu og sá sem lengst þraukaði við að hjálpa Nixon að smjúga úr viðjum Watergate- málsins. Ekki er langt um liðið siöan Haig tókst að bola Richard Allen úr formennsku I Þjóöar- öryggisráðinu. Við þvi starfi tók William Clark, fornvinur Reagans forseta, sem hann haföi gert aö staðgengli Haigs i utan- rikisráðuneytinu. Fyrsta ganga Clarks i þvi starfi, að leita staöfestingar á útnefning- unni hjá utanrikismálanefnd Oldungadeild- arinnar, gerði hann að alþjóðlegu athlægi, þar sem hann reyndist alls ófróöur um menn og málefni á alþjóðasviði hvar sem öldungadeildarmenn báru niður i spurning- um sinum. Clark varð nú samt maðurinn sem reynd- ist Haig fótakefli. Þegar utánrikisráðherr- ann lagði fram lausnarbeiöni sina vegna ágreiningsins við formann Þjóðaröryggis- ráðsins, féllst Reagan á hana umyrðalaust. staðið utan við samflotið. Nú gæti það allt eins gerst, að Vestmannaeyingar slitu sig alveg frá þvi lika. Það liggur þvi nokkuð ljóst fyrir — og ekki sist með tilliti til þeirrar miklu gagnrýni, sem beinst hefur að samflotinu — að fleiri félög og sambönd eru að verða óróleg. Það er þvi spurning, hvort samflotin hafi gengið sér til húðar — eins og raunar sumir fullyrða. Pítur Sigurðsson, formaður Alþýðu- sambands Vestfjarða, er einn þeirra, sem hvaö harðast hafa gagnrýnt forystu ASÍ. Hann er ómyrkur I máli um samningana þegar hann kallar þá „eitt samfellt grimu- ball frá upphafi”. Pétur segir einnig að visitöluskerðingin, sem um var samið, sé þaö „langalvarlegasta við þessa samninga. Það er forkastanlegt að verkalýöshreyfing- in skuli hafa léð máls á þessu. Það veröur þokkalegt fyrir þessa menn i framtiöinni aö hafa þetta fordæmi hangandi yfir sér. En hinum talnavisu sérfræðingum. sem stvra samningum, virðist greinilega hafa tekist að telja ASt-menn á að þetta væri eina leið- in”. Enn um visitöluna segir Pétur Sigurðs- son: „Þessir samningar eru ekki til þess fallnir að hrópa húrra fyrir þeim. Visitölu- skerðingin er stóralvarlegt mál, sérstak- lega ef við höfum það i huga, að við búum viö svinfalsaða visitölu fyrir, sem hvergi líðst nema i einræðisrikjum. Þessir samn- ingar eru að visu geröir við erfiðar aö- stæður en niðurstaða þeirra hlýtur að vera sú, aö verkalýðshreyfingin er með þeim að viöurkenna nánast öll rök Þorsteins Páls- sonar og vinnuveitenda frá siðustu vikum. Þaö hlýtur að teljast aum niðurstaða af margra vikna brölti”. ^)g svo viöurkenna menn nú, að þetta „margra vikna brölt” var nánast tilgangs- laust. Hallgrimur Sigurðsson, formaður Vinnumálasambands samvinnufélaganna, segir það hafa veriö ljóst þegar um h vita- sunnu, um hvað yrði á endanum samið. En hvers vegna var þá verið að drolla? Jú, vitanlega vilja báðir aðilar tryggja, að þeir IIMIVILEIMO VFIRSVIM ERLEIMD Uppúr sauð með Haig og Clark á fundi æðstu manna iðnrikja i Versölum. Kom þar til háarifrildis milli þeirra, einkum út af stefnumótun i viðskiptum vestrænna rikja við Sovétrikin. Haig fékk þvi ráöið, að nið- urstaða fundarins varö að hert skyldu lána- kjör i austurviöskiptum, en Reagan fylgdi ekki eftir á fundinum ætlun sinni að reyna að knýja riki Vestur-Evrópu til að hætta við gaskaup I stórum stil frá Sovétrikjunum og fjármagnsútvegun og efnissölu til lagning- ar nær 6000 kilómetra langrar gasleiðslu I þvi skyni. I Washington notaði svo Clark tækifærið, þegar Haig var bundinn á afvopnunarfundi Allsherjarþings SÞ i New York I viðræðum við Gromyko, utanrikisráðherra Sovétrikj- anna, til að kalla saman Þjóöaröryggisráö- ið til fundar um afstöðu til gasleiðslunnar. Þar fékk hann Reagan til að ákveöa aö Bandarikjastjórn láti bann sitt við sölu á varningi og tækni til gasleiðslulagnarinnar ná til dótturfyrirtækja bandarlskra fram- leiðenda erlendis og alerlendra fyrirtækja, sem nýta tækni i bandariskri eigu sam- kvæmt leigusamningi. Með þessar ákvörðun hefur stjórn Reag- ans lýst yfir viðskiptastriði við Vestur-Evr- ópu og Japan. Vestur-Evrópurikin eru staö- ráðin I að standa við samninga viö Sovét- menn um lögn gasleiðslu og gaskaup. Bæði vilja þau draga úr þörf sinni á oliu frá Persaflóa og sjá aðþrengdum fyrirtækjum fyrir verkefnum á samdráttartima. Auk þeirra viðskiptahagsmuna sem i húfi eru, gengur Bandarikjastjo'rn I berhögg við starfsreglur og lagafyrirmæli i millirikja- viöskiptum. Hún krefst lögsögu yfir erlend- um fyrirtækjum i bandariskri eigu, og hef- ur breska stjórnin þegar gert ráðstafanir til að hnekkja þvl tilkalli gagnvart fyrirtækj- um sem aðsetur hafa i Bretlandi. Þar á of- an reynir Bandarikjastjórn að ónýta með afturvirkum aögerðum löngu frágengna viðskiptasamninga erlendra fyrirtækja, ef þau nota tækni frá bandariskum aöilum. Til að bæta gráu ofan á svart skellti svo Bandarikjastjórn gjaldi á erlendan stálinn- flutning til Bandarikjanna, og viðhafði til þess einhliða og vafasamar túlkanir á al- þjóðlegum reglum um undirboö vegna op- inbers stuðnings við iðnað. Þessi ráöstöfun bitnar harðast á þeim Vestur-Evrópurikj- um sem eiga i mestum vandræðum með stáliönaö sinn. Eins og vænta mátti hafa Schmidt kansl- Umdeilt „grímuball” Reagan forseti (t.v.) og Shultz utanrikisráðherraefni spjalla saman iCamp David um sfð- ustu helgi. Trúðleikhús frá Kaliforníu leggur undir sig alþjóðasviðið fari eins langt og mögulegt er. Nokkur at- riði settu þó strik I reikninginn ööru fremur. í fyrsta lagi var það samningur bygginga- manna og I öðru lagi krafa Vinnuveitenda- sambandsins um „aflavlsitölu”. Það var svo Vinnumálasamband samvinnufélag- anna, sem skar á þann hnút — eins og reyndar hefur gerst áður. Eftir að ljóst var að VSÍ og ASÍ voru með samning tilbúinn á borðinu kom Vinnuveitendasambandið aftur inn i myndina. Þegar forystumenn ASÍ og VSÍ höfðu ræðst við daglangt var ákveðið að boða til samningafundar. Og þegar samningamenn komu til fundar i Karphúsi rikissáttasemjara á þriðjudags- kvöldið var vitaö, að ekki yrði staðið upp fyrr en eftir undirskrift. Raunar hafði verið ætlunin að skrifa undir miklu fyrr en klukkan tæplega sjö um morguninn en eins og venjulega koma á siöustu stundu upp ýmis atriði, bæði stór og smá,sem allt sýn- ist ætla að stranda á. Ká má ekki gleyma þvi, að það er sál- fræðilegt atriði fyrir samningamenn að rubba ekki samningum af i hvelli, jafnvel þótt flestir geti imyndað sér tiltölulega snemma hvernig útkoman verður. Menn verða, eins og vikið var að i grein I siðasta Helgarpósti, að fá tækifæri til að sætta sig við að ekki verður skrifað undir óskasamn- ingana. Það tekur tima. Forystumenn á vinnumarkaði hafa látiö hafa eftir sér við gerð þessara kjarasamn- inga, aö brotið hafi verið blaö I Karphúsinu aðfaranótt miðvikudagsins. Það má til sanns vegar færa — vinnufriður er tryggður i landinu fram á annaö haust og það út af fyrir sig er fagnaöarefni. En það eru fleiri eftir meö lausa samninga — sjó- menn, opinberir starfsmenn, bókagerðar- menn, blaðamenn og margir fleiri hópar. Óvist er að þessir hópar allir telji þessa samninga jafn góða og af er látið. Og það er jafn óvist að fordæmið um umsamda visi- töluskerðingu gleymist áður en kemur að næstu samningalotu þessara aðila, haustið 1983. <-(tir ómar Valdimarsson eftir Magnús Torfa ólafsson ari, Mitterrand forseti og aðrir forustu- menn rikja Vestur-Evrópu svarað Banda- rikjastjórn fullum hálsi. Reagan hefur tek- ist aö gera að engu þann árangur sem náð- ist I Versölum og Bonn i að bæta sambúð Bandarikjanna og bandamanna þeirra. Innrás Israelsmanna i Libanon bætti ekki úr skák. Þar er þaö að visu Clark en ekki Haig sem stendur nær sjónarmiði rikja Vestur-Evrópu, að taka þurfi tillit til mál- staðar Palestinumanna. En eins og ástatt var i Washington náði togstreita utanrikis- ráðherrans og formanns Þjóðaröryggis- ráðsins einnig til afskipta Bandarikjanna af hernaðarátökunum við Beirut. Haig mót- mælti yfirlýsingu frá Hvita húsinu um af- stööu Israelsstjórnar og kvartaði yfir aö Reagan hefði skeytaskipti við Philip Habib, fulltrúa Bandarikjanna i Beirut, án þess aö utanrikisráöuneytið fengi aö fylgjast með. Bandarikin eru i rauninni utanrikisráð- herralaus um óákveðinn tima, meðan dregst að utanrikismálanefnd Oldunga- deildarinnar taki afstöðu til útnefningar George Shultz I embættiö. Með vali hans hefur Reagan hafiö Kaliforniumenn úr hópi fornkunningja sinna i öll æðstu embætti varðandi samskipti Bandarikjanna við um- heiminn. Shultz og Weinberger land- varnaráðherra koma meira að segja báðir úr sama stórfyrirtækinu, Bechtel Corp. Þaö hefur átt mikil viðskipti við arabariki, eink- um Saudi-Arabiu. Shultz var yfir hópnum sem vann að stefnumótun i utanrikismálum þann tima sem Reagan hafði frá kosningu fram til embættistöku. Var þá gert ráö fyrir að hann hlyti utanrikisráðherraembættið, en þegar það rættist ekki var haldið að ástæðan væri að tengsl hans við arabariki væru illa séð hjá vinum Israels. Þvi er ljóst að tsraelssinnar á þingi eiga eftir að spyrja hann i þaula i staðfestingaryfirheyrslu. Shultz hefur það fram yfir Clark, að hann er gerkunnugur alþjóðamálum, eink- um efnahagsmálum, frá þvi hann var fjár- málaráöherra i stjórn Nixons. A honum mun velta öðrum fremur, hvort vanhæfni og fáfræöi Reagans og kumpána hans úr „eldhússráðuneytinu” kalifornska I al- þjóöamálum fá að tröllriða bandariskri ut- anrikisstefnu.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.