Helgarpósturinn - 17.09.1982, Síða 2
Gárungar segja að hið nýja
í J eða væntanlega stórfyrirtæki
S Kísilmálmvinnslan sem finna
á stað á Reyðarfirði hafi enn sem
komið er ekki hafið aðra starfsemi
en mikil viðskipti við Ferðaskrif-
stofu ríkisins. Fyrirtækið var stofn-
að kringum áramótin síðustu, sett á
laggirnar stjórn skipuð fyrst og
fremst pólitískum gæðingum og
síðan ráðinn framkvæmdastjóri
Egill Skúli Ingibergsson, fyrrum
borgarstjóri í Reykjavík. Er sagt
að frá stofnun hafi starfsmenn og
ráðamenn hinnar fyrirhuguðu
verksmiðju farið 7-8 ferðir til út-
landa og sé stjórnin núna í kynnis-
ferð um öxulveldin Noreg, Þýska-
land og Ítalíu að fræðast um kísil-
vinnslu. Sjá ekki allir tilgang með
slíkum ferðum að minnsta kosti
ekki með tilliti til kostnaðar...
Breski þungarokkssöngvar-
f J inn Ian Gilan, sem Morgun-
blaðið sagði frá í vikunni að
kæmi næstu daga til íslands kemur
ekki fyrr en 15. október. Hann
kemur hingað á vegum Steina hf.
og gerir stuttan stans, fyrst og
fremst til að kynna nýja plötu
hljómsveitar sinnar Gilan. Platan
heitir Magic, og mun höfuðpaurinn
væntanlega árita hana og ræða við
blaðamenn, ekki ósvipað því sem
B.A. Robertson gerði hér um
árið...
éy
0
, Mjög víða eru nú að koma
fram bullandi kreppueinkenni
í þjóðfélaginu. Við heyrum
m.a. að senn stefni í algjört verð-
hrun á fasteignamarkaðnum og
ættu menn að bíða með slíkar fjár-
festingar um sinn...
J
l Nokkur átök er> nú að finna
innan Alþýðuflokksins vegna
tímasetningar prófkjörs.
Sumir Alþýðuflokksmenn vilja
ekki prófkjör fyrr en í vor til að
hafa góðan tíma til að styrkja stöðu
sína í þeim slag, en aðrir vilja að
það fari fram á næstu mánuðum.
Útlit er þó fyrir að prófkjör Al-
þýðuflokksins fari fram í nóvember
næstkomandi og muni flokksstjórn
beina þeim tilmælum um slíkt til
kjördaémisráða úti um land...
•flEins og Helgarpósturinn hef-
ur greint frá eru umsjónar-
menn Helgar-Tímans, þeír
Egill Helgason og Iilugi Jökulsson,
um það bil að láta af störfum við
blaðið og hefur Atli Magnússon
fært sig um set úr hvunndagsrit-
stjórninni og tekið við umsjón helg-
arblaðsins. Nú hefur honum verið
fenginn aðstoðarmaður sem er
Guðmundur Magnússon, nýbak-
aður heimspekingur frá London en
hann leysti af á Dagblaðinu sáluga
Föstudagur 17. september 1982 _jjSstuririri.,
nokkur sumur. Pá hefur Eiríkur S.
Eiríksson sem er nýkominn úr
blaðamennskunámi í Noregi verið
ráðinn til fréttaskrifa í stað Atla....
Pað sem menn bíða hvað
fj spenntastir eftir varðandi
leiklistarlífið á komandi vetri
er frumsýning Þjóðleikhússins á
nýjasta verki Guðmundar Steins-
sonar, Garðveislu. Um það hafa
blöð skrifað mikið og menningar-
liðið enn meira talað. Senn geta
menn farið að varpa öndinni létt-
ara því nú styttist í frumsýningu, og
jafnframt getum við glatt þá með
því að unnt verður að fá leikritið
svart á hvítu um svipað leyti. For-
lag Lystræningjans mun nefnilega
gefa leikritið úr á bók og verður
það m.a. notað við kennsiu í
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð....
»5rA Þá má geta þess að danski rit-
/', höfundurinn Hans Hansen
höfundur hinna vinsælu
unglingabóka sem kenndar eru við
„Naflann...“, kemur til íslands í
október og gefur Lystræninginn út
nýjustu bók hans, sem á frummál-
inu nefnist „Hjertesaar". Tilefni
íslandsferðar Hans Hansen er þó
aðallega frumsýning dönsku-
kennsluþáttanna sem Danir og ís-
lendingar hafa unnið að undanfar-
ið en Hansen er einn aðalhöfunda
þeirra...
Pá mun Lystræninginn gefa út
f'J sögu Þorsteins Marelssonar
S Viðburðaríkt sumar, sem les-
in hefur verið undanfarið í útvarps-
þættinum Sumarsnældan við vin-
sældir ungra hlustenda....
Áslaug Ragnars blaðamaður
/ J á Morgunblaðinu mun senda
S frá sér sína aðra skáldsögu í
haust, en fyrsta skáldsaga hennar
„Haustvika" kom út árið 1980.
Sagt er að hin nýja saga Áslaugar
fjalli um einstæða móður sem tekur
sig til og flytur til Vestmannaeyja
meðan gosið stendur þar yfir og
gerist matráðskona björgunar-
manna. Ýmislegt drífur á daga
hennar þar, en samt sem áður flyst
hún á fastalandið og tekur þar til
hendinni við atvinnurekstur sem
gengur upp og ofan....
Leiðrétting
Nokkurra bagalegra missagna
gætti í viðtalinu við Ómar Halls-
son, veitingamann í síðasta Helg-
arpósti. Um leigutöku á rekstri
hótelsins Valhöll á Pingvöllum
segir m.a.: „Pá var ástandið ekki
glæsilegt, það stóð til að loka“.
Þessi orð má skilja sem svo að verið
sé að kasta rýrð á rekstur fyrri
rekstraraðila, sem síður en svo var
ætlun viðmælanda blaðsins. Eins
og reyndar kemur fram síðar í við-
talinu er hótelrekstur á stað eins og
Pingvöllum ævinlega erfiður og
áhættusamur, enda mikið undir ve-
ðri kominn. Þá er ekki rétt að þau
hjón Ómar og Ruth Ragnarsdóttir
séu að kaupa Geirsbúð og veislu-
sali. Verið er að semja um leigu en
ekki kaup á slíku húsnæði. Beðist
er velvirðingar á þessum villum.
BYLTINGARKENNDUR!
KYNN URI DAG í KÓPAVOGI OG Á AKUREYRI:
———CoW coodúíon
-»»-»•* Hot condttion
• Auðvelt að hlaða farangursrými.
Va
Galvaniserað „boddý“.
0 Mjög rúmgóður
OPIÐ FRÁ KL. 10-00-18.00
Bílará staðnum til reynsluaksturs.
TOYOTA
UMBOÐIÐ P. SAMÚELSSON & CO. HF.
NÝBÝLAVEGI 8 KÓPAVOGI SÍMI 44144
• Sérlega eyðslugrannur.
Tryggir sjálfkrafa minni eyðslu
og jafnari gang með innbyggðum
hitajafnara.
1983
Toyota Tercel ”83 er af nýrri kynslóð bíla sem
japanskir vísindamenn og hönnuðir hafa unn-
ið lengi að. Tercel ”83 er með nýtt útlit og
hönnun til að minnka loftmótstöðuna, nýta
Jtraft vélarinnar og minnka bensíneyðslu.
Tercel ”83 er með endurbætt framhjóladrif,
nýja og lengri fjöðrun og mjög endurbætt
hemlakerfi. Bíllinn tryggir sjálfkrafa minni
bensíneyðslu og jafnari gang meö inn-
byggðum hitajafnara.
Tercel ”83 er mjög rúmgóður að innan með
stóra afturhurð og sæti sem leggst alveg
f ram.
BÍLL MEÐ LANGA LÍFDAGA:
Tercel ”83 er með hitagalvaniserað „boddý"
til varnar ryðskemmdum og sérstaklega stál-
styrkta grind til öryggis ökumanni og far-
þegum.
BLÁFELLS,F
DRAUPNiSGÖTU 7A
AKUREYRI — SÍMI 96-21090