Helgarpósturinn - 17.09.1982, Qupperneq 15
Föstudagur 17. september 1982
.15
/J-N
^ \ Pað munu hafa orðið vinstri
mönnum í borgarstjórn
Réykjavíkur töluverð von-
brigði að Sjálfstæðismenn komu
sér saman um að mæla einhuga
með Sigurjóni Fjeldsted í stöðu
fræðslustjóra Reykjavíkurborgar,
en auk Sigurjóns sóttu þær Bessý
Jóhannsdóttir fyrrverandi vara-
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
og Aslaug Bryjólfsdóttir um stöð-
una. Gerðu vinstri menn sér vonir
um að Bessý fengi a.m.k.eitt at-
kvæði í Fræðsluráði, sem hefði þýtt
að Sigurjón og Áslaug hefðu orðið
jöfn að atkvæðum. Mennta-
máiaráðherra fær nú málið til með-
ferðar og á örugglega óhægt um vik
að ganga framhjá Sigurjóni. Halda
þó margir að það vegi mun þyngra
á metunum þegar til ákvörðunar
ráðherra kemur að Áslaug er af
góðum og gegnum framsóknar-
ættum á Akureyri....
Ungir Sjálfstæðismenn hugsa
Jsér nú til hreyfings vegna
■S Alþingiskosninganna, hvenær
sem þær annars verða. Er sagt að
þeir leggi mikla áherslu á að
formaður SUS Geir Haarde gefi
kost á sér ef til prófkjörs kemur og
telja líklegt að þeir geti tryggt hon-
um öruggt sæti á lista flokksins rétt
eins og Friðriki Sophussyni á sín-
um tíma. Sumir ungir Sjálfstæðis-
menn munu þó ekki vera alltof
hressir með Geir, sem starfar sem
hagfræðingur hjá Seðlabankanum,
og telja ekki á kerfiskallana í flokk-
num bætandi...
íy
')\
Annar ungur Sjálfstæðis-
I maður sem hugsar sér til
hreyfings er Einar Kr. Guð-
fínnsson framkvæmdastjóri í
Bolungarvík. Ekki er vitað hvort
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
hyggst halda áfram í Vestfjarða-
kjördæmi eða hætta, en mjög
sennilegt verður að teljast að braut
Einars væri nokkuð greið ef Þorv-
aldur hætti. Það mun hins vegar
minnka möguleika Sigurlaugar
Bjarnadóttur sem hafa mun fullan
hug á að endurheimta þingsæti sitt.
Um tíma heyrðist að Matthías
Bjarnason hyggðist hætta þing-
mennsku eftir þetta kjörtímabil, en
Matthías mun nú endanlega ákveð-
inn að halda áfram, enda líklegt að
honum standi sjávarútvegs-
ráðherraembættið til boða ef
Sjálfstæðisflokkurinn kemst í valda-
aðstöðu...
0
Elektraflugvél Arnarflugs
f M hefurstaðiðónotuðáReykja-
víkurflugvelli í sumar, enda
erfitt að fá verkefni fyrir vélar af
þessari tegund. En það er dýrt
spaug. Fróðir menn hafa nefnilega
reiknað út að það kosti hvorki
meira né minna en eitt þúsund doll-
ara á dag að láta vélina standa á
vellinum. Annars er enginn upp-
gjafatónn í Arnarflugsmönnum
þótt reynslan af fyrsta sumri í
áætlunarfluginu sé misjöfn. Sæta-
nýting mun um 60% að meðaltali á
flugleiðunum þrernur til Amster-
dam, Zúrich og Dússeldorf. Best
var nýtingin til Zúrich en verst til
Dússeldorf. í ágúst var nýtingin til
dæmis 68,7% til Amsterdam,
78,2% til Zurich en 19.4% til Dúss-
eldorf eftir því sem við heyrum...
■^\En það er víðar erfitt en hjá
f JArnarflugi. Stjórn Fluglciða
y hefur nú lagt blátt bann við
fjölgun starfsfólks í öllum deildpm
og verður jafnframt reynt að kom-
ast hjá því að ráða fólk í staðinn
fyrir það sem hættir að sjálfsdáðum
‘nú í vetur...
ri'l Þó við íslendingar látum fá
f \ „æði“ framhjá okkur fara,
virðist eitt magnaðasta æðið í
Bretlandi og Mið-Evrópu alveg
ætla að láta okkur ósnert: Það er
málmleitartækjafaraldurinn. Skýr-
ingin er kannski sú að hér er lítil
von fjársjóða í jörðog rómverskir
peningar fáséðir. En tækin geta þó
komið að góðum notum hér sem
annarsstaðar. Fyrir urn sjö árum
var Einvarður Jósefsson útibústjóri
Grensásútibús Verslunarbankans
að hjálpa nokkrum kollegum sín-
um við byggingu sumarbústaðar
starfsmannafélags bankans. Að
verki loknu þvoðu þeir sér um
hendurnar útivið, en þegar Ein-
varður var að hrista vatnið af hönd-
unum þaut giftingarhringurinn
skyndilega eitthvað út í loftið. Var
strax gerð mikil leit að hringnum,
en allt kom fyrir ekki: Hann hrein-
lega fannst ekki í gróðrinum. Fyrir
nokkrum vikum komst Einvarður
hinsvegar yfir málmleitartæki og
varð þá hugsað til hringsins í gras-
inu. Og viti menn, sjö sentimetrum
undir grassverðinum fannst hring-
urinn og gljáði skært...
0:
Ferðalangar sem hafa lagt leið
| sína austur á Hólsfjöll í sumar
og ætlað að fara í Hólmatung-
ur og Hljóðakletta hafa heldur en
ekki rekið upp stór augu. Veginum
í gegnum Hólmatungur og niður í
Hljóðakletta hefur nefnilega verið
lokað, en hafin er lagning nýs vegar
uppi á melum og hólum þaðan sem
þessirfallegu staðir sjástekki. Við
könnun málsins kemur í Ijós, að
það er Náttúruverndarrað sem
stendur fyrir þessu, og ástæðan er
sú að sögn þeirra ráðsmanna, að
koma í veg fyrir að þessar náttúru-
perlur verði eyðilagar. Menn sem
hafa komið þangað öðru
hverju undanfarna áratugi hafa þó
ekki séð þess merki, að landspjöll
hafi verið unnin og þeir hörðustu
ruddu meira að segja vegatálmum
á gamla veginum í burtu og héldu
sínu striki eins og ekkert hefði í
skorist. En þeir ferðamenn sem
ekki eru því kunnugri á þessum
slóðum fara semsé hjá án þess að
finna þessa fögru staði...
,l5^l Þeir eru valdamiklir ráðherr-
/ Jt arnir okkar og vita það sjálfir
y sbr. „valdið er mitt“. Þessa
sögu heyrðum við af einum ráð-
herranum: Ráðherrann hafði ný-
tekið á móti sendinefnd sem átti
ákveðið erindi við hann og rétti
honum aðalatriði málsins niður-
skrifuð á blaði. Ráðherra rýndi á
textann smástund, hringdi síðan á
einkaritarann og bað að koma inn-
fyrir sem snöggvast. Ritarinn kom
að vörmu spori, ráðherra tók af sér
gleraugun og rétti ritaranum:
„Heldurðu að þú pússir gleraugun,
vinan" - Miklir menn erum vér
Hrólfur minn...
Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs eru tvímœlalaust ein arðbœrasta og
öruggasta fjárfestingin sem völ er á í dag.
Athygli er vakin á eftirfarandi atriðum:
---------------•-----------------
VEXTIR: Vextir eru nú 3,5% á ári og jafnir allan lánstímann.
BINDITIMI. Skírteini Í2. flokki l 982 verða innleysanleg aðþremur árum
liðnum, þ.e. frá 1. október 1985. Á binditíma hefur jafnan verið hœgt að
selja spariskírteini með skömmum fyrirvara á hinum almenna markaði.
LÍTIL FYRIRHÖFN: Fjárfesting í spariskírteinum er mun
fyrirhafnar- og áhyggjuminni en fjárfesting ífasteign
og skilar auk þess öruggum arði.
SKA TTFRELSI: S/cv. gildandi lögum um tekjuskatt og eignarskatt
kemur ekki í neinu tilviki til skattlagningar á vaxta- og verðbótatekjur af
spariskírteinum hjá mönnum utan atvinnurekstrar.
FuU verðtrygging, háir vextir og umfram allt örugg fjárfesting.
Kynnið ykkur bœtt kjör á verðtryggðum sparis/drteinum ríkissjóðs og geríð
samanburð við aðra ávöxtunarmöguleika.
Útboðsskilmálar liggja frammi hjá söluaðilum, sem eru bankar,
sparisjóðir og nokkrír verðbréfasalar.
SEÐLABANKI ÍSLANDS