Helgarpósturinn - 17.09.1982, Page 21

Helgarpósturinn - 17.09.1982, Page 21
'elgar .pðsturinn. Föstudagur 17. september 1982 21 ekki. En ef hingað kemur maður sem er of drukkinn og æstur til að fá að vera er honunt ekki hent út á gaddinn. Þá köllum við til lögreglu sem leyfir þeim að gista í fanga- geymslunum. En ég vil taka það fram að þessir menn eru langflestir ágætir í umgengni án víns.“ „Sakna þeirra ekki“ Ef litið er aftur í tímann er óhætt að slá því föstu að götulögreglan í Reykjavík hefur bor- ið hitann og þungann af útigangsfólkinu. fram á síðustu ár. Sennilega hefur enginn lögreglumaður haft meiri afskipti af þessum vanda en Bjarki Elíasson yfirlögregluþjónn. Við báðum hann að segja frá þeirri hlið sem að lögreglunni snýr. „Jú, það er rétt að Hafnarstrætisróninn er að verða úr sögunni. Suntir segjast sakna þeirra en því er ég ekki sammála og tala þar áreiðanlega fyrir munn flestra lögreglu- manna. Þegar ég hóf störf í lögreglunni fyrir svona 30 árum var þetta stórt vandamál. Það var stór hópur fólks sem hafði hvergi höfði sínu að halla nema í Kjallaranum í gömlu lög- reglustöðinni við Pósthússtræti og hann var ekki mönnum bjóðandi. Þeir hírðust í skúrum, skipum og hitaveituskurðum og við höfðum þá á höndum okkar ýmist úldna, frosna eða soðna. Þeir þrifu sig ekki og lyktin og óþrifnaðurinn var þvílíkur að lögreglu- menn flökraði við að snerta þá. Við reyndum að koma þeim fyrir en bæði var að þá voru fá vistpláss og svo var áhugi ráðamanna á þessum vanda afar takmark- aður, það var eins og þeir vildu ekki vita af honunt. Þetta ástand var svotil óbreytt fram til 1962 þegar Vernd stofnaði heimili í Grjótagötunni. En það var alltof lítið og auk þess var ekkert meðferðarheimili til, einu stofnanirnar voru Gunnarsholt, Víðines og Flókadeildin, en þar var engin meðferð sem heitið gat. „Hótel Síríus“ Við reyndum mikið að fá því framgengt að komið yrði upp samastað fyrir útigangsfólkið þar sem það gæti sofið og þrifið sig en það hlaut litlar undirtektir. Sú sem harðast gekk fram í þessu var Þóra Einarsdóttir hjá Vernd. Hún lá í heilbrigðis- og félagsmálaráði borg- arinnar en mætti andstöðu, því var ma. borið við að ekki væri rétt að ala á aumingjaskap þessa fólks. Svo gerist það að mikil blaðaskrif verða um togarann Síríus sem lá bundinn hér í höfn- inni. Þar höfðu útigangsmennirnir hreiðrað um sig og fljótlega varð ástandið um borð þannig að það var varla hægt að fara um borð. Við í lögreglunni vorum beinlínis hræddir um að farsótt brytist út vegna óþrifanna. Við þessar umræðurfóru menn að rumska. Um þetta leyti losnaði Farsóttarhús- ið og haustið 1969 fengum við það til reynslu. Við vorum kosin í framkvæmdastjórn húss- ins, ég, Þóra og Gunnar Þorláksson. Við tókum engin laun fyrir þetta starf því við vildum sanna að hægt væri að reka svona stað. Þetta gafst það vel að síðan hefur ekki ver- ið talað um að leggja heimilið niður. Starf- með að komast út í þjóðfélagið. En til þess verða þeir að sætta sig við sjálfa sig eins og þeir eru og bjóða sig fram. Og að sjálfsögðu virða allar reglur. Annars átti ég mjög erfitt með að átta mig á minni eigin þróun. Ég reyndi um tíma að finna ástæðu fyrir drykkjuskapnum. Var þaðr egna þess að ég var einu sinni rassskellt- ur sem barn? Eða vegna þess að ég er rauðhærður? Eg reyndi að kenna öllu um, uppeldinu, þjóðfélaginu, og um tíma var ég alltaf á leiðinni til útlanda. Ég fór þó aldrei því innst inni vissi ég að hér hafði ég þó visst aðhald. Ég lenti líka í sjálfsmorðshug - leiðingumen aldrei nógu mikill bógur til að fylgja þeim eftir. Nú er ég hættur þessu . Nýjar stofnanir og aukinn skilningur hafa svotil útrýmt útigangsmönnum borgarinnar semin hefur verið aukin og nýtt gistiskýli fyrir konur opnað. Nú er rekstur skýlanna í hönd- unt Félagsmálastofnunar og þau hafa gefið góða raun. Þarna fékk útigangsfólkið húsa- skjól og það þurfti að hlíta vissum reglunt. td. að fara í bað svo óþrifin og lyktin hurfu. Þessi gistiskýli hafa létt verulega álaginu af lögregl- unni þótt við þurfum alltaf að hafa einhver afskipti af þessu fólki. En aðstaðan hjá okkur batnaði líka veru- lega með tilkomu fangageymslunnar við Hverfisgötu. Þar er mun betri aðstaða til að veita fólkinu aðhlynningu en áður var. Enda finnst okkur það vera allt annað líf að hafa afskipti af því, það er hægt að snerta það. Það hefur nú verið ráðinn lögregluniaður sem hefur það að aðalstarfi að sinna þessu fólki. Hann ræðir við það og reynir að fá það til að fara í nteðferð. Þetta hefur gefist vel því oft á þetta fólk við heimilisvandamál að stríða, þetta eru viðkvæm og persónuleg mál sent krefjast algers trúnaðar. Og það getur líka reynst flókið mál aö koma fólki í með- ferð, krefst góðrar samvinnu við lækna og viðkomandi stofnanir." Gistinóttum fækkar verulega -Þú sagðir að álagið á lögreglunni hefði minnkað, geturðu nefnt einhverjar tölur í því sambandi? „Já, ég get nefnt tölur unt fjölda nætur- gistinga í fangageymslununt. Á árunum 1972 - 74 voru þær uþb. 10.500 og þar áttu í hlut 2.300-2.400einstaklingar. Núna eru þær um 6.000 á ári og fjöldi einstaklinga er á bilinu 1.700 - 1.900. Og þetta hefur gerst samtímis því að íbúum höfuðborgarsvæðisins hefur fjölgað. Þetta er jákvæð þróun og í þeini anda sem við viljum vinna, þe. að koma í veg fyrir afbrot. Og langflest aftrot eru tengd áfengi, það er stóri bölvaldurinn." -En hvað með yngra fólkið? Bætist ekkert við? „Jú, það koma alltaf öðru hvoru ungir menn til okkar. Ef þeir koma ítrekað er rætt við þá og reynt að koma þeim í meðferð. Við reynurn að korna í veg fyrir að þeir fari inn á sörnu braut." Eftirlegukindurnar En þótt svo gæti virst sem þetta vandamál sé hamingjusamlega leyst er alltaf dálítill hópur sem er svo illa farinn andlega og líkamlega að engin ráð virðast duga. Viðmælendur blaðs- ins samsinntu þessu og sögðu að þetta fólk væri flest orðið trutlað á geðsmunum af lang- varandi drykkjuskap og pilluáti. Það tolldi hvergi en flakkaði gjarnan á milli stofnana. Sumt væri þannig að það kæmi sér allsstaðar út úr húsi, það er einfaldlega ekki hæft til að vera á stofnunum, eða stofnanirnar hæfa því ekki. „Það er viss hópur sem á við samtvinnuð vandamál að stríða," sagði Bjarki. „Áfengi. lyf og geðræn vandantál. Það vill enginn hafa þetta fólk en það þyrfti að vera á einhverri stofnun. Sú stofnun er ekki til og þær sem fyrir eru vilja ekki viðurkenna það sent sína sjúklinga. Þetta fólk lendir ntikið hjá okkur og við vildum gjarnan fá einhverja sérstofnun fyrir það, hún þyrfti ekki að taka nema svona 20 manns." Til þessa hóps heyra ma. hjónakorn sem reyndar eru engin hjón, en margir kannast áreiðanlega við þau af götunum. Þau eru haldin stelsýki og konan hefur lag á að koma illu af stað í kringum sig. Það eru til ýmsar sögur af þeirri áráttu þeirra að hnupla öllu sem þau koma höndum yfir, alveg burtséð frá því hvort þau hafa eitthvert gagn af því sem þau stela. Eitt sinn var td. verið að hleypa þeim út að morgni dags úr fangageymslunum og þegar verið var að afhenda þeim eigur þeirra fundust hvergi axlabönd karlsins. Lög- regluntenn höfðu uppi á snæri til að reyra buxurnar upp um karlinn en þá tekur einn þeirra eftir því að axlaböndin gægjast upp úr hálsmáli konunnar. Hún hafði þá ekki gert sér grein fyrir hver ætti þau en stolið þeim til vonar og vara. Sárafáir „ftkniefnarónar“ Að undanförnu hafa miklar umræður verið um fíkniefnavandann og okkur fannst því liggja beint við að spyrja viðmælendur okkar um það hvort eitthvað væri urn að fólk len'ti í ræsinu af völdum fíkniefna. Hvort etv. væri að verða til ný tegund af útigangsfólki. Allir könnuðust við vandann, td. eru margir af þeirn sem gista í Farsótt bæði í áfengi og pillum. Margir hafa líka farið í með- ferö vegna hassreykinga eða lyfjaáts. En eiginlegir „fíkniefnarónar" eru sárafáir. „Þeir lenda ekki inni hjá okkur," sagði Bjarki. „Ekki vegna neyslu, heldur vegna sölu og dreifingar. Þessi lyf hafa öðruvísi áhrif en áfengið og neytendur þeirra lenda frekar inni á geðsjúkrahúsum." Bjarki sagði að margir sem sykkju djúpt í fíknilyfin færu til útlanda, einkum Kaupntannahafnar og Amsterdam. „Það er svipað og með drykkjumennina, þeir koma margir til Reykjavíkur utan af landi af því að þeim er af einhverjum orsökum ekki vært þar. Við flytjum liins vegar út fíkniefna- neytendur sem ekki þrífast hér. Þeir konia stundum aítur og þá oft beint inn á geð- sjúkrahús," sagði Bjarki. Aukinn skiiningur Ef draga á einhverja ályktun af þessari samantekt hlýtur hún að vera sú að stétt Hafnarstrætisróna sem áður var áberandi þáttur í borgarlífinu heyrir nú sögunni til að mestu leyti. Það ntá þakka auknum skilningi almennings og yfirvalda, skilningi sem fætt hefur af sér ntargar stofnanir sem í sam- einingu mynda einskonar öryggisnet. Fólki heíur skilist að alkóhólismi er sjúkdómur sem ber að ineðhöndla ekkert síður en krabbamein og berkla. Fyrir bragðið hefur þeim sem lent hata í ræsinu verið gert auðveldara aö fá lækningu og komast aftur í tölu nýtra borgara. Þetta öryggisnet er dýrt í rekstri en það borgar sig. Boddíhlutir, brettí og fí. Fiat Ritmo Fiat 127- 8- 31-32126P Mazda 323 VW 1300-1303 Simca 1307 Simca 1100 Mercedes Benz 200 — 280 Audi 80 Hunter Autobianchi A112 Ford Escort MK1 —11 Ford Fiesta Mini Opel Reckord DE Honda Civic Honda Accord Toyota Corolla Volvo 142-144 VW Jetta BMW316 VW Golf VW Derby Renault 4—5 Lada 1200 Datsun 1200—120Y 100 A pickup 75-79 Passat Bretti á fleiri tegundir væntanleg í haust. BMW 316 Fiat 127 Mazda 323 m Mini Lada 1200-1600 Ford Escort MK 1 Ford Fiesta M. Benz 300 D Opel Toyota Corolla Volvo Givarahlutir Ármúla 24. Reykjavík. Sími 36510

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.