Helgarpósturinn - 24.09.1982, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 24.09.1982, Blaðsíða 10
10 Föstudagur 24. september 1982 .pSsturinn : Veturinn hefst með Dieter Roth 03 Nýlistasafnið við Vatnsstíg er nú að skipuleggja starfsemi vetrarins eins og aðrar mcnningarstofnanir. Þegar er búið að ákveða fjórar myndlistarsýningar og einn gjörn- ing fram til áramóta og mörg nöfn komin á blað fyrir síðari hluta vetrar. Fyrsta sýning vetrarins og kann- ski sú sem hvað mesta afhygli vek- ur er sýning á verkum Dieter Roth, en hún verður opnuð 1. október. Hugmyndin að þeirri sýningu kviknaði þegar Ragnar Kjartans- son gaf safninu bækur listamanns- ins sem hann hafði gert á sjötta ára- tugnum þegar hann bjó hérá landi, ungur og lítt þekktur. Er Dieter frétti af þessu brá hann við og sendi safninu þær bækur sem upp á vant- aði þannig að nú verða allar bækur hans sýndar og er það í fyrsta sinn sem t'æri gefst aö sjá þær allar. 22. október verða tvær stúlkur úr Hamrahlíðarskóla með installati- on. Árni Ingólfsson í Nýlistasafn- inu sagði að þess væri gætt að hafa göt í áætluninni svo.hægt væri að setja upp gjörninga óg annaö sem upp kæmi með litlum fyrirvara. „Gjörningarnir draga marga óhorf- endur að," sagði hann. í lok október opna tveir ungir myndlistarmenn sýningu í safninu, þau Guðjón Ketilsson og Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir. Seinni part- inn í nóvember sýnir danski listam- aðurinn Jörgen Brun Hansen skúlptúr og í byrjun desember sýn- ir hollenska listakonan Nini Tang málverk. Ekki er farið að tímasetja sýn- ingar eftir áramót, en þegar eru afráðnar sex einkasýningar. Þar eru á ferðinni Eria Þórarinsdóttir, ung textílkona, ívar Valgarðsson, finnski listamaðurinn Mallanders, Helgi Þorgils Friðjónsson, Kristín Hraunfjörð og Árni Ingólfsson. í janúar munu tveir ungir myndlist- armenn þeir Tumi Magnússon og Magnús Guðlaugsson sýna myndir sínar og myndir eftir vistmenn af Arnarholti en þar hafa þeir báðir starfaö. Þá hefur Einar Benedikts- son sem getið hefur sér frægðar sem forsöngvari í Purrki Pillnikk pantað tíma fyrir gjörning og jafn- vel sýningu með tónlist. „Við höfum áhuga á að taka upp aukið samstarf við tónlistarmenn, einkum þó framsæknari og pönkar- ana, enda eru margir þeirra farnir að vinna með vídeó og ýmsa aðra' miðla. í því skyni höfum við rætt viö Guðna Rúnar Agnarsson, en ekki hefur enn veriö ákveðið neitt í því sambandi," sagði Árni. Auk þess sem að framan hefur veriö talið er von á þremur skipti- sýningum í Nýlistasafnið, tveim frá vesturströnd Bandaríkjanna og einni frá Hollandi. Siguröur Guð- mundsson myndlistarmaður sem búsettur er í Hollandi hefur komið því til leiðar að sýning frá félags- mönnum í Nýlistasafninu hefur verið sýnd í Fodor Museum í Hol- landi og Buffalo Gallery í San Fransisco og nú fáum við að sjá sýningar frá báðum þessum stöðum. Þriðja skiptisýningin er sýning 24 listamanna frá San Fransisco, en hún kemur í staðinn fyrir sýningu áverkum íslenskra nýlistamanna sem nú stendur yfir vestra. Þessi sýning er afrakstur ákveðinnar • stefnu hjá safninu sem þeir nefna „Stop-Over Program". Það gengur út á að leggja snörur fyrir lista- ntenn sem eru á leiðinni yfir hafið, fó þá til aðgera hér stuttan stans og jafnvel að skilja eftir listaverk. I arida þessarar stefnu hefur verið reynt að ná í tónlistarmanninn Bri- an Enó, en hann gat sérfyrst frægð- ar sem samstarfsmaður David Bowie og síðar sem meðlimur í Roxy Music. Af tæknilegum ástæð- um fór fyrsta tilraunin út um þúfur en þeir nýlistamenn hafa ekki gefið Eno upp á bátinn. Loks ber að nefna sýningu sem haldin verður á verkum þriggja myndlistarmanna sem um þessar mundir taka þátt í alþjóðlega graf- íkbíenalnum í París, en þeir eru Kristinn G. Harðarson, Steingrím- ur E. Kristmundsson og Magnús Guðlaugsson. „Þessi sýning er lið- ur í þeirri viðleitni okkar að sýna það sem íslenskir myndlistarmenn eru að bardúsa í útlandinu," sagði Árni. -ÞH George Shearing — er sjónvarpið að re/na að gera al/t evrópskt? Það hefur verið óvenju mikið urn djass í sjónvarpinu okkar þetta haust. Þrír djassþættir (Blakey-Shearing-Cole), þrjár gestakomur hjá Boston Pops Baley+Bellson, Peterson og Vaughan) svo og I lollívúddróm- ansinn um Glenn Miller. Von er til að djassinn haldi áfram í veturog veröur þá innlent efni í bland við það erlenda og er það að vonunt, þarsem innan- búðar hjá LSD er ritstjóri fyrsta íslenska djasstímaritsins, Tage Ammendrup. Eg held að það sé ekki ofmælt að tveir trompetleikarar hafi bor- iö af í öllu þessu djasseíni hausts- ins. Meistarinn eini ógsanni Lou- is Armstrong sent blés Basin Street Blues í Miller-filmunni, svoog nýstirnið Wynton Marsha- lis sem blés með djassboðberum Art Blakeys. Þau Peterson og Vaughan náðu aldrei fluginu, enda públikumið hjá Boston Pops ekki at' þeirri tegundinni sem gefur tilefni til slíks. Það er dólítið gaman að sjá rómantíkina í ævisögu Glenn Millers, svona mynd var líka gerð um Benny Goodman, og væri til- valið að fá liana seinna á skjáinn. góðu sem gerð var um Louis Armstrong: Satchmo The Great. Hún var sýnd hér í Reykjavík fyrir eitthvað tuttuguogfimm árum og er undirrituðum enn ó- gleymanleg. Margir áhugamenn hafa haft samband við mig og bent á ýmsá góða sjónvarpsþætti er þeir hafa séð erlendis og sýnir það að áhugi er vakandi á sjónvarpsdjassi og þar að auki er að honum mikill menningarauki. ^J i/rwW eftir Vernharö Linnet (Myndin um Dorsey bræðurna var af dálítið öðrum toga enda léku þeir sjálfa sig. Þar mátti líka sjá Art Tatum trylla á píanóið). En þó að hljómsveit Glenn Mill- ers hafi aldrei verið merk djass- hljómsveit, blés hún hundrað sinnum heitar en hljómsveit Jos- eph Gershenson sem lék í mynd- inni. Það er mikið til af góðu djass- efni, sem sjónvarpið gæti krækt í og nefni ég bara kvikmyndina Ekki eru allir jafn heilir í hrifn- ingu sinni á djassi sjónvarpsins. I septemberbyrjun skrifar einhver G.R.A. lesendabréf í DV og kvartar hástöfum yfir að sjón- varpið reyni að gera allt og alla evrópska, meira að segja George Shearing. I Shearingþættinum hefði nú mátt þekkja hinn sanna vestantón! Það var nú það. En George Shearing er enskur, fæddur í London 1919 og var kominn undir þrítugt þegar hann fluttist til Bandaríkjanna. Það getur vel verið að bassaleikarinn hans hafi verið bandarískur, en hann stældi óspart hinn danska jöfur, Niels-FIenriing Örsted Pedersen. Það hefði örugglega verið heitari vestantónarefspæn- ski píanistinn Pete Montoliu og Daninn Niels-Henning hefðu djassað í stað tvímenninganna. Það skai síst standa á mér að viðurkenna að allt það besta sem gert hefur verið í djassi hafa bandarískir negrar gert. Djassinn er þeirra tónlist, sprottinn uppúr hinum ameríska veruleika er þeir lifðu við, kúgun.eymd og ógnir allskonar. Nær allir áhrifavaldar í djassi hafa verið svartir: Louis Armstrong, Duke Ellington, Charlie Parker og svo allir hinir: Morton, Oliver, Bechet, Basie, Hawkins, Hodges, Eldridge, Yo- ung, Gillespie, Davis, Monk, Mingus, Coltrane, Coleman, Ta- ylor osfrv. Einstaka hvítur: svo- sem Beiderbeck, Goodman. Tri- stano svo og Django Reinhard, sem var belgísk-franskur sígauni. Á okkar dögum eru hundruð evrópskir djassleikarar sent síst standa hvítum ameríkönum að baki í djasslistinni. En vel að merkja; enn sem fyrr eru það þeir ■svörtn sem pe.fa tóninn í þeirri tónlist sem kölluð er djass. sjoranp Föstudagur 24. september 20.40 Skonrokk. Já nú dugir ekkert annað en að tylla sér fyrir framan imbann. Þetta er nefni- lega eini sjénsinn fyrir okkur letingjana að fylgjast með dægurflugunum þessum er- lendu. Og svo má líka hlakka fil að sjá Geira aftur. Hann er svo sætur. 21.05 A döfinni. Og það er nú ýmislegt. Fyrst má nefna Ung nordisk musik festival en það er algjört æði. Pæliði í því! 21.20 Teiknað með tölvum. Æ hvað þaö verður gott að losna við myndlistarfólkið! (Fyrir- gefið gott fólk, ég meinti það ekki þannig). Nú er bara að læra að mata tölvurnar. Og allir geta það eða þannig. Annars er þetta bresk heimildarmynd. 22.10 Þúsund litlir kossar. Það er stór spurning hvort maður eigi að horfa á þessa ísraelsku mynd, þið skiljið, svona pólitiskt séð. Ann- ars er þetta fremur nýleg mynd frá 1981 og leikstjóri er Mira Recanati, gæti meirað segja verið kona. Svo eru leikarar á borð við Dinu Doronne, og Gad Roll. Það er aldrei að vita. 23.45 Dagskrárlok og í rúmið. Allir eiga að vera velupplagðir á morgun... Laugardagur 25. september 17.00 Enska knattspyrnan og fleira. Það vita nu allir hvernig sú enska er, en það gæti verið fróðlegt að sjá hvað fleira er. En það er alls ekki vist. 20.40 Löður. Og ég sem hélt að ég gæti enda- laust hortt á lödder en svei mér þá... Þetta er sko orðinn dauðþreyttur þáttur. Upp með Dallas, niður með Löður. Þetta er 72. þáttur. Hugsiði um það. 21.051 sjálfheldu. Bandarisk grátbrosleg mynd frá árinu '75. Og það er sjálfur Jack Lem- mon sem er i aðalhlutverki. Leikur hann miðaldra mann sem missir atvinnuna og sjálfstraustið um leið. Verst að missa af þessu. (UNM). 22.45 Tiðindalaust á vesturvigstöðvunum. Þetta er verðlaunamynd frá árinu 1930 og bandarísk. Þýski rithöfundurinn Erich Mar- ia Remarques samdi söguna sem gerist I fyrri heimsstyrjöldinni og lýsir reynslu ungra þýskra hermanna af miskunnar- og tilgar.gsleysi styrjalda. Hún var sýnd áður '69. Skyldi maður hafa séð hana? 00.02 Dagskrárlok og... Sunnudagur 26. september 18.00 Sunnudagshugvekja flutt af Erni Bárði Jónssyni. Athyglisvert. 18.10 Leiðinlegur laugardagur. Þetta er raun- sæismynd fyrir alla, konur og kalla, unga sem aldna. Upp með raunsæið. Er það ekki Tómas? Góð grein hjá þér. 18.40 Broddgölturinn. Og getiðið um hvað þessi fjallar. 20.55 Júlíus Vífill Ingvarsson leitar af systur sinni og spyr: Sáuði hana systur mína? Júlíus er nýkominn frá Italíu og gott ef hann er ekki lögfræðingur. Hann hefði ekki átt að missa af Jane Manning og kannski gerði hann það ekki heldur. ■ 21.15 Jóhann Kristófer. I siðasta þætti sáum við að tónskáldið Jdhann tók þátt i kjarabaráttu verkalýðsins og mættu fleiri tónskáld taka sér hann til fyrirmyndar. En hvað gerist næst???? 22.10 Æðisleg ár. Mér list ekki nógu vel á þetta en það eru bara fordómar svo í guðanna bænum, ekki taka mark á mér. Þetta eru bandarískir tónlistarmenn sem leika og syngja tónlist frá árunum 1920-30. 23.05 Dagskrárlok og vinnudagur á morgun. IITVAIM' Föstudagur 24. september 9.05 Morgunstund barnanna: Ævintýri „Dvergarnir i skóginum". Ekki dvergarnir sjö held ég. Vilborg Dagbjartsdóttir les. 11.00 „Mér eru fornu minnln kær" Nú verður lesið úr „Húsi skáldsins" og í þetta sinn er það ekki á hjólum. Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli sér um þáttinn. Besti þátt- urinn. 11.30 Létt morgunlög. John og Julian leika saman á gítara og enga Hagströma. Man- uela og Reynir sig leika á flautu já og vibra- fón. 15.10 „Kæri herra Guð, þetta er Anna.“ 16.20 Litli barnatiminn. Linda Mjóll les kafla úr bókinni „Veru“ (gott nafn) eftir Ásrúnu Matthíasdóttur og stjómandinn hún Dóm- hildur Sígurðardóttir les Ijóð eftir Nínu Björk Árnadóttur. 16.40 Hefurðu heyrt þetta? En spennandi. 20.00 Lög unga fólksins. dadada dadada. 23.00 Svefnpokinn. Palli! Hvar eru Vivaldi og Mozart núna? Laugardagur 25. september 11.20 Sumarsnældan. Helgarþáttur barnanna. Voða gaman. Kjartan og Jóhanna sjá um hann. 13.35 iþróttaþáttur i mjög sérstæðum stíl svo ekki sé meira sagt. 13.35 Á kantinum. BRrrrr. Babú.. Krastj pang. 14.00 Laugardagssyrpan byrjuð. Geirar heita geirar tveir. Algjörir Geirfuglar. Ég meina það. 16.201 sjónmáli. Undarlegt natn á útvarpsþætti. En hann er fyrir alla fjölskylduna. Skrítið. 17.00 Göran Söllsbher, Elly Ameling (Elli Ömur- lega) og Brynjar Hoff eiga síðdegið. (Fyrir- gefðu Elly, þetta var bara öfund...) 19.35 Rabb á laugardagskvöldi. Haraldur rabb- meistari á kvöldið. 21.45Heimur háskólanema - umræða um skólamál. Já nemarnir blessaðir lifa í ein- angruðum heimi sem sést best á þvi hvern- ig margir tryllast er þeir stíga fyrstu skrefin úl í lifið eftir námið, blessað fólkið, það er ekki gaman af þessu, og ekki að þessu heldur. 23.00 Danslög. Og allir á gólfið. Stiga, stíga tja tja tja... Sunnudagur 26. september 10.25 Út og suður. „Belfast og Derry" Jón Bald- vin Halldórsson, okkar maður I Dublih segir frá. Bara að hann segi nú ekki þegar Ragga og Gúa... trallalala... Bæbæ 13.15 Karlar í kvennahreyfingum. Umræðuþ- áttur i umsjón Stefáns Jóns Hafstein. Talað verður við Helga H. Jónsson fréttamann og Helgu Sigurjónsdóttur kennara. Þetta er þáttur sem enginn má missa af. 14.00 Hverjir eru þessir Palestfnumenn? Já það er von fólk sþyrji. En tveir Islendingar sem dvöldu I Israel svara spurningunni. (Hefði þetta ekkí verið efni í Út og suður?) 15.00 Kaffitiminn. Mér þykir hann byrja snemma. Ég hef ekkert almennilegt kaffi fengið í dag. Hvernig var þessi orðaröð? En nú er það djassgitaristinn Paul Weedan sem leikur með Pálma Gunn, Papa Jazz og nafna hans Ingólfs og Árna Schewen- ing. Vei. 19.25 Á ferð með Þórbergi. Jónas Árnason les úr bók sinni „Fólki". 20.30 Menningardeilur milli striða. Borgara- legar bókmenntir. Hvað er nú það? Örn Ólafsson segirokkurfáfróðumalmúganum allt um það. 21.10 Tónlist eftlr Jón Nordal. Einleikarar Gisli Magnússon og Erling Blöndal. 22.35 Mjólk og hunang. Gott fyrir svefninn. 23.00 Á veröndinni. Halldór er alltaf I blágrasa- tónlistinni, ekkert við því að gera. 23.45 Dagskrárlok og bæ bæ.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.