Helgarpósturinn - 24.09.1982, Blaðsíða 17

Helgarpósturinn - 24.09.1982, Blaðsíða 17
17 ~!pSsturinn. Föstuda'gur '{fXÞótt ríkisstjórnin sjái gull í f /hverju horni verslunarinnar S og hafi þegar látið til skarar skríða og krækt í hluta af „verslunargróðanum" mun það eigi að síður staðreynd að flestar verslanir og þá sérstaklega úti á landi eiga í miklum erfiðleikum. Hafa margir kaupmenn reynt allt sem þeir geta til þess að selja versl- anir sínar að undarnförnu, en orðið misjafnlega ágengt. HP hafa borist fréttir um að í einum kaupstað, 24. september 1982 þ.e. á Húsavík, hafi hvorki fleiri né færri en sex verslanir ýmist lagt upp laupana eða skipt um eigendur frá áramótum. Segja menn þar að orð ráðherranna „skattlagning versl- unargróðans" þýÓi það eitt að ekki beri að hætta aðförinni að verslun- inni fyrr en kaupfélögin séu ein eftir.... p*7! Það var varla við öðru að bú- f' \ ast en að slettist aðeins uppá S vinskap Stúdentaráðs Há- skóla íslands og SÍNE þegar hægri menn náðu völdum í Stúdentaráð- inu. Ein afleiðing þessarar „sundr- ungar" er að þessir aðilar hafa nú hætt samstarfi um blaðaútgáfu, og er nú von á sérstöku SÍNE-blaði, sem samtökin gefa sjálf út. Rit- stjóri þess verður Þröstur Haralds- son, sem verið hefur blaðamaður hér á Helgarpóstinum í sumar.... '* 'XPrófkjör Alþýðuflokksins í ‘í.eykjavík, sem að öllum lík- indum verður haidið í nó- vember næstkomandi, gæti orðið fjörugt. Ljóst er að Vilmundur Gylfason, og Jóhanna Sigurðar- dóttir munu berjast fyrir sætum sínum og Jón Baldvin er líklegur kandídat í sæti Benedikts Gröndal. sem farinn er til Svíþjóðar. En nú er talið líklegt að Finnur Torfi Stef- ánsson, fyrrum þingmaður í Norð- urlandskjördæini vestra, helli sér einnig í slaginn og ekki er loku fyrir það skotið að Bjarni Guðnason verði í baráttunni. í Norðurlands- kjördæmi vestra mun Þorsteinn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Steinullarverksmiðjunnar vera lík- legur eftirmaður Finns Torfa í efsta sæti framboðslistans..... /TNEkki er þó öll verslun á f )hausnum. Um það ber vitni y hið myndarlega Hús verslun- arinnar við Kringlumýrarbraut, en mörg samtök verslunarinnar standa að byggingunni og eru sem óðast að flytja starfsemi sína þang- að. Var haldin mikii veisla þar s.l. LJÓSASKOÐUN SKAMMDEGIÐ FER I HÖND. Viö aukum öryggi í umferðinni með því að nota ökuljósin allan sólarhringinn, rétt stillt og í góðu lagi. Ljós geta aflagast á skömmum tíma, og Ijósaperur fara að dofna eftir u.þ.b. 100 klst. notkun, þannig aö Ijósmagn þeirra getur rýrnað um allt að því helming. 31. OKTÓBER á Ijósaskoðun að vera lokiö um allt land. yUMFERÐAR RÁÐ föstudag og vel veitt, en tilefnið var 65 ára afmæli Verslunarráðs ís- lands. Eins og gefur að skilja sótti mikill fjöldi gesta Verslunarráðið heim á svo merkum afmælisdegi. Annars mun það mörgum töluvert áhyggjuefni þegar flutningar stofn- ana verslunarinnar verða í stórhýs- ið. Þær skilja nefnilega eftir sig autt húsnæði víða um bæ, og munu eigendur þess ekki vera alltof vissir um að fá leigjendur eða kaupendur á næstunni þar sem þrengingar eru « foptamn-jmarlítiAinum r»r» from. boð á leiguhúsnæði til atvinnu- rekstrar sagt meira en nóg.... /í[\Enn um framboðsmálin. T 1Þ ingmaður Alþýðubanda- ■/ lagsins í Reykjaneskjördæmi, Geir Gunnarsson, mun vera að íhuga að hætta þingmennsku eftir þetta kjörtímabil. Er jafnvel talið líklegt að Ólafur Ragnar Grímsson hafi hug á að færa sig um set úr Reykjavíkinni yfir í Reykjanes- kjördæmi til að losa um erfiða hnúta bar... DANSSKÓLI Siguröar Hákonarsonar BÖRN-UNGLINGAR-FULLORÐNIR Kenndiralliralmennirdansarog margt fleira. KENNSLUSTAÐIR ERU Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2 Þróttheimar v/Sæviöarsund Félagsheimili Víkings, Hæöargaröi Sérstakir tímar veröa fyrir hópa, klúbba eða féíög, ef óskað er. Barnatímar m.a. á laugardögum eins og verið hefur. Stígið gæfuspor, því dans er skemmtileg tilbreyt ing fyriralla, skemmtilegri en þú heldur. Lærið hjá þeim sem reynslu og þekkingu hefur, Hressilegt og óþvingað andrúmsloft. Innritun og upplýsingar daglega kl. 10.00 -19.00 I símar46776 og 41557. Siguröur Hákonarsson 15 ára kennslureynsla HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24. S-38772. NÝTT OG ENDURBÆTT HONDA MTX-50

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.