Helgarpósturinn - 24.09.1982, Blaðsíða 24
Undarlegt mál er nú komið
f k upp í Háskólanum. Þann átt-
S unda september sl. fékk há-
.-.Kolarektor bréf frá menntamála-
ráðuneytinu þess efnis að Andras
Jablonkay, lektor í bókasafnsfræð-
um, hefði þann fyrsta september
verið tekinn útaf launaskrá - sem-
sagt rekinn. Andras Jablonkay er
ungverskur og kom hér fyrir
nokkrum árum sem gistilektor, en
hefur ílengst hér og kennt við
bókasafnsfræðideildina. í bréfinu
frá menntamálaráðuneytinu var
m.a. gefin sú ástæða fyrir brott-
vikningunni að hann gæti ekki haft
eðlileg samskipti við nemendur
vegna tungumálaerfiðleika. Það
sem háskólamönnum finnst skrítið
við þetta, fyrir utan aðferðina, þ.e.
að taka manninn fyrst útaf launa-
skrá en segja svo frá því, er að eng-
ar formlegar kvartanir hafa borist
frá nemendum, kennurunt eða
yfirleitt neinum úr háskólanum.
Brottvikningin byggist á munn-
legum athugasemdum, sem ekki er
vitað hvaðan eru komnar, því
ráðuneytisstjórinn og ráðherrann
hafa sem kunnugt er verið í Banda-
ríkjunum undanfarnar vikur og
enginn til að svara fyrirspurnum
skólamanna um rhálið. Hefur nú
verið skipuö sérstðk sendinefnd úr
félagsvísindadeildinni til að ganga
:í fnnd valdamanna ráöuneytisins í
24. september 1982
þeim tilgangi að finna lausn á mál-
inu. Því nemendurnir sitja uppi
kennaralausir á meðan.....
Öllum íslendingum er orðið
/ i vel kunnugt um að á næstunni
S' er ekki að vænta aukins
fiskaflaúr hafinu kringum landið,
heldur þvert á móti þá virðist stefnt
íhinaáttina.l’aöer þó.ekki ö.l.l von
úti um að hægt sé að auka verðmæti
þess afla sem á land berst, og besta
leiðin er vafalaust að auka gæði
lians. Eins og kunnugt er af fréttum
hafa gæðaeftirlitsmál sjávarútvegs-
ins verið íólestri, en nú hefurStein-
grímur Hermannsson ákveðið að
snúa dæminu við og verja miklum
tíma og fé í að gjörbreyta gæðaeft-
irlitsmálum fiskvinnslunnar, og í
þeim tilgangi hefur hann ráðið Jó-
hann Briem, sem áður stjórnaði út-
gáfufyrirtækinu Frjálst framtak,
til að annast mikla kynningarher-
ferð um bætt gæðaeftirlit, betri
vinnslu og meðferð á fiski hér inn-
anlands, bæði um borð í fiskiskip-
unum og eins í vinnslustöðvum í
landi...
/#"jNVestan frá Bandaríkjunum
lberast okkur þær fregnir, að
J veitingahúsið Valhöll í Santa
Barbara í Kaliforníu sé farið á
hausinn og eigandinn, Magnús
Björnsson (fyrrum eigandi Asks),
kominn heim til íslands. Nokkur
hópur íslendinga vann á þessu
veitingahúsi, sem var hið glæsileg-
asta en náði aðeins að vera opið í
tvo mánuði. Starfsfólkið hafði ekki
fengið greidd laun nema fyrir 2-4
vikna vinnu þegar eigandinn var
skyndilega horfinn - án þess að
hafa kvatt kóng eða prest...
✓^ÁAlbert Guðmundsson, al-
{ Jþingismaður og forseti borg-
J arstjórnar m.m. býður hér
einn af sínum frægu vindilsgöndl-
um með sönnum bravúr við opnun
„Bandarískra daga“ á Naustinu s.l.
mánudagskvöld. Það var Marshall
Brement, sendiherra Bandaríkj-
anna sem opnaði þessa kynningu á
bandarískri matargerðarlist og
stendur hún yfir þessa dagana. Er
þar boðið uppá hvorki meira né
minna en sexréttaðan matseðil og
svíkur hann engan, ef marka má
undirtektir gesta við opnunina.
Einnig er kynning á bandarískum
vínum frá Paul Mason. (Mynd:
Jim Smart)
Alltaf eykst harkan í höf-
f J undarréttarmálum kvik-
J mynda og myndbanda. Fyrir
nokkrum dögum voru for-
ráðamenn nokkurra stærstu kvik-
myndahúsa borgarinnar í London í
verslunar- og skoðunarleiðangri.
sem oftar. Pað vakti hinsvegar at-
hygli að í þetta sinn voru þeir ekki
einir á ferð. Með í Lundúnaförinni
var Jónatan Þórmundsson, pró-
fessor í lögum við Háskóla íslands.
Það er vissara að hafa allt á hreinu
þegar myndbönd og kvikmyndir
eru annarsvegar....
/^\Talsverðar sviptingar eru í
{ /veitingahúsabransanum hér.
J Nú er okkur sagt, að fjögur
veitingahús séu til sölu. Þaö eru
Matstofa Austurbæjar, Nessy og
Trillan, auk hálfkaraðs húsnæðis
kóreansks veitingahúss, sem ekki
náði að opna við Skólavörðustíg....
Undirbúningur er nú í full-
J um gangi íyrir gerð kvik-
y myndar eftir sögu Halldórs
Laxness, Atómstöðinni. Búið er
að ráða í helstu hlutverk.Guð-
björg Thoroddsen leikur Uglu,
Arni Tryggvason organistann og
þau Gunnar Eyjólfsson og Sigríð-
ur Þorvaldsdóttir leika Búa Ár-
land og frú. Tæknimenn hafa
einnig verið ráðnir og verður
Karl Oskarsson tökumaður og
leikmynd gerir Jón Þórisson. Allt
bendir til þess að Atómstöðin
verði dýrasta mynd sem gerð hef-
ur verið hér á landi, allt að því
tvöfalt dýrari en þær myndir sem
gerðar hafa verið á þessu ári.
Ljóst er að innlendur markaður
og styrkur úr Kvikmyndasjóði
nægir engan veginn til að standa
undir kostnaði við gerð myndar-
innar og fóru þeir Þorsteinn Jóns-
son leikstjóri og Örnólfur Árna-
son framkvæmdastjóri því út til
Englands á dögunum í því skyni
að leita eftir samstarfi við erlend
kvikmynda- og sjónvarpsfyrir-
tæki um fjármögnun og dreifingu
myndarinnar erlendis. Þeir eru
nú komnir aftur eftir að hafa rætt
við tíu fyrirtæki og var þeim vel
tekið. Eru allar líkur á að amk.
eitt erlent fyrirtæki taki þátt í
gerð Atómstöðvárinnar. Það
mun hins vegar ekki hafa nein
teljandi áhrif á vinnslu myndar-
innar hér heima...
/pvStöðugt er unnið að undirbún-
Y yingi tímaritsinssemáaðverða
yglæsilegra en önnur tímarit
landsins, tímaritsins sem Iceland
Rewiew og Almenna bókafélagið
standa saman að'. Er hvergi til spar-
að, eins og sést á því að nú í næsta
mánuði koma hingað til lands tveir
af fremstu skákmönnum heimsins.
Boris Spassky og Friðrik Ólafsson,
til að tefla hér einvígi, líklega á Hó-
tel Loftleiðum, á vegum blaðsins.
Einvígið er skipulagt í tilefni af því
að tíu áreru liðinfrá því einvígi ald-
arinnar var haldið hér, og að sjálf-
sögðu til að vekja athygli á blaðinu
sem víðast. Friðrik og Spassky
munu þó ekki tefla eins lengi og sá
síðarnefndi og Fischer á sínum
tíma, því ætlunin er að ljúka einvíg-
inu á einni viku...
sem
fararskjótar
BMW fákarnir sameinast um þá kosti, sem gæðingar einir hafa.
Enginn kaupir gæðing óséðan og því bjóðum við þér að reyna BMW.
Það er aðeins stigsmunur á þeim, eftir því úr hvaða flokki þeir eru.
_