Helgarpósturinn - 22.10.1982, Page 2
2
Býsna merkilcg og óvenjuleg
hljómplata kemur á markað eftir
helgina. Hún heitir „Rimlarokk“
og verður með tólf lögum og textum
eftir núverandi og fyrrverandi
fanga á Litla-Hrauni. Þeir annast
einnig allan undirleik en upptökur
fóru fram undir lögregluvernd í
hljóðverinu Nema að Glóru í
Hraungerðishreppi.
Forsprakki fangahljómsveitar-
innar er Halldór Fannar Ellertsson,
sem er lipur hljóðfæraleikari og var
í eina tíð kunnur hljómlistarmað-
ur, lék m.a. með hljómsveitinni
Roof Tops, sem var vinsæl fyrir all-
mörgum árum. Annar liðsmaður
sveitarinnar er Sævar M. Cieciel-
ski, sem ekki hefur áður vakið at-
hygli fyrir tónlist en er listrænn
maður á margan hátt - hefur t.d.
gert margar góðar teikningar, sem
sjá má hjá gömlum félögum hans
og vinum.
Það er Ásgeir Hannes Eiríksson,
verslunarmaður og framámaður í
Vernd, sem verið hefur rimlarokk-
urunum innanhandar við gerð plöt-
unnar. Ásgeir hefur í nokkurn tíma
verið drifkraftur í fangahjálpinni
og unnið þar ágætt starf.
Textar laga plötunnar fjalla
margir um fangalíf og þá hringiðu,
sem fjölmargir þeirra ungu manna
hafa lifað og hrærst í árum saman.
Halldór Fannar Ellertsson fjallar
t.d. um þennan vítahring í laginu
„Vítahringur“:
Á milii hárra húsa, inni í miðri
borg,
byggt var stærðar bákn úr
steypu og stáli.
En innan þeirra veggja er múruð
mannsins sorg,
hann steiktur er þar yfir hægu
báli.
Brotið er hans sjálfstraust, æru-
laus og bitur,
glötuð er hans sómatilfínning.
Því eftir á þá er alltaf gott að vera
vitur,
en þú ert kominn inn í vítahring.
Vítahring sem erfitt er að rjúfa
hjálparlaust,
vinir allir flúnir eru á brott.
Birtan dvín í sálu þinni, komið er
nú haust.
Þú getur ekki brosað - bara
glott.
Dregnir fram í dagsljósið þínir
verstu gallar,
drepið allt hið góða ísjálfum þér.
Úr öllum áttum öskrað er. Já,
samfélagið kallar:
Þetta er það, sem glæpamönnum
ber.
Þetta er fordæmdur staður og
fordæmdir menn,
sem eru sviptir frelsi um mislöng
skeið.
Að byrja nýtt líf, allt of fáum hef-
ur tekist enn,
því fangelsi er glæpaskóli um
leið. •
En það er ekki bara biturleiki og
og iðrun,serr. lesa má út úr textum
fanganna. Þótt fjölmargir fjalli um
fyllirí og sukk, sem í mörgum til-
fellum er undirrót afbrotaferils
fanga á íslandi (og raunar víðar),
fjalla aðrir um ástvini og gamlar
minningar. Dæmi um slíkt er lag og
ljóð Sævars M. Ciecielskis,
„Minning“:
Ungur ég eignaðist konu.
Hún var mér kær og blíð.
En elskugeislar augna hennar
urðu mér böl og stríð.
Föstudagur 22. október 1982
Jjek
flelgai-----
pðsturinn.
Maxim Gorki er okkur að góðu kunn-
ugt. Nokkur hundruð íslendingar
hafa þegar ferðast með skipinu um
heimshöfin. Auk þess kemur skipið
hingað fjórum sinnum ó hverju sumri
með erlenda ferðamenn. Skipið er 25
þúsund tonn að stœrð. Allar vista-
verur eru með hreinlœtisaðstöðu, og
eru þeir klefar, sem ætlaðir eru okkar
farþegum, allir með gluggum.
ÍÖÁMetOKA
Þetta er ferðatilboð án hliðstæðna
KARNIVALIR/O
Suður-Ameríka og Vestur-Afríka með Maxim Gorki
Nú bjóðum við upp á sérstæða ferð með skemmtiferðaskipinu Maxim Gorki. Ferðatiihögun er
þannig, að fiogið verður til Frankfurt þann 9. febrúar 1983 og samdægurs áfram til Recife
í Brasiiíu, þar sem lúxusskipið Maxim Gorki bíður hópsins. Frá Recife verður svo sig/t tH Ríó
og dvalist þar í 3 daga yfir Karnivalhátíðina Síðan er ferðinni heitið með Maxim Gorki til
Santos, Salvador (í Brasilíu), Dakar, Las Palmas, Casablanca og Genova, þangað sem komið
verður 5. mars. Til Frankfurt verður svo haldið sama daginn og flogið til baka til íslands 6. mars.
Ferðalagið allt tekur 26 daga og kostar kr. 31.600,- fyrir manninn i tveggja manna klefa.
Innifalið í verðinu eru allar ferðir ffyrir utan skoðunarferðir), ful/t fæði um borð í Maxim
Gorki og ein gistinótt méð morgunmat á heimleiðinni.
' ■ -
Fullyrða má, að þetta
er eitt glæsilegasta
ferðatilboð, sem ís/ending
um hefur gefist kostur á.
FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaöarhúsinu Hallveigarstigl.Símar 28388 og28580
Þegar húmið færist yfir, þá
sakna ég þin.
Ég yrki um þig kviðu
því ástin er svo heit.
Hún logar sem heitur logi,
Ijós sem aldrei deyr.
Þcgar húmið færist yfir, ég hugsa
til þín.
Er sólin ris á himni
og skín í hjarta þitt
og spegla sálu þræði.
O, elsku yndið mitt.
Þegar húmið færist yfír, ég hugsa
til þín.
Þegar húmið færist yfír, þá sakna
ég þín.
Ég yrki um þig kviðu
því ástin er svo heit.
Hún logar sem heitur logi,
Ijós sem aldrei deyr.
Þegar húmið færist yfir, ég hugsa
til þín.
Þegar rökkva tekur,
svífur þú í huga minn,
þá grætur sál mín, vina,
og vökna augu mín.
Þegar húmið færist yfir, þá
sakna ég þín.
Önnur lög á þessari plötu heita
Hringrás, Draumurinn, Rimla-
rokk, Lífið, Ferillinn, Maður, Poll-
urinn, Róninn, Hvítflibbar og
Endaslag. Halldór Fannar hefur
samið tíu af tólf lögum en þeir Sæ-
var og Rúnar Þór Pétursson hafa
samið hvor sitt lag. Textarnir eru
birtir með leyfi útgefanda. -ÓV,
Það fólk sem er svo alþýðlegt
/ J að ferðast með strætisvögnum
S Reykjavíkur eða á erindi af
öðrum ástæðum í hið veglega bið-
skýli að Hlemmi hefur vafalaust
tekið eftir því síðustu daga að þar
er nú sýnd á sjónvarpsskermi sér-
stök auglýsing og auglýsingadag-
skrá um sitthvað það sem á boð-
stólum er í bænum og er að gerast í
bæjarlífinu, og kynnir gamalkunn-
ur útvarpsmaður Örn Petersen efn-
ið. Það er fyrirtækið Skyggna, sem
Kristján Pétur Guðnason, ljós-
myndari veitir forstöðu, sem stend-
ur fyrir þessari starfsemi. Mun ætl-
unin að þarna verði vikulega skipt
um prógram í vetur, þeinr fjölm-
örgu sem þarna eiga leið um til
fróðleiks og skemmtunar. Má
nefna að meðal þess sem á sker-
munum á Hlemmi verður eru allt
frá upplýsingum t.d. nætur- og
helgidagavaktir apóteka upp í vins-
ælustu dægurlögin eða úrslit hand-
boltaleikja. Svipað prógrant mun
ætlunin að setja upp hjá innan-
landsflugi Flugleiða á Reykjavík-
urflugvelli og taki það mið af lands-
byggðinni. Þá má geta þess að
Skyggna hefur einnig vídeóvætt þá
kynningarstarfsemi sem það hefur
starfrækt fyrir erlenda ferðamenn á
hótelum Reykjavíkur....