Helgarpósturinn - 22.10.1982, Page 19
yj&sturinn. Föstudagur 22. október 1982
19.
Um daginn og
veginn fyrír vestan
Ekki hafa sveiflur stjórn-
málamanna mikil áhrif á líf
manna þessa dagana, hér
vestur undir Grænlandi.
Hins vegar hefur falleg dem-
antsíld verið að veiðast inn
um Djúp, og verið fryst í
beitu alveg án tillits til þess
hvort bráðabirgðalögin
verða samþykkt eða ekki.
Þannig eru menn staðráðnir
í því að gera út á línu frá
Vestfjörðum í vetur án þess
að leiða hugann að örlögum
Eggerts Haukdals hvað þá
Vestfiaróapóstur
frá Finnboga Hermannssyni
stétt, að hlutur þeirra hafi
verið fyrir borð borinn og
hyggjast ekki hlíta úrskurði
verðlagsráðs og hefur heyrst
að þessir annars sjálfstæðu
menn hyggist stofna samtök
á stærri mælikvarða en nú
er, en á ísafirði er við lýði
smábátaeigendafélagið
Huginn, sem einkum er fé-
lag rækjusjómanna.
Undanfarin misseri hafa
landshlutarnir hlotið nokkra
hrossum Eggerts Haukdals.
Hins vegar eru rækjumenn
ekki staðráðnir að róa vegna
þess að rækjuverðið hefur
ekki haldist í hendur við
verðlag á venjulegum fiski,
sem er þorskur á íslenskan
mælikvarða. Finnst þeim
þeir hafa verið snuðaðir í
verðlagsráði, en fulltrúi sjó-
manna sat hjá eins og kunn-
ugt er. Telja rækjumenn,
þessir einyrkjar í sjómanna-
náð fyrir augliti dagskrár-
stjórnar útvarpsins. Hefur
RUV séð af tuttuguogfimm |
mínútum á mánuði þar sem |
útkj álkafólki hefur gefist
tækifæri að innramma veru-
leika útkjálkans eina ör-
skotsstund. Hefur útsend-
ingartíminn verið miðaður
við að helftin af þjóðinni
væri að horfa á myndvarpið
eins og séra Baldur í Vatns-
firði nefnir tækið. Þó var sú
nýlunda tekin upp, eftir að
Rúvak skreið úr móðurkviði
menntamálaráðherra, að
klippa á hina kjálkana. Var
þetta gert að útvarpsráði
forspurðu og sagði mér
Norður-Þingeyingur einn,
sem er blók á dagskrár-
deildinni, að mönnum hefði
þótt tilkoma Rúvaks undir-
strika enn frekar ójöfnuð-
inn. Þess vegna hefði þótt
við hæfi að skrúfa fyrir út-
kjálkamennina að austan og
vestan, sem höfðu þó áður
fengið inni með heilar tutt-
uguogfimm mínútur á mán-
uði, sem svarartil um það bil
fimmtíu sekúndna á dag. Ég
veit ekki nema við komumst
við af þessari stórmennsku
RÚV, að það skuli ekki
lengur geta verið þekkt fyrir
að Iáta jafn smáa mæla falla
af borðum sínum til okkar
útkjálkaliðsins, sem dvelur
þessar veiðistöðvar enn þá.
Ef til vill er ætlun RÚV að
bíða átekta og gá hvort ekki
sé að verða meira fararsnið á
dótinu, 42 hafa yfirgefið
Súgandafjörð að undan-
förnu, kannski eru þeir
fimmhundruð á ísafirði, ef
notaður er líkindareikning-
ur. Þessu er hins vegar ekki
svo farið sem betur fer og
menn draga fisk úr sjó enda
þótt slíkt sé ekki rapporter-
að í bak og fyrir eins og flest
hvað sem hrærist í þessu
mannfélagi og þangað sem
fjölmiðlarnir komast með
fálmarana. Hins vegar virð-
ist vera einhver líffræðileg
þörf hjá mannverunni að
láta af sér vita, láta sjá
eitthvert lífsmark með sér.
Það er þörf fyrir ákveðna
staðfestingu jafnvel hjá
römmustu einförum. Tengsl
eru manninum jafn brýn og
lífsloftið sem hann dregur að
sér, að vísu í mismunandi
' mæli, og maður er manns
gaman.
r
Utvarpið okkar á þessari
strjálbýlu eyju gegnir því
hlutverki að tengja okkur
saman, það er eitt sinn eðli
okkar að vilja vita hver af
öðrum og þess vegna eðli-
legt að jafnræði sé á milli
hvar svo seni rnenn eru bú-
settir á landinu. Með því að
skera niður hlutdeild sumra
landsfjórðunga í útvarpi, er
verið að leggja dóm á þarfir
fólks eftir því hvar það er
búsett í landinu. Einhverjir
kunna einnig að líta svo á,
að hlutaðeigandi byggð hafi
lítið sem ekkert frain að færa
og þess vegna sé hún ekki
höfð með og engar áætlanir
fyrirhendi þarað lútandi. Ef
slík sjónarmið verða áber-
andi er það ekki til að draga
úr streitunni milli þéttbýlis
og dreífbýlis í þessu landi,
en einmitt nú fer fram hörð
barátta í sambandi við nýja
stjórnarskrá og sem brátt
verður lögð fyrir Alþingi, ef
allt fer sem sýnist. Slíkt er
ekki til þess fallið að styrkja
þjóðareiningu á þessum síð-
ústu og verstu tímum.
Framhaldsaðalfundur
Vitaðsgjafa hf.
verður haldinn
föstudaginn
12. nóvember
að Hótel Loftleiðum
og hefst kl. 17.00
Dagskrá samkvæmt
samþykktum.
STJÓRNIN
Tónjafnari
Til sölu JVC SEA 60, 10 banda tónjafnari 1/2 árs
gamall selst á kr. 5000, kostar nýr 6400.
Upplýsingar í síma 18253 alla helgina.
Hópur írskra
listamanna
frá
Comhaltas CeoltöiRí CiReonn
írska þjóölagafélaginu
Skemmtir í Háskólabíói
laugardaginn 23. okt. ’82
með hljóðfæraleik,
söng og dansi
kl. 14.00 og kl. 23.15
Þessir koma fram: Dansarar eru:
Anthony Mc Auley
FIÐLA — BODHRAN
Kathleen Nesbitt
FIÐLA
Jimmy Mc Greevy
HARMONIKA
Deirdre Hodge
KONSERTINA
Diarmuid Kenny
FLAUTUR
Michael Kenny
BANJO
Eileen Curtin
SÖNGUR __ J
Michael Ó Brien
SEKKJAPÍPA
Mairead Coyie
OG
Gregory Casey
il
.......-,,V 'W
A,- >**• / • .
fW? 4| ' . jr- .C<T' y
_ mm
?• y
y i ■’ j
Forsala aðgöngumiða:
Bókabúð Máls og menningar
Bókabúð Lárusar Blöndal
kV.
í Háskólabíó
Og við innganginn.
írsk-íslenska félagið