Helgarpósturinn - 22.10.1982, Blaðsíða 5
5
'elgar
jihsturinn Föstudagur 22. október 1982
samlcga við þessi nýróttæku
fyrirheit. Og ég er ákaflega
fciminn við að standa að því
að það gerist aftur þannig.
Kosningar eru sáttmáli
þeirra sem kjósa og hinna,
sem eru kosnir og sáttmálinn
er þannig að annar aðilinn —
kýs, en hinir þurfa að standa
við það sem þeir ætla að
gera. Aðeins þannig gengur
þetta.“
— Gætirðu hugsað þér að
taka annað eða þriðja sæti á
lista flokksins í Reykjavík, ef
Jón Baldvin sigraði þig í
prófkjörinu?
„Mér þætti vænt um að fá
að hugsa um eitt í einu —
eitt í einu. En lýðræði snýst
nú kannski um annað og
meira en Vilmund eða Jón
Baldvin. Það eiga fleiri rétt,
það eiga margir rétt. Því
megum við ekki gleyma. Það
kemur væntanlega allt í
ljós“.
— Nú hefur verið látið að
því liggja í pólitískum kreðs-
um að þetta framboð þitt sé
einhvcrskonar leið út. Þú
bjóðir þig semsagt fram og ef
þú færð ekki styrk þá segir
þú hreinlega: Allt i lagi,
bless.
„Eftir kosningar 1978
kom blaðamaður frá Vik-
unni og tók viðtal og fyrir-
sögnin var held ég: Eg ætla
að vera í þessu stutt, en vera
með reisn. Ég hef fullt af
öðrum áhugamálum. Nú
spyrð þú: Eru þetta hótanir?
Svarið er auðvitað nei. En
aðalatriðið er að ég er ekki
sú manngerð sem hef áhuga
á því að vera einhver dingl-
andi sérvitringur útí kanti á
flokki. Ég held satt að segja
að málatilbúningur minn og
okkar eigi það ekki skilið.
En sé það vilji einhverra
annarra, þá auðvitað hugsa
ég málið kalt og rólega. Ég
legg á það óskaplega áherslu
að ég er ekki að hóta eins og
ég heyri sagt. Hótanir eru
heldur ekki mannasiðir.”
— Finnst þér stjórnmálin
jafn heillandi fyrir þig og
fyrir fjórum árum, 1978?
,Já“.
— Reynsla þín af þing-
mennsku hefur semsagt ver-
ið góð?
„Það er gaman að öllum
störfum sem fela í sér mikla
umgengni við fólk, held ég.
Þingmennskan gerir það.
Það gera náttúrlega fleiri
störf. Þitt starf gerir það,
eins og þú veist. Kennslan
gerir það. Ég hef af því
nautn að umgangast fólk.
Hér hefur maður kynnst
samfélagi innan frá og það
hefur komið mér þægilega á
óvart hve nákvæmlega skil-
greint það var utan frá áður
en ég hafði kynnst því að
eigin raun. Samtryggingin
og allt það.
Jón Sólnes
hetjan i
Kröflumálinu
Þetta er hinsvegar svolítið
skrítið þjóðfélag sem við bú-
um við. Ég minni á deilurnar
um Kröflu á sínum tíma. Ég
er ekki viss í dag hvor er
hetjan í málinu, Vilmundur
eða Jón Sólnes. Ég er að
komast á þá skoðun að það
sé sennilega Jón Sólnes.
Menn muna hvernig þetta
cndaði. Þetta segir minnst
um mig og ennþá minna um
Jón Sólnes, en kannski tölu-
vert um samfélagið“.
— Samkvæmt skoðana-
könnunum er fylgi Alþýðu-
flokksins nú aðeins lítill hluti
af fylginu 1978. Hver er að
þínu mati skýringin á þessu
fylgistapi?
»Ég vek athygli á því feyki-
lega háa hlutfalli sem ckki
gefur sig upp. Ég er þeirrar
skoðunar að þau róttæku
sjónarmið seni ég tel mig
talsmann fyrir — sumpart
til vinstri og sumpart frjáls-
lynd í klassískum skilningi
þess orðs séu sjónarmið sem
njóti stuðnings, en eigi erfitt
með að brjótast fram í hinu
demókratíska kerfl. Ég
stend ekki einn, þó það
óneitanlega virki stundum
þannig. Og ég hef góða ráð-
gjafa. Þeir eru meira og
minna kunningjar; sem segir
að vísu sína sögu. Ég stend til
dæmis ekki einn að því að
svissa fyrirspurninni um
Höfn £ Hornaflrði yfir í
þingsályktunartillögu, og
leika þannig á valdbeiting-
arkerfið. Ég hef ekki einn
það hugarflug“.
— Finnst þér þú sjálfur
hafa staðið við þær vonir
sem fólk batt við þig 1978?
„Þetta verða aðrir að
meta. Svona geturðu ekki
spurt mig“.
— Hefur spillingin
minnkað, sukkið dregist
saman — hefur eitthvað
áunnist?
„Vaxtastefnan. Ég minni
á hana. Hún hefur útrýmt
mikilli spillingu þó fram-
kvæmdin hafí orðið of hik-
andi. En öll róttækni er erf-
ið. Annars er hún ekki rót-
tæk. En auðvitað hefur
margt áunnist. Ég er t.d.
stoltur af breytingu á reglum
um veitingahús“.
— Hvernig breyttist staða
þín í flokknum, eftir sigur-
inn 1978, sem flestir eru
sammála um að hafl e.t.v.
verið fyrst og fremst þér að
þakka?
„Ég er ekki sammála því.
Það var verk margra
manna. En þetta segir kann-
ski sögu um pólitískan róg.
Ég þurfti að eyða hér
tveimur dögum í sumar til að
leita uppi viðtal á blaðsíðu
18 í Morgunblaðinu ein-
hvern tímann í fyrndinni til
þess að leiðrétta þau um-
mæli að ég hefði kallað sjálf-
an mig arkitekt að þcssum
sigri. Það sem ég sagði var
að ég væri einn af arkitekt-
unum. Þessu voru menn
búnir að tuða á í
þingræðum — aftur og
aftur. En ég nota ekki svo-
leiðis orð um sjálfan mig,
það væri ósmekklegt.
Forsíða í Dagblaðinu 26.
júní 1978 fór kannski illa
með mig, þó kostulegt sé.
Það var heljar fyrirsögn og
heljar mynd: Sigurvegari
kosninganna. Það fór illa
með mig“.
— Hvers vegna?
„Er það ekki augljóst?
Margir voru ekki sammála
þessu. Misskildu mig ekki.
Ég er ekki að gera lítið úr
því. Mannlegt eðli lýtur einu
sinni sínum lögmálum.
Vandinn eftir kosningarn-
ar 1978 var sá að þá var farið
inní ríkisstjórn sem var
auðvitað beint framhald af
ríkisstjórn Geirs Hallgríms-
sonar. Málefnalega talað.
Og vitaskuld var það ríkis-
stjórn sem, að minnsta kosti
ég fyrir mína parta, og stór
hluti kjósenda flokksins,
held ég,hafði ekki stefnt að.
En gott og vel. Stundum ertu
undir og stundum yfir“.
Hefði átt að
verða dóms
málaráðherra
— Sóttistu eftir ráðherra
stól í þeirri stjórn?
„Nei, það gerði ég ekki“.
— Ætlarðu að segja að þú
hafir verið sáttur við að
verða ekki ráðherra þá?
„Nei. Það var ég ekki. Ég
hefði talið rökrétta niður-
stöðu kosninganna að taka
við stöðu dómsmálaráð-
herra. En ég sóttist ckki eftir
því. Orðaði það ekki við
nokkurn mann“.
— Finnst þér að þér hafi
' óverðskuldað verið ýtt til
hliðar í flokknum?
„Nei, ég á við, einhvern
veginn vil ég ekki tala á þess-
um nótum“.
— Hve oft hefur þú til
dæmis komið fram fyrir
hönd flokksins í útvarps og
sjónvarpsumræðum?
„Formlega fyrir flokksins
hönd? (hlær) Kostuleg
spurning. Svarið er að það
er ekki oft. Ég vil ekkert
segja um það meira“.
— Attu beina samleið
með Alþýðuflokknum eins
og hann er í dag?
,Já“.
— Ertu ekki orðinn gjör-
samlega einangraður, t.d. í
þingflokknum?
„Nei. Ég vil ekki líta svo
til. Það hefur l.d. komið mér
þægilega á óvartað á flokks-
þinginu hef ég stuðning
manna sem eiga eftir a'ð
koma á óvart með afstöðu
sinni. En það er mikill mis-
skilningur að um einhverja
persónulega óvild af minni
hálfu, eða annarra hálfu hafi
verið að ræða. Eg kannast
ekki við slíkt. En menn hafa
tekist á um pólitfsk áhrif,
pólitískar skoðanir, pólit-
íska heimspeki. Það er eðli-
legt. Og þá hef ég stundum
sagt glannalega hluti, til
dæmis þegar ég hef verið að
messa yfír flokkssystkinum
og sagt: Kæru vinir. Ef þið
eruð að leita að róttækni,
sem engan styggir, þá er hún
ekki til, því eðli róttækni er
að styggja einhvern. Þetta
verða menn að vega og meta.
Og þegar þetta er sagt af full-
um krafti þá eru þetta þung
orð“.
— Sumir mundu nú halda
fram að þyngri orð en þetta
hefðu fallið af þínum vörum
og vörum flokkssystkina í
þinn garð. Skítapakk og svo
framvegis...
• , Já. Það orð var mér ekki
til sóma“.
— Þú ert þekktur fyrir að
nota óhemju stór orð. Ertu
svona orðljótur að eðlisfari,
eða notarðu þau til að ná
betur eyrum fólks?
„Sumpart held ég nú að
þetta séu ýkjur annarra.
Stfllinn er stundum þungur,
en orðin eru ekki eins þung.
Ég bið mann eins og þig að
skoða mína skrifuðu texta.
En svar kerfisins er bara svo
oft: Jú, þetta er nokkuð gott
mál hjá Vilmundi, en hann
spillti fyrir því með kjaft-
hætti. Valdakerfi allra tíma
fínna alltaf þannig hliðar-
ráð,segja EN til að þurfa
ekki að ræða málcfnið fram-
ar. Þeir hafa komið til mín
nokkrir núna og sagt: Þetta
er sjálfsagt allt rétt metið hjá
þér J sambandi viðflokks-
þingið og flokkinn, EN...
eru ekki veikleikarnir ann-
arsstaðar en hjá varafor-
manninum?EN er útgöngu-
leið?
Þetta orð sem þú nefndir
var mér ekki til sóma. Ég hef
beðist afsökunar á því og
skal gera enn hér. Og þau
eru fleiri. En að þetta sé inn-
takið í því sem ég hef sagt og
skrifað — það er rangt. Eitt
og eitt orð var yfirskot, eins
og þetta sem þú nefndir. Og
þar fyrir utan er ekki
skynsamlegt að nota svona
orð. En þetta eru undan-
tekningartilfelli, sem menn
svo tuða á aftur og aftur“.
— Annað einkenni á þér
sem stjórnmálamanni eru
þessi svokölluðu
„upphlaup“ — það er, þú
blæst allt í einu út með ein-
stök mál og ert fyrirferðar-
mikill, en hverfur svo þess á
milli. Er þetta einhver með-
vitaður stíll?
„Hvað eru upphlaup? Ég
bý ekki til málin. Þau koma.
Stundum mörg. Stundum
fá. Stundum ekkert. Það er
þá þjóðfélagið sem er með
upphlaup. Það er þá þjóðfé-
lagið sem sveiflast upp og
niður. Það er líka takmark-
að sem fáir menn geta gert.
/
Vidskiptaferðimar med
Amarflugi
rétti tónninn strax
i flugtakinu
Vel heppnaðir samningar í við-
skiptaferð krefjast útsjónarsemi
og rökréttra ákvarðana. Með því
að notfæra þér Amsterdamflugið
og sértilboð Arnarflugs fyrir fólk
í viðskiptaerindum leikurðu
skynsamlega strax í byrjun og
gefur um leið hárrétta tóninn
fyrir ferðina alla.
Áætlunarflugið til Amsterdam
opnar viðskiptamönnum ótal nýjar
leiðir til annarra landa, jafnt í
Evrópu sem öðrum heimsálfum.
Flugvöllurinn sjálfur, Schiphol,
hefur verið kjörinn besti flug-
völlur heims af lesendum hins
virta tímarits „Business
Traveller", og var þá bæði tekið
tillit til aðbúnaðar og fram-
haldsflugs. Og engan skyldi undra
þessa niðurstöðu því á Schiphol
er m.a. stærsta flugvallarfríhöfn
veraldar og frá flugvellinum er
flogið reglulega til 175 borga í
83 löndum.
Amsterdam er ekki síður heppi-
legur áfangastaður. Þetta ósvikna
„Evrópuhjarta" tekur í æ ríkara
mæli á sig hlutverk miðpunkts
alþjóðlegrar verslunar og við-
skipta og staðsetning borgarinnar
gerir ferðir til nálægra staða í
bílaleigubíl eða lest tilvaldar.
Og Arnarflug býður meira en frá-
bæran flugvöll og heppilega borg.
Innifalið í farmiðaverði
fólks í viðskiptaerindum er m.a.:
• Tvær gistinætur með morgun-
verði á Hilton Airport
hótelinu.
• Símtöl eða telexsendingar úr
flugvélinni á báðum
flugleiðum.
• ÖIl aðstoð við skipulagningu
og pantanir framhaldsflugs,
hótela, bílaleigubíla, lestar-
ferða o.s.frv.
Brottför til Amsterdam er alla
þriðjudaga og föstudaga. Við
minnum sérstaklega á að brott-
farartími er kl. 14.00 og tíminn
fyrir hádegi er oft kærkominn til
síðustu útréttinga og undir-
búnings.
Schiphol og Amsterdam - vel þegin nýjung í viðskiptaheiminum
..JSq* 4
v Flugfélag með ferskan blæ
4RNARFLUG
Lágmúla 7, sími 84477