Helgarpósturinn - 22.10.1982, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 22.10.1982, Blaðsíða 3
3 ~J7Í%%tl irinn Föstudagur 22. október 1982 Fimm milljónir til frjálsra afnota hlelgai---- posturinn Blað um þjóðmál, listir og menn- ingarmál. Ritstjórar: Árni Þórarinsson og Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórnarfulltrúi: Guðjón Arngrímsson. Blaðamenn: Guðlaugur Bergmundsson, Óm- ar Valdimarsson, Þorgrímur Gestsson Útlit: Kristinn G. Harðarson. Þegar fjölmiðiar krefja valda- menn þjóðfélagsins svara við ó- þægilegum spurningum bregðast þeir oft ókvæða við og gefa það eitt svar, að málið eigi ekki erindi í blö- ðin. En þá gleyma þcir einu mikil- vægu atriði. I þeim löndum heims þar sem hlutverk hinna frjálsu fjöl- miðla hefur vcrið skilgreint er eitt megin hlutverk þeirra að gæta hagsmuna almennings gagnvart valdhöfum með því að ganga eftir þeim upplýsingum sem varða þjóð- arhag - og birta þær. Það leikur enginn vafi á því, að þegar ríkið gengst fyrir stofnun fé- lags til að undirbúa byggingu stórr- ar verksmiðju og greiðir sjö manna stjórn fimm milljónir króna af alm- annafé í því skyni, á almenningur heimtingu á því að fá að fylgjast með því hvcrnig þeim peningum er varið. I júní í sumar var stofnað undir- búningsfélag að byggingu kísil- málmverksmiðju á Reyðarfirði. Ríkið er enn sem komið er eini hlut- hafinn og hefur lofað 25 milljónum króna í hlutafé. Af því hafa fimm milljónir þegar verið greiddar sjö manna stjórn félagsins, sem ásamt framkvæmdastjóra hafa síðan unn- ið að könnunum á hagkvæmni verksmiðjunnar, meðal annars er- lendis. Lítil klausa í Helgarpóstinum fyrir nokkrum vikum þar sem upp- :lt því fram- H að iga - leyrst fundi t'erið ópur ís að SSfuSSÍhÍ*! ^aun og risna stjórnar Kísilmálmverksmiðjunnar á te.vc,ð“,sofa'l;ið'"» Reyðarfirði í brennidepli: beöið umskrif- \lega skýrslu” -æSSSs, „g ð“ PáU Flygering ráðuneytisstjóri aðilarh-if-. . °ra Veroi en e Telja sumir Sr?r a aÖ < ’^8 ba® framkv*rndas,jóri' Gæslan ,rra> t d. Kísilmálmverksmiðjunnar, Egil st þyrluna und í^m V,ughes Skúla ,n*ibtrRSSon um tkriíle*a - r k0stnaðarverð' skýrslu strax í gær og ég vænli hefur fa ri/Wr,anclt' ’ ■ b«s að hún berlst okkur I hendur t '>t,r ^nneytinu strax eftir ^nvgertog ráðu- ^'óftfýiðuneytinu maðurinn Halldór Árnason hafi ákveðið að fara hvergi. Við spurðum Pál Flygering ráðu- neytisstjóra hvað hann vildi um þcssa frétt scgja: „Það cr ckki annað um þetta að scgja en það að við hér (Iðnaðar- ráðuneytinu höfum hvergi verið hafðir með f ráðum varðandi ■'*ssa umtöluðu umbun til narmanna og málið ekki H,Jun„nr*rtr *e,u Páll Hygering: nyög óveiýutegi að stjórnir svona fyrirtækja á- kveði laun sín sjálfar. komið upp á borð hjá okkur. Mér skilst að sitthvað sé ofsagt í frá- sogn Helgarpóstsins en málið ztti að skýrast strax cftir helgina". Er það algengt að stjórnir fyrirtækja af þcvsu tagi ákveði laun sin og aðrar greiðslur? „Nei, þetta cr mjög óvenju- legt. Hefðin er sú, til dæmis með Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga, að hluthafa- fundur þ.e. eignaraðilar, ákveða laun stjórnarmanna. Hins vegar er nokkuð mismunandi með risnugrciðslur. en meginreglan er sú að stjórnarmenn fái ekki risnu grcidda á ferðalögum". En hver er það sem á Kísil- málmvcrksmiðjuna sem skal risa á Reyðarflrði? „Það var ákveðið að greiða út 25 miljónir króna í hlutafé og við höfum þcgar grcitt hluta af því fé. Það cr því rikið scm er cignar- aðilinn í dag og xtlunin var að verja því fé scm grcitt hefur verið út til m.a. athugana á hagkvxmni rckstursins. undirbúningsrann- sókna á vcttvangi o.fl.„, sagði Páll Flygering ráðuncytisstjóri ( Iðnaðarráðuncytinu að lokum. lýst var, að stjórn þessi væri ágætur viðskiptavinur Ferðaskrifstofu ríkisins, vakti litla athygli. í síðustu viku upplýsti síðan Helgarpóstur- inn, að stjórnarmenn hefðu farið í a.m.k. tvær ferðir til Evrópu á launum sem þeir skömmtuðu sér sjálfir auk dagpeninga, hótelpen- inga og risnu. Þá brást ráðuneytis- stjórinn í iðnaðarráðuneytinu hart við og bað framkvæmdastjóra kís- ilmálmverksmiðjunnar um skýr- ingu. Sú skýring liggur nú á borði iðnaðarráðhcrra og að sögn ráðu- neytisstjórans er full ástæða til þess að krefja stjórnina um nánari svör. Að þessu sinni voru viðbrögð ráðu- neytismanna til fyrirmyndar. Við fjöllum um þetta mál í inn- lendri yfirsýn í dag, og þar kemur m.a. fram, að stjórnarmenn þeir sem Helgarpósturinn ræddi við vilja lítið sem ekkert um málið segja. En þar kemur líka fram, að framtíð verksmiðju af þessu tagi er síður en svo björt. Heimsmarkaðs- verð á kísilmálmi er nú 800 dollarar tonnið, en við höfum það eftir ár eiðanlegum heimildum, að Reyðarfjarðarverksmiðjan þyrfti a.m.k. 1200 dollara fyrir hvert tonn til að hún gæti borið sig. Ofan á það bætist, að ýmsir telja mjög óhagkvæmt að velja slíkri verksmiðju stað á Reyðarfirði. Ef hún risi t.d. á Grundartanga mætti spara milljónir dollara, m.a. í hafn- armannvirkjum og aðveitustöðv- um fyrir rafmagn. En þess er ekki langt að bíða að lögð verði fram á Alþingi skýrsla um hagkvæmni þess að reisa þessa verksmiðju. Að sögn stjórnarfor- mannsins, Halldórs Arnasonar, verður það snemma í næsta mán- uði. Eftir það tekur Alþingi á- kvörðun um það hvort yfirleitt á að reisa þessa verksmiðju. Það er skylda fjölmiðla að fylgjast náið með framvindu málsins á þingi, ekki síst af þeim sökum að jafnvel í hópi þeirra manna sem hafa unnið að málinu eru þeir til sem segja, að ckkert vit sé í því að reisa verk- smiðjuna, hún geti aldrei borið sig. Það er skylda fjölmiðla að fylgj- ast með þessu, ekki síst af þeim sök- um, að inn í mál af þcssu tagi getur hæglega blandast byggðapólitík af versta tagi. Við gætum staðið franimi fyrir enn einni fyrirfram dauðadæmdri fjárfestingunni, sem einungis væri reist á þeim rökum, að þörf er á aukinni atvinnuupp- byggingu á Austurlandi. Ljósmyndir: Jim Smart. Dálkahöfundar: Hringborð: Auöur Haralds, Birgir Sigurðs- son, Heimir Pálsson, Hrafn Gunnlaugsson, Jón Baldvin Hannibalsson, Jónas Jónasson, Magnea J. Matthíasdóttir, Sigríö- ur Halldórsdóttir, Sigurður A. Magnússon. Listapóstur: Heimir Pálsson, Gunnlaugur Ást- geirsson, Jón Viöar Jónsson, Siguröur Svavarsson (bók- menntir & leiklist), Árni Björnsson (tónlist), Sólrún B. Jensdóttir (bókmenntir & sagnfræði), Guö- bergur Bergsson (myndlist), GunnlaugurSigfússon (popptón- list), Vernharöur Linnet (jazz). Árni Þórarinsson, Björn Vignir Sigurpálsson, Guðjón Arngríms- son, Guðlaugur Bergmundsson, Jón Axel Egilsson (kvikmyndir). Erlend málefni: Magnús Torfi Ólafsson. Skák: Guðmundur Arnlaugsson. Spil: Friörik Dungal. Matargerðarlist: Jóhanna Sveinsdóttir. Stuðarinn: Jóhanna Þórhallsdóttir. Utanlandspóstar: Erla Siguröardóttir, Danmörku, Inga Dóra Björnsdóttir, Banda- ríkjunum, Helgi Skúli Kjartans- son, Bretlandi. Útgefandi: Vitaðsgjafi hf. Framkvæmdastjóri: Bjarni P. Magnússon. Auglýsingar: Inga Birna Gunn- arsdóttir. Innheimta: Guðmundur Jó- hannesson. Dreifing: Siguröur Steinarsson. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru aö Síöumúla 11, Reykjavík. Sími: 81866. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Hverfisgötu 8-10. Símar 81866, 81741 og 14906. Prentun: Blaðaprent hf. Lausasöluverð kr. 15. Að stela hugverki Almennt viðurkennd siða- regla er það að menn eigi ekki að stela. Menn kenna börnum sínum að það sé ljótt. Venjulega njóta þjófar heldur ekki samúðar. Sama gildir um þann sem er sam- sekur þjófinum, til að mynda með þvf að koma framinn með ýmsu móti, meðal annars með eftir- tökum á sjónvarpsmyndum og kvikmyndum sem dreift er um allar jarðir án þess að aðstandendur hugverkanna fái nokkuð fyrir sinn snúð. Menn kaupa og leigja video- kassettur af þessu tagi með hringborbib I dag skrifar Birgir Sigurösson þýfinu í verð. Ekki hefur heldur þótt gott til afspurnar að vera þjófsnautur. Og venjulega er hugtakið „að stela“ svo skýrt afmarkað í vitund manna að þeir geta vafningalítið gert sér ljóst hvað telst stuldur. Þeir leggja þá dóm á framferði þjófanna í samræmi við það. En þegar um er að ræða stuld á hugverki vandast málið. Menn eiga margir erfitt með að skilja í hverju það er fólgið. Að vísu yrði öllu ljóst að það væri þjófn- aður ef einhver tæki sig til og gæfi út ritverk annars manns undir eigin nafni. Flestir átta sig líka á því að það er þjófn- aður að gefa út ritverk í heimildarleysi og hirða síð- an gróðann af útgáfunni. Þetta eru svo einföld dæmi um stuld á hugverki að hver vitiborinn maður áttar sig á þeim. Og engin ástæða er til að ætla að menn hafi samúð með þjófnaði af þessu tagi. En til er annars konar stuld- ur á hugverkum og hann nýtur samúðar og „skiln- ings“ almennings enda orð- inn stórfelldur iðnaður í mörgum löndum sem alm- enningur nýtur góðs af og kærir sig kollóttan hvort hvar og frá hverjum er stol- ið. Þessi hugverkastuldur er gleði- og sigurbros á vör og fara heim með fenginn og njóta hans í skauti fjölskyld- unnar og leiða ekki einu sinni hugann að því hvaða afleiðingar þjófnaðurinn hefur fyrir þann eða þá sem stolið var frá. Auðvitað myndi heldur aldrei hvarfia að þessu ágæta fólki að það sé þjófsnautar. Samt er í eðli sínu - hvort sem mönnum líkar betur eða verr - enginn eðlismunur á ofannefndum þjófnaði og öðrum þjófnaði. Það kemur sér til að mynda jafnilla fyrir listamann þegar hugverki hans er stolið og fyrir sjómann ef stolið yrði af afla hans. Og hvernig yrði bónda við ef menn kæmu aðvífandi með mjólkurfötur, settust undir kýrnar hans, mjólk- uðu í föturnar og færu burt með mjólkina til þess að selja eða drekka heima hjá sér? Varla myndi hann lengi standa á hlaðinu, horfa á eftir þjófunum og æpa þetta er mín mjólk. Sjómaðurinn myndi heldur ekki lengi standa á þilfarinu og æpa á eftir fiskþjófunum þetta eru mínir fisícar. Þeir myndu báðir fiýta sér að koma lögum yfir þjófana. Það yrði auðvelt verk að fá aðstoð ríkisvaldsins. Löggurnar myndu leita að þjófunum í krókum og kimum og ekki una sér hvíldar fyrr en þeir væru fundnir og dæmdir. Þar á ofan hefðu bóndinn og sjómaðurinn samúð allra góðra manna því þeir vita að sé mjólkinni og fiskinum stolið af bóndanum og sjó- manninum er afkoma þeirra í veði. Engin ærleg fjölskylda myndi kaupa og drekka stolnu mjólkina og éta stolna fiskinn, dæsa af vel- líðan og segja brosandi: Mikið er nú gott að fá mjólk og fisk. Það myndi heldur ekki ganga til lengdar því nágranninn væri vís til að kjafta frá vegna samúðar með bóndanum og sjó- manninum. Aftur á móti þegja allir yfir stolnu efni á video-kassettum og segja bara brosandi af vellíðan: Mikið er nú gaman að geta horft á vídeó. - í hugum al- mennings er réttarstaða þeirra sem hafa álpast til að semja, flytja eða framleiða hugverk ekki merkilegra en þetta. Þeim hefði verið nær að hafa kýr eða veiða fisk. Refsiákvæði vegna stuldar á hugverkum hafa líka verið mjög væg í löggjöf flestra þjóða. Á íslandi hefur ekki einu sinni verið unnt að reka opinber mál vegna brota á höfundarrétti. Þau hefur orðið að höfða sem einka- mál. Er greinilegt að lög- gjafarvaldið hefur aldrei litið stuld á hugverkum jafn- alvarlegum augum og annan þjófnað. Sýnir það eitt með öðru hversu lítillar virðingar hugverk hafa notið réttar- farslega samanborið við efn- isleg verðmæti. Viðbrögð eða öllu heldur viðbragðs- leysi stjórnvalda hérlendis við videó-æðinu hefur undirstrikað þetta og meira en það: Starfsemi videó- stöðva hér á landi er utan viö lög og rétt í mörgum grein- um. Þeim hafa ekki verið settar neinar reglur en leyft að þverbrjóta lög og reglur að vild eins og margoft hefur verið sýnt fram á. Frammi- staða stjórnvalda í þessu efni er svo lítilsigld að það verður að teljast heimsmet, a.m.k. á mælikvarða sæmi- legra siðaðra þjóðfélaga. Og ber menntamálaráðherra þar þyngsta ábyrgð. Hann varð klumsa. Hræddur við videó-ástríðu almennings. Það er ekki ætlunin í þess- um greinarstúf að rekja af- leiðingar af þessari hræðslu menntamálaráðherra við að sporna við lögbrotum og taka frumkvæði videó- væðingarinnar í sínar hend- ur að því leyti sem honum bar. Ég vil hinsvegar ítreka að starfsemi videó-stöðva hefur fram að þessu án minnsta vafa byggst að veru- legu leyti á framgreindum hugverkastuldi ásamt þeim þjófnaði að senda út efni til almennra nota sem ein- göngu er ætlað til einkanota. Má vera að einhverjum þyki afsakanlegra að stela brauðinu frá útlendingum en innlendum mönnum. En í ljósi þess að íslend- ingar eru aðilar að alþjóða- samningum um höfundar- rétt verður skeytingarleysi stjórnvalda og tvískinnung- ur varðandi rekstur videó- stöðva ennþá lágkúrulegra fyrirbrigði. að er hljótt á videó- vígstöðvunum eins og er. Lögleysan hefur fest sig í sessi. Hún þykir ekki frétt- næm lengur. Videó-gæjarnir hafa sigrað í fyrstu iotu. Hve lengi höfundarréttarbrot og hugverkastuldur verður látinn viðgangast hér á landi er ekki ljóst. En svo mikið er víst að tækniþróunin í fjöl- miðlum æðir áfram. Videó- væðingin er ekki nema for- spil að því sem koma mun. Æ erfiðara verður fyrir aðstandendur hugverka að verja rétt sinn og fá þann af- rakstur af verkum sínum sem þeim ber. Og það er ennþá langt í land að þjófn- aður á hugverkum verði litinn jafnalvarlegum augum og til að mynda mjólkur- og fiskstuldur.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.