Helgarpósturinn - 22.10.1982, Blaðsíða 20

Helgarpósturinn - 22.10.1982, Blaðsíða 20
Magnús V. Guðlaugsson fyrir framan skuggann. L - V WTo'Vá $ *»C*4.*, -c'. :*% — N» * Eitt af málverkum Steingríms Eyfjörð Kristmundssonar. Kristinn G. Harðarson gægist út úr verki sínu. Guðlaugur Það er sitt hvað að vera maður eða hæna. Hænan, segja margir, er óguðlega heimsk. Maðurinn telur gáfum sínum engin takmörk sett. Hann kann að meta fegurðina, hann kann að meta listina. Og það er einmitt það, sem skilur hafrana frá sauðunum. Listin. Föstudagurinn 1. október og klukkan er að verða 20.30. Rjómi Parísarborgar streymir inn í Nú- tímalistasafn borgarinnar eins og kindur inn í almenning. Sumir prúðbúnir eftir nýjustu hátísku, aðrir sem klipptir út úr þaul- hugsuðu pönktískublaði, lista- menn og listunnendur. Allir með boðskort upp á vasann. Og eftir- væntingin skín úr andlitunum. Eða er það kannski missýn hjá mér? Við innganginn standa nokkur ungmenni af tegund númer tvö og dreifa litlum miða til gestanna: Áfram eins og áður. Við fætur ung- mennanna eru nokkrar hænur í bandi, pönkhænur með grænar og bleikar skellur á fiðrinu. Þær láta sér fátt um finnast um allt þetta umstang. Enda eru þær bara hæn- ur, og heimskar í ofanálag. Jafnvel þótt þær séu pönk. Hvað er svo allt þetta fallega fólk. að koma að sjá, ef það er ekki bara, að sýna sig og sjá aðra, eins og sagt er? Jú, tæpum hálftíma áður var 12. Parísarbíennallinn formlega opnaður gestum. Fyrr um daginn hafði menning- armáiaráðherra Frakklands, Jack Lang, verið leiddur um völundar- hús þess mikla safns, og á eftir hon- um fór mikil hirð fyrirmanna af ýmsu tagi, svo mikil, að allt stíflað- ist, þar sem hersingin fór um. Og ljósmyndarar og kvikmyndatöku- menn mynduðu ótt og títt. Það var annars merkilegt hve állt var orðið hreint og fágað. Daginn áður hafði verið sérstök opnun fyrir blaðamenn og þá var allt á rúi og stúi, sígarettustubbar og verk- færi um öll gólf og margir lista- mannanna enn að hengja upp verk sín. Það ku enda hafa gengið á ýmsu síðustu dagana fyrir opnun, og stór orð látin fjúka í allar áttir. Ég heyrði meira að segja forstöðu- mann sýningarinnar segja við að- stoðarmann sinn, að hann væri hvergi sjáanlegur, ef einhver spyrði eftir honum. En allt hafðist þetta þó að lokum og menn voru bara hressir og kátir. Allur heimurinn En hvað er svo Parísarbíennall- inn? Jú, það er sýning á verkum listamanna yngri en 35 ára, alls staðar að úr heiminum, haldin á tveggja ára fresti. Tilgangurinn er auðvitað sá, „að bæði listamenn- irnir og þeir, sem standa að sýning- unni fái einhvers konar yfirlit yfir það, sem er að gerast annars staðar í heiminum, og til þess, að verkin komist áleiðis til gallería eða safna“, eins og Magnús Pálsson myndlistarmaður orðaði það í við- tali við Helgarpóstinn, en hann er annar umsjónarmaður íslensku deildarinnar, ásamt Gunnari Snorra Gunnarssyni, fyrsta sendi- ráðsritara í París. Parísarbíennallinn var fyrst haldinn árið 1959, og síðan á tveggja ára fresti, að undanskildu árinu 1979. Umfang sýningarinnar hefur aukist ár frá ári, og nú varð t.d. að reisa tjöld fyrir utan safn- húsið til þess að koma öllum lista- verkunum fyrir. Listaverkin, sem þarna eru sýnd, eru af margvíslegum toga: mál- verk, sum risastór og önnur minni, skúlptúrar alls konar, ljósmyndir, kvikmyndir, videó og skyggnur, svo eitthvað sé nefnt. En hér verð- ur ekki farið út á þann hála ís að leggja dóm á þessi verk, svo fjöl- breytileg, sem þau eru. Við látum öðrum það eftir. Svo mikið er þó víst, að allir þeir, sem á annað borð hafa áhuga á því, sem er að gerast í nútímamyndlist, ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. íslendingaþáttur íslendingar tóku fyrst þátt í Par- ísarbíennalinum árið 1969, síðan árin 1973,1975,1980 og loks núna, árið 1982. Aðalfulltrúar íslands að þessu sinni eru þrír, þeir Kristinn Guðbrandur Harðarson, sem les- endur Helgarpóstsins þekkja kannski betur sem útlitsteiknara blaðsins, Magnús V. Guðlaugsson og Steingrímur Eyfjörð Krist- mundsson. Auk þess verða sýndar litskyggnur af verkum sex annarra íslenskra listamanna, þeirra Daða Guðbjörnssonar, Eggerts Péturs- sonar, Guðjóns Ketilssonar, Guð- rúnar Hrannar Ragnarsdóttur, Helga Þorgils Friðjónssonar og Ingólfs Arnarsonar. Ennfremur verður sýnd kvikmynd eftir Rúrí, videóverk eftir Magnús Guð- laugsson og Þór Elís Pálsson, og hljóðverk eftir Finnboga Péturs- son, Magnús Guðlaugsson og fleiri verða flutt í útvarpsstöð Bíennals- ins. Það er því allstór hópur ís- lenskra listamanna, sem á einn eða annan hátt kemur nálægt þessari sýningu, sem mun vera sú eina í heiminum, sem gegnir því hlut- verki að koma á framfæri list ungra manna og kvenna. Það þarf því varla að spyrja hvort þátttaka ís- lendinga í sýningunni hafi mikla þýðingu fyrir okkur. Þeirri spurn- ingu var þó beint til Magnúsar Páls- sonar. (Það skal tekið fram í þessu sambandi, að undirritaður var beð- inn um að nefna það ekki, að spjallið við þremenningana fór fram á Café de Flore, þar sem Jean-Paul heitinn Sartre upphugs- aði speki sína og þambaði sjálfsagt kaffi með. Þessu er hér með komið á framfæri) (Það skal einnig tekið fram til að forðast allan misskiln- ing, að Steingrímur Eyfjörð Krist- mundsson var farinn frá París, þeg- ar spjallið fór fram, og verður því ekki hægt að tala sérstaklega um \erk hans) Magnús Pálsson ætlar þó að svara spurningunni: „Það hefur mjög mikla þýðingu, texti og myndir:^Uuðlaugur £Uergmundsson

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.