Helgarpósturinn - 18.03.1983, Síða 13

Helgarpósturinn - 18.03.1983, Síða 13
~ípl5sturinn_ Föstudagur 18.mars 1983 • c k t * - *• « ■ ' t 13 leioariosi með mynd af allsberum körlum!! Hefurðu á ævinni heyrt nokkuð ógeðslegra? — Ja þetta er svona álíka ógeðslegt og nektarmyndir af konum hangandi víðsvegar upp á vegg hjá körlum. Heilu verkstæðin veggfóðruð með berum rössum og berum brjóstum. — Elskan mín það er nú svo algengt maður kippir sér ekkert upp við það. Er þetta bara ekki minnimáttarkennd í þér af því þú ert með svo lítil brjóst! — Þau eru nú ekki lítil núna, full af mjólk. — Ég hef nú sem betur fer aldrei haft það’ vandamál að vera með lítil brjóst. Enda veit ég að Elli hefði aldrei litið við mér ef ég notaði brjóstahaldara nr. 32A. Minn maður vill hafa hold á réttum stöðum, eins og hann segir líka sjálfur þessi elska, hann er svo fyndinn „þú húkkaðir mig á brjóstunum, kerling". Hann hefur alveg óborganlegan húmor. Nei ef ég á að segja þér eins og er þá held ég að það sé bara eitt sem sameini þessar kvennajafnréttis- brussur og það er hvað þær eru eitthvað ófríð- ar og ólögulegar enda ná þær ekki i neina eig- inmenn hvernig sem þær reyna. Og þær ætla með þetta baráttumál á þing. — Hvað með alla karlana í flokkunum ef nota ætti sömu mælistiku. Á þá að banna þeim að taka þátt í pólitísku starfi ef þeir eru t.d. ófríðir, þunnhærðir, rasssíðir, ístrubelgir og gjörsneiddir því að vera kyntákn. • . — Mér blöskrar alveg hvað þú getur verið orðljót um þessa duglegu menn. — Eru þetta ekki lýsingarnar á þessum konum?! — Nei þú sérð það nú sjálf að þessar konur sem berjast fyrir málstað kvenna erti nú bara upp og ofan í útliti eins og gengur og gerist. — En það er ekki bara það, þær eru svo á- rásargjarnar þessar konur. Ég skal bara segja þér að Árni vinur hans Ella var að segja okkur frá því að systir hans á kunningjakonu sem býr í sama stigagangi og ein af þessum konum sem var framarlega á lista hjá þeim og sú gerði sér lítið fyrir og sparkaði í manninn sinn svo hryllilega að hún ristarbrotnaði. Þetta var víst alveg hræðilegt. Og málið var það að hún hafði skipað honum að vaska upp en hann hafði bara beðið um að horfa á fréttirnar í sjónvarpinu fyrst og þá bara gjörsamlega brjálaðist hún og sparkaði og sparkaði. Hún er víst í gifsi núna konan. ViÖtalsbil — Elskan mín, þú ert ábyggilega að tala um hana Sísi vinkonu, hún ristarbrotnaði einmitt um daginn. Þau voru að dansa hún og maður- inn hennar og hann steig ofan á hana, óvart, svo hún brákaði á 'sér ristina. Hún Sísí sagði mér þetta sjálf. — Elskan mín, þú átt ekki að trúa öllu sem þú heyrir, fyrir utan að þetta hefur ábyggilega verið allt önnur kona á listanum. En talandi um fótbrot þá man ég allt í einu að mér var sögð svo nöturleg saga af annarri af þessum tveim með þennan leiðinda útvarpsþátt, þessi Edda held ég, hún var víst að rífast í mannin- um sínum og var víst alveg ofboðslega ósvífin og dónaleg við hann, óskammfeilnin uppmál- uð! Og það er ekkert með það nema hvað það fýkur í veslings manninn og hann missir stjórn á sér andartak og danglar rétt aðeins í hana með löppinni — skyldi engan undra! Nema hvað heldurðu að löppin hafi ekki lent á einhverju beini og hún fann ekki fyrir neinu en hann veslings maðurinn mátti staulast upp á slysavarðstofu með brákaða tá! Heldurðu að það sé hryllilegt. Og allt henni að kenna búin að æsa manninn svona upp. Ég hef lika heyrt það að hann sé loksins að losa sig við þessa konu, og ef þau eru ekki nú þegar skilin þá eru þau bara rétt óskilin. — Það er kannski best að halda sig við það sem þú sagðir áðan að trúa ekki öllu sem mað- ur heyrir. — Nú þetta var nú hvorki meira né minna en haft beint eftir vinkonu hennar, hinni þarna með þáttinn, þessari Helgu eða hvað hún nú heitir, sem er víst ekkert betri sjálf. Hún er nú bara búin að koma öllu, segi og skrifa öllu, yfir á manninn sinn. Bara sem dæmi þá lætur hún hann alltaf elda matinn, hugsaðu þér allar máltíðir. Maður spyr nú bara sjálfan sig, hvað er manneskjan að gera á heimilinu á meðan? Ekki nóg með það, heldur sagði hún Halla hans Svenna sem býr þarna í sama húsi, hún var einu sinni stödd í þvottahúsinu og heyrir þá að þessi manneskja er að æsa sig svona ofboðslega og heimtar að maðurinn passi barnið líka. Á meðan hann er að elda matinn!!! Þvílík ótrúleg tilætlunarsemi! Gott ef hún ætlaði bara ekki að leggja sig á meðan eða eitthvað svoleiðis. Og hann fór auðvitað að malda í móinn og benda henni á að það sé ekki auðvelt að sinna barni á meðan maður er að snúa við kjöti á pönnu. Þetta er víst alveg frábær kokkur. Og þá flýtti Halla sér bara upp. Hugsaðu þér vanþakklætið í þessari manneskju, að kunna ekki gott að meta. Gengur stöðugt á lagið. Viötalsbil — Ég veit ekki betur en meirihluti kvenna lagi mat daglega og gæti barnanna samtímis og fara létt með það. Ég myndi örugglega geta gert þetta hvorutveggja ef ég eldaði matinn heima hjá mér. — Svo er víst alveg frægt að pabbarnir eru látnir sækja börnin á barnaheimilið fyrir þessar kerlingar!! — En yndislegt, mér finnst alltaf svo gam- an þegar feður fá tækifæri til að taka þátt i þessu daglega amstri með börnin. — Ég á bara ekki til nema eitt orð yfir þetta framapot í þessum konum sýknt og heilagt og það er hrein svívirða! — Skrítið þegar þú segir þetta, ég hef aldrei heyrt þessa lýsingu á karlmönnum sem eru að pota sér áfram. Skrítið, það hefur aldrei þótt svívirðilegt. — Þó ekki væri, hver ætti þá líka að stjórna þjóðfélaginu ef ekki þeir? — Það er einmitt stóra spurningin. Eiga karlmenn að stjórna þjóðfélaginu eða getum við kannski sameinast um það karlar og kon- ur? — Elskan mín auðvitað vitum við það allar að við konurnar stjórnum nú á bak við tjöld- in, og mér finnst nú bara að við getum verið ánægðar með það. — Já, já einhvers staðar las ég að eitt er að hafa óbein áhrif og annað að hafa völd, en það hefur nú trúlega verið haft eftir karl- manni. Það eru svo margar hliðar á þessu máli. — Já, það er akkúrat það. Það er svo mikið um dulinn áróður og besta fólk jafnvel verður fyrir þessu. T.d. var Elli að segja mér frá Þorra kunningja sínum sem er víst giftur einni af þessum konum og er víst orðinn gjörsamlega heilaþveginn af þessu og hann hefur verið að segja Ella alls kyns fáránlega kvennabrandara eftir konunni sinni. Eins og einn sem er nú al- veg óskiljanlegur: „Kona án karlmanns er eins og fiskur án reiðhjóls“!!! Hugsaðu þér, hver skilur þetta? Og svo eru þær með alls konar útúrsnúninga, eins og „frænkur eru frænkum bestar“ og „ber er hver að baki nema sér systur eigi“. Ég meina það, bullið í þeim. Heyrðu, hefurðu svo ekki heyrt slagorð- ið þeirra? „Fleiri brjóst í borgarstjórn, með leg að leiðarljósi"!! Hefurðu heyrt nokkuð eins klúrt og ógeðslegt?? — Já þetta er þrælgott. „Sameinaðar stöndum vér, sundraðar föllum vér“. Það er nú ákveðinn ferskleiki yfir þessum húmor, svona sem mótvægi við alla tengdamömmu- brandara, viðbrennduhúsmæðrabrandarana og brjóstastóru einkaritarabrandarana. — Það skín bara svo í gegnum þennan ó- skiljanlega húmor þeirra hvað þær eru gegn- sýrðar af karlahatri og fyrirlitningu. Það finnst mér lýsa þeim best. — Eru þá allir sem hafa hlegið að hinum bröndurunum á kostnað kvenna gegnsýrðir af kvennahatri? — Nei elskan mín, það er allt annað mál, það eru bara saklausar skrítlur. Jæja elskan mín, ég verð að drífa mig, EIli er að kalla. Ég verð að setja fótanuddtækið í samband fyrir hann. Þau eru svo ægilega góð fyrir menn sem vinna svona mikið eins og hann Elli minn. Hann er bara allur annar maður eftir að ég gaf honum þetta tæki. Þú þyrftir endilega að kaupa eitt handa þínum. — Mér veitti nú ekkert af að fá mér svona tæki sjálf til að hressa upp á lappirnar eftir að hafa þrammað bæinn á enda með barnavagn- inn. Láttu ekki Ella bíða, ég heyri i þér seinna. Bless elskan. og Eflfla BlOrgvinsflóiiir

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.