Helgarpósturinn - 29.04.1983, Síða 16
„Nei, þessi plata er ekki alger-
lega framhald af fyrstu plöt-
unni, en það eru þó vissir hlutir
sem tengja þær“, segir Rúnar
Þórisson gitarleikari og söng-
vari í hljómsveitinni Grafík, en í
dag kemur væntanlega á mark-
aðinn önnur plata sveitarinnar:
Sýn. - „Þessi er mun breiðari og
býður þarafleiðandi uppá enn
fjölbreyttara framhald, en er
jafnframt heildsteyptari. Nú
kemur hljómsveitin öll meira
við sögu, enda vinnubrögðin
orðin öllu lýðræðislegri“.
Meira um
plötuna
„Við notum mikið af hljóðgerfl-
um, bæði fyrir gítar, bassa og svo
auðvitað hljómborðin og ég held að
við notum hljóðgerfla allt öðruvísi
en aðrar hljómsveitir hér hafa gert.
Nú, á plötunni eru lögin öll sjálf-
stæð, en það eru ennþá til staðar
allnokkrar pælingar um framtíð
mannsins í þessari veröld. Svo er
líka slegið á létta strengi t.d. um þá
miklu utanaðkomandi ógn sem að
íslenskum karlmönnum steðjar,
þó ekki Kvennalistinn".
— Og þið tókuð plötuna upp
sjálfir eins og fyrri daginn?
„Já, þessi plata er unnin á mjög
svipaðan hátt og sú fyrsta en þó við
betri aðstæður. Við höfum nú
miklu betri upptökutæki, og það
stendur til að hefja opinberan
stúdíórekstur seinna meir þegar við
höfum fundið hentugt húsnæði
undir það. Annars er mér hálfilla
við að tala um þessar aðstæður
okkar, - þú veist: það fara allir að
99
Grafík:
kannski í fjöllin og
hafið“
tala um „miðað við aðstæður" og
svo framvegis. En talandi um þetta,
þá fékk síðasta plata einmitt mjög
góða dóma fyrir sánd m.a. í tónlist-
arblaðinu Trouser Press í New
York. Sem kom til þannig að hingað
kom maður frá Greenworld dreif-
ingarfyrirtæki þar vestra og hafði
200 eintök af plötunni okkar með
sér til baka og mér skilst að hann
vilji nú fá önnur 200 send“.
Lítið um
íslensk áhrif
— Heldurðu að það komi eitt-
hvað útúr þessu?
„Ja, peningalega gerir þetta lítið
meira en að svara kostnaði, plötur
eru svo miklu ódýrari í Bandaríkj-
unum en hér. Þannig að þetta er að-
eins kynningarspursmál. En við
stefnum reyndar að því að ná ár-
angri erlendis frekar en hér í
Reykjavík. Þess vegna vorum við
alvarlega að pæla í því á tímabili að
hafa textana okkar á ensku, - en
hættum við. Við vonumst til að
nýja platan geti gert eitthvað hjá
Greenworld, og svo fór maður út til
Danmerkur á dögunum með eldri
plötuna og þeir hjá Phona vildu
taka hana i dreifingu og að við
kæmum að kynna hana í danska
sjónvarpinu. En þetta er náttúr-
lega allt á áhugaplaninu. Við erum
ekkert að drattast um með heims-
frægðarkomplex, heldur er þetta
spurning um að finna starfsgrund-
völl í því umhverfi sem músík okkar
er sprottin úr. Við sækjum lítið til
íslenskra áhrifa nema kannski. í
fjöllin og hafið“.
— Hvaðan koma þá áhrifin?
„Ja, við í hljómsveitinni komum
auðvitað úr ólíku umhverfi og höf-
um orðið fyrir ólíkum áhrifum í
gegnum árin, en það má kannski
segja að helstu áhrifavaldar svona í
— rætt viö Rúnar Þórisson
úr Grafík
eldri kantinum séu hljómsveitiréins
og King Crimson og menn eins og
David Bowie og Lou Reed og þeir
sem hafa síðan fylgt í kjölfarið á
þeirri línu. Önnur músík sem hefur
áhrif þó þau liggi kannski ekki
alveg á ljósu er t.d. jass í anda Cole-
man og jafnvel gætir klassískra á-
hrifa víða“.
í framför
— Hvernig hefur ykkur gengið
að komast á legg sem hljómsveit?
„Það hefur gengið ágætlega.
Sjálfir teljum við okkur sterka og
aðeins fá bönd standa okkur jafn-
fætis hvað gæði varðar; störf
hljómsveitarinnar hafa aukið
sjálfsvirðingu okkar í bransanum.
Við lítum nú meira á okkur sem al-
vörutónlistarmenn. Og við erum
það vissir um ágæti þess sem við er-
um að gera, að við myndum ekki
kippa okkur upp við það, þó ein-
hverjum félli það ekki í geð. Við
teljum nýju plötuna sýna, að
hljómsveitin er í framför, og meðan
svo er mun hún halda áfram að
starfa á þessum vettvangi.
The Fall
Matreiöslubók stjórn-
leysingjans eöa The Anarchist
Cookbook hefur verið nokkuö
umtöluö meöal unglinga hér í
Reykjavik í vetur og okkur datt
í hug aö kíkja á gripinn. Þaö er
best aö segja þaö strax til aö
koma í veg fyrir misskilning aö
þarna er ekki neinar venjuleg-
ar „uppskriftir" aö finna og
þarf því aö leita annars staöar
að uppskrift að t.d. súrmjólkur-
búöingi eöa grænkálsjafningi.
Aftan á kápu bókarinnar er þessi
Aðvörun: Lesið þessa bók, en hafið
í huga að efnin sem fjaliað er um
eru ólögleg og ógnvekjandi. Það er
líka nauðsynlegt að vita að flestar
uppskriftirnar eru hættulegar, sér-
staklcga fyrir þann sem fíflast með
þær án þess að vita hvað hann er að
gera. Verið nákvæm og varkár og
notið heilbrigða skynsemi. Þessi
bók er hvorki fyrir börn né bjána.
Það munar ekki um það, en þeg-
ar litið er á kaflaheitin sést að ekki
hvorki fyrir
börn né bjána
veitir af aðvörun. Fyrsti kaflinn er
um eiturlyf og það er ekki þessi
venjulega upptalning sem við
þekkjum úr Heilsufræðinni heldur
uppskriftir á hversdags- og hátíðar-
réttum þar sem ýmist hass eða gras
er undirstaðan. Lýst því „skrýtna
og áhugaverða lyfi“ LSD, hvað beri
að varast við innkaup á því, hvernig
hægt sé að búa það til á rann-
sóknarstofu og líka heima í eldhúsi.
Seiseijá og ekki má gleyma banön-
um, því skemmtilega ofskynjunar-
lyfi. Um límið segir svo: Ég skil ekki
hvernig nokkur vill sniffa lím þegar
það er alveg eins löglegt að reykja
pödduskinn. Límsniff er alveg
ömurlegt, það veldur hausverk,
ruglun, þunglyndi, lystarleysi, ó-
gleði og of mikið magn veldur með-
vitundarleysi og dauða.
Það væri hægt að nefna miklu
fleiri atriði úr eiturlyfjakaflanum,
t.d. þetta með hneturnar, en við lát-
um þetta nægja og snúum okkur að
næsta kafla: skemmdarverkunum
og rafmangspælingunum. Þarna er
allt um hleranir i gegnum veggi,
síma og þess háttar, en líka talað um
hvernig best sé að trufla fjarskipti
löggunnar. Þeir sem áhuga hafa á
frjálsu útvarpi geta flett upp á blað-
síðu 72. í lok kaflans er bent á þær
grundvallarreglur sem allir þeir sem
vinna að skemmdarverkum og í
skæruhernaði verða að hafa í huga.
Hér koma nokkrar gullvægar:
-Hermdarverk er best að fremja að
nóttu til. -Allar tímasetningar verða
að vera fullkomnar. -Starfaðu að-
eins með fólki sem þú treystir.
-Starfaðu í litlum hópum, hámark
fjögra manna. -Allar aðgerðir þurfa
að vera einfaldar og fljótvirkar.
Nokkrar útgönguleiðir þurfa að
vera til staðar.
Þá eru það vopnin. Þriðji kaflinn
fjallar um ýmsar tegundir af þeim,
en höfundur minnir þó á að vopn
gera ekki byltingu heldur hug-
myndafræðin. Hins vegar getur oft
verið gott að grípa til þeirra ef
þannig stendur á. Það er nú ekki
margt nýtt í þessum kafla. Við sem
horfum á sjónvarp, svo ekki sé nú
talað um vídeó, vitum orðið allt um
þessar græjur. Síðasti kaflinn er um
sprengjur og alls konar gildrur og
verður höfundur nú fyrst alvarlega
hræddur um lesendur og biður þá í
guðanna bænum að fara varlega.
Við það að fikta við þetta gætirðu
ekki aðeins lent í því að drepa
sjálfa(n) þig heldur lika saklaust
fólk! Við botnuðum nú lítið í allri
efnafræðinni þarna og hættum því
fljótlega öllum tilraununum við
sprengjugerðina og lásum okkur
rólega í gegnum bókasprengjur,
hurðarhúnasprengjur, strompa-,
pípu-, bila-, lampa- og penna-
sprengjur.
Auk þessara fjögurra kafla er
langur kafli um anarkisma í bók-
inni og lokaorð höfundar, en þar
segir hann m.a.: Ég vil ekki lög sem
vernda mig gegn sjálfum mér.
Hljómar það skringilega? Ef ég vil
aka mótorhjóli án þess að hafa
hjálm þá er það skilyrðislaus réttur
minn að gera það. Ef ég vil vera fífl
þá má ég það, því ég er eini maður-
inn sem það gæti skaðað. Ef ég vil
sofa hjá 'karlmönnum, taka LSD,
spranga ber niður Laugaveginn eða
gera afbrigðilega hluti við hundinn
minn;með hvaða rétti geta stjórn-
völd þá stoppað mig?
Næstkomandi 6. maí mun breska hljómsveitin The Fall koma hingað til
lands og halda tónleika í Austurbæjarbíói. The Fall ætti að vera íslending-
um að góðu kunn síðan hún spilaði hér í septembermánuði 1981. Margt
hefur á daga The Fall drifið síðan hún var hér síðast. Fyrst til að nefna er
að hún hefur nú bætt við sig einum trommara í viðbót. Þannig að nú eru
tveir trommarar í Fall. Önnur breyting hefur ekki átt sér stað í hljómsveit-
inni en telja verður það nokkuð merkilegtfþar eð mannabreytingar hafa
verið æði tíðar í henni.
Með þessari liðsskipan hefur The Fall tekið upp þó nokkrar smáskífur,
eina LP plötu „Hex Enduction Hour“, að hluta til tekin upp hér, og síðan
7 laga plötuna „Room to live“. Segja verður að á Room to live nái Fall
hljómurinn að nær fullkomnast, en greinilegt er að mjög skemmtilegur
heildarsvipur og samspilun hafi náðst hjá The Fall.
The Fall koma hér við á bakaleið sinni frá Bandaríkjum en þar hafa þau
eytt smá tíma í spilamennsku. Þau hafa farið víða á þeim tíma sem liðinn
er síðan þau voru hér; Bretland með Purrki Pillnikk, Ástralía, Nýja Sjá-
land, Girikkland, Austurríki, Sviss, Þýskaland, Frakkland, Belgía, Hol-
land.
Það verður óneitanlega gaman og spennandi að sjá The Fall hér á landi
að nýju, því allt bendir til að um hörkugóða tónleika sé hér að ræða
og ekki spillir fyrir að stórsveitin EGO og iss! spila með „folunum" þann
6. maí í Áusturbæjarbíói.
á tónleikum
þann 6. maí
í Austurbæjarbíói