Helgarpósturinn - 06.05.1983, Síða 16
„...að leggja áfengissalann
og heróínsalann að jöfnu“
— með Bubba á kaffi
„Þetta er údúrdúr hjá mér, algjört
hliöarhopp, og ég kem ekki til með
að gera svona hlut aftur að minnsta-
kosti ekki næstu árin,“ sagði Bubbi
Morthens þegar við setjumst að síð-
búnu morgunkaffi síðastliðinn
þriðjudag til að spjalla um nýjustu
sólóplötu hans Fingraför og annað
sem er honum ofarlega í huga um
þessar mundir. ,,Ég hef gengið með
það í maganum lengi, allt frá trúba-
dúrárunum, að gera svona vísna-
plötu, en ekki haft mig í að stíga
skrefið til fulls fyrren nú. Ég varð
bara að koma þessu frá mér.“
Hippafilingur
— Nánar um efni plötunnar?
,,Já, þetta er svona gamall hippafíl-
ingur, platan fylgir engri tísku og engri
ákveðinni stefnu, og þetta eru hlutir
sem búið er að gera 100 sinnum áður.
En einsog ég segi þá varð ég að gera
eina svona plötu fyrir sjálfan mig. Nú,
lögin eru sjálfsitaeð, bæöi gömul og ný,
það elsta er frá 74 að mig minnir. Egó
á nokkur laganna Paranoia, Hvað er
klukkan og Lög og regla — í sínum eig-
in útgáfum sem verða jafnvel notaðar á
plötu seinna. Textarnir, ja þaö fylgja
skýringar með þeim á plötunni og ég
held að þær dugi alveg, þetta er eins-
og lögin bæði nýir og gamlir textar, og
það er ekkert ákveðið þema sem teng-
jr þá saman."
Kommbakk Megasar
— Nú hefur platan að geyma nokk-
urskonar kommbakk Megasar í al-
þýðutónlistina, — ertu ekkert hræddur
við það, þeas að öll athyglin beinist að
honum?
,,Þú meinar að ég falli sjálfur I
skuggann. Já, neinei Megas á það
skilið og mikið meira en það. Enda má
eiginlega segja að leikurinn sé gerður
til að sýna fólki að hann er enn mjög
sterkur í músíkinni, og hefur jafnvel
aldrei veriö jafnsterkur og haft eins
mikið til málanna að leggja og einmitt