Helgarpósturinn - 02.06.1983, Blaðsíða 17

Helgarpósturinn - 02.06.1983, Blaðsíða 17
"Jpéjsturinn. Fimmtuda9ur 2- Juní 1983 17 Eigum á lager og sérframleiðum eftir pöntunum Vatnsrör fyrir heitt og kalt vatn. Einnig í snjóbræðslu og jarðvegskyndingu til útiræktunar. Útvegum samansuðu ef óskað er. Þaulvanur suðumaður. PLASTMÓTUN s/i ii LÆK OLFUSI-Sími 99-4508 Saman soðin vatnsrör Snjóbræðslurör einnig tilgeislahitunarígólfog jarðvegskyndingar til útiræktunar. Samansuða á hitaþolnu plaströri með Polyúri- þan einangrun Mikil óánægja ríkir nú J hjá ýmsum skipafélögum S- með það hvernig staðið er að útflutningi á síldarmjöli á vegum ríkisins. Þann útflutning annast Síldarverksmiðjur ríkisins í gegn- um Þorvald Jónsson, skipamiðlara, sem sér um að útvega öll skip til flutninganna, en þeir eru umtals- verðir. Óánægjan stafar einkum af því að skipafélagið Nesskip hefur fengið afar stóran hluta af þessum flutningum, og það jafnvel þó önn- ur skipafélög hafi boðið ríkinu betri kjör. Skýringin er sögð sú að framkvæmdastjóri Síldarverk- smiðju ríkisins, Benedikt Sveins- son, er einnig stjórnarformaður Nesskipa, og að Þorvaldur Jónsson er einnig stjórnarmaður í sama skipafélagi... rf 1 Eftir áralanga umræðu, og f' 1 talsvert japl og jaml og y fuður hefur nú loks verið tek- in ákvörðun um að leggja niður einn lið í bákninu - rekstrardeild ríkisskipafélaganna. Sú deild er reyndar ekki gömul og var sett á fót til að auka hagkvæmni i rekstri skipa í eigu ríkisins, þ.e. Hafrann- sóknastofnunar, Ríkisskipa og Landhelgisgæslunnar. Nokkuð er síðan ljóst varð að deildin jók ekki hagkvæmnina heldur þvert á móti, en tregðulögmál kerfisins hafa staðið í vegi fyrir breytingum um nokkurt skeið. Erfiðlega gekk að finna hentug störf annarsstaðar fyrir toppana, og svo framvegis. En nú eru þau vandamál úr sögunni í aðalatriðum, og breytingin kemur til framkvæmda í sumar..... JT't Allar líkur eru á því að á f' 1 næstunni hefjist fram- y kvæmdir við hótelbyggingu við Svartsengi við Grindavík. Nær væri kannski að kalla fyrirhugað hótel mótel, þar sem um verður að ræða um 400 fermetra hús með 12 tveggja manna herbergjum, mötu- neyti og annarri nauðsynlegri að- stöðu. Það er Félag psoriasis- og ex- emsjúklinga sem stendur að hótel- byggingunni ásamt Þórði Erni Stef- ánssyni framreiðslumanni, en hót- elið mun einkum ætlað sjúklingum sem sækja „bláa lónið“ í Svarts- engi, en sem kunnugt er er lækn- ingamáttur þess talinn ótvíræður og orðstír þess hefur þegar borist til annarra landa, þannig að ekki er ólíklegt að psoriasissjúklingar frá öðrum löndum sæki til Islands á næstunni. 3 Sagt er að skuldabréfasöfnun / / SÁÁ manna hafi engan veg- inn gengið eins vel og for- ráðamenn vonuðu. I byrjun var mikill kraftur í söfnuninni og útlit á því að SÁÁ menn næðu markmiði sínu, sem var um 20 milljónir króna. Siðan dofnaði verulega yfir söfnuninni og lítið mun hafa komið inn af skuldabréfum á síðustu mán- uðum. Eigi að siður mun hafa safn- ast verulega hærri upphæð en í söfnun Krabbameinsfélagsins á sín- um tíma, sem SÁÁ menn höfðu sem viðmiðun, og fjármagnið sem SÁÁ menn fá út úr söfnuninni mun nægja langleiðina til þess að ljúka byggingu sjúkrastöðvarinnar. Er sagt að SÁÁ menn ætli sér ekki að láta deigan síga, heldur efna til happdrættis í haust og freista þess að ná þannig inn því sem á vantar. SamvinnuferðL(»j5jóða nú upp á hóp>»w^a tónleika David Bowie í Gautaborg í næstu viku. Það gekk hins vegar ekki átakalaust að afla miða handa landanum. Hvert sem þeir Sam- vinnuferðamenn sneru sér, var þeim bara sagt að gleyma þessu, þvi löngu uppselt væri á tónleikana. En dag nokkurn hitti sölustjóri Sam- vinnuferða, Helgi Jóhannsson, Sig- mar B. Hauksson á gangi í Austur- stræti. Helgi spyr Sigmar hvort hann hafi ekki enn sambönd í Gautaborg frá því að hann var þar við nám og hvort hann geti nú ekki reddað nokkrum miðum. Sigmar kveðst mundu athuga málið. Klukkustund síðar hringir hann svo í Helga og tilkynnir honum, að ís- lendingar geti fengið 50 miða. Að sjálfsógðu verður Sigmar farar- stjóri og með honum verður Ólafur Garðarsson... Frúin hlær í betri bíl Aldrei meiri sala Vantar hjólhýsi á söluskrá Opið á laugardögum frá kl. 10—6 BÍIASAIA GUDF1NNS Ármúla 7, sími 81588.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.