Helgarpósturinn - 02.06.1983, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 02.06.1983, Blaðsíða 23
23 Fimmtudagur 2. júní 1983 • yfir 20 og margir þeirra þjóðfrægir menn... ^>1 Fótboltafélagið Augnablik / Jí Kópavoginum er óvenjulegt S\ íþróttafélag. Lið þess, sem leikur í 4. deild íslandsmótsins í knattspyrnu samanstendur einkum af „uppkomnum“ knattspyrnu- stjörnum, sem á yngri árum gerðu garðinn frægan með öðrum liðum. I vikunni lék liðið við FH í bikar- keppninni og tapaði með naumind- um með einu marki gegn engu, og skoraði FH sigurmarkið á síðustu sekúndum leiksins. Leikurinn þótti ekki sérstakur á neinn hátt, en um- gjörð hans af hálfu Augnabliks- manna var vægt sagt óvenjuleg. Fyrir leikinn komu leikmennirnir saman í húsi í Kópavoginum og horfðu saman á úrslitaleik ensku bikarkeppninnar, yfir bjórglasi til að fá bikarstemmningu í kroppinn. Síðan hoppuðu þeir uppí fjórar svartar límósínur og óku tignarlega á Kaplakrikavöllinn í Hafnarfirði, og fór leðurklæddur maður á mótorhjóli fyrir bílalestinni. Þegar á leikvöllinn var komið hneigðu þeir sig fyrir áhorfendum, sem voru tvö börn, og hófu leikinn. Að hon- um loknum var síðan siglt tignar- lega á sama hátt til baka... Saksóknara rikisins Þórð f'l Björnsson fýsti mjög að vita y hverjir væru höfundar efnis í síðasta tölublaði Spegilsins sem gerður var upptækur fyrr í vikunni. D lfar Þormóðsson aðstandandi blaðsins svaraði því til í yfirheyrslu lögreglunnar að það gæfi að lesa í haus blaðsins. Þar stendur nefni lega að blaðið sé unnið af bestu sonum og dætrum þessarar þjóðar. Sannleikurinn í málinu að höfund- ar að teikningum, ljósmyndum og rituðu máli Spegilsins munu vera Einhvers konar faraldur f' J virðist hafa gripið um sig á ýmsum fjölmiðlum úti í heimi vegna eldgossins í Gríms- vötnum, og nú í vikunni hefur hvað eftir annað verið hringt hér í Helg- arpóstinn og aðra íslenska fjöl- miðla erlendis frá í tengslum við gosið. Eru það erlendir kollegar sem vilja fá fréttir, og sumir þeirra helst á því að koma á stundinni til landsins, áður en það sökkvi að hálfu eða öllu leyti undir vatn. Frétt Magnúsar Guðmundssonar, frétta- ritara norrænu fréttastofanna,um að einstakir jarðfræðingar hafi ótt- ast að eldgosið færðist í aukana með þeim afleiðingum að Vatna- jökull bráðnaði, virðist skiljanlega hafa kveikt í fréttamönnunum, enda auðvelt að sjá fyrir sér miklar náttúruhamfarir með slíkar upplýs- ingar, þekki menn ekki til að-i stæðna... Spurðu lækninn þinn um áhríf lyfsins sem þu notar Rauður þríhymingur i'Aj varar okkur við Ráðstefna um Gæði sjávarafurða Á vegum Sjávarútvegsráðuneytisins og Fiskiðn, fagfé- lags fiskiðnaðarins verður haldin dagana 9., og 10. júní n.k. að Borgartúni 6, IV hæð (ráðstefnusal). Tilgangur ráðstefnunnar er að varpa ljósi á aðgerðir í gæðamálum, greina frá nýjungum og ræða umbótamál í fiskiðnaði. Ráðstefnustjóri Björn Dagbjartsson Dagskrá: 9. júní Setning ráðstefnu Ávarp sjávarútvegsráðherra, Halldórs Ás- grímssonar: Aðgerðir stjórnvalda í gæðamál- um. Gæðahringir i fiskiðnaði: Ingjaldur Hannibalsson frá Iðntæknistofnun. Stjórnun og skipulögð vinnubrögð: Árni Gunn- arsson frá Stjórnunarfél. ísl. Námsleiðir fyrir starfsfólk í fiskiðnaði og sjávar- útvegi: SigurðurB. Haraldsson skólastjóriFisk- vinnsluskólans. Ferskleiki fisks - mat eða mæling: Björn Krist- insson frá Rafagnatækni. Dagskrá: 10. júní Verðmæti sjávarafla og þýðing gæða: Jónas Blöndal frá Fiskifélagi íslands. Um rannsóknir: Erindi flutt af starfsmönnum Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Opinber eftirlitsstörf í sjávarútvegi og fisk- vinnslu: Jóhann Guðmundsson frá Framleiðs- lueftirliti sjávarafurða. Hráefm um borð í fiskiskipum og í móttökum: Svavar Svavarsson framleiðslustjóri BÚR Erindi sölusamtakanna: Fulltrúar Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna, Sambands ísl. samvinnu- félaga og Sölusambands ísl. fiskframleiðenda fjalla um hráefm, vmnslu og umbótamál fyrir erlendan markað. Kynning á lagafrumvarpi um ríkismat sjávarafurða. Á eftir erindum verða umræður og fyrirspurnir. Ráðstefnugjald er kr. 800, innifalið er matur og kaffi. Þátttaka tilkynnist í síma 13151 frá kl. 13.30 til 16.00. Áríðandi að tilkynna þátttöku sem fyrst. F/SK WJIAJ FAGFÉLAG KmJFMW j FISKIÐNAÐARINS SJAVARUTVEGS- RÁÐUNEYTIÐ Erum fluttir — Höfum stækkað Háberg hf. hefur opnað nýja varahluta- verslun undir nafninu Bílaland í Skeif- unni 5, suðurenda. Með tilkomu þessarar nýju verslunar getum við boðið enn betri þjónustu við stórbættar aðstæður. Auk varahluta í rafkerfi bifreiða bjóðum við fjölbreyttara úrval almennrar rekstr- arvöru fyrir bíla. Góð staðsetning. Næg bílastæði fyrir allar stærðir bíla. Verið velkomin. Bílaland — Háberg hf. S: 84788 - S: 33345 Stjörnuspá Hrúturinn: (21. mars-19. apr.) Leggðu grunn að frama þínum; bjóddu starfsfélög- unum upp á pítu og þú verður umsvifalaust hrútur alls fagnaðar. Nautið: (20. apr.-20. maí) Þrjóski tuddi, reyndu að átta þig á því að tilbreytingin er nauðsynlegt krydd i tilveruna. Fáðu þér sjoþþuþítu með þuffstroganoffi annað veifið og pftu með buffi „spes made“ í Pitunni á Bergþórugötu 21, hitt veifið. Tvíburarnir: (21. maí-20. júni) Rifðu þig upp úr hikinu og óörygginu. Æfðu þig ( að taka snöggar ákvarðanir með því að rjúka uþp í Pituna á Bergþórugötu 21 og segja með festu i málrómnum: „Eina pítu með kjúklingi og ekkert múður!“ Ljónið: (23. júlf-22. ágúst) Eigingirnin hefur komið þér víða út úr húsum. Láttu fullan poka af pítum greiða fyrir þig leiðina inn aftur. Krabbinn: (21. júní-22. júlf) Gjafmildin er þér eðlislaeg. Og ef þú kemst upp á lag með að gefa vlnum og vandamönnum pitu, þá er það meiriháttar. Mærin: (23. ágúst-23. sept.) Greiðviknin er að ríða þér á slig. Gerðu uppreisn áður en það er um seinan. Stattu upp, berðu í borðið (lausf svo þú skemmir ekkert, en samt ákveðið) og heimtaðu að ættingjarnir bjóði þér upp á pítu. Þú átt það skilið. Vogin: (23. sept.-22. okt.) Reyndu að virkja umburðarlyndi þitt þér í hag. Leyfðu t.d. gömlum vini, sem hefur móðgað þig, að bæta fyrir brot sitt með pítu. Borðaðu svo báðar píturnar, hans líka, þá er málið úr sögunni. Drekinn: (23. okt.-21. nóv.) Bættu fyrir frekju þína og yfirgang með því að leyfa elskunni þinni sjálfri að ákveða hvort hún vill pítu með kótilettu, buffi, kjúklingi eða fiski. Bogmaðurinn: (22. nóv.-21. des.) Sælkerar eins og þú þurfa á hreyfingu að halda. Skokkaðu uþþ á Bergþórugötu 21 og fáðu þér pítu svo getur þú skokkað heim aftur. Steingeitin: (21. des.-20. jan.) Þú erl fagurkeri og fæddur smekkmaður/kona. Gefðu soðningunni fri og farðu á Pituna, þar hæfir umhverfið og maturinn þér fullkomlega. Vatnsberinn: (20. jan.-18. febr.) Komdu fjölskyldunni á óvart, nirfillinn þinn. Bjóddu þeim uþþ á pítu (láttu liðið bara ekki komast að þvf hvað þær eru ódýrar). Fiskarnir: (19. febr.-20. mars) Það er óþarfi að láta nágrannana hlæja svona að sveitamennskunni. Vendu komur þínar á Pítuna á Bergjjórugötu 21. Þar getur þú hlegið að nágrönn- unum.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.