Helgarpósturinn - 15.09.1983, Side 3
3
_Helgai----;---
nh^tl irínn Fimmtudagur 15. september 1983
Fögur er flask-
an...
„Á Spáni er gott að djamma og
djúsa, diskótekunum á“. Hann hef-
ur líklega yljað mörgum um hjarta-
ræturnar, dægurlagatextinn sem
hefst með þessum orðum.
Ekki vitum við hvort veslings
seinheppni Norðmaðurinn, sem hér
verður sagt frá, var að koma heim
úr fríi á Spáni. Eitt er víst, hann var
að koma frá suðlægum löndum
ásamt vinkonu sinni og tjaldvagni
og fimm hundruð og fjórum viskí-
flöskum. Danskir tollverðir sáu
hins vegar við þessum þyrsta manni
og gerðu góssið upptækt. Ekki nóg
með það, Norsarinn á það á hættu
að þurfa að dúsa í fangelsi í tvær
vikur fyrir vikið og borga svimandi
háa sekt.
Hann var nú ekki klókari en svo,
að hann faldi flöskurnar í tjald-
vagninum, þar sem laganna vörð-
um veittist auðvelt að finna þær.
Enda hvernig má vera hægt að fela
jafn margar flöskur. Innkaupsverð
flasknanna mun hafa verið um eitt
hundrað þúsund krónur og ef
smyglarinn ætti að borga af þeim
toll, þyrfti hann að snara fram um
eitt hundrað og fimmtíu þúsund
krónum.
Þegar síðast fréttist, höfðu yfir-
völd ekki enn tekið afstöðu til þess
hvort vinkonan yrði sótt til saka
sem samsærismaður í smyglinu.
Hlegið
í útvarpi
Benedikt Erlingsson og Halldóra Geirharðsdóttir skemmta sér konung-
lega við upptöku leiknu framhaldssögunnar í „Sumarsnældunni“ en þátt-
urinn heitir reyndar „Hrímgrund" á veturna. Leikna framhaldssagan sem
nefnist INNRÁS er eftir Jóhannes Björn sem mörgum er kunnur fyrir sög-
una „Falið vald“. Sumarsnældan er blandaður þáttur fyrir yngri kynslóð-
ina og hefur haldið velli í tvö ár og á vonandi eftir að vera lífsseigur.
Kauplaus
starfsmaður
sem vinnur allan sólarhringinn
Ronex örtölvusímsvarinn er nauðsynlegt
tæki hjá öllum minni fyrirtækjum,
félagasamtökum og einstaklingum.
Hann tekur niður skilaboð, þegar ekki er hægt að
svara í síma vegna anna, eða meðan skroppið
er frá, hjá sumum er hann meira að segja notaður
til að taka niður pantanir.
Ronex örtölvusímsvarinn er hannaður
samkvæmt nýjustu tækni og býður upp á
fjölmarga kosti, sem eldri gerðir
símsvara buðu ekki upp á.
Hafið samband við okkur og fáið nánari
upplýsingar um þetta undratæki. Hagstætt verð.
Popp-
bókina
vantar
myndir
Poppbókin svokallaða,
uppsláttarrit Jens Kr. Guð-
mundssonar um poppmúsík á
Islandi, er nú komin á loka-
stig. í rauninni vantar ekki
nema nokkrar myndir til að
bókin geti farið í prentun. Þess
vegna heitir Poppbókin á
hvern þann sem á í fórum sín-
um myndir af íslenskum
poppurum að lána þær til birt-
ingar í bókina. Teiknaðar
myndir eru ekki síður vel
þegnar en ljósmyndir. Vitað er
að Bubbi, Ragnhildur og fleiri
popparar voru vinsælt við-
fangsefni í teiknikennslu
grunnskólanna s.l. vetur.
Gamlar myndir eru einnig
kærkomnar. Það er nauðsyn-
legt að brugðist sé skjótt við
og myndunum verði komið til
bókaútgáfu Æskunnar Lauga-
vegi 56 eða að þær séu sendar
í pósthólf 14, 121 Reykjavík,
helst í gær eða fyrr. Það mun-
ar um hvern dag á þessum árs-
tíma.
Öllum myndum verður aft-
ur skilað eftir notkun.
Skrifar þú
nauðug viljug?
Asa Sólveig
„Ég er alls ekki nauðug að
skrifa, þá væri ég ekki að því.
Reyndar finnst mér það mjög
gaman“
— Um hvaö fjallar leikrit-
ið „Nauðug viljug?
„Það er óskaplega erfitt að segja
frá því svo rétt verði. Ég vil ekki
gefa neina ranga hugmynd um
leikritið. Annars er þetta 70 mín-
útna langt leikrit um fjölskyldulíf
í Reykjavík í dag. Það er nálægt
manni að skrifa um þessi fjöl-
skyldutengsl"
— Hefur þú fyrirmynd af
fjölskyldunum?
„Nei þetta er allt tilbúningur
frá upphafi til enda, og reyndar
allt sem ég skrifa. Og jafnvel ef
mér finnst einhver af persónunum
mínum líkjast einhverjum sem ég
þekki reyni ég að breyta því, sem
snarast“
— Hvað varstu lengi að
skrifa þetta leikrit?
„Það eru tvö ár síðan ég hóf að
skrifa verkið og þann tíma hef ég
líka verið að vinna á Morgunblað-
inu“
~ Kemur aldrei fyrir að
þú rissarniður hjá þér í
vinnutímanum?
„Nei, en auðvitað myndast
hugmyndir þar eins og í strætó
eða eldhúsinu en ég reyni þá frek-
ar að muna þær þangað til ég er
komin heim.“
— Ertu með þessa svo-
kölluðu rithöfundamaníu?
„Nei alls ekki, ég byrjaði til
dæmis ekki að skrifa fyrr en 1972.
Ástæðan fyrir því að ég hélt svo
kannski áfram eftir mitt fyrsta
verk var sú að ég bar það undir
dómbæra menn og var sagt að ég
ætti að halda áfram. Þá hóf ég að
skrifa mitt fyrsta verk sem var tek-
ið til sýningar í sjónvarpinu og hét
„Svartur sólargeisli"
— Af hverju sjónvarp?
„Það hefur æxlast svo, að mín
verk hafa hentað best fyrir útvarp
og sjónvarp". Ég hef sem sé skrif-
að 3 sjónvarpsleikrit og 5 útvarps-
leikrit. Reyndar hefur eitt af mín-
um verkum farið á svið það var
„Gur.na", á sviðinu á Neskaup-
stað“
— Hvernig finnst þér svo
að eiga leikrit í sjónvarpi
Norðurlandanna?
„Satt að segja kom það mér
mjög mikið á óvart og ég tel mig
bara einstaklega heppna. Ég hef
reyndar átt leikrit sem var sýnt í
sjónvarpinu í Svíþjóð og Noregi
sem hét „EIsa“, en þetta eru öll
löndin og mikill heiður að hafa
náð svona langt með þetta"
— Þurfa svona rithöfund-
ar eins og þú hagsmuna-
samtök?
„Já tvímælalaust verðum við
að hafa okkar stéttarfélag eins og
annað starfandi fólk. Ég er í félagi
Rithöfundasambandi íslands sem
var stofnað 1974, og ég hef verið
í þar frá byrjun“
Ása Sólveig er fædd í Reykjavík 12-1 1945. Hún er starfsmaður
hjá Morgunblaðinu, húsmóðir og húsbóndi á sínu heimili, auk
þess að vera rithöfundur. Hún hefur verið í Rithöfundasam-
bandi íslands í 9 ár og er einnig í stjórn félagsins. Leikritið
hennar Nauðug/viljug var valið til sýninga í Noregi, Danmörku,
Finnlandi og Svíþjóð af norræna sjónvarpssambandinu Nord-
vision.