Helgarpósturinn - 15.09.1983, Page 4
4
Fimmtudagur 15. september 1983
Jp&sturinn.
Þróun heildarvínsölu ÁTVR 1972-1982. Sala sterkra vína
hefur dregist saman um 1%. Salan er nú um 1,2 milljónir lítra
á ári. Sala á millisterkum vínum hefur aukist úr um 200.000 lítr-
um í um 600.000 lítra á ári. Sala á léttvíni hefur aukist úr um
240.000 lítrum í um 990.000 lítra á ári. Heildarsalan hefur auk-
ist um 67,7% — úrtæplega 1,7 milljónum lítra í 2,8 milljónir lítra
á ári.
Vínneysla íslendinga hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum 10 árum.
Landinn hefur aukið við sig drykkjuna og hann er nú meira fyrir léttu vínin en
þau sterku.
íslendingar drukku 2,8 milljónir lítra af víni árið 1982. Gömlu heitavatnsgeym-
ar Hitaveitu Reykjavíkur á Öskjuhlíð taka eina milljón lítra hver. Það þyrfti því
næstum þrjá þeirra til að geyma ársneyslu íslendinga af áfengi. Og þá er bland
ekki talið með.
Árið 1972 hefðu tveir tankar dugað. Víndrykkjan hefur nefnilega aukist gífur-
lega á síðustu 10 árum, mælt í lítrum: úr 1,7 milljónum lítra í 2,8 milljónir lítra
1982. Aukningin er 67,7%. Neyslan 1972 samsvaraði því að hvert mannsbarn á ís-
landi hefði drukkið úr 10 þriggja pela vínflöskum. Neyslan 1982 nálgaðist 17
flöskur á hvert mannsbarn.
Þetta eru ískyggilegar tölur. En sem betur fer segja þær ekki alla söguna. Þótt
þróun áfengismála á Islandi síðustu árin sé ærið áhyggjuefni, hefur ástandið samt
ekki versnað jafn mikið og söluaukning ÁTVR í lítrum talið gefur til kynna.
Landinn herðir
drykkjuna
r
THí'.
|
< V || yW
" #Sí
Breyttur vínsmekkur þjóðarinnar hefur ekki breytt tímanum sem hún velur
sér til áfengiskaupa segja starfsmenn ÁTVR. Það er alltaf sama ösin eftir
hádegi á föstudögum en rólegt aðra daga.
en léttir
hana
um leið
Staðreyndin er sú, að sala ÁTVR
á hreinum vínanda hefur aukist
mun minna en heildarlítrafjöldinn
segir til um. Venjulegt er að mæla á-
fengisneyslu þjóða í lítrum af hrein-
,um vínanda á hvern íbúa. Sam-
kvæmt þeim mælikvarða hafa ís-
lendingar aukjð áfengisneysluna
síðustu 10 árin en þó ekkert í lík-
ingu við það sem heildaraukning
vínsölunnar gefur til kynna. Á-
fengisneyslan hér á landi 1972 sam-
svaraði því, að hver íslendingur
hefði drukkið 2,8 lítra af hreinum
vínanda það ár. Árið 1982 var þessi
tala komin upp í 3,1 lítra. Þetta er
„aðeins“ 11,7% aukning miðað við
67,7% aukningu á vínsölu ÁTVR í
heild.
Sölusprenging í léttum
vínum
Skýringin á þessum mismun felst
í einskonar „sölusprengingu“ á létt-
um og millisterkum vínum hér á
landi hin síðari ár. Sala á sterkum
vinum (22-45 vínandi) hefur breyst
sáralítið á þessum tíma en léttvín
(rauðvín, hvítvín, rósavín) og milli-
sterku vínin (Vermouth, Sherry,
Portvín, Campari, Dubonnet o.s.
frv.) hafa selst betur með hverju ár-
inu. Alla aukningu í vínsölu ATVR
1972 til 1982 má rekja til léttari vín-
tegundanna.
Nú er svo komið að þessar léttari
tegundir seljast í meira mæli en
sterku vínin. Hlutdeild þeirra í
heildarsölu ÁTVR var orðin 57%
árið 1982 en var aðeins 26% fyrir 10
árum. Árið 1972 voru sterku vínin
þannig 74% sölunnar en eru núna
aðeins um 43%, í lítrum talið.
Það er ekki lengra síðan en 1979,
að sterku vínin seldust í meira
magni en léttari tegundirnar. Það
var svo 1980 sem sterku vínin duttu
niður fyrir 50% hlutdeild í heildar-
sölumagni ÁTVR.
Eins og sjá má af skýringar-
myndinni með þessari grein hefur
söluaukningin síðustu 10 árin orðið
mest í léttu vínunum, en minni í
millisterku tegundunum (16-21%
vínandi). Á þessu 10 ára tímabili
hefur sala á léttvínum þannig rúm-
lega fjórfaldast og sala á millisterk-
um vínum þrefaldast. Eins og áður
sagði hefur sala á sterkum vínum á
þessu tímabili nánast staðið í stað.
Árleg sala á sterkum vínum hefur
verið á bilinu 1.230-1.260 þús. lítrar.
Léttvínssalan hefur hins vegar auk-
ist úr um 240 þús. lítrum 1972 i um
990 þús. lítra árið 1982. Árið 1972
seldust um 200 þús. lítrar af milli-
sterkum vínum, en 1982 var salan
orðin um 600 þús. lítrar.
Þessi söluaukning í léttari vínteg-
undunum hefur verið nokkuð jöfn
á þessu 10 ára tímabili. Þó er eftir-
tektarvert hve söluaukning í léttvín-
um varð mikil milli áranna 1979 og
1980. Þá tók salan kipp úr um 560
þús. lítrum í 745 þús. lítra á einu ári.
í ástæðunni fyrir þessari miklu
söluaukningu í léttvínum milli 1979
og 1980 er einnig að finna eina
veigamestu skýringuna á sölu-
þróuninni í heild síðustu 10 árin.
Þessi skýring liggur í verðlagn-
ingarstefnu sem ATVR tók upp á
síðasta áratug. Þessi verðlagningar-
stefna fólst í því að hækka léttari
vínin minna í verði en þau sterku.
Stundum var verði léttari vínanna
haldið óbreyttu, eins og einmitt var
raunin milli áranna 1979 til 1980.
Hin meginskýringin, sem ne.nd
hefur verið á stórauknum vinsæld-
um léttari víntegunda, er smekksat-
riðið. Smekkur fólks virðist einfald-
lega vera að breytast. Hér virðist
ungt fólk eiga stóran hlut að máli.
Engar tölur eru til um þetta, en svo
virðist sem stórir árgangar ungs
fólks, sem komist hafa á lögaldur
hin síðari ár, kaupi létt vín frekar en
sterk. Það, að öll söluaukning
ÁTVR síðustu 10 árin skuli hafa
verið í léttari tegundum víns, virðist
renna stoðum undir þessa kenn-
ingu.
Hvaða vín er
vinsælast?
Ef sölutölur ÁTVR eru brotnar
niður m.t.t. þess hvernig einstakar
víntegundir seljast, og hafa selst
síðustu lOárin, kemur ýmislegt for-
vitnilegt í ljós.
Af öllum víntegundum sem seld-
ar eru í „Ríkinu" er rauðvín mest
keypt. Árið 1982 seldist nær hálf
milljón lítra af því. Næst kom hvít-
vín; tæplega 450 þús. lítrar seldust
1982. Þriðja vinsælasta vínið í fyrra
var vodka. Af því seldust tæplega
370 þús. lítrar og íslenska brenni-
vínið fylgdi fast í kjölfarið með
tæplega 350 þús. lítra. I fimmta
sæti kom svo vermouth með rúm-
lega 200 þús. lítra. Af öðrum milli-
sterkum vínum seldust einnig rúm-
Iega 200 þús. lítrar. Þar vó Campari
þyngst. Af öllum öðrum víntegund-
um seldist minna en 200 þús. lítrar
árið 1982. Röð þeirra eftir sölu var
annars þessi: 6. sherry, 7. viskí, 8.
líkjörar, 9. sjenever, 10. romm, 11.
kláravín, 12. freyðivín, 13. portvín,
Í4. gin, 15. dubonnet, 16. ákavíti 17
brandy, 18. koníak, og 19. kampa-
vín.