Helgarpósturinn - 15.09.1983, Side 15
J J^l ^
pSstUrinn Fimmtudagur 15- september 1983
15
Mikið fjaðrafok hefur verið
T J út af innréttinga kaupum í
J hina nýju sjúkrastöð SÁÁ.
Talað er um að það sé ekki einungis
forsvarsmenn íslenks iðnaðar sem
grípi tækifærið að gagnrýna SÁÁ,
heldur grípi margir aðrir tækifærið
sem horn hafa í síðu þeirra. Mörg-
um hefur runnið til rifja hve hratt
og ötullega SÁÁ hefur starfað, þá
er alkóhólismi mjög viðkvæmur
sjúkdómur sem menn sýni ekki
sama skilning og öðrum sjúkdóm-'
um. Einn talsmanna SAÁ, Jón
Steinar Gunnlaugsson sagði á
blaðamannafundi á dögunum að
fólk virtist ennfremur viðkvæmt
fyrir meðferð fjár sem safnast af
frjálsum framlögum en skeyti hins
vegar lítið hvernig opinberu fé —
skattapeningum — sé varið. „Fólki
finnst allt í lagi að sólundað sé með
fé sem tekið er af því með valdi“,
segir Jón Steinar...
Vl SÁÁ hefur varið 22 milljón-
T \ um í byggingu sjúkrastöðvar-
J innar. Alls hafa samtökin
safnað 25,2 milljónum króna.
Heildarkostnaður við byggingu
sjúkrastöðvarinnar mun hins vegar
nema 35 milljónum króna og á
stöðin að vera skuldlaus áramótin
1984-85....
Toyota umboðið kynnti nýja
T J gerð af Corolla-bílum á
J blaðamannafundi í vikunni.
Sá sem sá um skyggnumyndsýningu
og kynningu á hinni nýju bílagerð
var enginn annar en hin sívinsæli og
hressi sjónvarpsmaður og skemmti-
kraftur Ómar Ragnarsson. Hann
komst oft skemmtilega að orði þeg-
ar hann lýsti gæðum hins nýja bíls
og var fljótur að botna ef hann
byrjaði setningar sem gátu lent í
ógöngum. Dæmi um það var þegar
Ómar talaði um hina nýju „línu“
eða útlitsbreytingu bílsins. Ómar
sagði að smekkur manna væri mis-
munandi í þessum efnum sem öðr-
um. Þetta væri eins og vaxtarlagið,
sumri menn dáðust meir að
ákveðnu vaxtarlagi..“ hjá beljum
og hestum“ bætti kappinn jafn-
réttislega við...
Nýi miðbærinn í Kringlumýr-
inni er smán saman að rísa.
Meðal þeirra bygginga sem
verða má nefna risastórt versl-
unarhús Hagkaups. Síðast liðinn
mánudag var lögð fram í skipulags-
nefnd borgarinnar tillaga að versl-
unarhúsinu mikla. Þar kemur í ljós
að tillöguhöfundar hafa gert sér lít-
ið fyrir og lagt undir sig lóð Borgar-
bókasafnsins, sem ætluð var undir
aðalsafnhús. Bókasafni er ætlaður
staður einhvers staðar inni 1 versl-
unarsamstæðunni á svo sem eins og
einni hæð..
Sænsk gceðavam, sem þölir allan samanburð.
Ljósaperur 25w-100w, kertaperur, kúluperur og Ij
^KMIPHIAfilÐ
'Cfiy t/
V
Kata spyr: Siggi viltu koma aö dansa
Siggi: N..ei
Kata: Af hverju ekki?
Siggi: Af því að ég kann þaö ekki hu....
Kata: Hvað segiröu....heyröu haföu annars engar áhyggjur
við drífum okkur bara í Dans-Nýjung
AÞREM
STÖÐUM
og allir þjóna stórum svæðum
Tónabæ
Fellahelli
Þróttheimum
Kennsla hefst fimmtudaginn 22. sept.
Afhending skírteina er dagana 20. 9 og 21.9.
kl. 4—8 í Tónahæ.
10 vikna
námskeið
Yngst 7 ára
lk
Við kennum Disco Line
Dance við bestu Disco
lögin hverju sinni.
Við erum með frábœra
aðstöðu og pottþétt
Ijósasjow
ÞETTA ER EKKERT MAL
FYRIR HANN JÓN PÁL
Innritunarsímar eru
76219-46219 milli kl 10-12
og 1-7
Kær kveöja
Hebba og Kolla