Helgarpósturinn - 15.09.1983, Page 23
JþSsturinn. Fimmtudagur 15. september 1983
’f'l Vetrardagskrá hljóðvarpsins
Y J er að taka á sig mynd-hljóð
S öllu heldur — þessa dagana.
Gert er ráð fyrir að nýju þættirnir
fari einn af öðrum af stað eftir
næstu mánaðamót. Margir eiga
sjálfsagt eftir að vakna þakklátir
fyrir það í vetur, að morgunútvarp
verður með svipuðu sniði og Gull í
mund í vetur sem leið. Umsjónar-
menn morgunþáttarins verða þau -
Stefán Jökulsson, (sem vakti at-
hygli fyrir nokkrum misserum fyrir
lunkna þætti á laugardagseftirmið-
dögum, sem hétu Hljóð úr horni), -
Kolbrún Halldórsdóttir, (leikkona,
hefur að undanförnu starfað með
Svörtu og sykurlausu) og Kristín
JÓnsdóttir (hefur að undanförnu
unnið í menntamálaráðuneytinu, í
hvíld frá fjölmiðlanámi). Síðdegis
virka daga verður 50 mínútna þátt-
ur undir stjórn Páls Heiðars Jóns-
sonar, hins gamalreynda útvarps-
jaxls. í þessum þætti verða tekin
fyrir atvinnumál, viðskipti, efna-
hagslíf og stjórnmál, og hann leysir
af hólmi aðra atvinnumálaþætti
sem hafa verið á dagskránni í mörg
ár. Félagi Páls Heiðars, félagi Sig-
mar B. Hauksson, verður með kúlt-
úrmagasín á laugardögum í vetur
og á sunnudagseftirmiðdögum
verða erindi, sem deildir Háskóla
íslands ætla að sjá um. Kvöld-
vakan, sem verið hefur á laugar-
dagskvöldum, verður nú hálftími
að kvöldi alla virka daga vikunnar
nema fimmtudaga. Kvöldvakan
verður í umsjón Helgu Ágústsdótt-
ur. Ekki er gert ráð fyrir næturút-
varpi á vetrardagskránni því að Rás
tvö, sem tekur til starfa í nóvember,
er ætlað að sjá um það. Diddi er
búinn að borga fyrir þetta allt....
Aðalfundur
Vitaðsgjafa hf.
veröur haldinn laugardaginn 15. okt. n.k. kl. 2 e.h.
aö Ármúla 38
Dagskrá:
Venjuleg aöalfundarstörf
Stjórnin
Fullt hús
matar
Opiö
til kl. 4
laugardaga
23
Edda Andrésdóttir hefur nú
f J sagt skilið við fjölmiðlastörf
■/ að sinni. Hún hefur ráðið sig
sem forstöðumann Félagsmið-
stöðvar unglinga í Austurbæ,
Kópavogi. Aðdáendur hennar og
Skonrokks þurfa þó ekki að kvíða,
Edda mun halda áfram Skonrokk-
þáttunum og í þetta sinn ein, alla
vega til að byrja með, því Þorgeir
Ástvaldsson er í fullu starfi við Rás
2 eins og kunnugt er....
"1 Um miðjan næsta mánuð
f'J verða formlega stofnuð sam-
tök um smíði tónleikahúss í
Reykjavík. Samtökin ætla að fjár-
magna samkeppni um teikningar
að húsinu, þar sem arkitektum á
Norðurlöndum og jafnvel víðar
verður boðin þátttaka. Áhugafólk
um tónleikahúsið hefur verið að
svipast um eftir lóð undir húsið í
borginni og hefur nú blandað sér í
„Skúlagötuslaginn“. Fyrir nokkru
vörpuðu tveir ungir arkitektar fram
þeirri hugmynd að tónleikahúsið
yrði reist við Ingólfsgarð, við nú-
verandi athafnasvæði Hafskipa.
Tillagan þótti mjög góð en reyndist
ekki raunhæf, vegna þess að Haf-
skip hefur svæðið við Ingólfsgarð á
leigu frá Reykjavíkurborg til átta
ára. Eins mun Hafrannsóknastofn-
un eiga inni vilyrði fyrir lóð á þess-
um stað. Áhugafólk um tónleika-
húsið vill samt halda sig við Skúia-
götuna og reynir nú að fá úthlutað
lóð þar sem Hafnarbió stóð og þar
norður af...
Þá eru skólarnir komnir í
f' I gang og nemendur keppast
við að kaupa bækur fyrir vet-
urinn og reynast þau bókakaup
þungur baggi fyrir margt heimilið.
Kennslubækur hafa nefnilega
hækkað allmikið á milli ára, sumar
hverjar um meira en eitt hundrað
prósent. Mörgum finnst það aftur á
móti skondið, að margar þessara
bóka eru gamlar útgáfur sem for-
lögin eiga á lager. Ekki liggur
hækkandi útsöluverð því í hækk-
andi kostnaði, heldur eru aðrar á-
stæður þar að baki. Sumir segja að
það sé vegna þess að lítil samkeppni
sé í skólabókaútgáfunni...
'jFl Fréttir af bókamarkaðnum:
YJ Einar Kárason sem skrifaði
V bókina „Þetta eru asnar Guð-
jón“ hefur nú skilað af sér nýju
handriti til Máls og menningar.
Kemur sú bók út fyrir jól og mun
bera nafnið „Þar sem djöflaeyjan
gýs“. Textinn sem er kjarnyrtur og
bragðmikill, segir frá uppvexti
nokkurra stráka í braggahverfinu
Camp Knox á sjötta áratugnum.
Aðalpersónan er þó kona, furðuleg
nokkuð og safnast á hana barna-
skari en hún drýgir tekjur heimilis-
ins með því að spá fyrir fólki. Einn-
ig nýtur fjölskyldan góðs af alls
kyns munaðarvarningi af Velli-
num...
rjl Mál og menning mun einn-
X ig gefa út allmargar þýðingar
í ár. Þar ber að nefna „Ráð
við illum öndum“ eftir meistara
Heinesen, í þýðingu Þorgeirs Þor-
geirssonar en þýðingar Þorgeirs
hafa verið árviss atburður undan-
farin ár. Þá hefur Böðvar Guð-
mundsson þýtt skáldsögu eftir
Heinrich Böll og heitir sú bók
„Hún sagði ekki eitt einasta orð“.
Kristján Jóhann Jónsson hefur þýtt
söguna „Fótboltaengilinn" eftir
danska höfundinn Hans-Jörgen
Nielsen og vakti sú bók mikla at-
hygli í Danmörku og víðar er hún
kom út á sínum tíma. Þá hefur
Njörður P. Njarðvík þýtt skáldsög-
una „Eftir flóðið" sem sænski rit-
höfundurinn og læknirinn P.C.
Jersild samdi um tilveruna eftir
kjarnorkustríð. Margir kannast við
sænsku framhaldsþættina „Babels-
turninn" en Jersild skrifaði sam-
nefnda skáldsögu á sínum tíma...
P.C. Jersild kemur reyndar
/ 1 til íslands í endaðan nóvem-
S ber í boði Norræna hússins
og mun þá lesa úr verkum sínum...
í frétt sem Þjóðviljinn birti í
YJ dag, fimmtudag, segir frá
V Pétri Sveinbjarnarsyni í Aski
og kaupum hans á tækjabúnaði
sem gerir kleift að fjöldaframleiða
máltíðir fyrir stofnanir eins og
sjúkrahús. Skýtur blaðið um leið
þeirri spurningu að lesendum hvort
Pétur, sem gaf 2 þúsund hamborg-
ara á kosningahátíð Alberts fjár-
málaráðherra, eigi að fá sjúkrafæð-
ið. Fréttin sem er athyglisverð í
sjálfu sér, er undirrituð óg/ór. Fyrri
skammstöfunin er fyrir Óskar Guð-
mundsson en sú síðari er stytting á
Ólafi Ragnari (Grímssyni) sem nú
starfar í fullu blaðamannsstarfi á
Þjóðviljanum....
71 Enn eru nokkrar væringar í
Y 1 tannlæknadeild Háskólans,
y vegna þeirrar ákvörðunar
Háskólaráðs að í vetur verði fjölgað
í deildinni um einn nemanda — níu
teknir inn á annað ár í stað átta áð-
ur. Eru kennarar tannlæknadeildar
hinir óhressustu og bera við pláss-
leysi og tækjaskorti í Tanngarði,
húsi tannlæknadeildar. Hitt er á
fárra vitorði hvernig ákvörðun
Háskólaráðs er til komin. Orsök
hennar er samlagningarvilla! Mun
þeim sem fór yfir úrlausnir i inn-
tökuprófinu hafa orðið á hand-
vömm sem leiddi til þess að sá nem-
andi sem með réttu átti að lenda í
áttunda sæti varð níundi — og öf-
ugt. Grunaði þann sem að ósekju
hafði verið sparkað út í kuldann að
ekki myndi allt með felldu og lét
hann því fara yfir prófið aftur. Kom
þá hið sanna í ljós. Hinn sem nú
hafði aftur á móti hafnað í níunda
sæti og átti þar með að vera úr leik
vildi ekki una þeim úrslitum og
kærði málið til Háskólaráðs. Kvað
það upp þann Salómonsdóm að sú
undantekning yrði á gerð að báðir
skyldu teknir inn....
Vl Þjóðviljinn hefur verið eink-
YJ ar beinskeittur og djarfur í
S fréttaflutningi siðustu daga.
Blaðið hefur skipt ritstjórninni í
tvennt; í svo nefnt „fréttateymi" og
„innblaðsteymi“ og halda teymin
sinn hvort ritstjórnarfundinn.
Mikill hressleiki er nú ráðandi á rit-
stjórn, hvort sem það er að því
þakka að Kjartan Ólafsson ritstjóri
situr í Jónshúsi í Kaupmannahöfn
við fræðistörf um þessar mundir
eða að Ólafur Ragnar Grímsson er
sem hvítur stormsveipur í húsinu.
Alla vega sýna fréttaskrif Þjóðvilj-
ans á útsíðum að blaðið er að reyna
að losa sig úr þeim sterku flokks-
pólitísku böndum sem það hefur
verið í hingað til. T.a.m. var fyrir-
sögn fimmtudagsblaðsins í boð-
hætti: Rísið upp! og sá er hvatti
starfsfólk mötuneyta ríkisspítal-
anna á þennan vaska og uppreisnar-
gjarna hátt var enginn annar en
Einar Ólafsson formaður SFR og
þekktur framsóknarmaður...
Buchtal
úti sem inni
Allar Buchtal-flísarnar eru bæöi eldfastar
og frostheldar. Væri þaö ekki góö lausn aö
flísaleggja t.d. svalagólfiö, veröndina eöa
útidyratröppurnar. Buchtal er alls staöar
rótta lausnin. Varanleg lausn. Ekkert viö-
hald.
Eigum nú fyrirliggjandi flestar geröir af
hinum viöurkenndu v-þýsku vegg- og
gólfflísum. Fyrsta ftokks vara á viðráöan-
legu veröi. Einnig fyrirliggjandi límin góöu
frá PCI fyrir hvers konar notkun.
Ótrúlega hagstæöir greiösluskilmálar, allt
niður í 20% útborgun og eftirstöövar til allt
aö sex mánaða.
OPIÐ:
mánudaga — fimmtudaga kl. 8—18
föstudaga kl. 8—19
laugardaga kl. 9—12.
>•••
BYGGINGAVORUR
C HRINGBRAUT120: Simar: Timburdeild ..28-604 ^
Byggingavörur 28-600 Málningarvörur og verkfæri.. ..28-605 I
Gólfteppadeild 28-603 Flisar og hreinlætistæki ..28-430 J