Helgarpósturinn - 22.09.1983, Blaðsíða 3
Guðmunda Jónsdóttir
Hvað er svona
skemmtilegt við að
vera sjónvarpsþula?
Hún hlær í símann.
„Þetta er allt voðalega gaman.
Maður vinnur með skemnrtilegu
fólki og svo er þetta rólegt og
þægilegt starf. Hið eina er að
maður er að vissu leyti bundinn“.
— Hvernig þá?
„Bundinn við að vera í húsi á
meðan á útsendingu stendur".
— Rólegt og þægilegt starf
segirðu, en er það ekki líka erf-
itt?
„Ég hef að minnsta kosti aldrei
fundið fyrir því“.
— Hvernig hagið þið undir-
búningi fyrir hverja útsend-
ingu?
„Við mætum klukkutíma fyrir
útsendingu og byrjum á því að
fara í smink, „að fá á okkur
andlit“, eins og við köllum það.
Þá er textinn fyrir kvöldið tilbú-
inn og maður les hann yfir. Síðan
er sest niður í þularklefanum þar
sem myndavélin er fyrir okkur og
textinn lesinn upphátt. Svo gerir
maður sitt besta og reynir að
stama ekki“.
— Ertu ekkert nervös?
„Ég var það kannski þegar ég var
að byrja, en það er löngu farið af
mér“.
— Ekkert erfitt að vera fyrir
framan þetta alsjáandi auga
sem myndavélin er?
„Nei. Það kemst upp í vana og
þetta er eins og hver önnur vinna“.
—■ Njótiö þið einhverrar leið-
sagnar, t.d. í sambandi við
framburð á erlendum nöfnum?
„Nei. En Ellert Sigurbjörnsson
dagskrárritari hefur oft leitað til
þýðandans, þegar eitthvað sér-
stakt kemur fyrir, eins og t.d. rúss-
nesk nöfn, og hann skrifar fram-
burðinn inn í sviga fyrir aftan. Ég
spyr þýðandann líka, ef ég er ekki
viss“.
— Nú skiptir framkoma gíf-
urlega miklu máli í miðli eins
og sjónvarpinu. Eru verðandi
þulur settar á einhvers konar
framkomunámskeið?
„Nei, en þegar maður byrjar er
maður tekinn í prufu og látinn
lesa texta“.
— Þið eruö sem sé ekki
sendar á tískuskóla?
„Nei, ekkert slíkt“.
— Fylgja þessu starfi engin
óþægindi, því nú eruð þið
þekkt andlit?
„Nei. Maður finnur þó stundum
fyrir því að fólk lítur á mann, en
ég hef ekki orðið fyrir neinum ó-
þægindum. Það er kannski einna
helst á böllum, en ekkert til að tala
um“.
— Þið virðist alltaf vera að
skipta um föt þessar þulur. Er
það kannski sjónvarpið sem
borgar brúsann?
„Nei, aldeilis ekki“.
— Er það þá ekki dýrt spaug
að vera sjónvarpsþula?
„Nei, það er ekki eins mikið um
stóra fataskápa og fólk heldur.
Við erum ekki nema fimm eða sex
kvöld í mánuði og maður reynir
að vera ekki í söntu flíkinni kvöld
eftir kvöld“.
— Þið skiptið líka oft um hár-
greiðstu, er það kannski á valdi
förðunarmeistarans?
„Nei, þær eiga bara að mála
okkur. Ég greiði mér yfirleitt sjálf
og ég hef gaman af að breyta til“.
— Ætlarðu að halda eitthvað
áfram í þessu starfi?
„Ég vil halda áfram á meðan ég
er ánægð".
Guðmunda Jónsdóttir er Reykjavíkurstúlka og eins og þjóð-
in veit, starfar hún sem þula í sjónvarpinu. Auk þess er hún
hálfu starfi sem setjari á dagblaðinu Tímanum og stundar nám
í Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð.
Annað kvöld, föstudagskvöld heldur bítlaæðið innreið sína á skemmti-
staðinn Broadway. Þar hefst þá lofgjörð til þeirra gömlu, góðu daga, ekki
ósvipuð rokkhátiðinni sem hvað mestra vinsælda naut í fyrra. Þessir gam-
alkunnu rokkarar voru að leggja síðustu hönd á efnisskrána í vikunni undir
leiðsögn „afa“ bítlaæðisins á íslandi, Gunnars Þórðarsonar, lengst t.h.
Smartmynd.
•Vl Samtökin Lif og land efna
f' 1 til mikillar friðarráðstefnu á
Hótel Borg þ. 22. október
Mun ráðstefnan hefjast að morgni
dags og standa til kvölds. Fyrirlestr-
ar verða fluttir, þá verða vitnaleiðsl-
ur og loks pallborðsumræður. Ráð-
stefnan mun opna með flutningi
nýs verks eftir Atla Heimi Sveins-
son, sem hann hefur samið sérstak-
lega fyrir ráðstefnuna og ber verkið
heitið „Dona nobis pacem" sem er
latneska og þýðir „Gef Oss Frið“. Er
það fyrir fjóra sóprana, píanó og
tónband...
Vi íslenska revían naut vinsælda
'f'j í Gamla bíói s.l. vetur og nú
S eru æfingar hafnar aftur á
henni hjá Revíuleikhúsinu, en sýn-
ingar hefjast uppúr mánaðamótun-
um. Ef vel gengur og Ieikhúsið fær
umbeðinn skerf á næstu fjárlögum
hyggjast Revíuleikhúsmenn ekki
láta deigan síga. Ýmis ný verk eru í
athugun og er þar efst á blaði nýtt
leikrit eftir Jónas Árnason. Er þar
á ferðinni revíufarsi um okkar sam-
tíð og ef við þekkjum höfundinn
rétt verða á gríninu ýmsir broddar...
Þá er Revíuleikhúsfólk að
'f' I vinna að undirbúningi þátta-
y gerðar fyrir Stundina okkar í
sjónvarpinu í samvinnu við Þór-
unni Sigurðardóttur. Verða það
stutt atriði uppúr íslenskum þulum,
þ.á.m. eftir Theódóru Thorodd-
sen...
í sjónvarpinu eru menn
'j' 1 komnir af stað með undir-
/ búning ýmissa þátta vetrar-
dagskrár. Af föstum þáttum frá því
í fyrra er ljóst að hinn ágæti þáttur
Glugginn hefur göngu sína að nýju
og er gert ráð fyrir að umsjónar-
menn verði hinir sömu, — Áslaug
Ragnars og Sveinbjörn I. Baldvins-
son...
jín^fl irinn Fimmtudagur 22. september 1983
Stuðmenn
sitja fyrir
Svipmyndir sem halda til gegnt
Þjóðleikhúsinu, hafa stækkað við
sig. Efri hæð hússins hefur verið
tekin í gagnið og í næstu viku opnar
Ijósmyndastofan þar portrett-
stúdíó. Eins og orðið gefur til
kynna verða teknar andlitsmyndir
af viðskiptavinunum og leggja
Svipmyndir einkum áherslu á svart-
hvítar myndir þar sem reynt verður
að leggja rækt við persónuleika
fyrirsætanna. Einnig verður hægt
að fá andlitsmyndir í lit. Fyrstu
viðskiptavinir Sigurgeirs Sigurjóns-
sonar ljósmyndara og eiganda
Svipmynda voru Stuðmenn. Tveim-
ur vikum fyrir opnun sátu þeir fyr-
ir. Meðfylgjandi mynd sýnir Egil
Ólafsson.
Þá er nú verið að vinna
að gerð nýs leikrits eftir
Andrés Indriðason. Þar er í
aðalhlutverki átta ára strákur —
sonur Sigurðar Skúlasonar leikara
— en verkið sjálft mun hins vegar
ekki síður við hæfi fullorðinna en
barna. Það er Lárus Ýinir Óskars-
son, Leikstjóri Annars dans sem
tekið hefur við leikstjórn verksins
en upptöku stjórnar höfundurinn,
Andrés Indriðason...
STRAUM
LOKUR
ut out
LAIMDSINS BESTA ÚRVAL
STRAUMLOKUR OG SPENNUSTILLAR
í nær allar gerðir bifreiða og vinnutækja
á mjög hagstæðu verði
HABERG h£
Skeifunni 5a. sími 84788.