Helgarpósturinn - 22.09.1983, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 22.09.1983, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 22. september 1983 Helgai----- pósturinn Frumskógur og tölvur King Sunny Adé & His African Beats Eitt vinsælasta tónlistarform sem fyrirfinnst í Nígeríu í dag er svokölluð JuJu tónlist. Hægt er að rekja sögu þessarar tónlistar allt aftur til þriðja áratugarins, en núverandi mynd fór þó ekki að koma á hana fyrr en á sjötta ára- tugnum og þá t.d. með tilkomu raf magnsgítarsins. JuJu tónlistin er upprunin hjá Yoruba mönnum, sem munu vera stærsti ættflokkur Nígeríu. Þrátt fyrir að með tímanum hafi tónlist þessi breyst í þá átt að hún félli fjöldanum í geð, hefur hún aldrei glatað uppruna sínum. Rætur hennar eru köll og svör milli tal- tromma (talking drums) og söngvara. Það sem við Vestur- landabúar skiljum þó líklega fyrst er gítarleikurinn, en tal-trommu- leikurinn er okkur frekar fram- andi. Á síðasta ári munu hafa selst um það bil 12 milljónir JuJu platna í Nígeríu. Skærasta stjarna JuJu tónlistarinnar er án efa King Sunny Adé, en hann hefur sér til aðstoðar 17 manna lið söngvara og hljóðfæraleikara. Raunar eru vinsældir Sunny Adé með ólík- indum, því flest laga hans, sem gefin hafa verið út á litlum plöt- um, hafa farið í fyrsta sæti vin- sældarlista Nígeríu og engin af stóru plötunum hans hefur selst í undir 200.000 eintökum. Það sem er kannski öllu merkilegra er það að hann hefur sent frá sér nærri 40 stórar plötur á síðastliðnum 10 árum, eða svo. Ef reggae tónlist er undanskil- in, hefur lítið farið fyrir þriðja heims tónlist á vinsældarlistum Vesturlanda til þessa. Að vísu var hljómsveitin Osibisa nokkuð vin- sæl fyrir rúmum áratug en þar með má eiginlega ljúka upptaln- ingunni. Rokktónlistarmenn vest- urlanda hafa þó orðið fyrir áhrif- um frá tónlist ýmissa þjóða, svo sem Indverja, Kínverja, Araba, Afríkuþjóða og fleiri. Þeir hafa þá oft reynt að koma þessum á- hrifum fyrir í tónlist sinni og þó að árangur af því hafi oft verið skemmtilegur, þá hefur nú oftar verið um misheppnaðar tilraunir að ræða. Hljómplötufyrirtækið Island, eftir Gunnlaug Sigfusson sem hefur gefið út margar af bestu reggae plötum sem út hafa komið, gerði í fyrra samning við í Swtny.Adé rmd AfpcQnBfaU King Sunny Adé og í fyrsta sinn eru nú plötur hans fáanlegar á Vesturlöndum. Þá kom út platan JuJu Music, sem vakti óskipta at- hygli gagnrýnenda og annarra sem vit þóttust hafa á, en ekki varð nú plata þessi þaulsetin á vin- sældarlistunum. JuJu Music var tekin upp í Afríku en hljóðblönd- uð í Englandi og gerði Sunny Adé þá í fyrsta skipti tilraun með svo- kallað „dub“ sem raunar er nú til komið úr reggae tónlist. Ný plata, Synchro System, hef- ur nú litið dagsins ljós en tónlistin er öll að þessu sinni tekin upp í Englandi. Það kemur þó ekki í veg fyrir að tónlistin er enn mjög svipuð því sem hún var á JuJu Music en þó mundi ég ætla að hún væri öllu léttari og það sem ég kannski sakna helst er að sóló fá að þessu sinni minna pláss. Þó að meðlimir hljómsveitarinnar Sunny Adé, sem nefnd er African Beats, séu að minnsta kosti 17 að tölu, verður maður þess eiginlega aldrei var. Hljóðfæraleikurinn er fínlegur og aldrei ofhlaðinn. Gít- arinn virkar allt að þvi eins og á- sláttarhljóðfæri og þegar maður hefur vanist tónlistinni er gaman að heyra hvernig tal-trommurnar herma eftir söngnum. Sem söngv- ari minnir Sunny Adé svolítið á ýmsa söngvara eyja Karabíska hafsins, hlýr en ekki sérlega átakamikill. JuJu tónlist er vinsæl danstón-. list í Nígeríu en ekki er ég viss um að hún eigi upp á pallborðið hjá diskóliðinu á Vesturlöndum. Tón- list þessi á þrátt fyrir það svo sannarlega erindi á markað i þess- um löndum og er gott til þess að vita að enn skuli vera til hljóm- plötufyrirtæki sem vilja gefa út eitthvað annað en formúlutónlist til að selja fjöldanum. Yazoo — You And Me Both Það verður varla sagt að mikið hafi verið gefið út af virkilega góðum plötum það sem af er þessu ári og má verða mikil breyt- ing, á næstu mánuðum, ef þetta ár á ekki að verða það lélegasta í þeim efnum í langan tíma. Það sem er þó öllu verra er að það virðist vera banabiti flestra hljóm- sveita að gefa út góðar plötur nú til dags. Hljómsveitirnar Under- tones, Fun Boy Three og Soft Cell hafa allar sent frá sér góðar plötur á árinu, en nú hefur frést að sveitir þessar heyri allar fortíðinni til. Dúettinn Yazoo sendi frá sér eina allra vinsælustu plötu síðasta árs en þegar þau höfðu lokið upp- tökum á nýrri plötu nú í sumar, var tilkynnt að þau hefðu slitið samstarfi. Vincent Clarke gat ekki hugsað sér að leika opinber- lega fyrir fólk, þver öfugt við Moyet, sem blátt áfram elskar að sjá framan í aðdáendur sína í stað þess að syngja fyrir þá í gegnum stereo tækin heima í stofu. Leiðir hlutu því að skiljast, því miður. En eftir þau liggja tvær fyrirtaks plötur, því nýja platan er jafnvel enn betri en sú fyrri. Hljóðfæra- leikurinn hjá Clarke er þó ekki ýkja frábrugðin því sem hann var á fyrri plötunni, þó ég sé nú ekki frá því að hann sé heldur hnitmið- aðri. Styrkurinn felst í því að í heildina eru lögin mun betri og út- koman verður jafnari plata. Það eru að vísu engin lög á henni sem eru jafn grípandi og Don’t Go og Only You voru, en nýju lögin vinna öll mjög vel á eftir því sem oftar er hlustað á þau. Lagasmíð- unum er nú svo til jafnt skipt milli þeirra Clarke og Moyet, þó hún hafi vinninginn nú, en hann átti jú fleiri lög á fyrri plötunni og sum þeirra voru ekki nógu góð. Það kemur í ljós að Moyet er engu síðri lagasmiður en Clarke en hún er auk þess alveg frábær söng- kona og að mínu mati ein sú besta sem starfandi er í dag. Röddin sterk og raddsviðið nokkuð mik- ið. Ég er viss um að Moyet á eftir að láta töluvert að sér kveða í framtíðinni og svo er nú einnig um Clarke, ég tala nú ekki um ef hann verður sér út um annan eins söngkraft og hann fann í Moyet. Það er því kannski óþarfi að gráta endalok Yazoo, því hver er komin til með að segja að þau hefðu saman getað gert betur en þau hafa þegar gert, því staðreyndin er nú sú að tæpast hafa verið gefnar út betri tölvupopp þlötur en þess- ar tvær. Leiðrétting Mér varð það á í umsögn minni um tónleikana Við krefjumst framtíðar að segja að Christine Cassel hefði komið fram og sung- ið langt og heldur leiðinlegt lag á undan hljómsveitinni Crass. Þetta er náttúrlega alls ekki rétt, því hið rétta er að hún var einn af þremur gestum sem talaði til áheyrenda áður en Tolli kom fram. Sú sem ég átti við í greininni kallar sig víst Annie Anxiety (eða eitthvað því um líkt). Þessi misskilningur er til. kominn vegna rangra upplýsinga sem ég fékk frá einum af aðstand- endum tónleikanna (hann hefur líklega ekki áttað sig á því um hvað ég var að spyrja). Hafi ein- hver firrst við vegna þessa, bið ég þann hinn sama mikillega afsök- unar. íslands óhamingju verð- ur ekki allt að vopni. Svona bjartsýni getur skotið upp kollinum mitt í dapurlegum fréttum af vesaldómi íslenskra ráða- manna í skiptum við erlend risafyrirtæki og áformum um að gera heilbirgðis- þjónustu á íslandi að fé- þúfu handa bröskurum. Hún gerir það m.a. þegar gunnreifur söngvari á glæsilegri uppleið heldur tónleika. Kristinn Sigmundsson gerði það nú síðast á laug- ardaginn var í Austur- bæjarbíói. Þar söng hann óperuaríur eftir Wagner, Mozart og Verdi, gamal- kunn ljóðalög eftir Schu- bert og gamansöm ljóða- lög eftir Arnold Schönberg og Charles Ives fyrir utan mörg aukalög. Það er naumast hægt að hæla einu öðru fremur á þessari söngskrá Kristins. Honum virðast allir vegir færir. Dæmi þess voru Atlas eftir Schubert, Trúarjátning Jagos eftir Verdi, söngurinn um kær- ustuna, köttinn og skall- ann eftir Schönberg og Sirkusinn eftir Ives. Þetta fyllir mann einnig þeirri vissu, að Kristinn eigi enn eftir að eflast að miklum mun í söngnámi sínu. Og þá mega nú ýmsir fara að líta upp. Jónas Ingimundarson var traustur og lipur sam- starfsmaður við píanóið, en of fáir munu gera sér Ijóst, hversu veigamikið hlutverk undirleikarans er. Tökum sem dæmi Kvöld- stjörnuna eftir Wagner. Ef að einhverju ætti að finna, væri það helst, að Kristni hefur enn ekki auðnast nógu vel að leggja sér til þá ofurerfiðu list, sem kallast sviðsfram- koma og er ýmist áunnin eða meðfædd. Staða hans verður því stundum dálítið vandræðaleg, en við flutn- ing sumra laga sýnir hann það þó af sér, að honum er þetta vél fært. Og í þetta skipti jókst honum ás- megin að þessu leyti eftir því sem á leið. Eins og áður sagði fyllist maður blátt áfram bjart- sýni við að hlýða á lista- mann í slíkum gæðaflokki. Og það er svosem ekki í fyrsta sinn sem snilldar- menn í ýmsum listgreinum halda við því þjóðarstolti, sem misvitrir leiðtogar ergjast við að glutra niður. Ef ráðamenn, og raunar allir Iaunamenn líka, stæðu eins vel í fæturna og okkar góðu listamenn, þá þyrftum við ekki að vera með neinn grátstaf í kverk- unum. Og það væri meiri þjóðarheill að búa vel í haginn fyrir þá, heldur en einhver braskaragrey, sem finnst þeir ekki fá notið sinna sérstöku hæfileika hér heima (sbr. t.d. Reykja- víkurbréf Morgunblaðsins s.l. sunnudag). Kristinn og Jónas — maður fyllist blátt áfram bjartsýni við að hlýða á listamann í slíkum gæðaflokki, segir Árni m.a. í umsögn sinni. Gunnreifur eftlr Árna Björnsson söngur Það kemur oft fyrir, að maður finnur til með söng- vara og er sem á glóðum, hvort honum takist að skila örðugu verkefni frambæri- lega. En þessa gætir ekki, þegar Kristinn á í hlut. Það er rétt eins og erfiðustu söngvar renni átakalítið upp úr honum. Röddin er aldrei mjóslegin eða læðist með jörðu, heldur fyllir sí- fellt allt munnholið, hvort sem hann syngur sterkt eða veikt, svo að allt kemst til skila. Hinn veikari söngur stendur þó enn til bóta hjá honum. En hlustandinn er þess líka alltaf fullviss, að hann eigi nógan varaforða. Og þessvegna hefur hann efni á að gefa meira en raddgæðin ein. Astir og spenna og þjóðlegur fróðleikur Hörpuútgáfan slær á marga strengi á þessu hausti. Bækur ársins eru tólf og kennir þar margra grasa. Þess bera menn sár heitir ný ást- ar- og örlagasaga eftir Ragnar Þor- steinsson og segir þar frá tveimur piltum sem alast upp við gjörólíkar aðstæður. Annar fátækur, hinn rík- ur. Eru þeir kannski bræður? Þetta er eina íslenska skáldsaga útgáf- unnar í ár, en aðrar íslenskar bækur teljast til þjóðlegs fróðleiks. Þar skal getið sjöunda bindis Borgfirskrar blöndu, sem Bragi Þórðarson hefur safnað, síðara bindisins af „Hver einn bær á sína sögu“ þar sem saga Ljárskóga í Dölum er sögð, þriðja bindis Leift- urs frá liðnum árum, sem sr. Jón Kr. ísfeld hefur safnað og loks „Frá heimabyggö og hernámsárum", sem eru frásöguþættir eftir Óskar Þórðarson frá Haga í Skorradal. Þar segir höfundur frá sérstæðum atburðum, sem hann hefur upplif- að, eins og rjúpnaveiðum og slark- sömum ferðalögum. Þá hefur Gils Guðmundsson ritað Sögu Hf. Skallagrims 50 ára, en saga félags- ins er stór þáttur í sögu samgangna á Faxaflóa frá upphafi. Erlendar bækur eru að venju nokkrar og þar ber hæst spennu- og ástarsögur. En fyrst skal þó nefna erlenda bók, sem kemur okkur ís- lendingum beint við. Það er ís- landsferA sumarið 1857 eftir Svíann Nils Olson Gadde. Höfundur lýsir mannlífi á íslandi og kjörum þjóð- arinnar, auk þess sem honum verð- ur tíðrætt um náttúru landsins. Umsjón með útgáfu bókarinnar hefur Þorvaldur Bragason land- fræðingur, en Gissur O. Erlingsson þýddi hana á íslensku. Af spennusögum skal fyrsta nefna Njósnahringinn eftir banda- ríska rithöfundinn Duncan Kyle og segir þar frá baráttu blaðamanns nokkurs við KGB og CIA. Önnur spennusagan er eftir gamlan kunn- ingja, Asbjörn Öksendal frá Nor- egi. Hún heitir Fallhlífasveitin og fjallar um baráttu skæruliðasveita við nasista í Noregi hernumdum. Loks eru það svo ástarsögurnar. Þær eru þrjár. Hamingjuleiðin er skrifuð af ensku skáldkonunni Nettu Muskett. Ég veit þú lifir er áttunda bókin í flokknum rauðu ástarsögurnar. Hana hefur ritað Erling Poulsen. Bodil Fosberg svík- ur ekki aðdáendur sína, því að á þessu ári kemur út fimmtánda bók- in eftir hana á íslensku. Sú heitir Ást og launráð. Þar silgrar ástin alltaf að lokum, hversu tvísýnt sem útlitið kann að vera um tíma.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.