Helgarpósturinn - 22.09.1983, Blaðsíða 16

Helgarpósturinn - 22.09.1983, Blaðsíða 16
_/HeJgar~'. . — -- Fimmtudagur 22. september 1983 QÚSturÍnn sem ^ar\.Ah6"rteVíssV«‘-1 “PhPaöan veg«* .aWa td V«*® t6rte tma mwmmm ^ettiðarfarans. W'V ,Þurftum ekki að gera okkur upp handarbakavinnu“ — Hvers konar gæjar eru Daníel og Þór? Eggert: „Kokkur og þjónn“. Karl Ágúst: „Þetta eru gamlir félagar úr Melaskólanum sem eru búnir að bralla margt saman í gegn- um tíðina.“ Eggert: „Heldurðu að það sé einhver ofsaleg dýpt í þessu? Þeir eru svona „front-side-onIy“ gæjar“. — Er það þá skemmtileg fram- hlið? Eggert: „Þeim finnsí það“. Karl Ágúst: „Þeir reyna að taka lífinu létt og láta ekki á sig fá þó á móti blási“. Eggert: „Þetta eru slæmir pappírar. Er það ekki? Þó aðallega Þór“. — Hvernig slæmir pappírar? Karl Ágúst: „Ég er búinn að standa í því að redda honum í mörg ár og hann hefur ekki verið mjög þakklátur fyrir það. Þetta er sam- band þar sem annar nýtur frekar góðs af. Þegar þeir eru á fylleríi, þá er ég látinn kaupa flösku á svörtum, án þess að það komi nokkuð fram“. — Hvers vegna taka þeir þann kostinn að fara til Vestmannaeyja, þegar þeir hafa verið reknir af Hótel Sögu? Eggert: „Höfundurinn vildi það“. — Hvaðaástæðurgefurhöfund- urinn þá fyrir því? Karl Ágúst: „Þetta eru uppgrip og þeir ætla að koma sér af stað með því að ná í góðan pening. Þeir vita að það er hægt að hafa það mjög gott ef maður kemst í bónus“. Út á klakann — Ætla þeir sér að snúa algjör- lega baki við fyrra líferni og byrja raunverulega nýtt líf, eða...? Eggert: „Nei, nei. Það eru ekki þeir sem ætla að byrja nýtt líf, þeim var bara hent út á klakann“. — Tekst þeim að byrja nýtt líf? Eggert: „Það er alltaf nýtt Iíf á hverjum degi, er það ekki? Þeir hafa aldrei fyrr verið í þessu. Þeir byrja líka nýtt líf í enda myndar- innar“. — Hvort er meira spennandi? Karl Ágúst: „Það sem tekur við hlýtur að vera meira spennandi fyr- ir þá. Hins vegar fá áhorfendur ekki að kynnast því“. — Þú segir, Eggert, að þeir hafi aldrei áður verið í fiski, kunna þeir þá ekkert til verka þegar til Eyja kemur? Eggert: „Þeir hafa sinn háttinn á“. — Hvernig samrýmist það vinnubrögðum bónsuvíkinga og annarra? Karl Ágúst: ..Þeir beita svolítið öðrum aðferðum". Eggert: „Það tekur tíma að ná upp bónus“. — Tekst þeim að ná upp bónus? Eggert: „Það er spurningin. Það er mórallinn í myndinni, held ég“. Karl Ágúst: „Já, það er þessi lífs- ins bónus“. — Voruð þið raunverulega að flaka þegar þið unnuð að gerð myndarinnar, eða var þetta allt í plati? Eggert: „Við höfðum nú aldrei komið nálægt því áður, en þetta eru auðlærð vinnubrögð. Ég stóð heil- an dag í aðgerð og það var mjög gaman“. — Það hefur gengið vel? Karl Ágúst: „Það sést í myndinni hvernig það gengur“. Eggert: „Við þurftum ekkert að gera okkur upp handarbakavinnu". Karl Ágúst: „Kokkurinn hefui dálítið komið nálægt því að tilreiða fisk og þess háttar, þó að hann taki þessu ekki af eins miklum alvöru- þunga og flestir sem þarna starfa. Þeir eru heldur léttari í vinnunni og reyna kannski að vinna sér þetta léttar en aðrir". Alvöru starf — Þið voruð ekki aðeins i fisk- verkuninni, heldur fóruð þiðlíkaá sjóinn. Gekk það eitthvað betur en aðgerðin? Eggert: „Það má ekki segja“. — Voruð þið kannski óvanir sjó- menn báðir tveir? Eggert: „Já, já. Ég hafði aldrei á sjó komið og ætla aldrei aftur“. — Hvers vegna ekki? Eggert: „Það var alveg hrylli- legt“. Karl Ágúst: „Þó voru það nú reyndustu sjómennirnir hjá okkur sem fóru verst út úr því“. •— Hverjir voru það? Karl Ágúst: „Það er nú það“. Eggert: „Það er Ieyndó“. — Gerðist ekkert spaugilegt hjá ykkur á meðan þið voruð að gera myndina? Eggert: „Nei, það er svo ofboðs lega lítið grín að búa til gaman- myndir“. Karl Ágúst: „Það er mikið alvöru starf“. — Það hefur ekkert gerst á með- an þið voruð að undirbúa töku, sem varð hluti af myndinni en átti alls ekki að verða það? Karl Ágúst: „Það breyttist nátt- úrlega fjöldamargt í myndinni á meðan á vinnunni stóð og varð allt öðru vísi en ætlað var. Það voru aðallega aðstæðurnar sem breyttu því. Og það fæðast alltaf nýjar hug- myndir þegar farið er að koma því í mynd, sem búið er að setja á pappír“. — Haldið þið að þessir tveir strákar séu eitthvað líkir raunveru- legum strákum, sem fara á vertíð í Eyjum? Karl Ágúst: „Ég skal ekki segja. Aftur á móti er það sem þeir lenda í kannski“... Eggert: „Það er ekki til nein sér- stök manngerð sem fer í þetta. Ég skil spurninguna ekki alveg“. — Til dæmis strákar sem kunna lítið til verka en ætla að græða mikla peninga á stuttum tíma. Karl Ágúst: „Ég hugsa að þeirra reynsla sé oft á tíðum svipuð og okkar í þessari mynd“. Eggert: „Þeir duga svona álíka lengi“. Karl Ágúst: „Já, og græða álíka mikið“. Svona fuglar — Gefur myndin kannski raun- sanna mynd af verstöð eins og Vest- mannaeyjum, vinnumóralnum o.s.frv.? Eggert: „Þetta er náttúrlega allt tilbúið, en innanum eru fræðslu- skot“. Karl Ágúst: „Ég held að hún gefi nokkuð sanna mynd af afstöðu margra til þessarar vinnu. Þetta er mikið púl og fólkið gengur í þetta með oddi og egg“. — Eru þessir gæjar sér á parti í vinnslustöðinni? Karl Ágúst: „Þeir hafa nokkra sérstöðu bæði í verbúðinni og í vinnunni, því að þeir eru kannski heldur minni bógar en aðrir. Annars heyrðum við ýmsar sögur um menn sem höfðu verið þarna áður. Þeir sem þekkja best til sögð- ust kannast við svona fugla. Hús- vörðurinn í verbúðinni hafði ýmis- legt til málanna að Ieggja“. Eggert: „Hann sagði okkur utan tökutíma, að hann myndi aldrei ráða menn eins og okkur í vinnu. Það færi dálítið eftir því í hvernig skapi hann væri, en hann hefði séð á okkur eins og skot, að við værum algjörlega óhæfir til allra verka. Við værum ekkert slæmir strákar, sagði hann, en hann myndi aldrei ráða okkur til vinnu“. — Hvernig leist raunverulegu fiskverkunarfólki í Eyjum á að fá ykkur inn á gatl til sín? Eggert: „Við trufluðum ekki mikið, en við eyðilögðum einn dag í aðgerðinni. Við fórum upp á bónusbrettið og það dró bónusinn mikið niður. En ég held að hvergi hafi vinna lagst niður“. Karl Ágúst: „Nei, nei, en það hafa kannski verið tíndir heldur færri hringormar í vinnslusalnum heldur en endranær. En ég held að enginn hafi tekið það mjög nærri sér“. — Er Nýtt líf skemmtileg mynd? Karl Ágúst: „Ég hef ekki séð hana, en ég vona það“. Eggert: „Ég skil ekki spurning- una“. Karl Agúst Úlfsson og Eggert Þorléifsson segja frá Nýju lífi /

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.