Helgarpósturinn - 22.09.1983, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 22.09.1983, Blaðsíða 7
„Búin að bögglast á borðinu hjá mér í tvö ár“, segir Ólafur Haukur Símon- arson um Vík milli vina, nýja skáldsögu sem kemur út í haust. (Ljósm. Jim Smart) Vík milli vina Þjóðleikhúsið frumsýnir Skvaldur „Erfitt stykki en bráðskemmtilegt“ Leikarar Þjóðleikhússins eru á stanslausum þeytingi í Skvaldri. Hér eru það Tinna Gunnlaugsdóttir og Sigurður Sigurjónsson „Vík milli vina“. Ný skáldsaga eft- ir Ólaf Hauk Símonarson, sem kemur út hjá Máli og menningu í haust. „Nútímasaga og jafnvel Reykjavíkursaga líka“, segir höf- undurinn. Hver er þá þessi vík, sem vitnað er til í heiti bókarinnar? „Þetta er leikur með nafnið“, segir Ólafur Haukur. Þetta er þekkt orðatiltæki, þegar dregur í sundur með fólki“. Að sögn Ólafs greinir sagan frá hópi af fólki, sem komið er á miðj- an aldur. Hópurinn hefur fylgst að lí gegnum skóla og framhaldsnám, [en að því loknu fer hver að huga að [sínu. „Sagan sýnir hvað heldur hópnum saman og hvað sundrar honum“, segir Ólafur Haukur, en vill ekki fara nánar út í þá sálma, þar sem það væri allt of langt mál. Ólafur Haukur segir ennfremur að Vík milli vina svipi til Vatns á myllu kölska hvað frásagnartækni ' varðar, hún sé raunsæisleg frásögn, að minnsta kosti á yfirborðinu. Áð- Uppgjör við maí ’68 „Ég leik leikara sem heitir Gary sem leikur persónu sem heitir Rog- er“. Þetta segir Sigurður Sigurjóns- son leikari sem fer með eitt af hlut- verkunum í nýjum breskum farsa, Skvaldri, sem verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu á morgun, föstu- dag. spurður um hvort þetta sé einhvers konar uppgjörssaga, segir hann: „Ég gæti trúað að einhverjir skynji hana sem slíka“. — Er bókin uppgjör af þinni hálfu? „Hún er punktur aftan við ákveð- inn kafla og tímabil fyrir mína parta“, segir Ólafur Haukur. Tímabilið sem hér um ræðir er það sem hefur dregið dám, til ills eða góðs, af maíbyltingunni í Frakklandi árið 1968 og telur Ólaf- ur Haukur að tími sé kominn til að gera upp hvort það hafi skilað ein- hverjum breytingum sem vert sé að kynda undir. — Hvenær samdirðu söguna? „Hún er búin að bögglast á borð- inu hjá mér i tvö ár með öðrum, en ég lauk við hana í surnar". — Ertu með aðrar sögur í tak- inu? „Ég er með tvær skáldsögur í tak- inu, en þær eru á slíku fósturskeiði að það er engin ástæða til að fjöl- yrða neitt um þær", segir Ólafur Haukur Símonarson. Skvaldur er eftir breska leikrita- höfundinn Michael Frayn og var kosið besta gamanleikrit ársins á Englandi í fyrra. Verkið segir frá litlum ferðaleikflokki, sem flakkar bæ úr bæ með gamanleikinn Klúð- ur, sem virðist ætla að bera nafn með rentu. Og áhorfendur Þjóð- leikhússins fá bæði að fylgjast með leikritinu í leikritinu, svo og því sem gerist að tjaldabaki. Ætli Gary sé ekki áSeetur sam- nefnari fyrir aðra leikendur hópsins og því er ekki ur vegi að heyra álit Sigurðar Sigurjónssonar á honum. „Þegar leikritið byrjar er hann ekki allt of góður, en hann reynir sitt besta. Það er talað um það í leikskránni að hann hafi fengið fjölda verðlauna fyrir viðleitni“, segir Sigurður, og bætir því við að Gary haldi við eina prímadonnu leikhópsins, sér eldri konu, og setji það mark sitt á allt samstarfið. Aðspurður hvort æfingar gengju stórslysalaust fyrir sig hjá Þjóðleik- hússhópnum á meðan allt gengi á afturfótunum hjá hinum leikhópn- um, svaraði Sigurður því játandi og hann sagði að það væri mikið fjör á æfingum. „Við erum flest sammála um að þetta sé eitt erfiðasta stykki, sem við höfum komist í tæri við síðustu ár. Menn eru úrvinda af þreytu og blautir af svita“, segir hann. — Er það þess virði? „Við vonum það. Þetta er bráð- skemmtilegt“. — Líka fyrir áhorfandann? „Ég trúi ekki öðru. Við gerum okkar besta til þess“, segir Sigurður Sigurjónsson. Annars flokks Eastwood Austurbæjarbíó: Firefox Bandarísk. Árgerð 1982. Leik- stjóri: Clint Eastwood. Aðalhlut- verk: Clint Eastwood, Freddie Jones, Nigel Hawthorne. Clint Eastwood notar ekki mörg svipbrigði ef hann kemst af með fá. Sem leikari dansar hann oft á línu hreinnar flatneskju, en tekst einhvern veginn alltaf að halda sig réttu megin með ögun — tilfinningu fyrir réttri tímasetn- ingu. Það er í sjálfu sér undarlegt að Eastwood skuli hafa náð þeirri hæð sem hann nú flýgur í innan bandarísks kvikmyndaiðnaðar út á leikframmistöðu sína. Leikur hans í dollaramyndum Sergio Leone. Dirty Harry-myndunum o.s.frv. færði honum það góðan fjárhag og trygga stöðu að hann gat farið að leikstýra eigin mynd- um. Og þar liggja hans mestu hæfileikar. Eastwood hefur gert margar afbragðsgóðar myndir, — High Plains Drifter, The Outlaw Josey Wales og ekki síst frum- raunin Play Misty For Me. Ein- kenni þeirra er sama ögun og yfir- vegun, smekkvísi tækni og kunn- átta sem prýða Eastwood sem leikara. En þegar hann fær úr litlu að moða verður útkoman ansi rýr. Flestar seinni myndir hans hafa verið gerðar eftir óskaplega ómerkilegum handritum. Trúlega er Firefox allra ómerkilegust þeirra. Saga um aflóga flugmann (Eastwood) sem sendur er í hættuför að ræna nýrri tegúnd af drápsflugvél inní miðjum Sovét- ríkjunum er ákaflega fátækleg; að vísu tekur eitt atriði við af öðru á miklum hraða, en öll innri rök eru í algjöru maski. Hvers vegna persónurnar gera það sem þær gera og eru það sem þær eru fær enga úrlausn í handritinu. Þetta er afskaplega innantómur hasar. — ÁÞ. Fegurðin í fyrirrúmi Háskólabíó: Tess. Bresk/Frönsk Árgerð 1980. Handrit: Gerald Broch, Roman Polanski og John Brown- john, eftir samnefndri sögu Thomas Hardy. Leikendur: Nastassia Kinski, Peter Fieth, Leigh Lawson, John Collin. Leik- stjóri: Roman Polanski. Tess er fyrst og fremst mynd sem gleður augað. Þrátt fyrir lengd (171 mínúta) leiðist áhorf- andanum aldrei, því hver rammi myndatökunnar, lýsing, búningar og leiktjöld er sem sjálfstætt mál- verk; einna helst hallast undir- ritaður að því að Polanski hafi stælt myndbyggingu og birtuáferð rómantíska málverksins og nær svipuðum áhrifum og Kubrick í Barry Lyndon. Myndin sem gerist á 19. öld, segir frá stúlkukindinni Tess sem sogast inni í hringrás ásta og örlaga þegar kotbóndinn faðir hennar kemst að því að forfeður hans voru af hinni voldugu og stoltu ætt d’Urbanville. Kvik- myndin fylgir sögu Thomas Hardy nokkuð náið og Polanski nýtir lítið sem ekkert sérein- kenni sín sem leikstjóra heldur ljær verkinu fallegan og róman- tískan myndramma sem þrátt fyr- ir mikla fegurð virkar hálfgeíd- ingslegur. Þannig missir Polanski oft marks; harðbýlt Iand og ein- hæft strit sem Hardy notar mar- kvisst til að lýsa fánýti mannlegs lífs, verður í höndum hans sam- spil lita og lýsingar eins og t.a.m. rófuuppskeran að vetrarlagi. Þó gerir Polanski táknrænar senur svo áhorfandinn missir allt að því andann: Jarðarber i munni ríð- andi yfirstétt út úr þoku á veiðum, blóð á kjólfaldi. Leikurinn er einnig í umræddum hálfdempaða tóni; Kinsky („0“ og „Cat people“) verður máttvana í hlutverki Tess og gefur henni ekki þann styrk og dýpt sem kvenpersóna bókarinn- ar geislaf af og megnar hvergi að undirstrika þjáningar hennar og baráttu gegn félagslegu oki Viktoríutímabilsins. En augað gleðst. im Trigger má vara sig Tónabíó. Svarti folinn. Banda- rísk. Árgerð 1980. Handrit: Mel- issa Mathison, Jeanne Rosenberg og William D. Wittliff, eftir sögu Walter Farley. Kvikmyndataka: Caleb Deschanel. Aðalhlutverk: Kelly Reno, Teri Carr, Mickey Rooney ofl. Leikstjóri: Caroll Ballard. Hér er komin enn ein þessara vel gerðu krakkamynda frá Bandaríkjunum sem streymt hafa yfir álfurnar undanfarin misseri. Við mikinn fögnuð áhorfenda, ungra sem aldinna. Sagan segir frá stráki og svört- um fola. Þeir tveir eru einu far- þegarnir sem bjargast þegar skip ferst undan ströndum Afríku. Lengi dveljast þeir á eyðieyju, þar sem drengurinn vinnur traust og vináttu hins villta fola. Svo er þeim báðum bjargað. Heim- komnir hefja þeir æfingar og undirbúning undir miklar kapp- reiðar, sem eru sýndar í lokin. Getið hvernig fer. Þetta er nokkuð skemmtileg mynd. Strákurinn er góður, sömuleiðis hesturinn og Mickey Rooney. Helst mætti finna að ein- hverskonar taugaveiklun, sem gætir í klippingunni. Kappreiðarnar í lokin eru verð- ugt hámark. Það var einsog á þrjúbíó í gamladaga. Undirritað- ur var vísast jafnspenntur og ell- efu ára gömul dóttir. Hún hefur líklega meira vit á þessari mynd en ég og læt ég hennar orð enda þetta: „Þetta er skemmtilegasta biómynd, sem ég hef séð á æv- inni“. „Það voru svo fallegar myndir, muniði þegar hesturinn hljóp í sólarlaginu". „Hesturinn var svo ofsalega vel vaxinn“. — LÝO Rokk án gleöi Bíóhöllin: Get Crazy. Bandarísk. Árgerð 1983. Leikstjóri: Allan Arkush. Aðalleikarar: Malcolnt McDow- ell, Anna Bjorn, Allen Goorwitz. Voðalega eru þær þreyttar flest- ar þessara rokk-grínmynda, sem nú verða til í mjög auknum mæli. (d: Sg. Pepper, You Can’t Stop the Music.) Ekki nóg með að þær séu sláandi líkar í uppbyggingu og út- liti, heldur byggjast þær allar á sömu formúlunni: að blanda sam- an nokkrum stjörnum úr rokk- og kvikmyndaheiminum, og einfald- lega sýna þær. Aðstandendum Get Crazy hef- ur ekki tekist að ná í nein verulega stór nöfn, nema Malcolm Mc- Dowell og Lou Reed — og þar með er fúttið farið, því söguþráð- urinn og útfærslan á honum er kvikmyndalegt rugl. Anna Björnsdóttir er þarna í meðalstóru aukahlutverki og stendur fyrir sínu. Hún var hins vegar ennþá betri í annarri söngva- og gleðimynd sem hét Með allt á hreinu. Það er heldur engin spurning: Ágúst Guðmundsson og Stuð- menn gætu kennt aðstandendum Get Crazy ýmislegt um það hvern- ig kvikmynda á rokk og gleði. — GA

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.