Helgarpósturinn - 22.09.1983, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 22.09.1983, Blaðsíða 24
/ Áreiðarilegar heimildir Helgarpóstsins innan Sjálfstæðisflokksins herma að yfirgnæfandi líkur séu á því að Þorsteinn Pálsson alþingismaður verði kjörinn næsti formaður Sjálf- stæðisflokksins á landsfundinum í nóvember. Geir Hallgrímsson, for- maður og utanríkisráðherra, hefur undanfarið verið í fríi, sólað sig suður á Spáni og hugsað ráð sitt. Engar horfur eru á því að hann ákveði að fara fram aftur. Og þótt svo ólíklega færi er alveg ljóst að þá yrði gerð tilraun til að fella hann í formannskjöri. Þeir þrír kandídat- ar sém nú þegar eru farnir að undir- búa þátttöku í formannskjöri eru sagðir harðákveðnir í að draga sig ekki til baka. Það er mat heimildar- manna okkar að staða Þorsteins Pálssonar sé sterkust: Hann hafi yfirburða fylgi landsfundarmanna utan Reykjavíkur og þar að aukí verulegt fylgi í Reykjavík; hann hafi fylgi langflestra fulltrúa Sambands ungra sjálfstæðismanna og hann hafi algjöran stuðning atvinnurek- enda, enda fyrrum framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasambands íslands. Talið er að niðurstaða formannskjörs yrði þessi: 1. Þor- steinn, 2. Birgir ísl. Gunnarsson og 3. Friörik Sophusson. pn Á sama tíma og verið er að ý*J ræða stórfelldan niðurskurð og samdrátt í orkufram- kvæmdum hér á landi vegna pen- ingaleysis, gera gulltoppar íslenskra orkumála sér lítið fyrir og fjöl> menna á orkuþing í Nýju Dehli á Indlandi. Flugfar þangað kostar bara tæpar 70.000 kr. Þingið hófst um miðjan mánuðinn og topparnir, fara nú hver af öðrum að tínast heim. Sjö orkutoppar héðan gátu ekki misst af þessu þingi og einn ætlaði, en komst ekki. Þeir sem fóru: Jakob Björnsson, orkumála- stjóri, Rútur Halldórsson, einnig frá Orkustofnun, Jóhann Már Maríusson, yfirverkfræöingur Landsvirkjunar, Þóroddur Th. Sig- urðsson vatnsveitustjóri og stjórn- arformaður Hitaveitu Suðurnesja og Kristján Jónsson, rafmagns- veitustjóri. Sá sem ætlaði að fara en komst ekki vegna anna: Jóhannes Nordal stjórnarformaður Lands- virkjunar. Einhverjir makar munu hafa verið með í ferðinni — alls 12-13 manns. Áætlaður kostnaður við ferðir: Tæp ein milljón króna. Matur oggisting: 2-300.000 kr. Við- komandi stofnanir greiða þó ekki fyrir maka. Þingið í Nýju Dehli er svokallað „World Energy Conference“, haldið á þriggja ára fresti hér og þar um heiminn. Aðild að þessu þingi eiga orkufyrirtæki 80 þjóða. Þau mynda frjáls samtök undir handar- jaðri Sameinuðu þjóðanna. Lands- virkjunarmenn höfðu með sér er- indi á þingið. Það fjallar um orku- mál á íslandi. Ekki er vitað hvort aðrir í hópnum höfðu erindi. Aðal- mál þingsins voru orkumál í þró unarríkjunum.... Pl Einn, tveir, þrír, fjór.... J Komið hefur til tals í sjón- y varpinu að Jónína Benedikts- dóttir sjái um stuttan líkamsræktar og/eða leikfimiþátt á skjánum í vet- ur. Jónína hefur séð um morgun- Ieikfimi í útvarpinu frá því i fyrra- haust. Sumu fóiki hefur gengið erf- iðlega að átta sig á æfingunum og vilja sjá þær. Sjónvarpinu hafa bor- ist óskir, sérstaklega frá eldra fólki, um að svona þáttur birtist á skján- um. Ekki er annað vitað en að þetta hafi hlotið góðar undirtektir, en málið hefur ekki enn fengið af- greiðslu í útvarpsráði.... Ljóst er nú að forstjórar f J Bæjarútgerðar Reykjavíkur, y Björgvin Guðmundsson og Einar Sveinsson, munu láta af störfum um áramótin í kjölfar stjórnkerfisbreytingarinnar sem meirihluti borgarstjórnar hefur samþykkt að gera á fyrirtækinu. Hin nýja toppstaða framkvæmda- stjóra verður auglýst núna á næst- unni. Talið er að þegar sé búið að finna manninn sem það hnoss hreppir, en eftir því sem Helgar- pósturinn hefur sannfrétt verður það hvorki Björgvin né Einar og ekki heldur Ragnar Júlíusson, for- maður útgerðarráðs, sem ýmsir töldu sjálfgefið að settist á tind- inn... Einhver vinsælasti útvarps- /“J þáttur síðasta vetrar var Á tali í umsjá Eddu Björgvins- dóttur og Helgu Thorberg. Og nú koma gleðifréttirnar: Vegna fjölda áskorana, hlustenda sem yfirstjórn- ar útvarpsins, verður þráðurinn upp tekinn á dagskrá hljóðvarps 8. október n.k. Hvar þær Edda og Helga munu láta greipar sópa nákvæmlega kemur í Ijós en spurn- ingin sem nú brennur á vörum landsmanna er auðvitað: Verður Elli með?... V 1 Guðrún Jónsdóttir, forstöðu f' J maður Borgarskipulags y Reykjavíkur, hefur lengi þótt óþjáll embættismaður í augum meirihluta sjálfstæðismanna í borgarstjórn og hefur samstarfið við hana og stofnun hennar trúlega aldrei verið verra en nú vegna Skúlagötuslagsins svokallaða. Helgarpósturinn hefur góðar heimildir fyrir því, að ljóst sé að niðurstaða þessara deilna verði sú, að Guðrún missi stöðuna. Samn- ingur hennar rennur út snemma á næsta ári. Hann verður ekki endur nýjaður... Staða fulltrúa fjármálaráðu- neytisins í stjórn Flugleiða hf. hefur einatt þótt skipta miklu ekki síst pólitískt og breytingar gjarnan fylgt stjórnarskiptum. Svo er einnig nú, — en þó aðeins til hálfs. Fjármálaráðuneytið hefur nú skipt um aðalfulltrúa: Út fór Rúnar Johannsson Alþýðubandalags- maður og inn kom Sigurgeir Jóns- son, sjálfstæðismaður og aðstoðar- bankastjóri Seðlabankans. Athygli vekur hins vegar að ekki er breytt Fimmtudagur 22. september 1983 _Helgar ZPð. pðsturinrr um varamann ráðuneytisins. Hann verður eftir sem áður enginn annar en Þröstur Ólafsson, Alþýðu- bandalagsmaður og nýr fram- kvæmdastjóri Dagsbrúnar... Hitaveita Akureyrar er f~ J bæjarstofnun sem mörgum y borgurum þar er þyrnir í aug- um; er þjónusta stofnunarinnar æði umdfeild og stendur hún illa fjárhagslega. Jafn umdeildur er yf- irmaður hitaveitunnar, Wilhelm V. Steindórsson sem mörgum þykir nokkuð sérlundaður embættis- maður. í annarri veitustofnun bæj- arins, Rafveitu Akureyrar, situr svo annar smákóngur, Knútur Otter- stedt. Þessar tvær umdeildu veitu- stofnanir deila m.a. innbyrðis um það núna hvor þeirra eigi að selja orku til tiltekins húss í bænum. En fljótlega mun andrúmsloftið hreinsast því trúlegt er talið að þess- ar tvær stofnanir verði sameinaðar. Margir eiga þó erfitt með að sjá þá Wilhelm og Knút sitja að samning- um, enda mun það mál leysast far- sællega fyrir Wilhelm, því Knútur mun um áramót taka formlega Við starfi svæðisstjóra Landsvirk junar á Norðurlandi.... tr1! Nú um helgina verður haldið 1 ársþing Sambands ungra y sjálfstæðismanna. Við stjórnarkjör er ekki vitað um mót- framboð gegn Geir H. Haarde, sem verið hefur formaður SUS og mun hann því verða endurkjörinn... STENI - VEGGKLÆÐNING STENI-veggklæðning er frábær fyrir flestar gerðir nýbygginga, t.d. einbýlishús, fjölbýlishús, skóla, iðnaðar- og verslunarhúsnæði, svo eitthvað sé nefnt. Andlitslyfting fyrir gamla húsið. STENI-veggklæðning er tilvalin þegar endurnýja þarf gamla húsið, ekki síst vegna þess hve vel hún gengur með öðrum efnum, s.s. bæsuðu eða máluðu timbri og gefur þannig ýmsa möguleika. Orkusparnaður og einangrun- argildi. Mörg eldri hús eru illa einangruð og þ.a.l. dýr í upphitun. Með STENI-klæðningu og glerullar- einangrun á útveggi fæst hlýtt og notalegt hús og stórum minni upphitunarkostnaður. STENI - VEGGKLÆÐNING - Sannkallað „steinefni" fyrir húsið O BYGGINGAVORUVERSLUN BYKO KÓPAV0GS TIMBURSALAN SKEMMUVEGI 2 SÍMI;41000 K/NG cfinwN Læstir með lykli og talnalás. toCROWN M CROWN Eldtraustir og þjófheldir, framleiddir eftir hinum stranga JIS staðli. 10 stærðir fyrirliggjandi, henta minni fyrirtækjum og einstakling- um eða stórfyrirtækjum og stofnun- um. Eigum einnig til 3 stærðir diskettu- skápa — datasafe rr

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.