Helgarpósturinn - 22.09.1983, Síða 9
9
LmJ J _________( |
JpSsturinn Firnmtuda9ur 22. september 1983
Ég
elska
jazz
Já, ætli þetta séu ekki orð að
sönnu hvað undirritaðan áhrærir,
en pistill þessi á þó ekki að vera
nein ástarjátning, slíka frem ég
við önnur tækifæri, heldur ætla
ég að greina lítillega frá nýjum
flokki hljómplatna frá CBS: 1
Love jazz. Þar má finna fjórtán
hljómplötur sem spanna allt frá
Kid Ory til Miles Davis. Tvær
fyrstu skífurnar eru tileinkaðar
meisturum hins klassíska djass:
Louis Armstrong og Duke Elling-
ton: Louisskífan: Greatest hits
(CBS 21058) geyrnir rjómann af
hljóðritunum hans fyrir CBS á
sjötta áratugnum þegar hann var
með stjörnusveitina með Trummy
Young, Ed Hall, Billy Kyle, Arwell
Shaw og Barett Deems. Þarna er
snilldartúlkunin á All of Me (upp-
haflega á Ambassador Satch),
Black And Blue í öllu sínu veldi
(upphaflega á Satch Plays Fats)
svo og tíu aðrir ópusar hver öðr-
um betri nema sá yngsti: Cabaret
frá 1966. Þetta er einstök skífa
fyrir þá sem ekkert eiga með
Louis — Louis aðdáendurnir eiga
þetta allt. Sama má segja um Ell-
ington-skífuna: Greatest Hits
(CBS 21059). Þar má finna verk
frá 1937 (Caravan) til 1959 (Mood
Indigo). Þarna eru verk af ýmsum
CBS breiðskífum einsog: Elling-
ton Uptown, Ellington Indigos
ofl. Góð kynning á Ellington.
Benny Goodman skífan í flokkn-
um nefnist: B.G. Plays Gershwin
(CBS 21064). Elstu upptökurnar
þar eru með kvartettinum fræga í
Carnegie Hall 1938 og tríóinu frá
1937 en þær yngstu með kvintett
frá 1958 þar sem Arwell Shaw er á
bassa. Einsog þeir er fylgjast með
djass vita lék Shaw með Hinum
átta stóru á tónleikum í Gamla bí-
ói á dögunum, hann kom í stað
Slam Stewart, sem er helsjúkur.
Slam er þó með á þessari Good-
man skífu í sextettupptökum frá
1945, þar er Red Norvo líka. Svo
er auðvitað stórhljómsveit Good-
mans þarna og Peggy Lee syngur
How Long Has This Been Going
On?
Count Basie á skífu í flokknum:
Basie Boogie (CBS 21063). Á ann-
arri hliðinni eru upptökur frá
1941-46 ss. One O’CIock Jump og
Hob Nail Boogie en á hinni upp-
tökur frá 1951 ma. sú hin fræga
Little Pony. Ein skífan er með
fimm organistum: Bill Doggett,
Wild Bill Davis, Marlowe Morris,
Sir Charlie Thompson og Dick
Hyman, hjá þeim tveimur síðast
töldu er píanóið að vísu aðal-
hljóðfærið. Sú nefnist: Organ
Boogie Woogie (CBS 21079) Ein
skífa er í viðbót með Kid Ory And
His Creole Jazz Band. Þessi skífa
er ólík þeim er að framan eru tald-
ar að því leyti, að efnið er ekki
samtíningur heldur eru hér endur-
útgefnar í heilu lagi tvær gamlar
tíu tommu breiðskífur og hefur
að geyma upptökur frá 1946 og
50. Þetta er geysigóð skífa bæði
fyrir safnara og aðra og er ekki
önnur betri „dixiland" skifa á
boðstólum í Reykjavík um þessar
mundir. Kid Ory fæddist 1886 og
er trúlega þekktastur sem básúnu-
leikarinn í Hot Five og Seven
Louis Armstrongs 1925-27. Þegar
áhuginn fyrir New Orleans djassi
kviknaði að nýju í Bandaríkjun-
um og Evrópu uppúr 1940 var Ory
dreginn frammí dagsljósið. Hann
hafði þá viðurværi sitt af hænsna-
rækt. Ory hafði engu gleymt og
fékk til liðs við sig gamla jaxla
einsog trompetleikarann Mutt
Carey með lék með Ory 1914,
Barney Bigard, fyrrum klari-
nettuleikara Ellingtons, Buster
Wilson píanista, gítaristann Bud
Scott, sem var með King Oliver og
hrópaði sem frægt er orðið: Oh,
play that thing! í Dippermouth
blues hljóðrituninni 1923, Ed
Garland bassaleikara og Minor
Hall trommara. Þetta er rosagóð
sveit og gamli góði New Orleans
andinn svífur yfir vötnunum. Það
er einsog horfið sé hálfa öld aftur
i tímann utan hvað hljóðritunar-
tæknin er hin ágætasta. Þeir
leika klassíkina: Tiger Rag, Buck-
et Got A Hole In It og Bill Baley.
Helen Andrews syngur Farewell
To Storyville (margir muna það úr
bíómynd með Ory Armstrong,
Billy Holliday ofl: New Orleans)
og Bud Scott syngur dúett með
henni í Joshua Fit De Battle of
Jericho. Svo spilar bandið: The'
World’s Jazz Crazy, Lawdy So
Am I og Kid Ory syngur tvö lög á
kreola-frönsku: EhLa Bas og
Creole Bo Bo. Það er gaman að
heyra gamla manninn syngja á
þessari annarri þjóðtungu djass-
ins.
Hljóðfæraleikurinn er allur í
hinum ljúfforna stíl: titrríkur
trompetinn, mjúkkreólsk klari-
nettan og rennandi þungavigtar-
básúna. Rýþminn er fastur sem
klettur og á stundum smella
bassastrengirnir á gripbrettinu
einsog vera ber þegar Ed Garland
úr Kneppard og Oliver böndunum
slær hann.
Á upptökunum frá 1951 er eng-
inn eftir frá ’46 utan Ory sjálfur
og Minor Hall. Teddy Buckner er
á trompet, Joe Darensbourg á
klarinett, Loyd Glenn, píanó,
Julian Davidson, gítar, Marty
Corb, bassa og söngkonan er Lee
Sapphire. Efnisskráin hefur samt
ekkert breyst. Klassík einsog
Savoy Blues, Mahogany Hall
Stomp og At Georgia Camp
Meeting. Ory syngur Creole
Song, Sapphire The Glory of
Love og Go Back Where You
Stayed Last Night, svo leikur
bandið Blues for Jimmy (Noon að
sjálfsögðu) og Yaaka Hula Hick-
ley Dula. Bandið er skipað yngri
mönnum og ber þess merki. Hinn
„sanni“ New Orleans andi er
horfinn og sveiflan hefur sett
mark sitt á „dixíið". Þetta er sú
tónlist sem ber í sér bæði svíng &
trad og þó fjörug sé og skemmti-
leg nálgast hún á engan hátt 46
bandið. Þar er rótarsafinn ó-
mengaður. Þetta er einsog þegar
bandið hans Björns R. Einarsson-
ar var að leika bíbopp í sjónvarp-
inu sl. laugardagskvöld. Þar var
boppið svingmettað. Samt var
gott að þetta skyldi fest á mynd
okkur til yndisauka.
Ég mæli eindregið með Kid Ory
við alla þá sem hafa gaman af
tradinu og í næsta pistli mun ég
halda áfram að fjalla um þessa
hjómplöturöð.
hann býr sko ekki i stórum helli.
Minnið er hellir.
14.00 Ég var njósnari. Segir Martha
McKenna. Ég er njósnari. Segi ég.
14.30 Á frívaktinni. Magga Guðmunds er
óskakona sjómannsins: fidele au
poste. Óskalög
19.00 Kvöldfréttir. Eða af sláttartíöni Ijós-
vakans.
20.40 Aldarminning Parísarklerks.
Hvers? Þeir voru svo margir klerk-
arnir i Paris fyrir öld. Gisli Brynjólfs-
son fyrrum prófastur segir frá.
21.05 Sitthvað um haustið. Gísli Helga-
son rifjar upp tiu ára gamlan þátt.
Laugardagur
24. september
8.20 Morguntónleikar. Það er nú það.
Hvort á ég að sofa eða vaka? Hvort
verð ég heima eöa fyrir austan?
Liszt og fleiri góðir menn.
10.25 Óskalög sjúklinga. Ætlar Albert
ekki aö bjóða þá út lika?
11.20 Sumarsnældan. Sigga Eyþórs
syngur og ieikur fyrir börnin.
13.40 Iþróttaþáttur. Hermann fimmeyr-
ingur Gunnarsson kímnifréttamaö-
ur flytur.
16.20 Franz Kafka — maðurinn. Super-
man — the movie. Keld Gall Jör-
gensen er ekki galinn. Hann er
Dani og býr hér. Dagskráin er eftir
hann og hana flytja Svavar Sig-
mundsson og Pétur Gunnarsson.
19.35 Óskastund. Séra Heimir Steinsson
á sér margar óskastundir. Hann er
lika óskabarn þjóöarinnar. Alveg
eins og Jónas og ég.
20.30 Sumarvaka. Og komið haust. Árni
Oddson vísnaspjallar vöggur hans.
24.00 Listapopp. Gunnar Salvarsson fer
með þulur.
Sunnudagur
25. september
10.25 Út og suður. Halldór Ármannsson
fer með Friðrik Pál í vatnsleit til
Afriku. Búrúrúrúdí. Þeir finna bara
heitt vatn. Þaö er svo heitt i Afriku.
11.00 Messa. Hallgrimskirkja var það
heillin.
13.30 Sporbraut. Ólafur Torfason og Örn
Ingi, okkar menn fyrir noröan segja
sögur og fleira.
15.15 Kaffitíminn. Austurrisk skemmti-
hljómsveit leikur fyrir vínarbrauðin.
16.25 Falleg vorgræn vera. Það er ég i
vestinu mínu. Hafiöi ekki séð það?
Nína Björk Árnadóttir tekur saman
þátt um dönsku raunsæisskáld-
konuna Suzanne Brögger. Kristin
Bjarnadóttir les með henni. En
lekkert."
18.00 Það var og. Þráinn Bertelsson er
með vænni mönnum i útvarpi.
Hann er svo hlýlegur í röddinni. Er
það ekki?
19.50 Fingurnæmar nætur. Jóhann Árel-
ius nagar neglurnar yfir eigin Ijóða-
lestri eigin Ijóða.
23.00 Djass. Nú er Múlinn kominn i Har-
lem. Fyrsti þáttur. Kemst hann lif-
andi frá ósköpunum?
Ilíóill
★ ★ ★ ★ framúr*karand!
★ ★ ★ úg*t
★ ★ góð
★ þolanleg
O léleg
Bíóhöllin:
Laumuspil (They All Laughed).
Bandarísk kvikmynd, árgerð 1982.
Leikendur: Audrey Hepburn, Ben
Gazzarra, John Ritter. Leikstjóri:
Peter Bogdanovic.
Létt grínmynd um kynduga náunga
sem stofna leynifélag til aö komast að
þvi hvort eiginkonurnar haldi fram hjá
þeim. Slikt getur aldrei gengið grin-
laust.
Get Crazy. — Sjá umsögn í Lista-
pósti. *
Svartskeggur. Disney-mynd fyrir
bróðurpart fjölskyldunnar.
Utangarðsdrengir. (The Outsiders).
Bandarisk. Árgerö 1983. Handrit:
Kathleen Knutsen Rowell eftir bók
S.E. Hinton. Kvikmyndataka:
Stephen H. Burum. Tónlist: Carm-
en Coppola (faðir leikstjórans).
Leikendur: C. Thomas Howell,
Ralph Macchio, Matt Dillon o.fl.
Leikstjóri: Francis Ford Coppola.
Þetta er spennandi strákasaga meö
slagsmálum, sorg, hetjudáðum og
dauða. Og svo auðvitaö stelpum,
þeim miklu örlagavöldum. ***
— LÝÓ.
Allt á floti. (Take this Job and Shove
it). Bandarisk kvikmynd. Árgerð
1982. Aðaihlutverk: Robert Heys,
Barbara Hershey, David Keith, Art
Carney, Eddie Albert. Leikstjóri:
Gus Trikonis.
Þessi grínmynd fjallar um bjórbrugg-
ara og lögmál frjálsrar samkeppni hið
vestra.
Sú göldrótta. (Bedknotes and
Broomsticks) Walt Disney mynd.
Aðalhlutverk: Angela Lansbury og
Roddy McDowell. Leikstjóri: Robert
Stevenson.
í þessari er einn sá mesti kappleikur
sem sést hefur lengi. Myndin er bæöi
leikin og teiknuð.
Bekkjarklikan. (National Lampoons
Class Reunion). Bandarísk, árgerð
1983. Leikendur: Gerrit Graham,
Stephen Furst, Fred McCarren.
Leikstjóri: Michael Miller.
Þessi mynd er framhald Delta klík-
unnar sem sýnd var hér fyrir nokkrum
árum. Nú á klikan 10 ára afmæli og
taka þá hinir fyndnustu hlutir að ger-
ast.
Regnboginn:
Beastmaster. Ny bandarísk kvik-
mynd. Leikendur: Marc Singer,
Tanya Roberts, Rip Torn. Leikstjóri:
Don Coscarelli.
Ekta ævintýramynd. Galdrar. Æöstu-
prestar. Hraustur ungur maöur, leik-
inn af hinum karlmannlega Marc
Singer, fæðist úr beljukviði, en er með
arnaraugu. Æðstuprestar....?
Fólkið sem gleymdist. Gamall banda-
rískur reyfari með syni Johns heitins
Wayne, Patrick, í aöahlutverki.
Ævintýralegur leiðangur á norður-
hjara eða suðurhjara.
Hinir hugdjörfu (The Big Red One).
Bandarískur vestri æöi forn. Svo forn
að slikar hetjur sem Lee Marvin og
Mark Hamill eru ungir og sprækir.
Annar dans (Andra dansen).
Sænsk kvikmynd, árgerð 1982.
Handrit: Lars Lundholm. Leikend-
ur: Kim Anderzon, Lisa Hugoson,
Sigurður Sigurjónsson, Tommy
Johnson. Leikstjóri: Lárus Ýmir
Óskarsson. * * *
i myndinni ríkir sterk Ijóöræn skynjun
og umfram allt er hún uppfull af
skemmtilegheitum. Lárus Ýmir sýnir
umtalsverðan listrænan þroska, fyrir
utan tæknilegt vald á miðlimum.
— ÁÞ
Rauðliðar (Reds) Bandarísk, árgerð
1981. Handrit: Trevor Griffith, Warr-
en Beatty. Aöalhlutverk: Warren
Beatty, Diane Keaton, Jack Nichol-
son, Maureen Stapleton.
...Beatty hefur óneitanlega unnið
verulegt leikstjórnarafrek með vold-
ugum sviðsetningum á viöamikilli
sögu. Eftirminnilegastur er þó leikur
Jack Nicholsons i hlutverki leikrita-
skáldsins Eugene O’Neill sem verður
vinur Reeds og elskhugi Bryants og
ekki sist stórbrotin myndataka Vittorio
Storaro." * * *
- ÁÞ.
Tónabíó:
Svarti folinn (The Black Stallion). —
Sjá umsögn i Listapósti.
Austurbæjarbíó:
Firefox (Eldrebbi). — Sjá umsögn i
Listapósti.’
Bíóbær:
Polyester. Bandarísk kvikmynd.
Leikendur: Divine, Tab Hunter.
Leikstjóri: John Waters.
Ilmandi gamanmynd um offitu og
sambúðarvandamál i hjónabandi.
Fyrsta mynd sinnar tegundar. Komið
og finnið alla góðu heimilislyktina.
Háskólabíó:
Tess. — Sjá umsögn i Listapósti’ * *
Laugarásbíó:
The Thing. Nýleg bandarisk kvik-
mynd. Aðalhlutverk: Kurt Russell,
A. Wilford Brimley, T.K. Carter.
Leikstjóri: John Carpenter.
Frækilegur leiöangur til Suöurheim-
skautslandsins. Þeir eru ekki einir.
Þaö er annar. Auk hans kemur við
sögu isaldarskrimsl sem fer hund úr
hundi.
E.T. (Geimálfurinn). Bandarísk kvik-
mynd, árgerð 1982. Leikendur:
Henry Thomas og fleiri. Leikstjóri:
Steven Spielberg.
Æðisleg ævintýramynd um geim-
álf* * ‘
Stjörnubíó: ***
Gandhi. Bresk-indversk kvikmynd.
Árgerð 1983. Handrit: John Briley.
Leikendur: Ben Kingsley, Candice
Bergen, Edward Fox, John Gielgud,
Trevor Howard, John Mills, Martin
Sheen. Leikstjóri: Richard Atten-
borough.
„Prýðiskvikmynd sem er löng, en
ekki leiöinleg. Merkilegur hluti sam-
timasögunnar, sem er fegrun, ekki
lygi. Óvægin sjálfsgagnrýni Breta,
sem gerir þeim mögulegt að líöa bet-
ur á eftir, eins og katólikka, sem er ný-
búinn að skrifta."
— LÝÓ.
Tootsie. Bandarísk kvikmynd, ár-
gerð 1983. Leikendur: Dustin Hoff-
man, Jessica Lange, Terry Garr,
Charles Durning. Leikstjóri: Sidney
Pollack. Dustin Hoffman fer á kostum
í aðalhlutverkinu og sýnir afburða-
takta sem gamanleikari. Tootsie er ó-
svikin skemmtimynd. Maður hlær oft
og hefur litiö gleðitár i auga þegar
upp er staðið. * * *
— LÝÓ
Nýja bíó: ***
Poltergeist. Bandarísk, árgerö
1982. Handrit Steven Spielberg,
Michael Grais, Mark Victor. Leik-
stjóri: Tobe Hooper. Aðalhlutverk:
Jobeth Williams, Craig T. Nelson,
Beatrice Straight.
...þeir keyra hryllinginn áfram meö
sívaxandi þunga og yfirburða tækni,
sem iauslega dregnar persónur og
nokkurvæmni náekkiaðeyðileggja."
— AÞ.
viMmriVir
Norræna húsið:
Á sunnudag kl. 17 verður haldinn
aðalfundur Reykjavíkurdeildar
Norrænu félaganna.
Menningarmiðstöðin
Gerðuberg:
Sunnudaginn 25. sept. verður dag-
skrá með sögum, söngvum og leikj-
um sem tengjast frumsköginum.
Dagskráin verður unnin sem mest af
krökkum. Skemmtunin hefst kl. 15.
Aðgangur ókeypis.
Meðan börnin dveljast í frumskógar-
sælunni munu félagar úr Kvennaleik-
húsinu flytja Ijóðabálkinn ,,Fugl ótt-
ans", eftir Ninu Björk Árnadóttur. Við
flautuleik Guðrúnar Birgisdóttur.
Dagskráin er flutt kl. 15.30 og kl.
16.30. Lesarar eru Sólveig Halldórs-
dóttir, Anna Eiriksdóttir og Inga
Bjarnasorr.
Sjálfstæðishúsið,
Akranesi:
Bahá’iar standa fyrir almennri kvöid-
vöku á laugardagskvöld kl. 21. Sýnt
veröur leikritið Jóölif eftir Odd Björns-
son, lesið verður uþp og flutt tónlist,
auk almennra umræðna og kaffiveit-
inga. Ókeypis aðgangur.