Helgarpósturinn - 22.09.1983, Blaðsíða 11
fJústurinrL. Fimmtudagur 22. september 1983
11
Sýning Dags í Djúpinu — er bara „svona eins og hún er“, segir Guðberg-
ur m.a. í umsögn sinni.
Dagur í Djúpinu
í riti sínu LÍArte (Listin) segir
ítalski listfræðingurinn Dino
Formaggio „að list sé allt það sem
mennirnir kalla list“, og hann
bætir því við að þetta sé kannski
eina gilda og trúlega skilgreining-
in sem við höfum um hugtakið
list. Síðan fer hann inn á óljósari
og flóknar brautir.
Wittgenstein segir í Heimspeki-
athugunum sínum að „Allt sé rétt
og ekkert rétt. Við slíkar aðstæð-
ur býr sá sem reynir í fagurfræði
að finna skilgreiningar sem falla
að hugmyndum okkar“.
Athugasemd Wittgensteins er
iíklega endurómur af hugmynd-
um Heraklítos „að vera er bæði
að vera og vera ekki“. En út frá
þeim hugmyndum gekk André
Breton í fræðum sínum um súr-
realismann, að því er ég best fæ
séð. Allt er endurómur af ómi
upprunans sem er óþekktur.
Hvað sem því líður þá stendur
sá sem fjallar um myndlist, og ef-
laust líka sá sem brýtur heilann
um íslenskar bókmenntir, and-
spænis ofansögðu.
Vandi listgagnrýnandans eykst
enn þá meir, vegna þess að megin-
hrifnum-umsögnum“ einhvers
sem hefur verið úti. Yfirleitt er
listin aðeins handbragð, Iærdóm-
ur úr myndlistarskólum, en hún
skírskotar ekki til neins, í henni er
ekkert að finna, hvorki fortið,
framtíð né samtíð. Hún er áþekk
list barnsins, aðeins með lyndis-
einkunn. Börn geta slampast á að
gera góð myndverk, en þau geta
ekki unnið markvisst. í þeim er
engin hefð, enginn leikur við
menningararfinn, engar rofnar
hefðir, engin andleg vélráð, vél.
Halda mætti að hið mannlæga
nýja málverk Ieitaði til eldri ís-
lenskra málara eftir stuðningi,
lærdómi, þekkingu, samhengi,
eins og til málaralistar Jóhanns
Briem. Lengi var von mín að
Listasafnið héldi yfirlitssýningu á
verkum hans, ungum til leiðbein-
ingar vegna hinnar rísandi stefnu
í málverkinu, og úr því við eigum
jafn ágætan málara sem á ýmis-
legt skylt við nýju stefnuna. Nei.
Úr öllu samhengi skal menningin
rísa. Enginn dirfist að gera sér
grein fyrir neinu, allir hræddir,
gjammandieðatístaskelfdir: „Já,
þetta er bara ekki sem verst, já
þorri sýninganna sem hér eru
haldnar er ekki í eiginlegri merk-
ingu sýning á myndlistarverkum,
heldur er um að ræða (eða hægt
að sjá) afar athyglisvert þjóðfé -
lagslegteöa uppeldislegt og and-
legt fyrirbrigði. Til þess að fjalla
um það af einhverju viti þarf
gagnrýnandinn að fá ríkulegan
tíma, gott pláss i blaði, og helst
einhverja greiðslu. En hún er æv-
inlega aukaatriði hjá öllum sem
um andleg mál fjalla. Gagnrýn-
andinn ætti þess vegna að forðast
að stunda tilsögn, nema hann
beiti beinlínis kenningum sínum
eða komi hugmyndum á fram-
færi, og einnig er æskilegt að
hann gefi ekki myndverkunum
einkunnir. Slíkt hef ég reynt að
forðast en tekið þá stefnu að setja
unnin verk í félagslegt samhengi,
tengja þau hefðum eða stefnum,
enda er ekkert listaverk einstakt
þótt einstakt sé, og listaverk er
lika það sem vaknar í huga áhorf-
andans við að leiða það sjónum.
Listin leitar gjarna út fyrir sjálfa
sig með því að hverfa inn að eigin
kjarna.
íslensk list er afar erfið viður-
eignar, vegna þess að hún dregur
ekki anda sinn úr hefðum, andi
hennar rís heldur ekki upp gegn
hefðum. Hún er það sem hægt er
að kalla niðursokkin í sjálfa sig og
eins og út á þekju, svo við grípum
til hugtaka úr bók Rubert de Ven-
tós. Yngri listamenn leita ekki til
eldri listamanna, þeir eiga ekki
heldur greiðan aðgang að lifandi
list samtímans, heldur aðeins að
bókum, blöðum eða „yfir-sig-
bara ágætt; erð’etta alveg nýtt?
Má koma við’að?
Dagur Sigurðarson sem er
stundum Thoroddsen (hann hag-
ar æltarseglinu dálítið eftir vindi)
sýnir um þessar mundir í Djúpinu
og siglir í sínum eðlisdúr. Hann
mun, líklega, ekki hafa sýnt síðan
hann sýndi í sölum Mals og menn-
ingar fyrir ótal árum ásamt Völ-
undi Björnssyni, en eftir þeirri
sýningu að dæma gætu þeir hafa
verið forfeður nýja málverksins,
hefðu þeir haldið áfram á braut
sinni. En allar brautir hér eru
rofnar, menningarsamhengið
vantar; Dagur grípur samt ekki til
þess að mála eins og barn. Til þess
hann gæti það yrði hann að losna
við kynhvötina eða öllu heldur við
ástarþörfina. Vegna hennar er
tæknin sem hann notar fremur
klíningur en málning, stíllinn
bernskur, putum beitt fremur en
fingrum eða allri hendinni. Mál-
verk Dags stefna hvorki fram né
aftur. Engin líkindi eru fyrir að
hann stefni að „barnamálverki"
og jafn ólíklegt að hann stefni að
stíl ellihrumleikans, einslags
„karlægri kúnst“. List hans er
bara „svona eins og hún er“, og
ekkert er meira um það að segja.
Þeir sem þekkja Dag og list
hans finna jafnan til hlýju, og um
leið verða þeir örlítið áttavilltir í
því á hvaða aldursskeiði þeir eru,
jafnvel snarruglaðir í tímanum,
og þeir skilja hvað það er erfitt að
hafa ekki notið ástar í bernsku og
þurfa því að þreifa sig áfram í list-
inni — já, hvað er hún annað en
það?
Sólin
var
vitni
Út er komin ný bók eftir meistara
morðgátunnar, Agöthu Christie, og
nefnist hún „Sólin var vitni“ í þýð-
ingu Magnúsar Rafnssonar, sem
einnig þýddi bókina eftir Agöthu í
sama flokki, „Morð er leikur einn.“
Bókin „Sólin var vitni“ gerist á
eyju, þar sem hótelgestir njóta sum-
ars og sólar, grunlausir um hið illa
sem vofir yfir þeim. Fræg leikkona
er myrt á óhugnanlegan hátt, og
lögreglan, sem stendur ráðþrota
gagnvart glæpnum, þiggur það með
þökkum þegar einn gestanna, leyni-
lögrelgumaðurinn Hercule Poirot,
býður fram aðstoð sína.
Útgefandi er bókaútgáfan Hag-
all, Bárugötu 11, Reykjavík. Sími:
17450.
.. SÍM116620
Hart í bak
eftir Jökul Jakobsson
Tónlist: Eggert Þorleifsson
Lýsing: Daníel Williamsson
Leikmynd: Steinþór Sigurðs-
son
Leikmynd: Hallmar Sigurðs-
son
6. sýn. í kvöld kl. 20.30.
Græn kort gilda.
7. sýn. föstudag kl. 20.30.
Hvít kort gilda.
8. sýn. sunnudag kl. 20.30.
Appelsínugul kort gilda.
9. sýn. miðvikudag kl. 20.30.
Brún kort gilda.
Úr lífi ánamaðkanna
laugardag kl. 20.30.
Aðgangskort
Næst síðasti söludagur að-
gangskorta.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
ÞJOÐLESKHUSI-B
SKVALDUR
Frumsýning föstudag kl. 20
2. sýning laugardag kl. 20
3. sýning sunnudag kl. 20
Aðgangskort:
Sala stendur yfir.
Miðasala 13.15—20. Sími
1-1200
BOND
Dagskrá úr verkum Edward Bond
Þýöing og leikstjórn:
Hávar Sigurjónson
Lýsing: Agúst Pétursson
Tónlist: Einar Melax
Frumsýning laugard. 24.9.
kl. 20.30
2. sýning sunnud. 25.9. kl. 20.30
3. svninq briöiud. 27.9. kl. 20.30
Ath. Fáar sýningar
Sýningar í
Félagsstofnun Stúdenta
v/Hringbraut. Veitingar.
Ath.: Nýtt símanúmer
17017.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Tímapantanir
13010
GEYSIR
Bílaleiga
Car rental
BORGARTÚNI 24 - 105 REYKJAVÍK, ICELAND - TEL. 11015
Leigjum út nýja Opel Kadett, Mazda 323 og Daihatsu-bíla.
Sækjumog sendum.Símsvari allan sólarhringinn, kredit-
kortaþjónusta.
Byggung Kópavogi
B.S.F. Byggung Kópavogi auglýsir nýj-
an byggingaflokk í raðhúsum viö
Helgubraut í Kópavogi. Skilmálar
liggja frammi á skrifstofu félagsins aö
Hamraborg 1, 3. hæö. Opið klukkan
10—12 og 13.30—15.30. Umsóknar-
frestur er til 28. september.
Stjórnin
kassettur
Gœöi og vezö
sem koma á óvart!
PRJÚNAGARN - ÚTSAUIVIUR - SMYRNA
Parið á ströndinni
ásamt mörgum
ísaumsmyndum fyrir-
liygjandi
n Sjón er söyu ríkari
Póstsendum daglega
Mikið úrval af
prjónagarni
Tugir tegunda
Hundruð lita
Með haustinu bendum við
sérstaklega á mohairgarn
fyrir grófa prjóna og
ullargarn
H0F
- INGOLFSSTRÆTI 1
(GEGNT GAMLA BÍÓII. SÍMI1B7M. ÍA