Helgarpósturinn - 29.09.1983, Page 2

Helgarpósturinn - 29.09.1983, Page 2
„Þetta er ekki vísinda- heldur fræðsluráðstefna. Við viljum vekja athygli fólks á því sem verður fleir- um að fjðrtjóni á íslandi en margir gera sér grein fyrir“. Þetta sagði Jóhann Axelsson prófessor í samtali við Helgarpóst- inn, og ráðstefnan sem hér um ræð- ir ber yfirskriftina „Að halda lífi í kulda“, og verður haldin um helg- ina. Ráðstefnan er haldin fyrir for- göngu norrænu samstarfsnefndar- innar um heilsufarsrannsóknir á „Vekjum fólktil umhugsunar um veð- urfarsskilyrðin sem við búum við“ segir Jóhann Axelsson prófessor Fimmtudagur 29. september 1983 jlplfísturinn norðurslóð.en auk þess stendur að henni fjöldi íslenskra stofnana, félagasamtaka og áhugamanna um vandamál sem koma upp við mik- inn kulda. Fjöldi innlendra og erlendra vís- indamanna taka þátt í ráðstefnunni og munu 15—20 fyrirlesarar flytja lengri eða skemmri innlegg um efni eins og hvernig halda megi lífi í miklum kulda og hvernig megi Jóhann Axelsson prófessor á sæti í undirbúningsnefnd ráðstefnunnar um hvernig eigi að halda lífi í kulda. Hann er að vísu ekkr mjög kuldalegur á þessari mynd, enda heitt i veðri. koma í veg fyrir kuldaskemmdir og hvernig skuli fara með þær. Einnig verður fjallað um vinnu í kulda, köfun, slysavarnir, björgunarþjón- ustu og almannavarnir. Aðspurður um hvort þeir væru að búa almenning á íslandi undir komandi ísöld, sagði Jóhann Axelsson að svo væri nú ekki. „Við álítum að það sé nógu slæmt eins og það er“, sagði hann enn- fremur. Jóhann benti einnig á að það væri ekki aðeins kuldastigið sem réði úrslitum, heldur kæmi vind- hraðinn þar við sögu og ekki síður rakastigið. „Markmiðið er að vekja fólk hér til umhugsunar um þau veðurfars- skilyrði sem við búum við og að hve miklu leyti þau eru hættuleg. Því meira vit sem fólk hefur á hvaða að- stæður eru hættulegar, þeim mun betra“, sagði Jóhann Axelsson prófessor. Ráðstefnan verður haldin í húsi Slysavarnafélagsins að Granda- garði og hefst hún kl. 8 árdegis á laugardag. Er sambúðin erfið? Um næstu mánaðamót hefjast námskeið í Reykjavík undir heitinu SAMSKIPTI OG FJÖLSKYLDU- LIF. Námskeiðin eru fyrst sinnar tegundar hér á landi. Markmið námskeiðanna er að miðla þekk- ingu til fólks sem eykur á sjálfsvit- und og sjálfsöryggi. í því sambandi eru teknir fyrir ákveðnir þættir er varða einstaklinginn sjálfan, bak- grunn hans og fjölskyldu. Bretlandi geri það. Þess vegna buðu Flugleiðir og Sonic World hópi bresks sölufólks, 26 manns, að koma hingað og kynna sér hvað það er að selja. Þessi mynd var tekin í hófi fyrir hópinn um s.l. helgi og má á henni sjá þann gamalreynda ferðafrömuð, Úlfar Jacobsen, t.h. í hópi forsvarsmanna Sonic World og íslensks starfsmanns skrifstof- unnar hér, Auðar Jacobsen (önnur f.v.), sem reyndar er lika dóttir Úlfars. Annar hópur kemur í svip- aða ferð hingað í dag, fimmtudag,! boði Flugleiða og Sonic World. Smartmynd íbúasamtök norðan Hverfisgötu boða til fundar Ibúar á svæði sem markast af Ingólfsstræti, Skúlagötu, Snorra- braut og Hverfisgötu hyggjast bind- ast samtökum. Undirbúningsnefnd hoðar til stofnfundar í Þjóðleik- húskjallaranum n.k. laugardag, 1. okt. kl. 14.30. Til þessa fundar er boðið öllum er búa á ofangreindu svæði svo og öllum er.starfa á svæð- Það var handaganguf í snyrtiöskj- unum í Stúdió Fjólu fyrir nokkrum dögum þegar þar var haldin kynn- ing á nýjum hár- og snyrtivörum frá hinu þekkta Molton Brown fyrir- tæki í Bretlandi. Molton Brown var upphaflega eitt viðurkenndasta hárgreiðslustúdíó Bretlands, en hóf fyrir nokkrum árum framleiðslu á hársnyrtivörum og skyldum hlutum sem mótaðir eru af því viðhorfi að hármeðferð skuli vera sem náttúru- legust og m.a. tekið mið af gömlum grasauppskriftum. Molton Brown heldur síðar á árinu alþjóðlega kynningu á þessum nýju vörum sín- um, en það var umboðsaðili fyrir- tækisins á íslandi, Lista-Kiljan s.f. sem fékk leyfi til forskots hérlendis á dögunum. Smartmynd Sonic World heitir bresk ferðaskrif- stofa sem hefur sérhæft sig í ferð- um til íslands og Grænlands s.l. tvö ár og komu á vegum hennar hvorki meira né minna en 200 manns til íslands í sumar. Aðstandendur ferðaskrifstofunnar eru alvanir að stunda ferðamannaþjónustu við Island, því hún var stofnuð á grunni söluskrifstofu Flugleiða í Glasgow sem lokað var á sínum tíma. Þar störfuðu eigendur hennar og í Glasgow eru aðalbækistöðvarnar. En þótt eigendur þekki ísland út og inn er ekki þar með sagt að allir þeir sem selja ferðir á hennar vegum í Kuldaráðstefna um helgina: eldvarnarmálning l Slippfélagið íReykjavíkhf Má/ningarverksmiðjan Dugguvogi Símar 33433og33414 Eldsnöggt breiöist lítill logi út, fái hann að- stæður sem honum henta. Fldvarnarrnfílninniinni Pr aofjaA aA takmarka. þessar aðstæður. Við hita bólgnar hún upp og verður frauðkennd og þykk. Þannig einangrar hún gegn hita, tefur útbreiðslu elds í brennanleg efni og á stáli minnkar hún hættu á ofhitnun þess, og þar með skemmdum. Við þetta vinnst dýrmætur tími sem getur skipt sköpum við björgun verðmæta. Kveikirðu á því? Hempels eldvarnarmálning er viðurkennd af Det Norske Veritas.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.