Helgarpósturinn - 29.09.1983, Qupperneq 17
t~itíí ~ai-~ ~ ^
posturinn Fimmtudagur 29- september 1983
17
Áfram með væntanlegar jóla-
f J bækur. Við heyrum að bóka-
J útgáfan Vaka muni gefa út
um 30 titla á þessu ári. Meðal bóka
sem væntanlegar eru með haustinu
má nefna bók með úrvali nær-
mynda Helgarpóstsins, auknum og
endurskoðuðum, og nýja barnabók
eftir Guöna Kolbeinsson sem sló í
gegn með fyrstu bók sinni í fyrra.
Nýja bókin hefur enn ekki hlotið
nafn, en hún verður myndskreytt af
Pétri Halldórssyni teiknara.
Ármann Kr. Einarsson sendir frá
sér unglingabók sem heitir Þegar
ástin grípur unglingana og mun
hún vera nokkuð frábrugðin fyrri
bókum höfundar. Endurminninga-
bækur skipa einnig veglegan sess og
þar er hægt að taka til samtalsbók
við Sigurö Sigurösson íþróttafrétta-
mann, sem Vilhelm G. Kristinsson
hefur skráð. Bókin heitir einfald-
Iega Komiði sæl. Ævisaga Eysteins
Jonssonar fyrrum ráðherra eftir
Vilhjálm Hjálmarsson bregður
nýju Ijósi á pólitíska atburði síðustu
áratuga. Loks skal geta amerískrar
/
metsölubókar sem heitir Mínútu-
stjórnun, þar sem kynnt er stjórn-
unaraðferð sem hentar bæði smá-
um og stórum fyrirtækjum...
Ráðstefna Alþýðuflokks-.
kvenna sem haldin var síðasta
laugardag þótti takast með
afbrigðum vel. Þar urðu óheppileg
orð ýmissa forystumanna til þess að
þjappa konum saman, með þeim
árangri að í lokin var sett á fót þver-
pólitísk nefnd sem ætlar sér að
koma hreyfingu á launamál
kvenna. Það sem vakti þó hvað
mesta athygli og reiði eftir ráðstefn-
una sem sótt var af 170 manns, var
að sjónvarpið gat hennar í einni
setningu, svona í framhaldi af frétt
um 30 manna fund Alþýðuflokks-
formannsins á Akranesi. Fjöldi
kvenna hringdi í sjónvarpið og
kvartaði, með þeim árangri að
fréttamenn fóru af stað á sunnu-
dagsmorgni og tóku viðtal við Jó-
hönnu Siguröardóttur alþingis-
mann . Það borgar sig sem sagt að
kvarta...
Lítið svar
14
Hversvegna viljið þið þá ekki skáld
sem er að reyna eitthvað nýtt?
Fólk nennir ekki að Iesa ef það
veitir enga gleði eða snertir ekki
mjúka tóna hjartans. Staðreyndin
er að mest seldu jólabækurnar eru
abriel
HÖGGDEYFAR
75 ÁR í FARARBRODDI
75 ÁRA TRYGGING
FYRIR GÆÐUM
Bremsuklossar
fyrir flestar
gerðir.
DRÁTTAR-
BEISLI
fyrir Volvo
og fleiri gerðir.
Verð kr. 3400,-
TRW
Stýrisendar
og spindilkúlur.
BENSINDÆLUR
FYRIR
Golf Passat 1100—1300
Volvo 144, 244
' VW 12-13,
1302—15—1600
Vauxhall Viva
M. fíenz 200-280
Fiat /25—7—8—
31-32
Simca 1100-/307
Ford Cortina',
Taunus, Escort,
Ficsta
Skoda —
C'itroifn G.S.
PÓSTSENDUM
G3
varahlutir
Hamarshöfða 1
simar: 83744
og 36510
-
ævisögur. Vegna þess að það eru
bókmenntir sem fólk skilur. Þar er
sagt hispurslaust frá atburðum úr
alvöru lífi. Ekkert hástemmt,
merkilegt rugl. Bara passlegt grobb.
Bókin mín er skrifuð í fyrstu per-
sónu, maðurinn sem segir frá talar
ekki menntaskólamálfar, heldur er
það venjulegur alþýðumaður sem
talar stílleysur og hefur brenglaðar
beygingar. DAGURINN ÞEGAR
ÓLI BORÐAÐl SÓSUNA MEÐ
SKEIÐINNI er bók sem er byggð á
sannsögulegum atburðum.
Það færist í vöxt að ungu skáldin
gefi verk sín út sjáfir eins og ég í
þessu tilfelli. Og er það eina vonin
að íslenskar bókmenntir nái hylli
almennings á ný. Frelsi andans er
grundvöllur fyrir listsköpun.
„En ég er nú síst einn af þessum
feitu körlum á bak við skrifborðið,
menntamönnum, sem eru vondir
við vesalings alþýðumanninn".
Þetta viðurkennir Matthías fús-
lega, að hann sé einn af þessum
feitu körlum með gömul sjónarmið.
Ég kann vel við hreinskilni. Allur
skáldskapur minn byggist á því.
Annars er ég mjög ánægður með
þessa bókmenntagagnrýni. Hún
lýsir vel út á hvað mín 10 ára mál-
frelsisbarátta hefur gengið. Og
þakka ég Matthíasi Viðari kærlega
fyrir- Ásgeir Hvítaskáld.
Spíritismi
V-'l Sumir eru jafnari en aðrir.
f 1 Tveir stjórnarandstöðu-
S flokkar, Alþýðuflokkurinn
og Alþýðubandalagið, hafa farið í
fundaherferð um landið í kjölfar
funda Steingríms Hermannssonar
forsætisráðhera. Fundir Steingrínts
hafa verið auglýstir mjög vel í
útvarpinu og almenningur borgar
brúsann, þ.e. forsætisráðuneytið.
A—flokkarnir verða hins vegar
sjálfir að greiða allan kostnað af
fundahöldum sínum og auglýsing-
um þar aðlútandi....
Nú fer i hönd hin hefðbundna
f J uppskeruhátíð bókaút-
S gefenda. Sitthvað bendir nú
til að þessi vertíðarhefð sé að rask-
ast. Bæði er að flest bókaforlög
munu trúlega fækka útgáfutitlum
og ekki síður hitt að ljóst þykir að
hinn eiginlegi stórmarkaður
íslenskrarbókaútgáfu er að taka á
sig mynd hinna svokölluðu bóka-
klúbba. Þeir gerast æ umsvifameiri
og þótt ekki séu allir þeirra tilbúnir
aðgefa uppfjöldaklúbbfélagaer
altalað meðal höfunda að eina raun
hæfa leiðin til að fá eitthvað fyrir
sinn snúð í ritstörfum sé að selja
einhverjum klúbbum afurðina.
Sem dæmi um stærð klúbbanna
heyrum við að væntanleg bók hjá
bókaklúbbi Arnar og Örlygs,
íslenskir annálar 1400 til 1449 eftir
Anders Hansen blaðamann, sé
prentuð í um 10.000 eintökum, en
það er fjórföld meðalsala bókar nú.
Hinir klúbbarnir tveir, AB og
Veröld, eru áreiðanlega ekki með
lægri upplög...
BílasalaGuðfinnshefurverið
f'J á höttunum eftir nýrri lóð
undir fyrirtækið. Til stóð að
byggja í Stórholtinu, en vegna mót-
mæla íbúa var hætt við það. Þá
komu skipulagsnefndarmenn auga
á lóð Ármúlaskóla, en umhverfis
skólann er landrými sem ætlað er til
framtiðarbygginga. Kennarar og
nemendur skólans sem fengu veður
af þessum hugmyndum mótmæltu
og fyrir skömmu skrifaði Ragnhild-
ur Helgadóttir menntamálaráð-
herra bréf þar sem hún mótmælti
einnig þessum hugmyndum. Málið
virðist nú dottið upp fyrir og bíla-
sölumenn verða að hefja leitina að
nýju...
sögðust myndu láta vita af sér á
óyggjandi hátt að handan, en
ekkert hefur til þeirra heyrst. Ef
menn trúa á eilíft líf, þá trúa þeir
því, spíritisminn sannfærir menn.
ekki um andlegt Iíf eftir dauðannþ
Skoðanir fólks eru því skiptar, en
eftir stendur að áhugi er mikill hér
á landi á dulrænum fyrirbærum.
Það sýnir sú staðreynd að í Sálar-
rannsóknarfélaginu eru um 4000
manns, þar af um 1000 í Reykjavík.
Eftir nokkrar vtkur setjast menn
enn við að ræða um stöðu spírit -
ismans hér á landi.þetta vinsæla en
umdeilda efni og þá kemur væntan-
lega í ljós hvort eitthvert líf er að
finna meðal arftaka Einars H.
Kvarans, Indriða miðils og Harald-
ar Níelssonar, eða hvort það verða
vísindin sem fara með sigur af
hólmi og efla alla dáð.
Auglýsing um iimlausn
happdrættisskuldabréfa
ríkissjóös
C f lokkur 1973
Hinn 3. október hefst innlausn happdrættisskuldabréfa ríkissjóðs
í C flokki 1973, (litur: gulur).
Hvert skuldabréf, sem upphaflega var að nafnverði gkr. 1.000, nú kr. 10,00,
verður innleyst með verðbótum samkvæmt breytingum, sem orðið hafa á
vísitölu framfærslukostnaðar frá útgáfudegi á árinu 1973 til gjalddaga í ár.
Innlausnarverð hvers skuldabréfs er kr. 559,80
Til leiðbeiningar fyrir handhafa happdrættisskuldabréfanna viljum vér benda
á, að bréfin eru eingöngu innieyst í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnar-
stræti 10, Reykjavík.
Þeir handhafar skuldabréfa, sem ekki geta sjálfir komið í afgreiðslu Seðla-
bankans, geta snúið sér til banka, bankaútibúa eða sparisjóða hvar sem er á
landinu, sem sjá um innheimtu þeirra úr hendi Seðlabankans.
Eftir gjalddaga greiðast engar verðbætur vegna hækkunar vísitölu
framfærslukostnaðar.
Skuldabréfin fymast á 10 árum, talið frá gjalddaga hinn 1. október 1983
Reykjavík, september 1983.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
VARAH1UT1R
í ALLA JAPANSKA BÍLA
Honda, Mazda, Mitsubishi, Toyota og Datsun
NP VARAHLUTIR Ármúla 22 — 105 Reykjavík. Sími 31919
Draupnisgötu 2, 600 Akureyri. Sími 26303.
Hvergi hagstæðara verð.