Helgarpósturinn - 29.09.1983, Side 21

Helgarpósturinn - 29.09.1983, Side 21
21 ~lpústurinn. Fimmtudagur 29. september 1983 Eftir Þórhall Eyþórsson myndir: Jim Smart vegar hægt að koma sjónarmiðum á framfæri. Þetta er mikilvægt hlut- verk forsetans og sýnir að mörgu leyti hversu þjóðfélagið er opið. Það ber vott um mikið lýðræði að auðvelt sé að ná tali af þjóðhöfð- ingjanum, en hjá okkur er það fyrst og fremst unnt vegna þess hve fá- menn við erum. Við lifum í svo miklu nábýli þótt landið sé stórt. Með stærri þjóðum er þetta aftur á móti enginn hægðarleikur, eins og kunnugt er. Hinsvegar ber að ítreka, að for- setinn getur ekki beitt sér í mörgum þeirra mála sem berast embættinu. Hann getur aðeins vakið athygli á að tiltekinn aðili hafi leitað til hans með tiltekið erindi. Að sjálfsögðu ráðast lyktir af því hversu brýnt málefnið er og hvernig því er hátt- að. Það má ef til vill segja að fólk sé á vissan hátt að „áfrýja“ sínum málum þegar það fer með þau á fund forsetans. Til dæmis er ekki óalgengt að leitað sé til forseta út af sakamálum, og komið til hans með náðunarbeiðni af ýmsu tagi. Forseti getur komið slíkri beiðni á fram- færi við dómsvaldið — en hann náðar ekki neinn upp á sitt eins- dæmi. Þar virðist á ferðinni út- breiddur misskilningur. „Mér þj;kir afar vænt um ef fólk fer af fundi mínum léttara í skapi en það kemur' forseti Islands. segir Vigdís Finnbogadóttir, Annars er það titt að fólk komi hingað af því að það veit ekki hvert það á að snúa sér, veit til að mynda ekki undir hvaða ráðuneyti það málefni heyrir sem það vill fá úrlausn á. Við erum ekki vön að gera neina sérstakar ráðstafanir vegna viðtals- tíma, en höfum eðlilega þann hátt- inn á að fá uppgefið nafn og erindi, eins og þú hefur orðið var við. Og hingað til hafa skýringar eins og „upplýsingaleit" og „persónulegt mál“ verið teknar góðar og gildar". — Færist í vöxt að fólk snúi sér til forsetans? „Það hefur vafalaust ætíð verið mikið um það, en það virðist aukast enn. Ætti það að vera til marks um að þjóðfélagið verður opnara með hverjum degi. — Er forseti sálusorgari þjóðar- innar? „Því get ég ekki svarað. En mér þykir afar vænt um ef fólk fer létt- ara í skapi af mínum fundi en það kemur“. Þá er komið að kveðjum. Og þeg- ar ég held á brott er ég ekki í vafa um að Vigdís Finnbogadóttir, for- -seti íslands;hefur lög að mæla. Það er að nálgast hádegi og óvenjulega bjart yfir Reykjavík. Við tökum til starfa föstudaginn 30. september og önnumst öll innlend og erlend bankaviðskipti. Bankastjórn og starfsfólk býÖur ykkur velkomin í bankann til að hefja við- skipti og þiggja kaffisopa. Sverrir útibússtjóri Una féhirðir Liija innlán Helga gjaldeyrir Leifur fulltrúl útlán íris innlán Oddrún gjaldkeri BÍNAÐARBANKI ISLANDS

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.