Helgarpósturinn - 03.12.1983, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 03.12.1983, Blaðsíða 6
INNLEND YFIRSYN Friörik, Birgir, Þorsteinn Menn en ekki málefni Tími landsfundanna er runninn upp. Um síðustu helgi þinguðu kvennalistakonur og komu sér saman um lög og skipulag fyrir sína ungu hreyfingu. Þær kusu hvorki for- mann né varaformann, heidur sér 5 kvenna framkvæmdanefnd og þingráð um að móta stefnu og taka ákvarðanir milli landsfunda. Um þessa helgi sest Bandalag jafnaðar- manna á rökstóla og ætlar líka að móta sitt framtíðarskipulag. Heyrst hefur að þeir Stef- án Benediktsson og Guðmundur Einarsson þyki líklegastir sem formannsefni, verði far- in sú leið að velja formann. Eftir hálfan mán- uð mæta Alþýðubandalagsmenn til leiks og þar beinist athyglin helst að varaformanns- sætinu. Sá landsfundur sem vekur þó hvað mesta forvitni nú er fundur 1100 sjálfstæðis- manna alls staðar af landinu. A landsfundi þeirra sitja ráðherrar og borgarstjóri Reykja- víkur fyrir svörum, fjallað verður um þem- að: Fyrir framtíðina og stjórnmálayfirlýsing verður samþykkt. Þessi mál munu þó eflaust falla í skugga kosninga formanns og varafor- manns. Meðal sjálfstæðismanna verður ekki rætt um það hvort heldur hvern skuli kjósa til forystu í flokknum. Það er merkileg staðreynd um jafn gamlan flokk og Sjálfstæðisflokkinn, að í 50 ár hefur ekki verið kosið milli manna í formannssæti flokksins. Öll þessi ár hefur maður tekið við af manni vegna fráfalls eða veikinda og því hefur alltaf legið ljóst fyrir hver myndi taka við. Að þessu sinni hafa þrír menn lýst því yf- ir að þeir séu reiðubúnir að setjast í for- mannssætið og engan veginn er Ijóst hver fer með sigur af hólmi, þó að vötn streymi nú öll til Dýrafjarðar. Helgarpósturinn hafði samband við fjölda fulltrúa á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, alls staðar af landinu, til að heyra í þeim hljóðið um formannskjörið og þau mál sem þeir teldu mikilvægust á þessum fundi. Öllum þeim sem rætt var við bar saman um að formannskjörið yrði mál málanna og myndi skyggja á allt annað. Allir bjuggust við spennandi og jafnvel tvísýnum kosning- um, menn kæmu með óbundnar hendur til fundarins, það hefðu ekki verið Tagðar nein- ar línur eða agitasjón höfð í frammi, það væri verið að kjósa um þann hæfasta af þremur hæfum. Kjósa um menn en ekki mál- efni. Eftir kosningarnar myndi flokkurinn standa sameinaður. Þessi viðtöl HP eru auð- vitað engan veginn marktæk sem könnun á skoðunum fulltrúa, en svo virtist, af samtöl- unum að dæma, sem Þorsteinn Pálsson nyti mikils stuðnings. Menn fullyrtu að heilu kjör- dæmin myndu sameinast um hann, það heyrði t.d. til undantekninga að fólk í Suður- landskjördæmi ætlaði ekki að styðja hann, en Þorsteinn er þingmaður þess kjördæmis. Mikillar bjartsýni gætir ekki síður í herbúð- um Friðriks Sophussonar og stuðningsmenn hans sem rætt var við voru næsta sigurviss- ir. Staða Birgis ísleifs er óljósari, en víst er að allt getur gerst og þá ekki fyrr en á lánds- fundinum sjálfum. Hvað varðar varaformannsembættið virð- ist allt óljósara. Nefnt var að það myndi ef- laust ráðast af formannskjörinu hver yrði fyrir valinu. Það væri nokkuð eðlilegt að hugsa sem svo að yrði Þorsteinri forjnaður, héldi Friðrik áfram sem varaformaður, lenti hann í öðru sæti. En hvers konar formann vilja sjálfstæðis- menn sjá? Svörin hljóðuðu á þá leið að hann yrði að vera ,,ákveðinn, gætinn, markviss í starfi, sveigjanlegur, maður sem skýtur sér ekki á bak við menn eða mál, maður sem hefur foringjahæfileika og er vel greindur". Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins verður einnig kjörin og þar „vilja fleiri komast að en eiga þess kost“, sagði einn þeirra sem rætt var við. Konur munu hugsa sér til hreyfings í mjðstjórnarkjörinu og ætla að standa sam- an að kjöri kvenna í miðstjórnina. Þær kon- ur sem rætt var við nefndu allar þörfina á því að fleiri konur kæmust til áhrifa í flokknum. Ein sagði að hún hefði viljað fá konu sem for- mann; ef Ragnhildur Helgadóttir hefði náð kjöri á síðasta landsfundi, hefði hún nú verið kjörin formaður, en það væri fjarlægur draumur nú. Þó að landsfundurinn muni einkennast af kosningum verður fjöldi annarra mála til umræðu. Erindi verða flutt um framtíðina, starfshópar munu fjalla um álitsgerðir og eín eftir Kristínu Ástgeirsdóttur þeirra tillagna, sem að öllum líkindum verða lagðar fram, fjallar um breytingar á lögum .ura formannskjör, á þá leið að formaður skuli ná kjöri því aðeins að hann hljóti meiri- hluta atkvæða landsfundar. Á viðmælendum HP var að heyra að þeir teldu slíka breytingu sjálfsagða og réttláta, það myndi auðvelda fólki að standa saman um formanninn ef hann hlyti ótvíræðan meirihluta. Þau mál sem eru fólki úti á landi ofarlega í huga tengjast framtíðinni, menn mæta á landsfundinn með hugðarefni sinna kjör- dæma í farteskinu og vonast til að geta ýtt við ráðherrum og komið upplýsingum á framfæri. Ólína Ragnarsdóttir, bæjarfulltrúi í Grindavík, nefndi sjávarútvegsmál, sveitar- stjórnamál og aukna þátttöku kvenna sem þau efni sem hún vildi gjarnan fá rædd. Þór- unn Einarsdóttir á Selfossi tók í sama streng, ræddi um efnahagsmálin, stöðu stjórnarinn- ar og hún sagðist búast við að á svo fjöl- mennum fundi sem landsfundinum færi varla hjá því að ríkisstjórnin yrði fyrir gagn- rýni. Óðinn Sigþórsson í Einarsnesi á Mýrum nefndi sjávarútveginn og kvótakerfið í land- búnaðinum sem hann taldi meirihluta sjálf- stæðismanna vera á móti. Arnar Sigurmundsson í Vestmannaeyjum sagði framtíð útgerðarinnar vera mikið mál, ekki síst í Ijósi þeirra upplýsinga sem komn- ar væru frá fiskifræðingum um ástand þorskstofnsins. Arnar nefndi líka efnahags- málin og sagði: „Menn dást að árangrinum hingað til, en spurningin á fundinum verður hvernig hægt verður að tryggja að þessi ár- angur haldist og verði betri". Ragnar Steinarsson á Egilsstöðum nefndi orkumálin, ekki síst þá hlið sem snýr að Austfirðingum, svo og atvinnumálin og framtíð stóriðju þar eystra. Já, nú er tími landsfundanna. Um þessa helgi munu augu landsmanna eflaust beinast að þeim Þorsteini, Friðriki og Birgi ísleifi, hvaða skoðun sem menn annars hafa á Sjálf- stæðisflokknum og stefnu hans. ERLEND YFIRSYN . t s s > •- \ w ■ "n—ymnr’ ■ IjÁ >'>:■'■ ' 1 % ■■ if f j j í 4 • 1 H ..J,..'ill ”, ÍKihHÉ v V ■" : ■:'i] .... ■ ■ Viíiim .VÍIig.í. WLA •I i.* jPÍN Innrásarliðiö að störfum og forsetinn réttlætir þau heima Traust á Bandaríkjastjórn fórnarlamb árásarinnar Fréttamenn Lundúnablaðsins Sunday Times, bæði austan hafs og vestan, rekja rækilega aðdraganda og framvindu banda- rísku innrásarinnar á eyríkið Grenada. Þar segir: „...Tuttugasta og annan október hafði Castro sent Bandaríkjastjórn skilaboð um að í rauninni væri hann „hrottalegu" valdaráni á Grenada engu hlynntari en þeir, og að Kúbumenn væru ekki (leturbr. S.T.) á eynni til að verja nýju valdhafana. Þó myndu þeir verjast, ef á þá yrði ráðist. Castro stakk upp á „stöðugu sambandi" milli Havana og Washington til að forðast misskilning. Washingto'n svaraði og féllst á uppástung- una. Svarið barst til Havana hálfum öðrum klukkutíma eftir að innrásin hófst". Þessi frásögn hins breska blaðs er eitt dæmi af mörgum um ástæðurnar fyrir því að trúnaðarbrestur ríkir milli Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í Vestur-Evrópu eftir á- kvörðun Reagans forseta um að ráðast á Grenada. í Öryggisráðinu stóðu Bandaríkin ein uppi og urðu að beita neitunarvaldi til að koma í veg fyrir fordæmingu á aðförum sín- um. Enginn trúnaður er lagður á tilraunir Bandaríkjaforseta og talsmanna hans til að réttlæta ákvörðunina um að grípa til vopna. Málaleitan Castros um samráð til að forð- ast misskilning var virt að vettugi og í sjón- varpsræðu sinni til bandarísku þjóðarinnar hélt Reagan því fram að bandaríska innrásin hefði komið á síðustu stundu, til að hindra að Grenada yrði bækistöð fyrir sovésk-kú- banskar árásir og hermdarverkastarfsemi á Karíbahafi og í Rómönsku-Ameríku. Máli sínu til sönnunar benti hann einkum á tvennt; millilandaflugvöll í smíðum og nokk- ur þúsund riffla í geymslum. Breska flug- vallaverktakafyrirtækið Plessey, aðalverk- taki við flugvallargerðina hjá Port Salins, var ekki seint á sér að afsanna fullyrðingar Bandaríkjaforseta. Benti það á að eldsneytis- geymslur vallarins eru ofanjarðar og flug- stöðin miðuð við farþegaflutninga. Þar á of- an hefur Plessey ríkisábyrgð ríkisstjórnar Bretlands fyrir sex milljóna sterlingspunda láni sínu til Grenada, og er þá skiljanlegt að ekki einu sinni Margaret Thatcher treystir sér til að koma Ronald Reagan til hjálpar í þessu máli. Rifflabirgðirnar í geymslum koma heim við fregnir af fyrsta þætti valdaránsins á Grenada. Þar kom fram, að áður en Maurice Bishop var hrakinn frá völdum og síðan myrtur, hafði hann aflað vopna til að koma á laggirnar allt að 20.000 manna heimavarn- arliði, sem borið hefði ægishjálm yfir 2000 manna her, sem var helsta valdatæki keppi- nauta hans í stjórnarflokknum. Bishop gerði sér í vor ferð til Washington í því skyni að reyna að fá Bandaríkjastjórn til að taka upp stjórnmálasamband við Gren- ada. Þar kom hann hvarvetna að lokuðum dyrum hjá valdhöfum. Charles Mathias, öld- ungadeildarmaður og flokksbróðir Reagans, gerir því skóna í frásðgn í Washington Post af komu Bishops í skrifstofu sína, að hefði þá verið á hann hlustað gæti framvindan á Grenada og í skiptúm þess og Bandaríkjanna hafa orðið önnur og heillavænlegri en raun varð á. Af yfir eittþúsund Bandaríkjamönnum á Grenada voru rúmlega 600 læknastúdentar, sem þangað leituðu af því þeir komust ekki inn í bandaríska læknaskóla. Reagan skýrði Bandaríkjamönnum frá því, að ein af ástæð- unum fyrir innrásinni væri að bjarga þeim frá voða. Frásagnir fréttamanna sem kom- ust til Grenada, þrátt fyrir viðleitni Banda- ríkjastjórnar til að hindra að nokkrar fréttir aðrar en þær sem hún skammtaði bærust frá eynni, bera með sér að eini háskinn sem að læknastúdentunum steðjaði var frá löndum þeirra í innrásarliðinu. Það var með svo vill- andi leiðbeiningar, foringjarnir til að mynda búnir Ijósrituðum túristakortum af eynni, að ein höfuðorustan stóð við annan af tveim stúdentagörðum sem vistuðu Bandaríkja- mennina. Innrásarforustan hafði ekki hug- mynd um að þeir dveldu á tveim stöðum. Frá Evrópu séð blasir við að Reagan réðst á Grenada til þess að hafa áhrif sér í vil á al- menningsálitið í Bandaríkjunum, þar sem hann hafði ekki tök á að svara á staðnum eftir Magnús Torfa Ólafsson sprengingunni í Beirut, sem varð að bana á þriðja hundrað bandarískum landgöngulið- um. Auk þess að þverbrjóta þýðingarmestu reglur alþjóðalaga, gerði hann ráðstafanir til að fara á bak við bresku stjórnina, svo hún gæti ekki í tæka tíð varað af fullum þunga við árás á samveldisland. Afleiðingarnar birtast í niðurstöðu skoðanakönnunar Sun- day Times. Sjötíu og þrír af hundraði full- tíða Breta telja ekki treystandi fyrirheiti Bandaríkjastjórnar um að beita ekki kjarn- orkuvopnum frá breskri grund að bresku stjórninni forspurðri. Frumhlaup Banda- ríkjaforseta kemur einmitt þegar hæst standa deilur í nokkrum Vestur-Evrópulönd- um, um það hvort taka eigi við mun öflugri bandarískum kjarnorkuvopnum en þeim sem fyrir eru. Og þótt Reagan komi vel út í skoðana- könnunum hjá löndum sínum, eru einnig aðrar raddir uppi í Bandaríkjunum. Tip O’NeilI, forseti Fulltrúadeildar þingsins og því áhrifamestur bandarískra stjórnmála- manna næst forsetanum, sagði um innrás- ina: „Einlæg skoðun mín er, að í tvö ár hafi ríkisstjórnin verið á gaegjum eftir tækifæri til að leggja í Grenada... Eg tel þetta einfaldlega rangt”. Kvíðinn í Vestur-Evrópu er enn meiri vegna þess, að eftir að sigur í ódýru stríði færir Reagan aukna lýðhylli heima fyrir, er hann vís til að halda áfram á sömu braut. Svo enn sé vitnað í Sunday Times frá síðasta sunnudegi, er þar að finna frétt á þá leið, að leyniþjónustan CIA stefni að því, með sam- þykki Reagans, að koma á laggirnar á ein- hverjum skika af Nicaragua ríkisstjórn á veg- um skæruliðahreyfinganna, sem CIA hefur gert út gegn stjórn Sandinista í landinu á annað ár. Bandaríkin og ríki þeim leiðitöm í Mið-Ameríku eiga síðan að viðurkenna þessa stjórn, og senda skal heri Mið-Ame- ríkuríkjanna inn í Nicaragua til liðs við hana. Þessu á að koma í kring áður en þetta ár er úti, hefur fréttamaður eftir bandarískum og evrópskum diplómötum. 6 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.