Helgarpósturinn - 03.12.1983, Blaðsíða 14
Þorstein O. Stephensen þekkja allir Islendingar sem komnir eru til vits og ára. Eng-
inn staöur er svo afskekktur og einsamall aö djúp og mild rödd hans hafi ekki borist
þangað á öldum Ijósvakans. Leikhúsgestir hafa notiö listar hans í fjörutíu ár, og von-
andi veröur svo enn um hríö. Tvívegis færöu gagnrýnendur honum hinn umdeilda
silfurlampa, og þeir eru ekki færri lamparnir sem hann á inni fyrir brautryöjanda-
starf sitt sem leiklistarstjóri útvarpsins. Þorsteinn er maöur meö einaröar skoöanir,
húmanisti af gamla skólanum, og oft hefur hann látiö álit sitt í Ijós á vettvangi dags-
ins — nú síöast er hann hóf upp raust sína á stofnfundi Friöarsamtaka listamanna.
eftir Sigríði Halldórsdóttur
— Þorsteinn Ó. Stephensen, voru þad áhrif
úr uppeldi þínu að þú fórst ad stunda teiklist?
„Nei, en hins vegar tel ég víst að þad sem
réði úrslitum hafi verið að ég fór að taka þátt
í leikritum í menntaskólanum. Ég ætlaði að
snúa baki við leiklistinni og fór í læknisfræði,
en einhvern veginn var ég kominn of nærri
henni til þess að geta snúið við henni baki.
Samt var ég hátt á þriðja ár í læknisfræði. Nú,
svo var ég heldur reikull í ráði, þangað til ég
fékk inngöngu í Konunglega í Kaupmanna-
höfn. Aður höfðu Anna Borg og Haraldur
Björnsson stundað þar nám. Við Regína Þórð-
ar vorum þar samtíða".
— Kom íþá daga ekki til greina ad fara ann-
ad en til Kaupmannahafnar?
„Jú, leikarar byrjuðu um þetta leyti að fara
til London, kannski hefðu þeir þó líka farið til
Kaupmannahafnar ef ekki hefði komið til ein-
hver þræsingur eftir skilnaðinn við Dani. Það
voru til nemendur sem fengu að gjalda hans
hjá kennurum sínum í Danmörku. En ég var
bara eitt ár úti, og hefði viljað vera lengur. En
kreppan var komin, ég var búinn að gifta mig
og eiga fyrsta barnið. Það voru engir peningar
til. Mér finnst ég alltaf hafa haft mikið gagn af
að kynnast þessu gamla og gróna leikhúsi". '
— Fékkstu eitthvað að gera þegar þú komst
heim?
„Ég fékk ekkert að gera og mér leist illa á
blikuna. Ég gat jafnvel ekki fengið verka-
mannavinnu. Að vísu lék ég eitt og eitt hlut-
verk hjá Leikfélaginu. Það var fyrir vinsemd
að ég fékk svo einhverja vinnu. Ég var svo
heppinn að Sigfús Sigurhjartarson sem var for-
maður útvarpsráðs hitti mig og sagði mér að
hann ætlaði að koma á fót samkeppni um að-
stoðarþul hjá útvarpinu. Ég fékk það starf“.
Hopp útí bláinn
— Þótti ekki hálfgert ábyrgðarleysi að lœra
leiklist í kreppunni?
„Jú, ég held fólki hafi fundist þetta hopp útí
bláinn. Leikfélagið hafði ekki einu sinni bol-
magn til þess að borga sínu fólki. En svo kom
að því að ég var ráðinn hjá útvarpinu sem þul-
ur. Ég fór jafnframt að leika í útvarpsleikritum
og stjórna þeim, en starfið var kvöldvinna, svo
það var óþægilegt að taka hlutverk á sviði".
— Verður leiklistardeild átvarpsins þá til?
„Ég held ég hafi orðið fyrstur til að taka það
orð uppí mig. En þegar leikrit höfðu verið
send út svona einu sinni í viku var leikstarf-
semi orðin svo stór þáttur í starfsemi útvarps-
ins að leiklistardeild mátti kallast stofnuð. Ætli
það hafi ekki verið 1946 að ég byrjaði sem um-
sjónarmaður leikritanna. Ég var þá búinn að
vera þulur lengi, en ég kunni því mjög illa að
geta ekki leikið í leikhúsum vegna kvöldvinnu
minnar. Þegar mér var svo falið að sjá um leik-
ritin hætti ég þuiarstarfi og gat farið að leika
með Leikfélaginu. Ég var þvi marki brenndur
eins og aðrir leikarar að þurfa að vilja leika á
leiksviði".
Hulin hönd
— Vinnudagurinn hefur þá oröið langur?
„Já, það er óhætt að segja, hann var langur
og illa launaður á báðum stöðum. Síðan kem-
ur að því að Þjóðleikhúsið losnar úr herkví.
Herinn hafði notað það fyrir birgðaskemmu.
Húsið var þá óinnréttað. Þá stofnum við Felag
íslenskra Ieikara, sem nú er orðið mikilsháttar
félag — ég, Haraldur Bjömsson, Lárus Pálsson
og fleiri. Við reyndum að ýta á stjórnvöld að
Þjóðleikhúsið yrði losað. Seinast gekk það nú
og farið var að vinna við innréttingar þess. Við
í Leikféiaginu lögðum starfsemina alveg niður
þennan vetur til þess að geta sameinað kraft-
ana í opnunarsýningu Þjóðleikhússins. Leik-
húsið opnaði svo að vorlagi rétt áður en leik-
árinu lauk, það var fjögurra eða sex vikna
dráttur á að það opnaði og mér hefur alltaf
fundist einsog einhver hulin hönd hafi stjórn-
að því að þessi nokkurra vikna töf varð, við
fengum góðan æfingatíma fyrir íslandsklukk-
una og fyrir bragðið var hún vel æfð. Og það
sem er vel æft verður alltaf betra en hitt“.
— Hvaða hlutverk lékstu þar?
„Þá var ég Arnas Arnæeus. Það má vel hafa
það með, að til allrar lukku datt mér í hug að
taka Klukkuna uppá segulband, nákvæmlega
einsog fyrsta sýningin var leikin. Sú saga er
lengri; Haraldur í Fálkanum fékk þá hugmynd
að gera plötu með þáttum úr íslenskum leikrit-
um. Ég stakk uppá köflum úr Klukkunni. Svo
hugsaði ég að gaman væri að narra Halla til
þess að taka allt stykkið uppá plötu. Hann var
tregur en gerði það og sagði mér seinna að
hann sæi ekki eftir því. Nú, við leikarar létum
það sem fékkst fyrir þessar leikritaplötur
renna í sjóði félagsins".
Kröfurnar um peninga
— Unnuð þið mikið kauplaust í þágu félags-
ins?
„Já, það var ríkjandi hugsunarháttur að
maður ætti ekki að hafa mikið uppúr list. Það
var ekki fyrr en seinna, eftir að við stofnuðum
stéttarfélag, að við fengum störf okkar laun-
uð. Þú þarft ekki að stinga því inn, en ég hef
tilhneigingu til að segja frá því samt, að stund-
um hafi mér fundist kröfurnar um peninga
taka fullmikið pláss hjá sumum. Þetta er atriði
sem ég hef hugsað dálítið um og orðið fyrir
hrellingu af. Það kemur niður á vandvirkni við
leiksýningar. Peningakröfur slæva þann
áhuga sem verður að vera fyrst og fremst á
sjálfri listinni".
— Þegar Þjóðleikhúsið var stofnað vildu þá
ekki allir fara þangað að sjá leikrit og leika
þar?
„Nei, síður en svo. Þó voru margir sem-vildu
leggja Leikfélagið niður. En nokkur vorum við
sem töldum að Þjóðleikhúsið hefði gott af því
að hafa annað leikhús að keppa við. Og við í
Leikfélaginu vorum dugleg og heppin þetta
fyrsta samkeppnisár".
— Hvers vegna sóttir þú ekki um stöðu við
Þjóðleikhúsið?
„Það voru tvær ástæður fyrir því. Ég var
starfsmaður hjá útvarpinu, en önnur ástæðan
var sú, að ég var ekkert mjög hrifinn af því
hvernig Þjóðleikhúsinu var ýtt úr vör. Einsog
ég sagði áðan, þá vorum við dugleg og heppin
hjá Leikfélaginu. Ég vildi fá yngri mann til
þess að veita Leikfélaginu forstöðu. Einar
Pálsson var þá nýkominn frá námi í London.
Ég hringdi í hann þar sem hann var staddur í
Vestmannaeyjum á lítilli flugvél sem hann
átti, og bað hann að taka að sér formennsku
í Leikfélagi Reykjavíkur. Hann var a.m.k. 4—5
ár og vann af miklum dugnaði. Þennan fyrsta
vetur vorum við með gamanleik sem hét
„Elsku Rut“, í honum var útlendur hermaður
og féll það vel í kramið hjá leikhúsgestum. Hér
var þá allt fullt af útlendum hermönnum. Nú
hér var svo staddur danskur maður, Gunnar
Hansen. Vanur leikhúsmaður og góður. Við
réðum hann til starfa strax um haustið. Hann
átti uppástunguna að því að við lékum „Mar-
marann" eftir Guðmund Kamban á þessum
jólum undir hans leikstjórn einsog „Elsku
Rut“. Það var venjan að leika meiriháttar leik-
rit um jól. Gunnar Hansen og Guðmundur
Kamban voru miklir vinir og höfðu rekið sam-
an leikhús einn vetur útí Kaupmannahöfn.
Þessi sýning Marmarans var óhemju ve! sótt.
Þá slógum við því föstu að eftir þennan vetur
væri Leikfélagið leikhús sem þurfti að lifa.
Áratuginn 50—60 starfaði ég ákaflega mikið
með Leikfélaginu. Fólk leit til okkar sem nauð-
synlegs og æskilegs leikhúss".
Ursögn úr Leikfélaginu
— Varð rígur milli leikhúsanna?
„Þessi áratugur varð náttúrlega sam-
keppnistímabil. En samkeppnisandinn varð of
mikill. Mér fannst leikhúsin ættu að hafa lipra
samvinnu. Það voru settir upp svona og svona
miklir peningar fyrir að fá iánaðan Ieikara.
Leikhúsunum var þetta útlátalaust. Það lét
auðvitað enginn mann nema hann væri
ekkert að gera þá stundina. Þeir urðu ógur-
lega miklir heimamenn í Þjóðleikhúsinu, urðu
stórir".
— Þú starfaðir mikið hjá L.R. til 1960, en
hvaö svo?
„Ég vildi ekki vera í stjórn Leikfélagsins. Ég
vildi láta yngri menn þar. En ég vildi hafa sam-
ráð við þá og í leikritavalsnefnd sem við vor-
um tveir í hafði ég það. En meðan ég var er-
lendis var sú nefnd lögð niður, að mér for-
spurðum. Um leið var ég slitinn úr öllum
tengslum. Mín þykkja var sprottin af því að ég
þóttist vera búinn að leggja fram alla krafta
mína til þess að Leikfélagið gæti starfað
áfram. Mér sárnaði þetta og varð reiður. Eftir
nokkurn tíma, þegar ég sá framá að andrúms-
loftið milli mín og félagsins yrði óþolandi, þá
sagði ég mig úr því".
— Varðstu þá „frílans" leikari?
„Ég var það alltaf. Ég hef aldrei verið fastur
starfsmaður við leikhús. Meðan ég var ungur
og þrekmikill fannst mér ég geta, þrátt fyrir
fullt starf, tekið að mér aukahlutverk í leikhús-
unum".
— Leiddist þér ekki að fara frá leikhúsinu?
„Jú, mér fannst leiðinlegt að yfirgefa leik-
húsið, en ég hélt áfram að leika eitt og eitt
hlutverk".
— Reyndu þeir ekkert að ná sáttum við þig?
„Eiginlega reyndu þeir það, en aldrei í þeim
tón sem mér féll. Ég býst við að reiði mín hafi
verið aðeins um of. En hvað á skapríkur mað-
ur að gera? Síðan hef ég ekki leikið nema eftir
beiðni, eitt og eitt hlutverk, ef leikstjóri eða
höfundur báðu mig, þá lék ég“.
Leikarar í skúffum
Þorsteinn Ö. tekur vænt í nefið meðan Ijós-
myndarinn gerir klárt. „Ég fór að taka í nefið
þegar ég fékk helvítis asmann, þá varð ég að
hætta við sígaretturnar,einsog ég hafði góðar
endurminningar um þær“, og hann horfir blíð-
ur útum gluggann. Óg pressarinn sem bauð
símaskránni í Dúfnaveislu er þarna ljóslifandi
að syrgja sígaretturæfil af öllum hlutum þessa
heims. „Dúfnaveislan er eina leikritið sem
hefur verið skrifað á móti peningastofnun",
segir Þorsteinn. En pressari Þorsteinn þótti
dásamlegur, einsog konan sagði, „almáttug-
ur, hann lék einsog orgel".
— Langar leikara að leika einhverjar
ákveðnar rullur?
„Ég held það sé ekki eins mikil ástríða hjá
leikurum og ætla mætti, en það er kannski of
mikið af því að ákveðnir leikarar séu settir í
skúffu og dregnir fram til þess að leika alltaf
mjög svipuð hlutverk".
— Er til svo andstyggilegt hlutverk, svo
hroðalega ógeðsleg persóna að fólki verði illt
af að leika hana?
„Nei. Mönnum líður í hæstalagi illa í hlut-
verki ef þeir valda því ekki. Ég lék nú alltaf
mikið í útvarpi. Einu sinni lék ég eitthvert ill-
menni. Þá hafði kona utan af landi samband
við mig og tók af mér loforð um að leika ekki
svona vondan mann framar".
— Hvernig kunnirðu við kvikmyndaleikinn
hérna um árið?
„Já, í Brekkukotsannál. Ég var óskaplega
hræddur við það. Ég var líka lasinn, nýkom-
inn út af spítala. Ég man hvað ég var ógurlega
nervös þegar ég var kallaður í fyrstu töku. Mér
þóttu ákaflega þreytandi þessar mörgu tökur
á sama hlutnum. En ég kunni ágætlega við
Þjóðverjana. Hádrich leikstjóri var prýðilegur
að vinna með. Það sem mér líkaði best var
hvað hann skipti sér lítið af manni. Maður fékk
að leika það sem manni bjó í brjósti. Einu sinni
varð okkur sundurorða. Þú manst eftir karlin-
um sem stal mónum? Hann kemur svo aftur
að skila Birni pokanum, og eftir handritinu átti
Björn að ýta honum á undan sér uppað kál-
garðsvegg. Helgi Skúlason var karlinn. Hád-
rich var aldrei ánægður með hvernig ég ýtti
karlinum á kálgarðsvegginn. Endirinn varð sá
að ég lét undan og hrinti karlinum mílitarískt,
hörkulega á vegginn. Það hefði Björn í
Brekkukoti aldrei gert. Þetta er eina atriðið
sem ég kann ekki við í myndinni".
Montið í Seðlabankanum
— Er ekki bygging Seðlabankans ofarlega í
huga þér?
„Jú“, segir hann heilshugar. „Það er mér
gríðarlegt áhugamál að knésetja þennan
banka. Framanaf gekk baráttan útá það að
verið var að byggja ljótt hús fyrir fagurt út-
sýni. Núna snýst baráttan um hvort hægt sé að
byggja svona kastala einsog á stendur í þjóð-
félaginu. Banki getur verið allsstaðar. Bankar
eiga að vera afsíðis,einsog Gunnar Gunnars-
son sagði. Monthús kallaði Halldór Laxness
það, hann studdi okkur í baráttunni þarna um
árið. Ég skil ekki þessa áráttu hjá Jóhannesi
Nordal með þessa bankabyggingu. Nákunn-
ugur Seðlabankanum sagði mér, að þetta væri
til þess að halda kampavínslönsa og hafa þar
sánaböð og billíarda. Meðan Seðlabankinn
var til húsa í Landsbankanum var sagt að
hann hafi komist fyrir í einni skrifborðs-
skúffu".
— Gleymdu stjórnmálamennirnir því að
fólk mótmœlti þessari byggingu hástöfum fyr-
ir nokkrum árum?
„Ég hélt þessu nú alltaf vakandi með vissu
millibili, bæði í útvarpi og með skrifum í blöð.
Ég undrast það hvað stjórnvöld gátu þagað
kyrfilega um þetta mál sem almenningur
sýndi með undirskriftum sínum að honum féll
mjög illa. Stjórnmálamenn virðast hræddir
við Jóhannes Nordal og fá í hnén ef hann kem-
ur inn í stofu. Bankamálaráðherrar hafa
ekkert blandað sér í þetta, það er óhætt að
segja að marga langar að fá skýringu á því
hvernig bankinn á fyrir þessu. Hvaðan eru
þeir peningar komnir? Ágætur sjálfstæðis-
maður stakk því að mér á útifundi á Lækjar-
torgi einhverntíma að sér fyndist að Seðla-
bankinn ætti að hætta við húsið sitt á þessum
stað, stjórnvöld ættu að leggja niður Fram-
kvæmdastofnunina sem hefur þegar reist sér
mikla húsbyggingu og láta bankann fá hana.