Helgarpósturinn - 03.12.1983, Blaðsíða 10
Viö skrifum Helgarpóstinn
Við sem önnumst föst skrif í Helgarpóstinn sendum lesendum
bestukveðjur núþegar blaðið okkar er komið í nýjan búning
Arni Þórarinsson
ritstjóri
Ingólfur Margeirsson
ritstjóri
l_____________t_j_
Hallgrímur
Thorsteinsson
ritstjórnarfulltrúi
Kristln Astgeirsdóttir Egill Helgason
blaðamaður blaðamaður
Björn Br. Björnsson
útlitsteiknari
Björgvin Ólafsson Jim Smart
útlitsteiknari Ijósmyndari
Hildur Finnsdóttir Magnús Torfi Olafsson Gisli Helgason
prófarkalesari erlend málefni útvarp
Guðbergur Bergsson
myndlist
Heimir Pálsson bók- Gunnlaugur Astgeirs- Sigurður Svavarsson Árni Óskarsson
menntir og Hringborð son bókmenntir bókmenntir bókmenntir
Jón Viðar Jónsson
‘ bókmenntir
Sigurður Pálsson
leiklist
Páll Baldvin Baldvins- Lárus Ýmir Óskarsson Guðjón Arngrimsson Árni Björnsson
son leiklist kvikmyndir kvikmyndir slgild tónlist
Gunnlaugur Sigfússon Vernharður Linnet
popp jazz
Björn Vignir Sigurpáls- Guðmundur Arnlaugs- Friðrik Dungal bridge Jóhanna Sveinsdótfir Auður Haralds
son fjölmiðlun son skák matargerðarllst Hringborð
Pétur Gunnarsson
Hringborð
Sigurður A. Magnús- Hrafn Gunnlaugsson Jón Baldvin Hannibals- Sigrlður Halldórsdóttir Jónas Jónasson
son Hringborö Hringborð son Hringborö Hringborð Hringborð
Magnea J. Matthlas-
dóttir Hringborð
BREF TIL RITSTJORNAR
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar: Árni Þórarinsson
og Ingólfur Margeirsson
Ritstjórnarf ulltrúi:
Hallgrfmur Thorsteinsson
Biaðamenn: Egill Helgason
og Kristln Ástgeirsdóttir
Útlit: Björn Br. Björnsson,
Björgvin Ólafsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Hildur Finnsdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f.
Framkvæmdastjóri:
Guömundur H. Jóhannesson
Augiýsingar:
Áslaug G. Nielsen
Skrifstofustjóri:
Ingvar Halldórsson
Innheimta:
Jóhanna Hilmarsdóttir
Afgreiðsla: Þóra Nielsen
Lausasöluverð kr. 30.
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavlk, slmi
8-15-11. Afgreiðsla og skrif-
stofa eru að Ármúla 36. Simi
8-15-11.
Setning og umbrot:
Alprent hf.
Prentun: Blaöaprent hf.
Endurnýjun
Helgarpósturinn hefur æv-
inlega verið höfuðverkur fyrir
okkur sem unnið höfum að
blaðinu gegnum tíðina. Að
vísu skemmtilegur og skap-
andi höfuðverkur, en höfuð-
verkursamt. Blaðaf þessu tagi
er nefnilega ákaflega kröfu-
hart. Það er til þess ætlast að
hvert tölublaö sé ferskt, — að
efni og efnistök séu að ein-
hverju leyti með öðrum hætti
en tiðkast f öðrum blöðum.
Stundum hefur okkur starfs-
mönnum blaðsins lánast að
mætaþeim kröfum sem blaöið
gerir, stundum ekki, eins og
gengur. En einmitt þessi stöð-
uga glfma viö lifrænt form og
efni gerir það skemmtilegt að
fást við blaðamennsku á Helg-
arpóstinum. Og vonandi að
lesa hann llka.
Ef þeim tæplega fimm ár-
göngum sem núeru til af Helg-
arpóstinum er flett þá kemur í
Ijós að þrátt fyrir vissa form-
festu hefur blaðið tekið stöð-
ugum breytingum, ekki stór-
stígum að vísu, en hægum,
jafnt og þétt. Flestir af þeim
föstu liðum sem i blaðinu hafa
verið nánast frá byrjun eru enn
I farangrinum, en aðrir hafa
bæst við. Þessir þættir hafa
margir hverjLr blásið Iffi I hér-
lenda blaöamennsku og orðið
öðrum blööum fyrirmynd.
Nægir þar að nefna sem dæmi
harðskeytt fréttaviðtöl á borð
við Yfirheyrsluna, smáfrétta-
klausurnar sem stundum eru
kallaðar „slúður“ en eru I
reynd óstaðfestar fréttir, pró-
fllana af fólki í fréttunum sem
nefnast Nærmyndir og koma
út á bók núna fyrir jólin, spé-
spegilinn Aðalblaðió, og ekki
síst fréttaskýringar og rann-
sóknarblaðamennskugrein-
arnar.
Þetta43. tölublað 5. árgangs
Helgarpóstsins birtist nú i
nýjum búningi. Björn Björns-
son útlitsteiknari blaðsins
hefurátt heiðurinn að hönnun
þess og hefur hann iinnið að
breytingunni siðan í sumar, í
nánu samstarfi við ritstjórn.
Við teljum að sú uppskrift sem
blaöið hefur verið unnið eftir
frá upphafi standist vel tím-
ans tönn, en aftur á móti þarfn-
ast hráefni og úrvinnsla reglu-
bundinnar endurnýjunar. Við
hristum nú upp I sjálfum okk-
ur, og ykkur lesendum um leið.
Fyrir skömmu urðu þau
tfmamót i útgáfu Helgarpósts-
ins að starfsmenn þess tóku
alfarið við rekstri þess. Blaöiö
er nú hið eina hérlendis sem
nýtur þess sjálfstæðis á öllum
sviðum sem nútíma blaöa-
mennska I raun og veru krefst.
Þær breytingar sem í dag
verðaáþessublaðieru til þess
ætlaðár að aukaog undirstrika
þá sérstöðu sem Helgarpóst-
urinn hefurá islenskum blaöa-
markaði. Við vonum að þær
mælist vel fyrir hjá lesendum.
Helgarpósturinn hefur á síð-
ustu mánuðum verið f sókn
hvað sölu varðar. Aðeins með
þvl að sú sókn haldi áfram get-
ur hins vegar sérstaða blaðs-
ins orðið trygg. Helgarpóstur-
inn er óháður öllu öðru en les-
endum sinum. Og auövitað
okkur sem skrifum hann og
rekum.
Og enn
um Grund
Á undanförnum árum höfum
við undirrituð haft náið samstarf
innan öldrunarþjónustunnar í
Reykjavík, sem starfandi aðilar í
heimilishjálp, heimahjúkrun og á
Öldrunarlækningadeildum Land-
spítalans og Borgarspítalans. Við
viljum lýsa vanþóknun okkar á
skrifum þeim sem birtust í Helgar-
póstinumþann20. okt. 1983 varð-
andi Elli- og hjúkrunarheimilið
Grund og teljum þau mjög vill-
andi, auk þess sem skrif af þessu
tagi eru ekki ávinningur fyrir
öldrunarþjónustuna í landinu.
Við höfum haft gott samstarf við
Grund og vitum að stofnunin hef-
ur leyst úr vanda fjölda einstakl-
inga, sem ekki gátu lengur dvalist
í heimahúsum sökum ellihrum-
leika og að þessi stofnun hefur
unnið merkt brautryðjandastarf á
sviði öldrunarþjónustunnar.
Það er að vísu þörf á að vekja
athygli á málefnum aldraðra, en
ekki með þeim hætti sem gert er
í umræddri grein.
Virðingarfyllst,
Arsæll Jónsson, læknir Öldr-
unarlækningadeild Bsp.
Ástríður Karlsdóttir Tynes,
hjúkrunarframkv. stj., Heima-
hjúkrun.
Jónína Pétursdóttir, forstöðu-
maður við heimilishjálp.
Sigurveig H. Sigurðardóttir,
félagsráðgjafi Öldrunarlækninga-
deild Lsp.
Þór Halldórsson, yfirlæknir
Öldrunarlækningadeild Lsp.
Það er undarlegt að þurfa að
ítreka eina ferðina enn að í grein
Helgarpóstsins kom ekki fram
vanmat á „merku brautryðjanda-
starfi á sviði öldrunarþjónustu"
sem unnið hefur verið á Grund.
Það var aðeins bent á viss vanda-
mál sem við er að glíma. Að öðru
leyti er blaðinu að sjálfsögðu Ijúft
að birta þessa athugasemd, en
hefði óneitanlega talið gagnlegra
að „vanþóknuninni" hefði fylgt
einhver rökstuðningur. Er það þó
í stíl við þá viðkvæmni sem ævin-
lega virðist koma upp þegar á
þessa stofnun er minnst með öðru
en hallelúja.
Ritstj.
10 HELGARPÓSTURINN