Helgarpósturinn - 03.12.1983, Blaðsíða 9
Byrjum aftur frá grunni
eftir: Hailgrím Thorsteinsson myndir: Jim Smart
Bandalag jafnadarmanna heldur fyrsta landsþing sitt í Munaðarnesi um
helgina. Fyrir þinginu liggur ad ganga frá skipulagsmálum bandalagsins og
þar med forystumálunum—ákveða hvort Bandalag jafnaöarmanna skuli
hafa formann og þá hvern. Þrátt fyrir aö Bandalag jafnaöarmanna hafi ver-
ið alláberandi þingflokkur t haust sýndi nýleg skoöanakönnun DV mikið
fylgistap þess meðal kjósenda, aö það myndi e.t.v. ekki fá neinn mann á
þing efkosiðyrði nú. Bandalag jafnaðarmanna virðist eiga erfitt uppdráttar
eftirfráfall Vilmundar Gylfassonar, leiðtoga þess, ísumar. hvar er Bandalag
jafnaðarmanna á vegi statt nú? Stefán Benediktsson, þingmaður þess, er í
yfirheyrslu HP í dag.
— Hvað er Bandalag jafnaðarmanna
annað en veikburða smáflokkur í mátt-
lítilli stjónarandstöðu?
Bandalag jafnaðarmannahefur reynd-
ar mjög háieit markmið en ekki nema
fjóra þingmenn. Þessa dagana höfum
við orðið vör við vaxandi áhuga fólks á
málefnum okkar og það eykur mönnum
kjark. Miðað við aðstæður núna er auð-
vitað ekki viö því að búast að við komum
miklu af okkar stefnumálum fram á
þingi. Engu að síður finnst okkur jafn
nauösynlegt að berjast fyrir markmið-
um beins lýðræðis og vinna málefnum
okkar fylgi með einarðri og heiðarlegri
baráttu á þingi.
— Hvar hefur þessi áhugi fólks á mál-
efnum ykkar birst?
Eins og þú veist þá er Bandalag jafn-
aðarmanna ekki flokkur, heldur laus-
tengd samtökeinstaklingaog félagaog
þau viðbrögð sem við verðum vör við
birtast f því að fólk kemur að máli við
okkur, annað hvort á opnum þingflokks-
fundum eða þaö hringir til okkar. Við
höfum einnig farið út á land til þess aó
hitta fóik, sem veitti okkur stuðning t
kosningabaráttunni og vill halda barátt-
unni fyrir málefnum okkar áfram.
— Nú er erfitt fyrir smáflokka eins og
Bandalag jafnaðarmanna að vinna að
stórtækum málefnum eins og „beinu
lýðræði.“ Er þetta ekki óraunhæf
stefnumörkun hjá svona litlum flokki?
Án þess að vilja draga nokkrar samlík-
ingar, þá vii ég benda á það, að f lest allgr
hugmyndir hafa byrjað smátt, jafnvel út
frá einum einstaklingi.Stjórnmálabar-
átta undanfarinna ára hefur einkum og'
sér I lagi beinst að baráttu fyrir hags-
munum afmarkaðra hópa innan þjóðfé-
lagsins. Við teljum hins vegar að það að
berjast fyrir því að fólkið almennt, þ.e.a.
s. sem flestir, geti orðið virkir þátttak-
endur I mótun þjóðfélagsstefnu sé það
mikilvægt markmið eins og staöan er i
málum okkar íslendinga í dag, að við
verðum að vinna hugmyndinni fylgi
með því að halda baráttunni áfram.
— Niðurstöður í nýlegri skoðana-
könnun DV gefa til kynna að Bandalag
jafnaðarmanna myndi detta af þingi ef
kosið yrði núna. Hefur stuðningsfólk
ykkar yfirgefið ykkur?
Það er erfitt að meta stöðuna þegar
farið er aö mæla jafn lítið fylgi og
Bandalag jafnaöarmanna haföi, og sér-
staklega þegar það er minnkandi. Það
getur oltið á einum eða tveimur mönn-
um i svona könnun hvorum megin
hryggjar maður liggur. En ég held að frá-
fall Vilmundar Gylfasonar geri það að
verkum að fólk biði nú átekta og vilji fá
reynslu af þingflokknum áður en þaö
tekur afstöðu til Bandalagsins.
— Fram hjá því verður ekki litið, að
Vilmundur Gylfason átti drýgstan þátt í
stofnun og stefnumörkun Bandalags
jafnaðarmanna. Sumir segja að Banda-
lag jaf naðarmanna haf i verið Vilmundur
Gylfason. Nær Bandalag jafnaðarmanna
sér aftur á strik eftir fráfall hans?'
Það verðurtlminn að skeraúrum. Frá-
fall Vilmundar Gylfasonar hefur óneit-
anlega þau áhrif, að það fólk sem tekur
við af honum verður að byrja, að vissu
marki, aftur frá grunni, a.m.k. hvað því
viðvíkur að kynna sig og baráttukraft
sinn með þeim hætti, að fólk treysti því
að þeiraðilar sem koma fram fyrir hönd
Bandalagsins séu líklegir til þess að
vinna að framgangi þeirra málefna sem
það berst fyrir.
— Þetta leiðir hugann aö forystumál-
um flokksins. Nú heldur Bandalag jafn-
aðarmanna fyrsta landsþing sitt um
þessa helgi. Ætlið þið að kjósa ykkur
formann og varaformann eins og gömlu
stjórnmálaflokkarnir?
Það er alls ekki úr þvf skorið enn. Það
fæst fyrst niðurstaða I þvl á landsþing-
inu sjálfu. Þetta er algerlega undir þvl
komið hvernig skipulag Bandalagið
velur sér I framtíðinni.
— Hefur þá Bandalag jafnaðarmanna
ekki valið sér neitt stjórnarform hingað
til — orðin ársgömul samtök?
Nei. Að vísu segir í málefnagrundvelli
að Bandalag jafnaðarmanna sé laus-
tengd samtök einstaklinga og félaga og
það verður grundvallarsjónarmiðið á-
fram. En auóvitað eru uppi mismunandi
skoðanir um það hvemig eigi að fram-
kvæma slíka hluti. Tilgangur lands-
þingsins er fyrst og fremst að skera úr
um þessi mál og þá fyrst kemur það
fram hvort talið verður eðlilegt að koma
upp skipulagi þar sem formaður gegnir
hugsanlega einhverju mikilvægu hlut-
verki.
— Áttu von á meíriháttar átökum um
þessi mál á þessu þingi?
Ég á von á heilmiklum málefnalegum
umræðum um þau en ekki neinum stór-
felldum átökum.
— Þið hafið ekkert málgagn. Er ekki
hætta á því að þiö leggið ótilhlýðilega
mikla áherslu á þau mál á þingi sem að-
eins eru til þess fallin að vekja á ykkur
athygli, komast í fréttir?
Málgagnsleysi er auóvitað mjög mik-
iö vandamál. Það er afskapiega mikill á-
hugi á þvi innan Bandalagsins að
hleypa af stokkunum einhvers konar
málgagni og um það verður einnig rætt
álandsþinginu. Það er líklega útséð gm
það, að við getum með nokkru móti
staðið undir dagblaði, eða jafnvel viku-
riti.Þannig að ég tel liklegast að niður-
staðan verði útgáfa rits, sem kemur út á
mánaðar fresti eða jafnvel aðeins árs-
fjórðungslega. Þetta gerir það náttúr-
lega að verkum að slíkt rit myndi verða
með nokkuð öðru sniói en venja er um
flokksmálgögn. En menn verða að horf-
ast i augu við staðreyndir. Það kostar
mikið fé að halda úti málgagni og enn
sem komið er er það fjármagn ekki fyrir
hendi hjá Bandalaginu. í sjálfu sér sé ég
það ekki sem algjöra synd þó að maður
veki eftirtekt á sér á Alþingi. En auövit-
að set ég mér það skilyrði sjálfur, sem
og aðrir þingmenn Bandaiagsins, að
þau málefni sem við förum fram fyrir
skipti einhverju fyrir land og þjóð.
— Það hefur lítið borið á samstarfi
stjórnarandstöðuflokkanna á þessu
þingi. Getið þið átt samstarf við hina
stjórnarandstöðuflokkana og er nauð-
syn á samstarfi?
Samstaða stjórnarandstöðunnar
gagnvart stjórnarflokkunum hefur auð-
vitað ákveöinn tilgang. Nú er það bara
þannig að flokkar I stjórnarandstöðu
hafa mjög mismunandi málefnagrund-
völl að byggja á, og það útilokar sam-
runa þeirra. En við höfum marglýst þvl
yfir, og í raun starfað samkvæmt því, að
samvinna okkar við aðra á málefnaleg-
um grundvelli er möguleiki sem er alltaf
fyrir hendi. Hins vegar erum við auðvit-
að ekki reiðubúin aö gefa okkar sér-
stöðu upp á bátinn.
— Sumir Alþýðuflokksmenn telja að
ekki þurfi nema grænt ljós frá ykkur til
að viðræður geti hafist milli ykkar og
Alþýðuflokksins um náið samstarf og
jafnvel sameiningu. Hver er ykkar af-
staða í þessu máli?
Bandalag jafnaðarmanna er jafnaðar-
mannaflokkur — og að því leyti skyldur
Alþýöuflokknum — en eins og stendur
er ekki nokkur áhugi á því innan Banda-
lags jafnaðarmanna að stofna til sam-
vinnu eöa samruna við Alþýðuflokkinn,
og því tel ég það algjörlega útilokað.
— Er það styrkur ykkar eða veikleiki
að vera nýr flokkur á Alþingi?
Ef maður lítur á reynslu sem nauðsyn
fyrir afköstum og getu á þingi, þá er það
veikleiki, en styrkur okkar felst I því að
við erum ekki bundin af hagsmuna-
tengslum og getum því starfað óháð og
án utanaökomandi þrýstings.
— Hvernig hefur sú nýjung ykkar gef-
ist að halda „opna“ þingflokksfundi?
Hún hefur gefist mjög vel hingað til.
það hefur veriö mjög vel mætt. Þetta er
nýjung sem sjálfsagt tekur fólk ákveð-
inn tíma að átta sig á. Menn hafa ekki
ennþá nýtt sér þann möguleika sem op-
inn fundur með þingmönnum meö
þessum hætti gefur, þ.e.a.s. að koma
málum sfnum á framfæri við þingmenn
og nýta sér þá sem farveg í baráttu fyrir
mikilvægum málum.
— Tefur þetta ekkert ykkar störf?
Ég sé okkar starf fyrst og fremst sem
farveg fyrir fólk.
— Nýtur lýðræðiö góðs af þessu?
Það held ég að hægt sé að fullyrða.
Það eykst með þessu.
nafn: Stefán Benediktsson
fæddur: 20.10. 1941 bíll: Renault 18 árg. 1980
heimili: Bauganes 9, Reykjavík
heimilishagir: Giftur Drífu Kristinsdóttur, 4 börn
staða: Þingmaöur (arkitekt)
áhugamál: Atvinna mín
YFIRHEYRSLA
HELGARPÓSTURINN 9