Helgarpósturinn - 03.12.1983, Page 21

Helgarpósturinn - 03.12.1983, Page 21
Njósnamál í Moskvu Njósnamál þykja forvitnileg og spennandi, samanber allar þær kvikmyndir og sjónvarpsseríur sem gerðar eru um þau mál. Um þessar mundir velta Bretar fyrir sér rétt einu njósnamálinu sem varðar breska þegna. Breskur kaupsýslu- maður sem sá um viðskipti við Sovétríkin fannst látinn fyrir utan heimili sitt í Moskvu í júní sl. Skömmu áður hafði hann sagt starfsmönnum breska sendiráðsins frá því að hann vissi af njósnara inn- an sendiráðsins. Forsaga málsins er sú að Bretinn Dennis Skinner kynntist sovéskri konu er hann var á ferð í Moskvu ár- ið 1968. Þau kynni leiddu til hjóna- bands, en eftir því sem sagan segir varð Skinner brátt ljóst að konan hafði verið send á hann af KGB. Þeirra samfarir urðu þó góðar og fæddist þeim einn sonur.Þau fluttu á milli Sovét og Englands eftir því sem þurfa þótti, en sl. vor tók gamanið að kárna. Skinner komst að einhverju sem varðaði breska sendiráðið, kom því til skila, en jafn- framt að hann teldi líf sitt í hættu. Hinn 17. júní fannst Skinner látinn og síðan hefur rannsókn málsins staðið yfir, án þess að breskum fjöl- miðlum hafi tekist að komast að því hvað að baki liggur. Sendiráðs- menn og leyniþjónustan vita þó sennilega hvað hangir á spýtunni. Milljón pund á dag Þeir sem þekkja söguna um Oli- ver Twist minnast eflaust þjófa- hópsins hans Fagins sem laumaðist í hvern þann vasa sem fyrir þeim varð. Breskum þjófum hefur ekki farið aftur. í listinni, heldur hafa tryggingafélög vart undan að greiða tjón vegna innbrota og þjófn- aða. Samkvæmt nýjustu fréttum nema greiðslur einni milljón punda á dag. Og hvað er það sem freistar þjófanna helst? Jú.Videótæki og spólur. Fréttafulltrúinn látinn fara Jane Fonda er ein þekktasta leik- kona Bandaríkjanna, en hún heíur unnið sér fleira til frægðar. Hún hvetur konur heimsins til að teygja úr skönkunum og halda sér í formi og hún hefur löngum verið þekkt fyrir að láta í sér heyra um pólitík og þjóðþrifamál. Þegar þau tíðindi gerðust að fyrsta bandaríska konan fór út í geiminn mætti Jane í boðið sem haldið var eftir á til að fagna geimskotinu. Fréttafulltrúi hins opinbera á staðnum lýsti yfir ánægju sinni með komu leikkon- unnar, en það féll ekki í kramið hjá talsmönnum Reagans Bandaríkja- forseta; Jane þykir nefnilega ekki æskileg í opinberum veislum og fréttafulltrúinn sem tók henni svona vel var látinn fara. Horfni hertoginn Fyrir níu árum hvarf enskur lávarður, Lucan að nafni. Bíll hans fannst, en hvorki tangur né tetur af manninum. Fóstran á heimili hans hafði verið myrt og hvarf lávarðar- ins var eðlilega tengt morðinu. Þetta væri ekki í frásögur færandi nema vegna þess að á þessum níu árum hafa menn þóst sjá lávarðin- um bregða fyrir í ýmsum borgum Afríku og S—Ameríku eins og gjarn- an gerist með slíka huldumenn. Ný- lega þóttist einhver bera kennsl á hann í Höfðaborg í S—Afríku þar sem hann sat og sötraði á veitipga- húsi. jafnframt því að vera að biðja konu nokkurrar. Lögreglan er að rannsaka málið, en hefur ekki haft neitt upp úr krafsinu enn sem kom- ið er. Bresku blöðin sýna málinu mikinn áhuga-skyldi það vera vegna þess að ekki er nóg með að maðurinn sé lord, hann er hertogi líka? Þegar aðallinn breski tekur sig til og gerir eitthvað, jafnvel hverfur, stendur ekki á pressunni að blása það út. Væntanleg næstu daga Benjamín Eiríksson. Háskólanám í Berlínog Moskvu 1932-38. Fil.cand. í hagfræði og slavneskum málum og bókmenntum við háskólann í Stokk- hólmi 1938; Meistaragráða í hagfræði og stjórnmálafræði við ríkisháskól- ann í Minnesota 1944. Doktorsgráða i hagfræði frá Harward 1946. Starfs- maður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Washington DC 1946-51. Ráðunautur ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum 1951 -53. Bankastjóri Framkvæmda- bankans 1953 - 1965. eftir Dr. Benjamín Eiríksson „Ég er “ eftir Dr. Benjamín Eiríksson, ermikil bókaö vöxtum, áfimmtahundr- aö blaösíöur, auk ríkulegs myndefnis úr einkalífi og náms- og starfsferli dokt- orsins hér heima og í þágu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Framkvæmda- bankans fyrr á árum. Dr. Benjamín stundaöi öll algeng störf, eyrarvinnu og sjómennsku framan af ævi meðfram glæstum námsferli viö sex erlenda há- skóla, og móta þessi fjölbreyttu kynni af þjóðlífinu öll efnistök hagfræðingsins. Allar hinar stórsnjöllu greinar dr. Benjamíns um efnahagsmál í blöö og tímarit á síöustu fimm árum er aö finna í bókinni, en doktornum er gefin sú gáfa aö reiöa fram flókin efnahagsmál á svo Ijósu og bragðmiklu alþýðumáli, og raunar meinfyndnu, aö auöskiljanleg eru hverju mannsbarni. Meira en helmingur bókarefnisins er áöur óbirt efni, meö fjölbreyttu ívafi endurminninga frá ýmsum skeiðum viöburöarríkrar ævi, en Dr. Benjamín dvaldi m.a. langdvölum við háskólana í Berlín og Moskvu, frá 1932 til 1938, hinum miklu umbrotatíriuííri kommúnisma og nasisma. Meöal annars eldfims efnis eru fjölmörg áöur óbirt skrif, svo sem Gegn guðlasti Halldórs Laxness, Gegn söguskoöun Halldórs Laxness og gegn guðfræöi þeirra Sigurbjörns Einarssonar biskups, dr. Jakobs Jónssonar og prófessors Þóris Kr. Þóröar- sonar. Ogdr. Benjamínskrifarumþjóösönginn, og hann skrifarum Véranirog Þéranir, Mál og málnotkun, Ljóöaóhljóö, Af Sjónarhóli manns, Af sjónarhóli Guös, Hefndin og endurkoman, Gullkranarniro.s.frv., o.s.frv., og erþáfátt eitt talið af þeim aragrúa viðfangsefna sem hagfræðingurinn lætur sig varða. Ármúli 36, sími 83195 HELGARPÓSTURINN 21

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.