Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 03.12.1983, Qupperneq 24

Helgarpósturinn - 03.12.1983, Qupperneq 24
Fúxar í skóla dúxar í lífinu Davfð Oddsson, 6.15 Olga Guðrún Arna- dóttir, stúdent frá MR 1973. III. eink- unn 5.89 Á stórhátíðum og tyllidögum dusta skólameistarar gamla Menntaskólans í Reykjavík gjarna af sér rykið og minnast helstu afreksmanna sem skólinn hef- ur alið. Þá er það oftlega tíundað fyrst að skólinn hafi átt í hópi nemenda sinna tvo nóbelsverðlaunahafa, sem hlýtur að vera á heimsmœlikvarða. En hitt er ef til vill á heimsmœlikvarða líka hversu skólanum var fyrirmunað að koma auga á nóbelshæfileika þessara ungmenna. Hinn fyrri, Níels Finsen, síð- ar heimsfrœgur Ijóslæknir í Kaupmannahöfn, mun hafa setið nálega tvö ár í hverjum bekk. Hinn síðari, Halldór Laxness, hvarf að eigin sögn úr skóla til að leita sér menntunar. Af Ólafi Thors forsætisráðherra, sem talinn var einn mestur stjórnsnillingur sinnar tíðar, er sú saga að hann hafi eitt sinn setið veislu þar sem hallað var orði á þáverandi biskup, Sigurgeir Sigurðsson. Þá er sagt að Ólafur hafi kall- að fram í: Talið ekki illa um biskupinn í mín eyru. Hann kom í veg fyrir að ég yrði neðstur á stúdentsprófi! Tómas Guðmundsson skáld fékk núll í stærðfræði á stúdentsprófi. En þá voru líka sextán skáld í bekk og sitthvað til að glepja hugann — skáldskapur, stelpur, vín, gáfur. Þegar skólaskýrslum er flett má glögglega sjá að ekki er einhlít fylgni milli prófborðsafreka og þess sem menn vinna sér til frægðar eða ófrœgðar síðar á ævinni. Hvernig ætti slíkt enda að vera? I skólastofunni þykir sá mestur sem getur sogið í sig einhver ósköp af bókviti og skilað því síðan aftur á prófi orð- rétt, stafrétt og með punktum og kommum. Þá er ekki alltaf víst að skóla- meistarar kanni hvort glampa hins djúpa skilnings megi sjá í augum þess sem prófaður er. Sumir finna fullnægju í því sem fyrir þá er lagt í skóla, aðrir ekki. það er náttúrlega spurning um allt í senn: vitsmuni, þroska og upplag. En þegar menn ganga síðan út úr skólanum og út í landsynning mannlífsins reynir auðvitað á ýmislegt sem ef til vill var ekki rúmfrekt í skólanum — frjóa hugsun, framtakssemi, sjálfstæði og kannski ekki síst frumleika. Dúxinn end- ar þá máski sem skrifstofublók, en fúxinn sem forsætisráðherra. „Hvað varð af dúxunum?“ hét grein sem birtist í Helgarpóstinum fyrir nokkru. Nú skyggnumst við undir steininn og spyrjum: Hvað varð af fúx- unum? Við ræðum við fimm þjóðkunnar persónur sem eiga það sammerkt að hafa lokið stúdentsprófi við lítinn orðstír. Ómar Ragnarsson Ein mennta- skóla- martröð á ári Ég var dúx í gaggó, en þegar ég kom í menntaskóla fór ég að fá áhuga á allt öðrum hlutum. Það var bara svo margt skemmtilegt sem maður kynntist í menntó. Ég fór að skemmta og sprella úti um allan bæ, var á kafi í leikstarfinu í Herranótt og byggði mér þar að auki íbúð meðan ég var í skólanum. Námið sat algjörlega á hakanum og seig frekar á ógæfuhliðina eftir því sem á leið. Til að bæta gráu ofan á svart álpaðist ég líka í vitlausa deild, fór í stærðfræðideild, en hefði sennilega átt miklu betur heima í máladeild. 24 HELGARPÓSTURINN Þetta hafðist nú allt saman og eftir á að hyggja er maður ósköp þakklát- ur fyrir að hafa dólað í gegnum þennan skóla. Enda var þetta ákaf- lega skemmtilegur skóli. — Mannstu nokkuö huaðþú uarst með í einkunn? Nei, blessaður vertu, ég er búinn að steingleyma því. Ég man bara eftir frönskueinkunninni. Ég held að það sé alveg víst að ég var lang slakastur í frönsku. Samt náði ég 5.8 á prófinu, sem mér fannst alltof mikið miðað við kunnáttuna. Ég átti ekki von á nema svona 2—3. Ég held að franskan sé það fag sem sit- ur minnst eftir í mér úr skóla. — Huernig gekk þá sambandið við lœrifeðurna fyrir sig? Við Guðni Guðmundsson vor- um... nei, bað er kannski fullsterkt að segja fjandvinir, en við höfðum ákaflega gaman hvor af öðrum og áttum margar góðar stundir saman. Samt held ég að Guðna hafi þótt svolítið miður hvað ég sló slöku við í frönskunni. Ég veit að honum þótti það ganga úr hófi fram þegar ég var eitt sinn að bjástra eitthvað við þýskar glósur fyrir framan hann í frönskutíma. Það var einhver sú mesta óvirðing sem ég gat sýnt þessu fagra máli. En ég hef oft kom- ið niðrí skóla síðan þá og hitt mína gömlu kennara og ekki orðið var við að þeir líti mig neinum fyrirlitn- ingaraugum þótt ég hafi ekki sópað saman háum tölum og verðlaunum. Mer finnst alltaf jafngaman að koma niðH menntaskóla. Núna um daginn þegar afmæli Framtíðarinn- ar var haldið kom ég keyrandi á ná- kvæmlega eins bíl og fyrir 25 árum. Þá fannst Guðna hann vera orðinn ungur í annað sinn. Einu sinni var þessi bíll — það var minnsti bíll á ís- landi — nefnilega borinn inn í bak- dyrnar á skólanum þannig að hann lokaði allri umferð inn og útúr hús- inu. Ég sat blásaklaus uppi í bekk þegar þáverandi rektor kom til mín ákaflega þungbrýnn yfir þ^ssu og hélt að ég hefði lagt bílnum svona. Þetta var í eina skiptið sem rektor gerði sér ferð inn í tíma til að taka mig til bæna fyrir prakkarastrik, og þá var ég saklaus eins og barn. En það voru auðvitað önnur skipti sem maður gerði sitthvað af sér. Á 100 ára afmæli Framtíðarinnar söng ég einmitt vísurnar um frímín- úturnar, um nemandann sem er að reyna að lesa undir próf í frímínút- unum. Þessar sömu vísur söng ég líka fyrir 25 árum á 75 ára afmæli Framtíðarinnar. Það er greinilegt að námið í skólanum hefur litlum breytingum tekið, því vísurnar féllu í nákvæmlega sama jarðveg nú og þá. Menn könnuðust við fyrirbrigð- ið, nemandann sem ætlar sér að læra heila námsgrein í frímínútun- um. Jú jú, ég var svoleiðis nemandi, stundum. — Sérðu ekkert eftir þuí að hafa tekið suona lágt stúdentspróf? Ég skal segja þér það að svona einu sinni á ári dreymir mig að ég sé kominn aftur í menntaskólann, sest- ur á skólabekk á ný og ætli að gera þetta allt miklu betur. Flestir leikar- ar fá eina leikaramartröð á ári, dreymir að þeir standi uppá sviði og kunni ekki neitt. Ég fæ eina leikara- martröð á ári og eina menntaskóla- martröð og mun sennilega fá þetta svo lengi sem ég lifi. Segið svo að menntaskólinn geti ekki eflt með mönnum ábyrgðartilfinningu sem endist jafnvel út yfir gröf og dauða! Davíð Oddsson Skólahaldið byrjaði í lagadeildinni Jú, ég var víst í lægri kantinum á stúdentsprófi. Á þessum árum var ég svo upptekinn af félagslífinu að ég mátti lítið vera að því að læra, ég var forseti Herranætur í fimmta bekk og Inspector Scholae í sjötta bekk. Við vorum þarna nokkur hóp- ur sem ekki lagði neina yfirmáta áherslu á námið; þar má nefna Hrafn Gunnlaugsson og Vilmund Gylfason. Það var ekki fyrr en við vorum komnir út á okkar framtíðar- brautir síðarmeir að við fórum að leggja okkur fram — ég í lögfræð- inni, Hrafn í leikhúsfræðinni og Vil- mundur í sagnfræðinni. Þá held ég að við höfum allir tekið ágætis próf. Mitt eiginlega skólahald byrjaði í rauninni ekki fyrr en í lagadeild og þaðan er ég brautskráður með góða fyrstu einkunn. Svo má ekki heldur gleyma því að ég vann meðfram skólanum alla mína tíð, gerði það allt frá því ég var í öðrum bekk í gagnfræðaskóla. — Iðrastu þess aldrei að hafa ekki sýnt meiri tilþrifí menntaskólanám- inu? Jú, það kemur fyrir. Ég hefði gjarnan mátt leggja meiri rækt við námið. Áhuginn vaknaði hins vegar ekki fyrr en ég fór að stunda laga- nám og lítið við því að gera. — Huernig uar samkomulagið uið lœrifeðurna? Það var alltaf gott. Rektor, sem þá var Einar Magnússon, sýndi félags- málavafstrinu í mér alltaf mikinn skilning. Því er líka þannig háttað í sjötta bekk að Inspector Scholae hefur leyfi frá skólaskyldu eins og honum hentar. Ég býst við að ég hafi notfært mér það heldur meira en góðu hófi gegndi. Olga Guðrún Árna- dóttir Stærðfræði- idjót Ég hafði bara öðrum hnöppum að hneppa, engan tíma til að vera í þessum skóla og takmarkaðan áhuga á þessu öllu. Mjög fljótlega eftir að ég byrjaði í menntaskóla gerði ég það upp við mig að ég ætl- aði að láta mér nægja að skríða og nota tímann til annars. En á þeim árum þótti vist heldur slakt að hafa ekki stúdentspróf, svo ég lét mig hafa þetta í þeirri trú að það gæti komið að einhverju gagni seinna meir. Samt var ég alltaf viss um að ég færi aldrei út i háskólanám af nokkurri alvöru. Þetta var dálítið skrautlegur ferill hjá mér. Ég byrjaði í MR, fór svo uppí MH og svo aftur niðrí MR. Það var eiginlega allt stærðfræðinni að kenna. Þeir heimtuðu að ég næði fjórum í Hamrahlíðinni, en í MR nægði mér einn og á því flaut ég á endanum. Ég var alveg voðalegt stærðfræðiidjót, ég veit ekki hvað ég féll oft á sama stærðfræðipróf- inu. Ég lækkaði og lækkaði og lækkaði í einkunn eftir því sem ég tók það oftar og var á endanum komin niður fyrir einn. Svo var ég felld um heilan bekk út af þessu bölvaða stærðfræðiprófi. Það var gamla sagan, ég sat eftir á botninum þrátt fyrir aukatíma og námskeið. Ég var líka alveg blýföst í þeirri trú að ég mundi aldrei þurfa að nota stærðfræði til eins né neins. Mér

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.