Helgarpósturinn - 03.12.1983, Page 28

Helgarpósturinn - 03.12.1983, Page 28
A........... komin milli Arnarflugs og Flug- leiöa vegna sameiginlegs trygg- ingasamnings félaganna erlendis. Flugfélögin hafa haft þann háttinn á að tryggja vélar sínar og fleira sam- eiginlega til að ná hagstæðari samn- ingum. Flugleiðir hafa sem stærri aðilinn haft þessa samninga með höndum, en Arnarflug greitt sín ið- gjöld til Flugleiða, sem svo aftur greiða hinu erlenda tryggingafé- lagi. Nú er komin upp sú staða að Arnarflugsmenn telja sig hafa greitt óeðlilega hátt hlutfall af hinni sam- eiginlegu upphæð. Þeir gera kröfu um að Flugleiðir samþykki að Arnarflug hafi greitt sem nemur hátt á annað hundrað þúsund doll- urum eða á fimmtu milljón ísl. króna umfram og þessa upphæð eigi félagið þar með inni hjá Flug- leiðum. Viðræður fara nú fram um þetta mál milli forráðamanna flug- félaganna... fengið óyggjandi staðfestingu á þeirri frétt Þjóðviljans að lofgjörð Indriða G. Þorsteinssonar um Þorstein Pálsson sem birtist í Morgunblaðinu hafi verið ritskoðuð út úr Svarthöfðadálkum DV. Fréttin er rétt í öllum meginatriðum, þrátt fyrir undanbrögð Indriða og rit- stjóra DV. Indriði kom í eigin per- sónu á ritstjórn DV um kl. 5 síðdegis þennan dag og tók greinina. Morg- uninn eftir birtist hún lítið breytt í Morgunblaðinu. Talið er að þrátt fyrir þennan árekstur muni Indriði snúa aftur síðar, enda vellaunað starf... A .. _ leiks nýr dálkahöfundur sem nefnir sig Dagfara á síðum DV. Auðvitað eru menn farnir að spá í hver felist á bak við þetta nafn og hefur HP fyr- ir satt að a.m.k. fyrstu dagana haldi enginn annar en Ellert Schram rit- stjóri um pennann... s_. Reykjavíkur er nú laus, en svo sem kunnugt er lést Eiríkur Ásgeirsson fyrir skömmu. Menn velta því nú fyrir sér hver muni verða eftirmað- ur hans og hefur heyrst hvíslað að formaður stjórnar SVR, Sveinn Björnsson, komi sterklega til greina... ÍE inhvern næstu daga verður ákveðið hverjir verða umsjónar- menn þátta á Rás 2. Margir hafa verið kallaðir en aðeins um 15 verða útvaldir. Ekki er talið ólíklegt að meðal hinna útvöldu verði eftir- taldir: Ólafur Þóröarson, Arn- þrúður Karlsdóttir, Páll Þor- steinsson, Hermann Gunnars- son, Jónatan Garðarsson, Guð- jón Arngrímsson (okkar Gaui), Ásgeir Tómasson, Sigurður Sverrisson, Helgi Már Barðason og Þorvaldur Þorsteinsson. Út- varpsráð á enn eftir að leggja bless- un sína yfir þættina og umsjónar- menn þeirra... D ■ m.eykjavíkurborg mun binda nokkrar vonir við það að fjárhagserfiðleikar hennar undan- farið, sem m.a. stafa af því að hinar umdeildu lóðir við Grafarvog hafa ekki gengið út, muni minnka veru- lega þegar eftirspurn eftir þessum lóðum vaknar, m.a. vegna hækk- aðra húsnæðisstjórnarlána. Þó kann svo að fara að eitthvað kunni að standa á þeirri eftirspurn. Við heyrum að nú hafi komið á daginn að jarðvegurinn á þessu svæði við Grafarvoginn sé meira og minna með þeim hætti að væntanlegir lóðareigendur veröi að sprengja sig niður á skolplagningardýpt með miklum tilkostnaði... H^^nn er upp nöfnum varðandi arftaka Brynjólfs Bjarnasonar í framkvæmdastjóra- stöðu hjá Almenna bókafélaginu. Nú heyrum við að innan félagsins sé að nást samstaða um Kristján nokkurn Jóhannsson sem starfað hefur sem hagfræðingur hjá Félagi íslenskra iðnrekenda... s~: mikinn áhuga á því að sjónvarpa beint frá tilkynningu úrslita í for- mannskjöri í Sjálfstæðisflokknum, en af því gat ekki orðið þar sern búið var að ákveða löngu áður beina út- sendingu frá guðsþjónustu í tilefni Lúthersársins... ■ ú líður vart svo dagur að stjórnarflokkarnir séu ekki staðnir að verki við að hygla flokks- gæðingum sínum með embættis- veitingum. Framsóknarflokkurinn er enn við sama heygarðshornið að þessu leyti og nú í félagsmálaráðu- neytinu hjá Alexander Stefáns- syni. Þar var nýlega auglýst eftir fulltrúa i vinnumáladeild. Fjöldi manns sótti um stöðuna, þ.á m. einn með háskólapróf í vinnu-félags- fræði, svo að segja klæðskerasaum- aða menntun í fulltrúastöðuna. En hann var auðvitað ekki ráðinn. Á meðal umsækjenda var Gylfi Kristinsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Sambands ungra framsóknarmanna. Hann var ráð- inn. Miðað við núverandi samskipti ríkis og verkalýðshreyfingar var ráðningin kannski ekki svo mjög út í hött. Gylfi stundaði nám í viðskipt- um og stjórnmálum austantjalds- ríkja... B _ kvæmdastjóra Listahátíðar, hefur verið veitt þriggja mánaða veik- indafrí. í forföllum Bjarna hefur nú Guðbrandur Gíslason bókmennta- fræðingur tekið við sem fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar... v ■■ið seljum þessa ekki fok- dýrt: Fyrir skömmu mun hafa orðið nokkur umræða innan bæjarstjórn- arinnar á Sauðárkróki um frammi- stöðu lögreglunnar á staðnum. Þótti ýmsum bæjarfulltrúum að í lög- gæslu væri ekki nægilega vel að verki staðið og sætu lögregluþjónar óhóflega mikið inná stöð við skák og spil. Samþykkti bæjarstjórn loks ályktun um þetta efni. Nokkru síðar var haldinn Rótarý-fundur á Krókn- um með kvöldverði og hugguleg- heitum og mættu þar vitaskuld helstu forkólfar bæjarstjórnarinnar. Þá bregður svo við að lögregluþjón- ar sjást á hverju horni um kvöldið og taka hvern bílinn af öðrum vegna gruns um ölvun við akstur. Ekki er vitað til þess að löggæslu- mál hafi borið á góma í bæjarstjórn Sauðárkróks síðan... J_ framkvæmdastjóri bókabúðar Máls og menningar, hefur mætt and- stöðu innan félagsins og mun bráð- lega láta af störfum. Heyrst hefur að Árni Einarsson, ungur maður sem sér um erlendar bækur M&M, muni hljóta starf Jónsteins en Árni sótti fast að fá framkvæmdastjórastöðu útgáfufélags M&M sem Ólöf Eldjárn valdist í... KARABISKA HAFIÐ 28. janúar tií 13. febrúar 1984 í tvær vikur veröur siglt með Maxim Corki frá einni stórkostlegri paradís til annarrar. Komiö veröur til eyja, sem enn þann dag í dag eru kenndar við Ind- land og draga nafn sitt að því, Vestur-lndíur, sökum þess að landkönnuður sá, sem fann þær taldi sig vera á Indlandi. Viðkomustaðir: Nassau, Cap Haitien, Haiti, Puerto Plata, Dóminiska lýðv. To- tola, Jómfrúareyjum, Philipsburg, Barbados, St. Maarten, Roseau, Dóminíska lýðveldinu, Britgetown, Barbados, St. George’s Grenada. Porlamar, Margarita- eyjum, La Guaíra, Venezuela, Willemstad, Curacao, Montego Bay, Jamaica. Ferðalagið allt, sem tekur 17 daga, kostar kr. 58.900,- að viðbættum flugvallarskatti. Innifalið er: Flug fram og til baka, þrjár gistinætur í New York með morgunmat. Skemmtisiglingin í 15 daga með fullu fæði. Allt miðað við gistingu í tvíbýli. Ofangreint verð miðast við gengi DEM 22.09. ’83. Möguleiki er á að bæta við dvölina í New York, ef óskað er. o<sr « FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu Hallveigarstígl.Símar 28388 og 28580 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.